Landsréttur
Dómur föstudaginn 27. september 2019.
Lykilorð
Útdráttur
B krafðist þess að A yrði sviptur forsjá tveggja barna sinna á grundvelli a- og d-liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í forsjárhæfnismati sem lá fyrir í málinu kom fram að forsjárhæfni A væri verulega ábótavant, hann hefði vanrækt alvarlega daglega umönnun og uppeldi barnanna með hliðsjón af aldri þeirra og þroska og að ekki væri líklegt að breyting væri að verða þar á. Með vísan til matsins, vitnisburða og gagna málsins þótti ljóst að skilyrði fyrir forsjársviptingu væri fullnægt og að önnur og vægari úrræði kæmu ekki að haldi. Var krafa B því tekin til greina.
Dómur Landsréttar
Mál þetta dæma landsréttardómararnir Aðalsteinn E. Jónasson, Eiríkur Jónsson og Ragnheiður Harðardóttir.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Áfrýjandi skaut málinu til Landsréttar 24. júlí 2019. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Vestfjarða 12. júlí 2019 í málinu nr. E-[...]/2019.
- Áfrýjandi krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar fyrir Landsrétti án tillits til gjafsóknar sem honum hefur verið veitt.
- Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms.
Niðurstaða
- Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur.
- Málskostnaður verður ekki dæmdur. Um gjafsóknarkostnað fer eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Hinn áfrýjaði dómur skal vera óraskaður.
Málskostnaður fyrir Landsrétti fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, A, fyrir Landsrétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hans, Oddgeirs Einarssonar, 800.000 krónur.
Dómur Héraðsdóms Vestfjarða, föstudaginn 12. júlí 2019
Mál þetta, sem höfðað var 18. mars sl. með með áritun lögmanns stefnda um birtingu réttarstefnu, sem útgefin var sama dag, var dómtekið að lokinni aðalmeðferð 24. júní sl. Málið sætir flýtimeðferð samkvæmt ákvæðum 53. gr. b í barnaverndarlögum nr. 80/2002, sbr. XIX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Stefnandi barnaverndarnefnd B, kt. […], […], […]. Stefndi er A, kt. […], með lögheimili að […], […] Stefnandi krefst þess að stefndi verði sviptur forsjá barna sinna, C, kt. […], og D, kt. […], sbr. a- og d- lið 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Stefndi krefst sýknu og málskostnaðar úr hendi stefnanda eins og málið væri eigi gjafsóknarmál.
I
Mál þetta snýr að börnunum C, sem er […] ára gömul, og bróður hennar, D, sem er á […] ári. [...]. Fjölskyldan bjó fyrstu árin á […] en flutti til […] þegar börnin voru um […]. Þar bjuggu börnin í um eitt ár, en faðir þeirra fór fljótlega til […] og móðir þeirra á eftir honum. Voru börnin þá í umsjá vinafólks í […] þar til þau fóru til […]. Þar bjuggu börnin þar til foreldrar þeirra skildu 2015. Eftir skilnaðinn hefur stefndi farið einn með forsjá barnanna en móðir þeirra býr í […]. Stefndi flutti með börnin til Íslands [...] 2015. Bjuggu þau fyrst í […] og síðan á […] en [...] fluttu þau […].
Afskipti barnaverndaryfirvalda af málefnum barnanna hófust í lok árs 2015. Í mars 2016 höfðu barnaverndaryfirvöldum borist fjórar tilkynningar um fátækt fjölskyldunnar, áfengisneyslu og vanrækslu föður gagnvart börnunum. Voru börnin fyrst send í fósturvistun í kjölfar þessa í mars 2016 fram í apríl sama ár, meðan stefndi leitaði sér meðferðar við áfengissýki. Síðan hafa börnin ítrekað verið vistuð utan heimilis í lengri og skemmri tíma og er núverandi vistun þeirra sú sjöunda frá þeim tíma. Í þeirri vist hafa þau dvalið frá [...] 2018. Mál barnanna hafa heyrt undir þrjár barnaverndanefndir á þessum tíma.
Eftir að barnaverndarmál stefnda fluttist til stefnanda [...] 2018 var fyrst gert samkomulag við hann um meðferð máls í september það ár, sem skyldi gilda fram á árið 2019, en þá höfðu börnin verið hjá föður sínum frá því í lok júní 2018. Stefndi greindi stefnanda frá því 4. október 2018 að hann hygðist fara til […] og dvelja þar frá 13. til 21. október. Kvað hann móðurbróður barnanna mundu dvelja hjá þeim á meðan og þau færu í mat til ömmu sinnar. Mánudaginn 22. október barst stefnanda tölvupóstur frá Grunnskólanum […], þess efnis að stefndi hefði tilkynnt að börnin kæmu ekki í skólann fyrr en 5. nóvember, þar sem þau væru í […]. Ekki hafði verið óskað eftir leyfi frá skólanum vegna þessa. Fjórum dögum síðar barst barnaverndanefnd tilkynning undir nafnleynd um að börnin hefðu dvalist í Reykjavík og áhyggjur væru hafðar af því að stefndi hefði aðeins keypt flug fyrir þau utan en ekki heim aftur. Þann 29. október mætti D í skólann en ekki systir hans, sem þó reyndist vera komin aftur heim til […]. Höfðu börnin farið til Reykjavíkur með ættingja sínum og átt að gista hjá kunningja fjölskyldunnar. Það gekk hins vegar ekki eftir og höfðu þau þá fengið að dvelja hjá kærasta C þessa viku, þar til þau fengu far aftur heim. Ekki náðist samband við stefnanda í tengslum við þetta.
Stefndi var fluttur á sjúkrahús […] 2018 vegna hjartaverks og var þá ölvaður. Stefndi var á sjúkrahúsi til 16. sama mánaðar, er hann útskrifaði sig sjálfur gegn læknisráði. Á meðan höfðu börnin verið í umsjón móðurömmu sinnar. [...] að börnunum viðstöddum. Var hann undir áhrifum áfengis er það gerðist. Samkvæmt skýrslu lögreglu sem kom á staðinn var mikill skortur á hreinlæti á heimilinu er að var komið og vart verjandi að bjóða börnum upp á að búa þar. Var börnunum enn komið fyrir hjá móðurfjölskyldu þeirra er þarna var komið sögu. Mánudaginn […] voru börnin komin aftur til síns heima, til föður síns sem hafði útskrifað sig sjálfur af sjúkrahúsi. Þá mættu börnin ekki til skóla.
