Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 16. apríl 2014.
Mál nr. E-1562/2014:
Lykilorð
Útdráttur
Því var hafnað að H gæti byggt rétt á fullnaðarkvittunum fyrir greiðslur vaxta af gengistryggðu láni gagnvart L.
Helstu ágreiningsefni og yfirlit um málsatvik.
Meginágreiningur aðila snýr að því hvort við endurútreikning sex gengistryggðra lána, sem stefnandi tók hjá Landsbanka Íslands hf. á árunum 2003 til 2007 og nánar er gerð grein fyrir síðar, hafi borið að taka tilliti til fullnaðarkvittana vegna þeirra samningsvaxta sem stefnandi hafði þá greitt. Atvik málsins eru að meginstefnu ágreiningslaus og er ekki um það deilt að umrædd lán hafi verið bundin ólögmætri gengistryggingu. Ekki er lengur um að ræða tölulegan ágreining með aðilum. Þá liggur fyrir að stefndi hefur tekið við réttindum og skyldum lánveitanda af Landsbanka Íslands hf. vegna umrædds láns, sbr. ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 9. október 2008, og er því réttilega stefnt til varnar.
Landsbanki Íslands hf. var um árabil viðskiptabanki stefnanda sem fæst við útgerð og fiskverkun. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns, þar af tveir við skrifstofuhald. Stefnandi tók á árunum 2003 til 2007 sex lán hjá bankanum sem hér segir:
- Lánssamningur nr. 553 um fjölmyntarlán til 15 ára undirritaður 4. nóvember 2003. Höfuðstóll var að jafnvirði 650 milljóna króna og var lánið bundið við gengi bandaríkjadala (20%), svissneskra franka (40%) og japanskra jena (40%). Greiða skyldi lánið með 30 jöfnum afborgunum á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn 15. júní 2004. Vextir skyldu vera svonefndir LIBOR vextir með 1,35% álagi. Greitt var af láninu til samræmis við þetta að frátalinni afborgun 15. desember 2008 sem var frestað.
- Lánssamningur nr. 460 til fimm ára, sem gert var ráð fyrir að yrði tvívegis framlengdur til fimm ára, þannig að afborganir voru frá upphafi miðaðar við 15 ár (nefnt „blöðrulán“). Höfuðstóll var að jafnvirði 100 milljóna króna bundinn við gengi evru. Lánið skyldi greiða með 20 afborgunum á þriggja mánaða fresti þannig að á fyrstu 19 gjalddögunum skyldu greiðast 1/60 hluti lánsupphæðar, en á lokagjalddaga 1. mars 2009 41/60 hlutar. Vextir skyldu vera svonefndir LIBOR vextir með 1,35% álagi og greiðast á þriggja mánaða fresti. Skilmálum lánsins var síðar breytt svo að greiðslur skyldu vera á sex mánaða fresti frá og með gjalddaga 15. desember 2004 að telja. Á gjalddaga hinn 15. desember 2008 samþykkti stefndi að afborgunarhluta yrði frestað þannig að síðari afborganir myndu hækka sem því næmi. Samningurinn var undirritaður 10. febrúar 2004.
- Lánssamningur um fjölmyntarlán nr. 3504 til fimm ára undirritaður 29. ágúst 2005. Höfuðstóll var að jafnvirði 500 milljónir króna, bundinn við gengi svissneskra franka (60%), japanskra jena (20%) og sænskra króna (20%). Lánið skyldi greiða með einni greiðslu í lok lánstímans 15. desember 2010. Vextir skyldu vera svonefndir LIBOR og STIBOR vextir með 1,25% álagi og skyldu greiðast á 6 mánaða fresti, fyrst 15. júní 2006. Á lokagjalddaga var endursamið um niðurgreiðslu lánsins og láninu myntbreytt. Hinn 15. júní 2011 mun 1/5 hluti eftirstöðva lánsins hafa verið greiddur.
- Lánssamningur nr. 5539 til fimm ára undirritaður 22. ágúst 2006. Höfuðstóll var að jafnvirði 200 milljóna króna, bundinn við gengi japanskra jena. Greiða skyldi lánið með einni greiðslu í lok lánstíma, 15. júní 2011. Vextir skyldu vera svonefndir LIBOR vextir með 1,65% álagi og greiðast á 6 mánaða fresti, fyrst 15. desember 2006.
