Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 5. apríl 2013.
Mál nr. E-1545/2013:
Lykilorð
Útdráttur
Fallist var á kröfu slitastjórnar H um riftun greiðsla sem K, aðaleigandi og prókúruhafi H, hafði millifært af reikningum félagsins á eigin reikning.
Dags. Kt. móttakanda Nafn móttakanda Upphæð 26.05.2011 [...] Karl Emil Wernersson 10.600.000 kr. 05.07.2011 [...] Karl Emil Wernersson 180.000 kr. 26.07.2011 [...] Karl Emil Wernersson 400.000 kr. 02.08.2011 [...] Karl Emil Wernersson 1.000.000 kr. 16.08.2011 [...] Karl Emil Wernersson 2.500.000 kr. 01.09.2011 [...] Karl Emil Wernersson 5.900.000 kr. 13.09.2011 [...] Karl Emil Wernersson 2.000.000 kr. 13.10.2011 [...] Karl Emil Wernersson 3.200.000 kr. 18.10.2011 [...] Karl Emil Wernersson 6.200.000 kr. 17.11.2011 [...] Karl Emil Wernersson 2.319.000 kr. 29.12.2011 [...] Karl Emil Wernersson 400.000 kr. 29.12.2011 [...] Karl Emil Wernersson 600.000 kr. 29.12.2011 [...] Karl Emil Wernersson 1.900.000 kr. 03.01.2012 [...] Karl Emil Wernersson 600.000 kr. 16.01.2012 [...] Karl Emil Wernersson 600.000 kr. 09.03.2012 [...] Karl Emil Wernersson 550.000 kr. 27.03.2012 [...] Karl Emil Wernersson 530.000 kr. Samtals: 51.979.000 kr. Stefnandi krefst þess í öðru lagi að stefnda verði gert að endurgreiða honum 51.979.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 16. apríl 2013 til greiðsludags. Hann krefst einnig málskostnaðar. Stefndi krefst aðallega sýknu en til vara lækkunar greiðslukröfu stefnanda. Hann krefst einnig málskostnaðar. Með úrskurði 20. desember 2013 var kröfu stefnda um frávísun málsins hafnað.
Helstu ágreiningsefni og yfirlit málsatvika
Í málinu er deilt um heimild stefnanda til að rifta þeim greiðslum sem vísað er til í kröfugerð hans, svo og krefjast endurgreiðslu á grundvelli 142. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Ekki er um það deilt að þær færslur sem vísað er til í kröfugerð stefnanda hafi farið fram. Hins vegar deila aðilar um það hvort greiðslurnar hafi falið í sér greiðslur á skuldum stefnanda við stefnda og þá hverjar þessar skuldir hafi verið. Að svo búnu lýtur ágreiningur aðila að því hvort fullnægt sé skilyrði nánari ákvæða XX. kafla laga nr. 21/1991 til þess að fallist verði á kröfur stefnanda.
Stefndi var eini hluthafi Háttar ehf. sem mun hafa stundað ýmsar fjárfestingar, meðal annars í fasteignum og með kaupum á hlutum í félögum. Samkvæmt gögnum úr hlutafélagaskrá var stefndi annar tveggja stjórnarmanna Háttar ehf. auk þess að vera framkvæmdastjóri og prókúruhafi á þeim tíma sem atvik málsins áttu sér stað. Samkvæmt sömu gögnum hafði einn stjórnarmaður heimild til að rita firma félagsins. Svo sem fram kemur í greinargerð stefnda var fjármögnun Háttar ehf. einkum tvenns konar; annars vegar í formi lána frá stefnda og hins vegar bankalán.
Í greinargerð stefnda er rakið gengi Háttar ehf., afleiðingar hruns á fjármálamörkuðum haustið 2008 fyrir félagið, viðræður við viðskiptabanka félagsins og loks tildrög þess að bankinn krafðist að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Kemur fram að 7. september 2011 hafi starfsmaður bankans tilkynnt um að frekari viðræðum væri hafnað og kröfu um gjaldþrotaskipti, sem lögð hafði verið fram í héraðsdómi 6. apríl þess árs, yrði haldið til streitu.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 18. nóvember 2011 var bú Háttar ehf. tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt beiðni sem barst héraðsdómi 6. apríl þess árs og áður greinir. Með dómi Hæstaréttar 21. desember 2011 var þessi úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi. Ný beiðni um gjaldþrotaskipti barst héraðsdómi 14. janúar 2012. Var félagið að nýju tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 14. júlí 2012. Kröfulýsingarfresti lauk 7. október þess árs. Samkvæmt kröfuskrá sem lögð hefur verið fram hafnaði skiptastjóri kröfum stefnda í þrotabúið sem byggðu á framangreindum skuldabréfum. Ekki var um munnlegar skýrslur að ræða við aðalmeðferð málsins.