Stefndi gekkst undir áætlun um meðferð máls samkvæmt 23. gr. barnaverndarlaga 20. nóvember 2018. Þar samþykkti hann tímbundna vistun barnanna á fósturheimili í tvo mánuði, meðan hann lyki læknismeðferðum, sem læknar hefðu mælt fyrir um, og færi í áfengismeðferð eða ynni markvisst að því að halda sig alveg frá áfengisneyslu. Fljótlega eftir það fór stefndi til […] þar sem hann dvelur enn með unnustu sinni.
Stefnandi var í samskiptum við stefnda með tölvupósti í upphafi árs 2019 um framhald málsins og símafundur var haldinn með stefnda um mál hans 5. febrúar 2019. Samkvæmt fundargerð þess fundar kvaðst stefndi þá eiga pláss á Vogi 17. febrúar í 10 daga meðferð og kvaðst vilja aðstoð og að börnin yrðu vistuð í eitt ár til að hann hefði tíma til að koma sér upp húsnæði og stöðugleika. Á fundi nefndarinnar síðar sama dag var tekin ákvörðun um að gera kröfu um þá forsjársviptingu sem mál þetta lýtur að.
II
Málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi byggir kröfu sína um forsjársviptingu á því að uppfyllt séu skilyrði a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fullvíst sé, með hliðsjón af gögnum málsins og forsögu þess, að líkamlegri og andlegri heilsu barnanna sé hætta búin fari stefndi með forsjá þeirra, auk þess sem daglegri umönnun þeirra sé alvarlega ábótavant. Stefnandi telur stuðningsaðgerðir á grundvelli barnaverndarlaga ekki duga til að tryggja öryggi barnanna og fullnægjandi uppeldisskilyrði til frambúðar á heimili stefnda. Þrátt fyrir yfirlýsingar stefnda um vilja til samstarfs virðist hann hvorki hafa úthald né getu til að framfylgja forsjárskyldum sínum. Í því samhengi skipti aldur barnanna ekki máli, þau þarfnist eftir sem áður umhyggju, öryggis og hlýju. Ítrekaðar tilraunir og afskipti barnaverndaryfirvalda til þess að reyna að aðstoða stefnda hafi ekki gagnast. Telur stefnandi gögn málsins sýna svo ekki verði um villst að daglegri umönnun, uppeldi og andlegri heilsu barnanna sé hætta búin sökum þess að stefndi sé augljóslega vanhæfur til að fara með forsjá þeirra vegna veikinda sinna og áfengissýki.
Þá bendir stefnandi á að mál barnanna hafi verið til meðferðar hjá öðrum barnaverndarnefndum frá árinu 2015, eins og gögn málsins beri með sér, ítrekaðrar tilkynningar um áfengisneyslu og vanrækslu stefnda gagnvart börnunum.
Stefnandi telur stuðningsaðgerðir í því skyni að bæta forsjárhæfni stefnda fullreyndar. Leitast hafi verið við að eiga góða samvinnu við stefnda og beita eins vægum úrræðum og unnt hafi verið hverju sinni. Mikill og margvíslegur stuðningur fagaðila í fleiri ár hafi litlum sem engum árangri skilað, stefndi nái ekki, þrátt fyrir það, að tryggja börnunum viðunandi umhverfi og líðan. Daglegri umönnun barnanna sé verulega ábótavant og heilsu þeirra og þroska hætta búin vegna alvarlegs fíknivanda stefnda og heilsuleysis.
Telur stefnandi að hafa verði hagsmuni barnanna að leiðarljósi og virða rétt þeirra til þroskavænlegra aðstæðna. Það sé mat stefnanda að það þjóni hagsmunum þeirra best að búa við stöðugleika og öryggi, sbr. 3. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Mikil og óforsvaraleg áhætta felist í því að láta stefnda fara með forsjá barna sinna. Þá telur stefnandi önnur og vægari úrræði en forsjársviptingu ekki tæk, þar sem brýna nauðsyn beri til að skapa börnunum öryggi og stöðugleika til frambúðar og þá umönnun sem þau eigi rétt á lögum samkvæmt. Stuðningsúrræði sem stefnandi hafi yfir að ráða nægi ekki í því sambandi. Þá hafi vægustu ráðstöfunum alltaf verið beitt til að ná fram markmiðum stefnanda og krafa stefnanda nú sé sett fram samkvæmt fortakslausu ákvæði 1. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Meðalhófs hafi verið gætt í hvívetna við meðferð málsins og ekki gripið til viðurhlutameiri úrræða en nauðsyn hafi verið til. Þá vísar stefnandi til frumréttinda barna og almennrar skyldu foreldra sem lögfest er í 2. mgr. 1. gr. barnaverndalaga. Forsjárréttur foreldra takmarkist af þeim mannréttindum barna að njóta forsvaranlegra uppeldisskilyrða. Þegar hagsmunir foreldris og barns vegist á skuli líta til þeirrar grundvallarreglu íslensks barnaréttar að hagsmunir barnsins, það sem því sé fyrir bestu, skuli vega þyngst á vogarskálunum. Þá sé hinu opinbera skylt að veita börnum vernd. Um þetta vísar stefnandi til stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, barnaverndarlaga og ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Einnig til 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979.
III
Málsástæður og lagarök stefnda
Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að meintir annmarkar á forsjáhæfni hans séu ekki í samræmi við þau gögn sem liggi þeim til grundvallar. Þá sé að finna gögn í málinu þar sem fullyrt sé um atvik máls undir nafnleynd. Þær fullyrðingar geti ekki talist sannaðar þótt opinber aðili hafi skráð þær niður. Fráleitt sé að slaka á almennum sönnunarkröfum sem endranær gildi í einkamálum í máli sem þessu. Staðhæfingar stefnanda í þessu efni séu því að mestu leyti ósannaðar.