- Lánssamningur nr. 7463 um fjölmyntarlán til þriggja ára, undirritaður 2. apríl 2007. Höfuðstóll var að jafnvirði 400.000.000 króna, bundinn við gengi svissneskra franka (50%) og japanskra jena (50%). Upphaflegur lántaki var Grjóthylur ehf., en skuldbindingin var yfirtekin af stefnanda 6. febrúar 2008. Greiða skyldi lánið með einni greiðslu í lok lánstíma 10. apríl 2010. Vextir skyldu vera svonefndri LIBOR vextir með 1,6% álagi og skyldu greiðast á þriggja mánaða fresti, fyrst 10. júlí 2007. Á lokagjalddaga var endursamið um lánsskilmála og um myntbreytingu lánsins þannig að afborganir yrðu á þriggja mánaða fresti og 1/80 hluti lánsins greiddur á hverjum gjalddaga.
- Lánssamningur nr. 8086 um fjölmyntarlán til fimm ára, undirritaður 21. maí 2007. Höfuðstóll var að jafnvirði 150.000.000 króna bundinn við gengi svissneskra franka (50%) og japanskra jena (50%). Greiða skyldi lánið með 10 afborgunum á sex mánaða fresti þannig að á fyrstu 9 gjalddögum lánsins skyldu greiðast 1/30 hluti þess og á lokagjalddaga, hinn 15. júní 2012, 21/30 hluti. Vextir skyldu vera svonefndir LIBOR vextir með 1,35% álagi og skyldu þeir greiðast á sömu gjalddögum og afborganir, fyrst 15. desember 2007.
Með bréfi 22. september 2001, fjórum bréfum 11. október þess árs og bréfi 11. nóvember þess árs tilkynnti stefndi stefnanda að hann hefði endurreiknað lánasamningana í samræmi við ákvæði laga nr. 151/2010. Í öllum tilvikum lækkuðu eftirstöðvar lánanna samanborið við það ef þau hefðu verið gengistryggð. Þá kemur fram að stefnandi hafi greitt lánin upp, auk tveggja erlendra lána, með tveimur nýjum lánum í erlendum myntum sem tekin hafi verið hjá stefnda 15. desember 2011. Í stefnu er vísað til þess að stefnandi hafi átt í samskiptum við stefnanda um frekari leiðréttingu og vísað meðal annars til dóms Hæstaréttar 15. febrúar 2012 í máli nr. 600/2011 og síðari dóma um fullnaðarkvittanir. Segir jafnframt að stefndi hafi ekki fallist á sjónarmið stefnanda og talið sig eiga viðbótarkröfu um vexti aftur í tímann. Er um þetta vísað til tölvubréfs starfsmanns stefnda til stefnanda 7. febrúar 2014. Þá segir í stefnu að í ljósi afstöðu stefnda hafi stefnandi aflað útreiknings sérfræðings á endurgreiðslukröfu sinni. Eru þeir útreikningar, sem ekki er ástæða til að rekja sérstaklega, dagsettir 7. apríl 2014.
Við aðalmeðferð málsins gaf aðilaskýrslu Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri stefnanda. Í skýrslu hans kom meðal annars fram að lánasamningar fyrirtækisins við Landsbanka Íslands hf. hefðu alfarið verið gerið að frumkvæði bankans og með þeim hætti sem bankinn hefði ákveðið nánar. Í kjölfar hruns á fjármálamörkuðum haustið 2008 hefði stefnandi átt við verulega fjárhagserfiðleika að stríða, ekki síst vegna gjaldmiðlaskiptasamninga sem gerðir hefðu verið við Landsbanka Íslands hf. Samkomulag hefði verið gert við bankann um þessa samninga og einnig hefði verið gert samkomulag við stefnanda sem tekið hafði yfir lán Landsbanka Íslands hf. Í samkomulagi stefnanda við stefnda hefði meðal annars falist algjört fjárfestingarbann og skuldbinding til að hækka ekki laun stjórnenda fyrirtækisins. Ekki hefði heldur mátt greiða arð. Þessu skilmálum hefði ekki verið aflétt fyrr en 4. júní 2014.