Málsástæður og lagarök aðila
Í stefnu segir að stefndi hafi í krafti stöðu sinnar í Hætti ehf., bæði sem eigandi og forsvarsmaður, ákveðið að ráðstafa fjármunum félagsins til sín til þess að skjóta fjármunum undan fullnustugerðum skuldheimtumanna, annars vegar með færslum af reikningi Háttar ehf. fyrir frestdag sem talinn er vera 6. apríl 2012 og hins vegar með færslum til sjálfs sín eftir frestdag af sömu reikningum. Þessar ráðstafanir hafi verið gerðar honum sjálfum til hagsbóta. Að því er varðar greiðslur fyrir frestdag er vísað til 131. gr. laga nr. 21/1991 og þess að greiðslur til stefnda hafi verið gjafagerningar. Ef talið verður að stefndi hafi átt kröfu gegn Hætti ehf. er vísað til 134. gr. laga nr. 21/1991 og talið að greiðslurnar hafi skert greiðslugetu Háttar ehf. verulega og mismunað kröfuhöfum. Að því er varðar greiðslur eftir frestdag er vísað til 139. gr. laga nr. 21/1991. Einnig er vísað til riftunarreglu 141. gr. laganna. Krafa um endurgreiðslu er byggð á 142. gr. laga nr. 21/1991.
Stefndi reisir sýknukröfu sína í fyrsta lagi á því að málið hafi ekki verið höfðað innan lögbundins sex mánaða frests samkvæmt 1. mgr. 148. gr. laga nr. 21/1991. Kröfulýsingarfrestur hafi runnið út þann 7. október 2012 og ekkert verið því til fyrirstöðu að höfða riftunarmálið innan sex mánaða frests skv. 1. mgr. 148. gr. laganna. Í annan stað telur stefndi að grundvöllur málatilbúnaðar stefnanda sé rangur. Lagt sé til grundvallar að stefndi hafi ekki átt veðkröfu á hendur Hætti ehf. og greiðslurnar geti því ekki hafa verið endurgreiðslur á þeim kröfum. Þessi staðhæfing stefnanda sé með öllu órökstudd og algerlega vanreifuð. Vísar stefndi einkum til þess að hann hafi átt kröfur á grundvelli tveggja veðskuldabréfa sem gefin voru út til hans af hálfu Háttar ehf. og hafi þetta verið staðfest með dómi réttarins í máli nr. e 1546/12 21. september sl. Stefndi mótmælir því að frestdagur við gjaldþrotaskiptin sé 6. apríl 2011 og telur hann eiga að vera 16. janúar 2012. Stefndi byggir á því að ákvæði 139. gr. laga nr. 21/1991 sé verulega íþyngjandi í garð riftunarþola og byggi á þeim rökum að þrotamaður eigi nánast ekkert að hafast að eftir að beiðni um gjaldþrotaskipti komi fram. Þessi aðstaða sé hins vegar með allt öðrum hætti í fyrirliggjandi máli. Þannig hafi meira en 15 mánuðir liðið frá þeim frestdegi sem byggt er á í stefnu þar til bú stefnanda var tekið til gjaldþrotaskipta. Byggir stefndi á því að ótækt sé að miða frestdag við það tímamark við slíkar aðstæður. Ógerningur sé að reka félag í fullum rekstri lengur en í eitt ár eftir reglum 139. gr. laga um nr. 21/1991. Sé það enda svo að skiptastjóri stefnanda hafi sjálfur byggt á því við innköllun að frestdagur væri 16. janúar 2012 og sé hann bundinn af því.
Stefndi telur 131. gr. laga nr. 21/1991 ekki koma til álita þar sem frestdagur hafi verið 16. janúar 2012 og hafi því sex mánaða frestur samkvæmt ákvæðinu verið liðinn um tilteknar greiðslur. Ekki sé byggt á 2. mgr. ákvæðisins sem komi þar af leiðandi ekki til greina. Þá telur stefndi sannað að ekki hafi verið um gjafagerning að ræða heldur greiðslur á gjaldföllnum skuldum Háttar ehf. við stefnda, eða a.m.k. réttmæta trú aðila um að svo væri. Engin grein hafi verið gerð fyrir skilyrðum örlætisgerninga í málatilbúnaði stefnanda.