Hvað varðar málsmeðferð og vinnubrögð barnaverndaryfirvalda byggir stefndi á því að brotið hafi verið gróflega á friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu sinnar með aðgerðum barnaverndaryfirvalda [...] sem hafi verið í andstöðu við barnarverndarlög, stjórnsýslulög og jafnvel hegningarlög.
Stefndi kveður ástæður þess að börn hans hafi verið í viku í Reykjavík meðan hann var í […] eiga sér skýringar sem ekki sé að rekja til sín og sömuleiðis fjarvist dóttur hans úr skóla. Telur stefndi vinnubrögð barnaverndaryfirvalda stefnanda til þess að komast inn á heimili sitt, þ.e. í fylgd sonar stefnda, óforsvaranleg og ólögmæt. Þá telur stefndi þeim staðreyndum ekki gerð skil í málinu að hann hafi óskað eftir að börnin yrðu ekki vistuð hjá systur hans vegna þeirra aðstæða sem þar séu.
Stefndi byggir á því að sterk tengsl séu milli sín og barnanna, eins og gögn málsins beri með sér, og skýr vilji og afstaða barnanna muni koma fram undir rekstri málsins. Stefndi byggir á því að skilyrðum 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sé ekki fullnægt. Til þess að unnt sé að svipta stefnda forsjá á grundvelli a- eða d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga þurfi hann augljóslega að vera vanhæfur til að fara með forsjá og „fullvíst“ að líkmlegri eða andlegri heilsu barnsins eða þroska sé hætta búin í umsjá hans. Sönnunarbyrði fyrir því að svo sé hvíli á stefnanda sem ekki hafi axlað hana nægilega.
Þá byggir stefndi á því að málið sé ekki nægilega upplýst, sbr. skyldur stefnanda í því efni samkvæmt 1. mgr. 41. gr. barnarverndarlaga nr. 80/2002, 1. mgr. 56. gr. s.l. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ákvörðun í máli hans hafi verið tekin áður en málið var nægilega upplýst og slíkt brot á rannsóknarreglu eigi að leiða til ógildingar þeirrar stjórnvaldsákvörðunar.
Þá byggir stefndi og á því að meðalhófs hafi ekki verið gætt í málinu, sbr. 2. mgr. 29. gr. barnarverndarlaga og 12. gr. stjórnsýslulaga. Skylt hefði verið að beita vægara úrræði en forsjársviptingu í málinu. Ýmis úrræði og stuðning hefði mátt og megi enn veita stefnda til að styrkja forsjárhæfni hans. Þá sé auk þess unnt að fara þá leið að vista drenginn utan heimilis í allt að 12 mánuði á grundvelli 28. gr. barnaverndarlaga í stað þess að svipta stefnda forsjá. Brot á meðalhófsreglu leiði til þess að ógilda beri ákvörðunina.
Þá telur stefndi málsmeðferð stefnanda fara gegn 6. mgr. 4. gr. barnarverndarlaga nr. 80/2002, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Mál hans hafi ekki fengið sömu meðferð og annarra í sambærilegri stöðu.
IV
Skýrslur fyrir dómi Stefndi kom fyrir dóminn og kvaðst hafa flutt einn með börnin til […] árið 2015 þar sem hann hefði fengið vinnu á vöktum. Það hefði haft í för með sér vandkvæði sem leiddu til afskipta barnaverndaryfirvalda. Kvaðst hann ekki sammála öllu sem barnaverndaryfirvöld […] héldu fram. Því hefði verið haldið fram að hann hefði verið að drekka en hann hefði aðeins drukkið eins og „eina rútu af bjór“ um helgi sem væri ekki mikið. Þá kvaðst stefndi ekki hafa drukkið áfengi síðan hann fór til […].
Um aðdraganda þessa máls sagði stefndi að hann hefði fengið tövupóst frá barnaverndarnefnd þar sem honum hefði verið stillt upp við vegg. Hann hefði þá greint frá því að hann hefði ekki efni á lögfræðingi. Hann hefði óskað eftir því að börnin yrðu send í ársfóstur til þess að hann gæti gert eitthvað í málunum, aflað fjár og náð heilsu. Stefndi upplýsti að hann hefði flutt til […] í nóvember sl. þar sem hann byggi nú með konu. Þau búi í lítilli þriggja herbergja en rúmgóðri íbúð ásamt tveimur sonum konunnar. Stefndi kvaðst vera miklu betri til heilsunnar nú en áður. Um tengsl sín við börnin kvað hann þau ágæt. Stefndi kvað dóttur sína vilja halda áfram í námi og vera með kærasta sínum og hann vildi ekki standa í vegi fyrir því. Hvað D varðaði teldi hann betra að drengurinn væri hjá sér. Hann ætti nú konu og það væri betra að hugsa um börn með henni. Stefndi kvaðst telja að börnunum myndi líða betur hjá sér en í fóstri, þar skipti öllu máli að hann væri faðir þeirra. Aðspurður um það hvers vegna mál þetta væri tilkomið kvaðst stefndi ekki vita það. Stefndi taldi sig þó hafa brugðist börnum sínum þegar hann var að drekka. Stefndi kvaðst hafa verið samvinnuþýður gagnvart barnaverndaryfirvöldum.
Aðspurður um framtíðaráform sín kvaðst stefndi sjá framtíðina fyrir sér hér á landi með fjölskyldu sinni, konu sinni og hennar börnum, þótt óvíst væri hvenær það yrði. Til þess þyrfti hann peninga sem hann ætti ekki […]. Stefndi taldi drenginn ráða við að flytja til […], enda væri hann góður í ensku. Stefndi kvaðst ekki vera í vinnu þar sem hann væri veikur. Hann hefði ekki farið í meðferð á síðastliðnu ári en sækti AA-fundi.
E, varaformaður barnaverndarnefndar B, gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins. Vitnið upplýsti að rætt hefði verið við stefnda í síma í tengslum við ákvörðun í máli hans. Talin hefði verið þörf á að stöðva óvissu í lífi barnanna. Stefndi hefði beðið um vistun þeirra í ár meðan hann tæki á sínum málum. Hann hefði m.a. ætlað að fara í meðferð. Hún taldi það hafa verið mat nefndarinnar að útilokað væri að beita vægari úrræðum að teknu tilliti til forsögu málsins og hagsmuna barnanna.