Helstu málsástæður og lagarök aðila
Stefnandi byggir málatilbúnað sinn á því að fullnægt sé öllum þeim skilyrðum, sem mótuð hafi verið í dómaframkvæmd, til þess að hann geti byggt rétt á fullnaðarkvittunum vegna greiðslu vaxta framangreindra lána. Stefnandi hafi þannig verið í góðri trú um að með vaxtagreiðslum til stefnda væri hann að efna að fullu skyldur sínar að þessu leyti. Hann vísar til þess að viðbótarkrafa stefnda vegna lánanna hafi verið veruleg og festa hafi verið í framkvæmd samninganna. Hafi því verið um að ræða verulega röskun á stöðu stefnanda sem meðal annars hafi komið fram í því að stefnandi gekk að afarkostum stefnda við skuldaaðlögun haustið 2008. Að því er varðar stöðu aðila vísar stefnandi til þess að hann hafi enga sérþekkingu á gengismálum og alls ekki þekkingu sem jafna megi við þekkingu fjármálafyrirtækis. Lögð er á það áhersla að staða stefnanda sé gerólík því sem fjallað hafi verið um dómum Hæstaréttar vegna stærri fyrirtækja. Stefnandi sé lítið sjávarútvegsfyrirtæki, sem um fjármögnun og hvernig henni skyldi hagað hverju sinni, hafi reitt sig á viðskiptabanka sinn og sérfræðinga hans sem hafi samið alla lánasamninga og önnur skjöl sem tengdust lántökum stefnanda. Af hálfu stefnda er á því byggt að stefnandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi rétt á endurgreiðslu á grundvelli reglna um endurheimt ofgreidds fjár, enda lagaskilyrði fyrir slíkum endurheimturétti ekki til staðar. Endurútreikningur í september, október og nóvember 2011 hafi í reynd falið í sér að stefndi endurgreiddi stefnanda það sem talið var nema inneign stefnanda vegna ólögmætrar gengisbindingar, í formi lækkunar lánsskuldbindinganna, en stefndi hafi dregið þá endurgreiðslu frá kröfu sinni um viðbótarvexti af lánunum. Vísað er til þess að stefnandi hafi ekki haft uppi mótmæli eða fyrirvara við þetta tækifæri eða þegar lánin voru að fullu greidd upp. Með vísan til þessa og að teknu tilliti til þess að lánsskuldbindingarnar áttu að sönnu að bera vexti samkvæmt 4. gr., sbr. 3. gr. laga nr. 38/2001, verði ekki séð að grunnskilyrði endurheimturéttar, þ.á m. um ofgreiðslu skuldbindingar, séu uppfyllt. Þannig sé meðal annars ljóst að stefndi hafi engan veginn „auðgast“ á kostnað stefnanda við endurútreikningana. Þvert á móti verði að líta svo á að endurheimtukrafan, sem miðast við að reiknaðir væru lágir erlendir vextir af íslenskri óverðtryggðri lánsfjárhæð, teljist frekar fela í sér auðgun stefnanda, á kostnað stefnda. Komi til álita að stefnandi geti byggt kröfu á reglum um fullnaðarkvittanir vísar stefndi til þess að ekki hafi verið sýnt fram á að skilyrðum þar að lútandi sé fullnægt, en stefnandi beri sönnunarbyrðina að þessu leyti. Stefndi leggur áherslu á að stefnandi sé stórt útgerðarfyrirtæki sem hafi tekjur að verulegu leyti í erlendum myntum. Þá hafi höfuðstóll lána stefnanda lækkað verulega við endurútreikning stefnda. Á árinu 2012 hafi tekjur af aðalstarfsemi félagsins þannig numið rúmlega 2,1 milljörðum króna og eignir alls um 3,5 milljarðar króna. Hafi á engan hátt verið sýnt fram á eða sannað að fjárhæðir viðbótarkrafna vegna vaxta samkvæmt 4. gr. laga nr. 38/2001 hafi valdið stefnanda sérstakri röskun.
Stefndi bendir einnig á að um sé að ræða tiltölulega gömul lán. Skilmálar meginþorra lána stefnanda, þ.e. lán nr. 460 nr. 3504 nr. 5539 og nr. 7763 hafi ekki falið í sér mikla greiðslubyrði fyrir stefnanda meginþorra lánstímans og hafi stefnandi á umsömdum lánstíma fyrst og fremst greitt vexti. Því hafi ekki verið komin sérstök festa á greiðslu lánanna. Ef litið sé til raunvirðis lánanna (miðað við vísitölu neysluverðs) á endurútreikningsdegi þá verði heldur ekki séð að viðbótarkröfur stefnanda hafi getað talist vera íþyngjandi. Stefndi telur einnig að framreikna eigi höfuðstól lána þegar hlutfall viðbótarkröfu sé metið.
Þá er á því byggt að stefnandi hafi verið í samningsstöðu til að hafa áhrif á einstök atriði í skilmálum lánssamninganna og hafi hann jafnframt haft brýnt tilefni til að leita sér nauðsynlegrar sérfræðiaðstoðar við samningsgerðina. Ekki verði heldur talið að stefnandi hafi getað verið í góðri trú um, er hann greiddi afborganir og/eða vexti, að vextir væru endanlega greiddir þó að sá þáttur skuldarinnar, þ.e. lánsmyntin, sem ótvírætt var forsenda vaxtanna, ætti eftir að sæta endurskoðun. Stefnanda hafi þannig, með tilliti til stærðar og umfangs, og sérfræðiþekkingar á gjaldeyrisviðskiptum, vart getað dulist samhengi milli mynttilgreiningar og vaxtaviðmiðunar, en slíkt hljóti, eins og annað, að skipta máli við heildarmatið. Er hér og sérstaklega til þess vísað að stefnandi kaus við endurfjármögnun skulda sinna hjá stefnanda, í desember 2011, að hafa lán sín í erlendum myntum. Að lokum er til þess vísað að stefndi hafi haft uppi viðbótarkröfur sínar um vexti samkvæmt 4. gr. laga nr. 38/2001 án ástæðulausra tafa.