Að því er varðar 134. gr. laga nr. 21/1991 hafnar stefndi því að greiðslurnar hafi skert greiðslugetu stefnanda verulega. Enga tilvísun sé að finna til 2. mgr. greinarinnar eða hvernig skilyrði hennar eigi að vera uppfyllt í málinu. Einnig er hér vísað til fyrri sjónarmiða um tilgreiningu frestdags. Stefnandi byggi málatilbúnað sinn á því að ekki hafi verið um greiðslu skuldar að ræða og sé hann við þetta bundinn. Eigi því að sýkna stefnda af kröfu stefnanda samkvæmt þessari grein. Stefndi hafnar því einnig að greiðslur fyrir ætlaðan frestdag hafi rýrt greiðslugetu stefnanda verulega en þetta beri stefnanda að sanna. Vísar hann til þess að samkvæmt ársreikningi stefnanda fyrir árið 2007 hafi heildareignir hans numið 1.554.012.230 krónum og samkvæmt ársreikningi stefnanda fyrir árið 2008 hafi heildareignir hans numið 1.722.925.357 krónum. Sem hlutfall af framangreindum stærðum hafi greiðslurnar því rétt aðeins numið um 0,029% - 0,322% af heildareignum og því verið óverulegar. Stefndi mótmælir því að skilyrði 139. gr. laga nr. 21/1991 séu uppfyllt en langstærstur hluti greiðslnanna hafi reyndar verið inntur af hendi fyrir frestdag. Stefndi vísar jafnframt til þess að stefnandi hafi með bindandi málflutningsyfirlýsingu sinni afmarkað málatilbúnað sinn með þeim hætti að greiðslurnar hafi ekki falið í sér greiðslu á skuld. Þegar af þeirri ástæðu geti hann ekki rift greiðslu skuldar með vísan til 139. gr. laganna. Hann telur einnig að reglur XVII. kafla laga nr. 21/1991 hefðu leitt til þess að skuld stefnanda við stefnda hefði greiðst við gjaldþrotaskiptin, a.m.k. að stórum hluta. Þannig byggir stefndi á því að skuldin hafi verið tryggð með veði í öllum hlutum stefnanda í Hrossaræktarbúinu Feti ehf. Með hliðsjón af úrlausn málsins er ekki þörf á því að reifa málsástæður stefnda vegna 141. gr. laga nr. 21/1991. Stefndi byggir varakröfu sína um lækkun greiðslukröfu stefnanda í fyrsta lagi á því að lækka eigi kröfu stefnanda sem nemur greiðslum fyrir frestdag þar sem skilyrði til riftunar séu bersýnilega ekki fyrir hendi. Í öðru lagi hafi 15 af þeim 17 greiðslum sem inntar voru af hendi eftir ætlaðan frestdag samkvæmt málatilbúnaði stefnanda í raun réttri verið inntar af hendi eftir réttilega ákvarðaðan frestdag. Í þriðja lagi beri að lækka dómkröfur stefnanda hlutfallslega sem nemur verðmæti þess veðs sem stefndi hafði fyrir kröfum sínum, enda hefði hann í öllu falli fengið sem verðmæti þess nam upp í skuldina ef ekki hefði komið til greiðslnanna.
Niðurstaða
Með vísan til dóms Hæstaréttar 11. nóvember 2013 í máli nr. 694/2013 verður höfðun málsins miðuð við birtingu stefnu á vinnustað stefnda. Var því ekki runninn út frestur til höfðunar málsins samkvæmt 148. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. þegar málið var höfðað 5. apríl 2013. Með vísan til áðurlýstra atvika málsins og röksemda stefnanda telur dómurinn enn fremur að miða beri við að frestdagur við skipti Háttar ehf. hafi verið 6. apríl 2011.