F, deildarstjóri barnaverndar B, kom fyrir dóminn. Vitnið greindi frá því að mál stefnda hefði flust til nefndarinnar [...] 2018. Fyrsta tilkynning um áfengisneyslu stefnda hefði borist nefndinni um miðjan september 2018. Hann hefði þá verið heimsóttur og gerð áætlun um meðferð máls sem skyldi gilda í fimm mánuði. Áætlunin hefði falist í tilsjón, sálfræðiviðtölum fyrir C, áskilnaði um edrúmennsku stefnda og ýmsu öðru hefðbundnu. Þá hefði stefndi átt að funda vikulega með vitninu. Hann hefði komið þrisvar sinnum og svo greint frá því að hann væri að fara til […] í tvær vikur. Ferðin hefði í upphafi sýnst ágætlega undirbúin af hálfu stefnda en annað hefði komið á daginn. Nefndin hefði haft spurnir af því að börnin væru farin til föður síns í […] en þau hefðu svo reynst vera í Reykjavík í viku, eða þar til þau fengu far […]. Stefndi hefði svo komið í viðtal hjá sér 5. nóvember og greint sér frá því að hann ætti unnustu í […].
Vitnið greindi frá tilkynningu […] 2018 er stefndi fór á sjúkrahús vegna hjartaverks og var þá undir áhrifum áfengis. Viku síðar [...]. Hefðu börnin þá verið tekin af heimilinu. Mikil óreiða hefði verið á heimilinu og þau haldið til í stofunni. Stefndi hefði þá samþykkt vistun barnanna í tvo mánuði. Börnin hefðu þá verið vistuð á heimili þar sem þau höfðu áður verið í fóstri, að þeirra ósk. Gerð hefði verið önnur áætlun um meðferð máls með stefnda og í kjölfar þess hefði hann farið aftur til […] þar sem hann væri enn. Vitnið kvað erfitt hafa verið að ná sambandi við stefnda. Það hefði ekki tekist fyrr en starfsmaður barnaverndanefndar setti sig í samband við hann gegnum persónulegan aðgang sinn á samskiptamiðlinum Messenger. Vitnið kvaðst hafa farið […] til barnanna og rætt við þau og þau hefðu ekki viljað að sér yrði skipaður talsmaður. Þeim hefði engu að síður verið skipaður talsmaður í febrúar, eftir að ákvörðun var tekin í málinu.
Vitnið kvað nefndina hafa horft á mál stefnda í heild sinni. Það hafi verið mat nefndarinnar að öll vægari úrræði hefðu verið fullreynd. Barnaverndaryfirvöld hefðu verið með mál stefnda til meðferðar frá árinu 2016 án þess að það skilaði árangri. Þá hefði það verið mat nefndarinnar að ósk stefnda um fóstur barnanna í 12 mánuði meðan hann ynni í sínum málum hefði í raun falið í sér það sama og hafði verið gert í málum barnanna árið áður og það væri fullreynt. Vitnið áréttaði að stefndi hefði ekki mætt í meðferð á Vogi í janúar eins og hann hefði þó greint nefndinni frá að stæði til í tengslum við þessa tillögu hans. Vitnið kvað stefnda ekki hafa haft samband við nefndina að fyrra bragði eftir ákvörðunina, ekki leitast eftir umgengi og ekki verið í sambandi við fósturforeldrana, en hins vegar hefði hann verið í sambandi við börnin.
Aðspurt um það hvers vegna ekki hefði verið unnið forsjárhæfnismat áður en ákvörðun var tekin í málinu, svaraði vitnið því til að atvik hefðu gerst hratt og tími ekki gefist til þess og stefndi flutt til […]. Til hefði staðið að vinna slíkt mat meðan stefndi bjó [...], en hann hefði flutt milli umdæma. Aðspurt um það hvort stefnda hefði verið bent á rétt sinn til fjárhagsaðstoðar vegna málsins kvað hún það koma fram í fundarboði sem stefnda hefði verið sent, bréfleiðis og með tölvupósti.
G sálfræðingur kom fyrir dóminn og staðfesti matsgerð sína um forsjárhæfni stefnda, sem unnin var undir rekstri málsins. Hún gerði grein fyrir því hvernig að vinnu matsins var staðið og að niðurstaða slíks mats byggðist jafnan á mati á því hvernig foreldri myndi ganga að mæta grundvallarþörfum barna almennt og eftir atvikum á skilgreindum sérstökum þörfum einstakra barna. Í ljósi þess hvernig lífi þessara barna hefði verið háttað, m.a. þess að þau hefðu fyrst búið á Íslandi, þá í […], […] og svo aftur á mörgum stöðum á Íslandi og gengið í marga skóla og þurft að aðlagast miklum breytingum, hefði verið litið svo á að þörf barnanna fyrir staðfestu og ró í lífinu mætti jafna við sérstakar þarfir. Þau hefðu þörf fyrir að festa rætur. Það kæmi enda fram í því að börnin hefðu tekið miklum framförum upp á síðkastið. Um tengsl barnanna við föður sinn áréttaði vitnið að í góðum tengslum barns og foreldris fælist það að foreldrið væri til staðar fyrir barnið, sú væri ekki raunin í þessu tilviki. Þá sýndi sagan að stefndi væri ekki fær um það til lengri tíma að vera til staðar fyrir börn sín, sakir veikinda og áfengisneyslu. Þá hefði stefndi lítinn skilning á þroska barna sinna. Hann hefði lagt mikið á þau en lítt verið til staðar fyrir þau. Taldi matsmaðurinn mikið vanta upp á hæfni stefnda til að sinna börnum sínum. Þá kvað matsmaðurinn það hafa í sér fólgna mikla óvissu fyrir D ef hann færi til föður síns í […], í enn eitt landið og til einstaklinga sem hann hefur ekki hitt. Mjög margt gæti farið úrskeiðis við þær aðstæður. Allt raunsæi vantaði í mat stefnda á þessu sem fegraði mjög myndina fyrir drengnum. Stefndi hefði ekki innsæi í þarfir barna og léti sínar eigin þarfir ganga framar öðru. Þarfir barnanna sætu á hakanum. Taldi matsmaðurinn að vægari úrræði en forsjársvipting stefnda, ráðgjöf eða stuðningur myndu ekki duga til. H, fósturmóðir barnanna, upplýsti að börnin hefðu verið í fóstri hjá sér fyrst frá 20. janúar 2018 til 1. júlí 2018 og svo aftur frá 20. nóvember sl. Vitnið kvað börnin hafa verið lokuð og buguð þegar þau komu í seinna sinnið. Þau hefðu farið aftur í sama skóla og áður. Vitnið kvað algeran viðsnúning hafa orðið á líðan barnanna. Þau sýndu bættan árangur í námi, þau væru nú glöð og liði vel. C væri komin með skólavist í framhaldsskóla […] og væri í vinnu í sumar. D væri meira úti og léki sér. Vitnið kvað D rokka mjög í afstöðu sinni til þess hvar hann vildi vera, eftir aðstæðum. Vitnið kvað börnin vera mjög náin hvort öðru og taldi að aðskilnaður þeirra gæti reynst D erfiður. Aðspurt upplýsti vitnið að enginn ættingi barnanna hefði haft samband við fórstuforeldrana. Einhver samskipti væru milli barnanna og ömmu þeirra […].