Niðurstaða
Dómurinn telur fram komið að hlutfall viðbótarkröfu stefnda vegna afturvirks útreiknings vaxta samkvæmt 1. málslið 4. gr. laga nr. 38/2001 hafi í sjálfu sér verið umtalsvert hvort sem litið er til höfuðstóls fyrrgreindra lána, heildarvaxtagreiðslna eða einungis þeirra fjárhæða sem hér var um að ræða. Þá verður ekki á það fallist með stefnda að lítið hlutfall afborgana af höfuðstól leiði til þess að líta beri svo á að ekki hafi myndast nægileg festa í lögskiptum aðila að þessu leyti. Sömuleiðis verður ekki talið að sú staðreynd að vaxtagreiðslur höfðu átt sér stað um nokkuð langt skeið, með þeim afleiðingum að viðbótarkröfur stefnda um vexti urðu tiltölulega hátt hlutfall af höfuðstól, mæli gegn því að stefnandi geti byggt rétt á fullnaðarkvittunum.
Í málinu er hins vegar til þess að líta að árið 2011, þegar endurútreikningur fór fram, námu rekstrartekjur stefnanda 2,4 milljörðum króna en eignir 3,3 milljörðum. Er af þessu, svo og öðrum gögnum málsins, ljóst að stefnandi getur ekki talist lítið fyrirtæki á íslenskan mælikvarða. Einnig verður að leggja til grundvallar að stefnandi, sem framleiðir neysluvöru til sölu á erlendum mörkuðum, hafi í krafti fjárhagslegs styrkleika síns verið í aðstöðu til að leggja mat á kosti og galla þess að taka lán sem fylgdi gengi erlendra gjaldmiðla eða þá afla sér sjálfstæðrar ráðgjafar um það efni. Umfram annað verður þó að horfa til þess að endurútreikningur stefnda leiddi ekki til þess að stefnandi væri skyndilega krafinn um auknar greiðslur heldur var þvert á móti um það að ræða að umsaminn höfuðstóll lána væri færður niður, í flestum tilvikum verulega, á grundvelli endurútreiknings stefnda. Er og ekki komið fram í málinu að greiðslubyrði stefnanda hafi aukist í framhaldi af endurútreikningi stefnda. Þá liggur fyrir að stefnandi greiddi áfram af lánum sínum án fyrirvara við endurútreikningi stefnda og greiddi lánin loks upp með töku nýrra lána. Þeir samningar sem um ræðir í máli þessu nema allir verulegum fjárhæðum og hlutu því, eðli málsins samkvæmt, að einhverju leyti að vera sniðnir að þörfum stefnanda. Verður þessum samningum ekki jafnað til þeirra stöðluðu samninga um bílalán sem um var deilt í því máli sem lyktaði með dómi Hæstaréttar 6. nóvember 2014 í máli nr. 110/2014. Getur það því ekki haft þýðingu um niðurstöðu málsins þótt fyrir liggi að stefndi hafi ákveðið að fallast á fullnaðarkvittanir vegna slíkra samninga.
Að virtum framangreindum atriðum þykir stefnandi ekki hafa sýnt fram á að áskilnaður stefnda um vexti samkvæmt 1. málslið 4. gr. laga nr. 38/2001 til samræmis við ákvæði laga nr. 151/2010 hafi valdið honum svo verulegri og óvæntri röskun á fjárhagslegri stöðu að það standi stefnda nær að bera áhættuna af þeim vaxtamun sem áður er lýst, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar 15. október 2015 í málum nr. 34 og 35/2015. Eru því ekki uppfyllt skilyrði til að víkja frá téðum fyrirmælum laga nr. 38/2001 viðvíkjandi endurútreikningi gengistryggðra lána með vísan til fyrrgreindra ákvæða 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. 10. gr. laga nr. 97/1995, og áðurlýstrar reglu fjármunaréttar um fullnaðarkvittanir. Verður stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda. Með hliðsjón af vafaatriðum málsins þykir rétt að málskostnaður falli niður. Af hálfu stefnanda flutti málið Sigurður G. Guðjónsson hrl. Af hálfu stefnda flutti máli Andri Árnason hrl. Skúli Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Stefndi, Landsbankinn hf., er sýkn af kröfu stefnanda, Hraðfrystihúss Hellissands hf. Málskostnaður fellur niður.
Skúli Magnússon