Í máli þessu liggur fyrir að fjárhæðir voru færðar af reikningi Háttar ehf. yfir á reikning stefnda sem var aðaleigandi félagsins og prókúruhafi. Í málinu er óupplýst hvaða starfsmaður framkvæmdi færslurnar eða hver hafi verið yfirlýstur tilgangur þeirra. Þá hafa ekki komið fram skýringar af hálfu stefnda á færslunum aðrar en þær að um hafi verið að ræða greiðslur á gjaldföllnum skuldum félagsins við hann, en í greinargerð er því hreyft að hér hafi meðal annars verið um að ræða skuldir samkvæmt þeim skuldabréfum sem fjallað var um í máli nr. e 1546/12 og lauk með dómi réttarins 21. september sl. Eins og málið liggur fyrir telur dómurinn að það hafi staðið stefnda nær að leggja fram gögn um þær skuldir við sig sem hann fullyrðir að Háttur ehf. hafi greitt með framangreindum ráðstöfunum, meðal annars hvort og að hvaða marki þeim var ráðstafað til greiðslu framangreindra skuldabréfa. Svo sem áður greinir liggur hins vegar ekkert fyrir um það í hvaða nánara tilgangi umræddar greiðslur voru framkvæmdar, hvorki almennt né í einstökum tilvikum. Í ljósi sönnunarstöðu málsins verður því á það fallist með stefnanda að líta beri svo á að um hafi verið ræða örlætisgerninga sem falli undir reglu 1. mgr. 131. gr. laga nr. 21/1991. Hefur ekki verið leitt í ljós að félagið hafi allt að einu verið gjaldfært þrátt fyrir afhendingu umræddra fjármuna. Verður því fallist á riftunarkröfu stefnanda vegna þeirra greiðslna sem áttu sér stað fyrir frestdag. Að fenginni þessari niðurstöðu þarf ekki að taka afstöðu til þess hvort skilyrðum 141. gr. laga nr. 21/1991 sé fullnægt um þessar greiðslur. Að því er varðar þær greiðslur sem áttu sér stað eftir frestdag telur dómurinn ljóst að stefnda hafi verið fullkunnugt um að komin var fram beiðni um gjaldþrotaskipti. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að umræddar greiðslur hafi verið nauðsynlegar í þágu atvinnurekstrar þrotamannsins, eðlilegar af tilliti til sameiginlegra hagsmuna lánardrottna eða til að fullnægja daglegum þörfum félagsins. Verður því fallist á að greiðslurnar séu riftanlegar samkvæmt 2. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 sem hér á við. Með vísan til framangreinds verður fallist á greiðslukröfu stefnanda samkvæmt 142. gr. laga nr. 21/1991, en engin efni eru til þess að lækka kröfuna af þeim ástæðum sem stefndi hefur vísað til. Það athugast að umrædd niðurstaða málsins er því ekki til fyrirstöðu að stefndi komi fjárkröfum sínum að við skipti stefnanda samkvæmt 143. gr. laganna og er það skiptastjóra að taka afstöðu til slíkra kröfulýsinga samkvæmt nánari reglum laga nr. 21/1991. Fallist verður á dráttarvaxtakröfu stefnanda sem hefur einungis krafist slíkra vaxta frá þingfestingardegi. Í ljósi úrslita málsins verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn 1.000.000 króna og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Af hálfu stefnanda flutti málið Jóhann Baldursson hdl. Af hálfu stefnda flutti málið Halldór Brynjar Halldórsson hdl. Skúli Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Eftirfarandi greiðslum af reikningum Háttar ehf. nr. 0301-26-7108 hjá Arion banka hf. og nr. 0515-14-400969 hjá Íslandsbanka hf. inn á reikninga stefnda, Karls Emils Wernerssonar, á tímabilinu 19. júní 2009 til 27. mars 2012, samtals að fjárhæð 51.979.000 krónur, er rift:
a) Reikningur 0515-14-400969 Dags. Upphæð 14.10.2010 3.000.000 kr. 01.04.2011 5.000.000 kr.
b) Af reikningi 0515-14-400969 Dags. Upphæð 19.06.2009 4.000.000 kr. 24.03.2010 500.000 kr. 26.07.2011 400.000 kr. 02.08.2011 1.000.000 kr. 16.08.2011 2.500.000 kr. 01.09.2011 5.900.000 kr. 13.09.2011 2.000.000 kr. 13.10.2011 3.200.000 kr. 18.10.2011 6.200.000 kr. 17.11.2011 2.319.000 kr. 29.12.2011 400.000 kr. 29.12.2011 600.000 kr. 29.12.2011 1.900.000 kr. 03.01.2012 600.000 kr.
16.01.2012 600.000 kr. 09.03.2012 550.000 kr. 27.03.2012 530.000 kr.
Stefndi greiði stefnanda, þrotabúi Háttar ehf., 51.979.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 16. apríl 2013 til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 1.000.000 króna í málskostnað.
Skúli Magnússon