I, móðir kærasta C, gaf símaskýrslu við aðalmeðferð málsins. Vitnið upplýsti að D hefði verið hjá sér um tíma áður en börnin fóru í fóstur hjá föðursystur sinni á liðnu sumri. Hann hefði átt erfitt.
J sálfræðingur, talsmaður barnanna, gaf símaskýrslu við aðalmeðferð málsins. Hann staðfesti að hafa rætt við börnin og þær skýrslur sem frá honum stafa í málinu.
K, móðir stefnda, gaf símaskýrslu í málinu, en vitnið er búsett í […]. Vitnið kvað börnin hafa verið hjá sér á hverju ári þegar þau voru lítil og búið hjá sér á tímabili. Kvaðst vitnið hafa viljað fá börnin til sín og kvaðst vera í sambandi við þau.
V
Forsendur og niðurstaða Stefnandi gerir í máli þessu kröfu um að stefndi, A, verði sviptur forsjá barna sinna, C og D, á grundvelli a- og d-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Stefndi krefst sýknu á þeim grundvelli að ekki sé fullnægt skilyrðum nefndra lagaákvæða til að svipta hann forsjá. Byggir stefndi á því að málið hafi ekki verið nægilega upplýst áður en ákvörðun var tekin, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 56. gr. barnaverndarlaga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, né hafi verið gætt meðalhófs við meðferð þess, sbr. 2. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga og 12. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur stefndi að málsmeðferð stefnanda hafi farið gegn 6. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga, en mál hans hafi ekki fengið sömu meðferð og annarra í sambærilegri stöðu.
Þegar stefnandi tók ákvörðun um að mál þetta skyldi höfðað á fundi 5. febrúar sl. lá fyrir greinargerð F, deildarstjóra barnaverndar, sem hún hafði tekið saman vegna málsins og dagsett er 10. janúar 2019. Þar er rakin forsaga málsins og ítrekuð vistun barnanna utan heimilis á vegum barnaverndar. Gerð er grein fyrir afskiptum barnaverndanefndar B sérstaklega og aðdraganda þess að börnin voru tekin af heimilinu í lok nóvember 2018. Þá kemur fram að stefndi hafi ekki haft samband við barnaverndarnefnd eftir að hann fór af landi brott og ekki upplýst um það hvar næðist í hann.
Til stóð að taka mál barnanna fyrir á fundi 18. janúar sl., þar sem samningur um tímabundna vistun barnanna var þá að renna út. Stefndi var þá í […]. Það reyndist erfiðleikum bundið að ná sambandi við stefnda, en engu að síður tókst að boða hann til fundar nefndarinnar og senda honum fyrrnefnda greinargerð. Að ósk stefnda var fundinum frestað til 5. febrúar 2019. Stefndi mætti ekki til fundarins en gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum að símleiðis. Í fundargerð kemur fram að stefndi hafi óskað eftir að börnin yrðu í fóstri í eitt ár svo að hann hefði tíma til að koma sér upp húsnæði og stöðugleika.
Ákvörðun stefnanda, sem tekin var 5. febrúar sl., var rökstudd með eftirfarandi hætti: „Ítrekað hefur verið farið í gegnum úrræði 24. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 án árangurs. Þvert á móti hefur staða barnanna heldur versnað. Af þeim sökum þarf að bregðast hratt við og gera ráðstafanir sem tryggja börnunum festu, reglu og nauðsynlegan ramma. Eins og málið lýtur út í dag er talið fullreynt að vista börnin tímabundið meðan faðir þeirra leitar sér enn einnar meðferðarinnar við krónískri áfengissýki og líkamlegra veikinda sem af henni hefur hlotist. Sést það best af því að á þeim 36 mánuðum sem börnin og faðir þeirra hafa dvalist á landinu hafa börnin verið vistuð sjö sinnum í samanlagt 20 mánuði, lengst í 12 mánuði samfellt, á meðan að faðir þeirra hefur leitað aðstoðar með litlum árangri. Því miður er því sú staða komin upp að telja má að vægari úrræði teljist fullreynd, sbr. 2. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og ekki hægt að leggja það á börnin að flytja þau enn einu sinni á milli staða. Mat teymis barnaverndar er að ekki sé lengur boðlegt fyrir börn að búa við slíkt óöryggi að flytja á milli staða, á milli fósturheimila á heimili föður eða hvert þangað sem faðir hyggst flytjast næst. Faðir þeirra hefur dvalist í […] frá því í lok nóvember með unnustu sinni og hennar tveimur börnum. Mjög miklar líkur eru taldar á að hann muni taka börnin með sér þangað ef börnin fara úr fósturvistinni, með tilheyrandi raski, álagi og óvissu. Þau hafa bæði verið mjög skýr með það að þau kæri sig ekki um að flytja til […], þar sem þau þekkja engan og tala ekki tungumálið. Einnig eru þungar áhyggjur af því að faðir sé ekki og muni ekki geta haldið sér edrú og börnin muni á ný búa við áframhaldandi vanrækslu, óvissu og álag tengt því.“
Í þinghaldi í málinu 28. mars sl. lagði dómurinn fyrir stefnanda að afla matsgerðar um forsjárhæfni stefnda með heimild í 2. mgr. 56. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í þinghaldi 9. apríl var G sálfræðingur dómkvödd til þess verks. Matsgerðin er dagsett 3. júní 2019, þar segir m.a. að forsjárhæfni sé metin út frá almennum og sértækum uppeldisþörfum viðkomandi barna. Almennar þarfir sem öll börn hafi snúist um atriði eins og náin og ástrík tengsl við foreldra, vernd og öryggi, líkamlega umönnun og atlæti, örvun, hvatningu og stuðning. Einnig þurfi að taka tillit til sértækra þarfa viðkomandi barna sem upplýsingar kunna að liggja fyrir um. Við forsjármat sé haft í huga að ekki sé leitað að fullkomnum foreldrum, þannig að ýtrustu kröfur og strangasta mat eigi ekki við.
Um mat á niðurstöðum persónuleikaprófa sem matsmaður framkvæmdi á stefnda segir að þær gefi fyrst og fremst til kynna takmarkað innsæi stefnda í alvarleika aðstæðna sinna og barnanna. Saga þeirra lýsi einnig skorti á innsæi stefnda í þarfir þeirra, að hann annist ekki um þau á viðeigandi hátt og skorti ábyrgðarkennd til að mæta þörfum þeirra og búa þeim boðlegar aðstæður. Sömuleiðis að hann taki duttlungakenndar ákvarðanir út frá sínum þörfum en ekki barnanna.
Í matsgerðinni greinir matsmaður frá því að í samtali sínu við stefnda hafi verið skýrt að hann axli ekki ábyrgð á aðstæðum sínum heldur kenni öðrum um. Í sögu hans megi sjá ýmis einkenni jaðarpersónuleikaröskunar, svo sem hvatvísi, sem viðkomandi bíður oft skaða af, óljósa eða óstöðuga sjálfsmynd, sjálfsvígshótanir eða sjálfsmeiðingar og stormasöm sambönd við annað fólk.
Telur matsmaður fullvíst að miklir brestir hljóti að vera í tengslum milli stefnda og barnanna. Aftur og aftur hafi þau ekki getað reitt sig á að hann væri til staðar fyrir þau heldur hafi þurft að koma þeim til vandalausra vegna áfengisneyslu hans og heilsubrests sem af henni hafi leitt. Auk þess sé ljóst að tengsl við börnin og það að annast um þau sé ekki forgangsmál í lífi stefnda um þessar mundir. Það sjáist til dæmis af því að hann hafi farið úr landi síðastliðið haust og þegar ljóst hafi verið að hann kæmi ekki til baka hafi börnin verið vistuð áfram. Þá hafi stefndi ekki nýtt sér að fá börnin í umgengni, eins og gert hafi verið ráð fyrir þegar þau hafi fyrst verið vistuð hjá núverandi fósturforeldrum. Hann hefði þá borið því við að hann þyrfti að vinna mikið en börnin haldi því fram að hann hafi þá farið utan til að hitta konu sem hann hafði kynnst á netinu.
Matsmaður telur að vegna óstöðugleika og margvíslegra erfiðleika í uppvexti barnanna hafi þau sérstakar þarfir fyrir stöðugleika og einnig almennt góðar uppeldisaðstæður til þess að þau nái sem best að þroskast sem sjálfstæðir einstaklingar sem eru færir um að lífa góðu lífi. Lýsingar á D og því hvað hann hafi verið háður systur sinni þegar hann kom í núverandi fóstur sýni ofurviðkvæman dreng með mikinn kvíða. Sagan sýni hins vegar að stefndi sé ófær um að skapa börnum sínum umhverfi sem fullnægir almennum þörfum barna fyrir vernd og öryggi. Lífsstíll sá sem hann hafi boðið börnum sínum síðustu ár hafi einkennst af hinu gagnstæða, skorti á staðfestu og stöðugleika, miklum óróleika, óvissu og ófyrirsjáanlegri framtíð. Þá telur matsmaður að stefndi sé illa fær um að annast um líkamlega umönnun og atlæti barna sinna svo vel sé yfir lengri tíma. Endurteknar lýsingar á óviðunandi ástandi heimilisins og barnanna þegar stefndi hafi verið að drekka liggi fyrir. Þá hafi börnin að sögn fósturforeldra skort leiðsögn og kennslu í almennum atriðum. Hjá tannlækni hafi komið í ljós að hvorugt þeirra kunni að bursta í sér tennurnar og lítið eftirlit hefði verið haft með tannhirðu þeirra. Þá er það mat matsmanns að stefndi hafi lítinn skilning á þroskastigi barna sinna og í staðinn fyrir að veita þeim góð tækifæri til að spreyta sig og hjálpa þeim og styðja hafi hann lagt á þau ómanneskjulegt álag með óstöðugum lífsstíl og sífelldum flutningum. Í stað þess að reyna að búa börnum sínum mannsæmandi aðstæður á Íslandi láti hann eigin hvatir stjórna ferðinni og taki ekki tillit til þarfa barnanna. Þá telur matsmaður að stefndi hafi lítt sinnt þeim þætti foreldrahlutverksins sem felst í fyrirmynd og siðun. Börnin hafi þurft að horfa upp á drykkju hans og afleiðingar hennar. Þar hafi hann verið þeim afleit fyrirmynd. Þá hafi hann skömmu eftir komuna til landsins lagt á dóttur sína, þá [...] ára gamla, að annast um bróður sinn. Slíkt fyrirkomulag sé almennt kallað vanræksla gagnvart börnum og ekki þroskavænlegar aðstæður.
Niðurstaða matsmanns um forsjárhæfni stefnda er afdráttarlaus en hann telur að „hæfni A til að fara með forsjá barnanna C og D sé verulega ábótavant og að hann hafi vanrækt alvarlega daglega umönnun og uppeldi þeirra með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Ekki virðist líklegt að breyting sé að verða þar á.“
G sálfræðingur kom fyrir dóminn og staðfesti matsgerð sína. Lýsti hún því mati sínu að vægari úrræði en forsjársvipting stefnda, eins og ráðgjöf og stuðningur, myndu ekki duga til. Mikið vantaði upp á hæfni stefnda til að sinna börnum sínum og taldi matsmaður það hafa í sér mikla óvissu fyrir drenginn ef hann færi til föður síns í […], í enn eitt landið og til einstaklinga sem hann hafi ekki hitt. Mjög margt gæti farið úrskeiðis og allt raunsæi vantaði í mat stefnda á þessu, sem fegraði mjög myndina fyrir drengnum. Stefndi hefði ekki innsæi í þarfir barna sinna og léti sínar eigin þarfir ganga framar öðru, þarfir barnanna sætu á hakanum.
Við gerð forsjárhæfnismats fór matsmaður ekki sjálfur á fund barnanna til að kynna sér afstöðu þeirra, en studdist við skýrslur talsmanns, sem þeim var skipaður í febrúar sl. eftir að ákvörðun var tekin í málinu. Í ljósi þess og með vísan til 2. mgr. 63. gr. a í barnaverndarlögum nr. 80/2002 ákvað dómurinn að hitta börnin fyrir aðalmeðferð málsins. Rætt var einslega við hvort þeirra um sig. Á þeim fundum kom í sjálfu sér ekkert fram sem ekki verður ráðið af öðrum gögnum málsins og skýrslum sem teknar voru fyrir dómi.
Við aðalmeðferð málsins báru bæði varaformaður stefnanda og deildarstjóri barnaverndar B, sem hafa haft með mál stefnda að gera, að nefndin hefði talið vægari úrræði í málinu fullreynd. Vitnið F kvað nefndina hafa horft á mál stefnda í heild sinni við það mat. Þá hefði það verið mat nefndarinnar að ósk stefnda um tímabundið fóstur barnanna í 12 mánuði myndi ekki skila árangri, það væri fullreynt. Í því samhengi áréttaði vitnið að stefndi hefði greint nefndinni frá því að hann ætti pláss á Vogi í janúar 2019, en hefði ekki mætt í þá meðferð. Þá hefði hann ekki leitast eftir umgengni við börnin né haft samband við fósturforeldrana. Aðspurt um hvers vegna ekki hefði verið unnið forsjárhæfnismat áður en ákvörðun var tekin í málinu svaraði vitnið því til að atvik hefðu gerst hratt og ekki gefist tími til þess. Þá hefði stefndi farið úr landi.
Til viðbótar því sem liggur fyrir samkvæmt framansögðu um aðstæður stefnda og barna hans fram að því að sú ákvörðun var tekin sem hér er til meðferðar eru greinargerðir og gögn barnaverndarnefnda […] og […] ásamt fylgiskjölum, afritum dagbóka lögreglu í umdæmi lögreglustjórans á […] er varða atvik […] 2018, og eldri gögn sem stafa frá lögreglu í öðrum umdæmum sem og gögn frá heilbrigðisstofnunum er varða stefnda.
Sem fyrr segir var börnunum skipaður talsmaður 11. febrúar sl., eftir að ákvörðun var tekin í málinu. Í málinu liggja fyrir skýrslur hans, en talsmaðurinn ræddi í tvígang við börnin, fyrst 18. febrúar sl. og síðar 9. maí sl. Í fyrra viðtali talsmanns við drenginn kom fram sá vilji drengsins að búa hjá föður sínum með því skilyrði að það yrði á […] og faðir hans drykki ekki. Hann var þó einnig spenntur fyrir því að búa hjá móður kærasta systur sinnar og hennar manni. Fann hann ekkert að dvölinni á núverandi fósturheimili. Systir hans á hinn bóginn kvaðst vilja búa áfram á fósturheimilinu og fara í framhaldsskóla. Hún vildi ekki búa hjá föður sínum þegar hann væri að drekka og hún taldi sig ekki geta treyst því að svo yrði. Þá greindi hún frá því að faðir hennar hefði ásakað hana um að vera völd að því að þau systkin hefðu verið tekin frá honum. Hann ætti það til að kenna henni um eitt og annað sem hann bæri sjálfur frekar ábyrgð á.
Síðara viðtal talsmanns við börnin fór fram í tengslum við umgengni stefnda við börnin dagana 6.-8. maí sl., er stefndi kom til landsins til að undirgangast forsjárhæfnismat. Greindi drengurinn þá frá því að hann hefði átt ánægjulegar stundir með föður sínum og kvaðst nú reiðubúinn að flytja til […] um hríð enda hefði faðir hans sagt honum að þar væru flottari „parkar“ fyrir hlaupahjól en á […] sem hann væri spenntur fyrir að prófa. Þá yrði dvölin í […] ekki löng þar sem pabbi hans ætlaði að flytja til Íslands bráðlega. Á hinn bóginn var afstaða stúkunnar óbreytt frá fyrra viðtali.
Eins og rakið hefur verið tók stefnandi þá ákvörðun sem hér er til meðferðar á fundi 5. febrúar 2019. Er ákvörðunin grundvölluð á a- og d-lið 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Áður höfðu börn stefnda verið vistuð tímabundið í tvo mánuði með samþykki föður 19. nóvember 2018, á grundvelli 25. gr. barnaverndarlaga, og þá var jafnframt gerð áætlun um meðferð máls, sbr. 23. gr. barnaverndarlaga. Nefnd ráðstöfun barnanna var gerð í kjölfar alvarlegra atvika og heilsubrests stefnda. Áður en að þessu kom höfðu málefni fjölskyldunnar verið til meðferðar hjá barnaverndarnefndum frá því í lok árs 2015, fyrst á […], þá í […] og loks hjá stefnanda frá því að stefndi flutti í umdæmi stefnanda [...] 2016. Fljótlega eftir að börnin voru vistuð í nóvember 2018 fór stefndi til […] og hefur verið þar síðan, utan þess að hann kom til landsins til að undirgangast forsjárhæfnismat í byrjun maí sl. Að sögn stefnda býr hann þar með konu og tveimur börnum hennar í rúmgóðri þriggja herbergja íbúð.
Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. barnaverndalaga skal því aðeins gera kröfu um sviptingu forsjár að ekki sé unnt að beita öðrum og vægari úrræðum til úrbóta eða aðrar slíkar aðgerðir hafi verið reyndar án árangurs. Þá er í 1. mgr. 41. gr. laganna kveðið á um skyldu barnaverndarnefndar til að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því, sbr. og 1. mgr. 56. gr. s.l. Eins og rakið hefur verið og gögn málsins bera með sér höfðu barnaverndaryfirvöld í þremur sveitarfélögum á landinu margsinnis haft afskipti af málefnum stefnda og barna hans allt frá því að þau fluttust til landsins [...] 2015. Aðstæður barnanna höfðu ítrekað verið skoðaðar og metnar óviðunandi. Gerðir voru samningar um meðferð máls fjölskyldunnar og börnin ítrekað vistuð utan heimilis, með samþykki föður. Í janúar sl. höfðu börnin, frá því að þau komu til landsins, verið lengur í fóstri á vegum barnaverndaryfirvalda en í umsjón föður, með hans samþykki. Þá liggur og fyrir að stefndi hvarf af landi brott þegar eftir að samningur var gerður við hann um tveggja mánaða vistun barna hans í lok nóvember 2018, þ.e. stuttu eftir [...] í viðurvist barna sinna. Á gildistíma þess samnings hafði stefndi ekkert frumkvæði að samskiptum við barnaverndaryfirvöld, og illmögulegt reyndist að ná sambandi við stefnda til samráðs um framhald mála barna hans. Þá liggur ekki annað fyrir um hvað stefndi rækti af skyldum þeim sem hann tókst á herðar með samkomulaginu við stefnanda 20. nóvbember 2018, annað en það að stefndi fór ekki í áfengismeðferð eins og hann hafði þó lofað. Þá sá stefndi sér ekki fært að mæta til fundar um málefni barna sinna í febrúar þrátt fyrir að honum mætti vera ljóst að samningurinn um vistun þeirra væri útrunninn, en haft var samband við hann símleiðis. Stóð vilji stefnda þá til þess að börn hans yrðu áfram vistuð í 12 mánuði, þannig að hann hefði tök á að koma sér upp húsnæði og stöðugleika.
Enda þótt fallast megi á það með stefnda að málsmeðferð stefnanda á stjórnsýslustigi hafi ekki með öllu verið hnökralaus, þá verður ekki fram hjá því litið að stefndi var lítt eða ekki til samvinnu í málinu og sakir þess að hann dvaldi erlendis var stefnanda erfiðara um vik að afla gagna, t.d. forsjárhæfnismats, áður en málið var höfðað. Úr því hefur verið bætt undir rekstri málsins. Þá lágu fyrir ítarleg gögn frá öðrum barnaverndarnefndum um málefni fjölskyldunnar allt aftur til ársins 2015, þar sem þess hafði ítrekað verið freistað að grípa inn í málefni stefnda og liðsinna með úrræðum sem barnaverndarnefndum eru tæk, án árangurs.
Í ljósi forsögu málsins og þess sérstaklega að stefndi var þá ekki aðeins staddur erlendis heldur hafði ekki hug á að koma til landsins í bráð verður heldur ekki á það fallist með stefnda að stefnanda hefði verið unnt að grípa til vægari úrræða í málinu en raun ber vitni. Í því samhengi ber til þess að líta að börn stefnda eru nú að verða stálpuð og því afar mikilvægt að þau fái notið verndar og umönnunar í samræmi við aldur sinn og þroska og búa við viðunandi uppeldisaðstæður þar sem velfarnaðar þeirra er gætt í hvívetna þann tíma sem eftir er af bernsku þeirra, sbr. 1. gr. barnaverndarlaga. Að mati dómsins er afar brýnt að þeim verði tryggð sú festa og öryggi sem börnum er nauðsynleg og mælt er fyrir um í lögum er varða börn og barnavernd. Á það hefur verulega skort fram til þessa og brýnt að lát verði á þeirri óvissu sem börnin hafa búið við um framtíðarhagi sína og heimili.
Við munnlegan málflutning málsins reifaði lögmaður stefnda það sjónarmið að ekki hefði verið gætt að ákvæðum 29. og 30. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd, en umrædd ákvæði varða skipun talsmanns barna og hæfi þess talsmanns. Enda þótt fallast megi á það með stefnda að misbrestur hafi verið á því að þessum ákvæðum hafi verið fylgt við stjórnsýslumeðferð málsins þá getur það eitt og sér ekki haft þýðingu við úrlausn þessa dómsmáls, enda ákvað dómurinn eins og áður segir að hitta börnin fyrir aðalmeðferð málsins. Var þá rætt einslega við hvort þeirra um sig þannig að afstaða þeirra lægi fyrir.
Með vísan til alls þess sem hér hefur verið rakið, fyrirliggjandi matsgerðar dómkvadds matsmanns og vitnisburðar hans fyrir dómi, gagna málsins og framburðar vitna verður að telja í ljós leitt að skilyrðum fyrir forsjársviptingu samkvæmt a- og d-lið 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga sé fullnægt, og að önnur og vægari úrræði komi ekki að haldi. Er því niðurstaða dómsins sú að hagsmunir og þarfir barna stefnda krefist þess að stefndi verði sviptur forsjá þeirra.
Samkvæmt framansögðu ber að taka kröfu stefnanda til greina.
Stefndi hefur lagt fram gjafsóknarleyfi vegna reksturs þessa máls fyrir héraðsdómi, útgefið 11. apríl sl., sbr. heimild í 1. mgr. 60. gr. barnaverndarlaga. Rétt er að málskostnaður milli aðila falli niður en af hálfu stefnanda var ekki gerð krafa um málskostnað. Gjafsóknarkostnaður stefnda greiðist úr ríkissjóði, sem er þóknun lögmanns hans, Oddgeirs Einarssonar, samkvæmt framlögðu málskostnaðaryfirliti 1.944.690 krónur og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Dóm þennan kveða upp Bergþóra Ingólfsdóttir, dómstjóri og dómsformaður, Arnaldur Hjartarson héraðsdómari og Ragna Ólafsdóttir sálfræðingur.
Dómsorð:
Stefndi, A, er sviptur forsjá barna sinna, C og D. Málskostnaður fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður stefnda greiðist úr ríkissjóði, sem er málflutningsþóknun lögmanns hans, Oddgeirs Einarssonar, 1.944.690 krónur.