Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 15. maí 2007.
Mál nr. S-66/2007:
Ákæruvaldið
(Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Tómasi Bergmann Benediktssyni
Lykilorð
Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 26. apríl sl., höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 9. mars 2007 á hendur ákærða, Tómasi Bergmann Benediktssyni, kt. ..., til heimilis að Borgarvík 14, Borgarnesi; „fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 13. maí 2006, ekið bifreiðinni ZZ-951, ófær um að stjórna henni örugglega vegna neyslu örvandi og deyfandi lyfja, á Hvanneyrarvegi, en lögreglan stöðvaði aksturinn á móts við Hvanneyri í Borgarfirði og að hafa haft í vörslum sínum 0,28 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglan fann við leit í bifreiðinni.
Telst þetta varða við 2. mgr. 44. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum og 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 með áorðnum breytingum og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar, skv. 101. og 102. gr.“
I.
Samkvæmt gögnum málsins stöðvuðu tveir lögreglumenn úr lögreglunni í Borgarnesi bifreiðina ZZ-951 á Hvanneyrarvegi á móts við Hvanneyri um kl. 03:20 aðfaranótt laugardagsins 13. maí 2006. Ökumaður bifreiðarinnar reyndist vera Tómas Bergmann Benediktsson, ákærði í máli þessu.
Er rætt var við ákærða á vettvangi vaknaði grunur lögreglu um að ákærði væri undir áhrifum fíkniefna og er í frumskýrslu lögreglu bókað að sjáöldur augna ákærða hafi verið þanin og hann virst þjást af munnþurrki. Við leit fann lögregla efni á gólfi bifreiðarinnar ZZ-951 sem við rannsókn kom í ljós að reyndist vera tóbaksblandað kannabisefni.
Í þágu rannsóknar málsins var ákærði handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem læknir, Kristinn Logi Hallgrímsson, tók úr honum blóðsýni. Í málinu liggur fyrir eftirfarandi skrifleg lýsing læknisins á blóðtökunni:
Kallaður til að taka blóðprufu úr sakborningi aðfaranótt 13. maí 2006. Tómas er mjög þreytulegur og hallar sér fram á borðið. Hann sýnir engin svipbrigði þegar tekin er blóðprufa. Tjáir sig ekkert. Streitist ekkert á móti. Hann er fjarrænn.
Í málinu liggur fyrir matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands frá 13. júní 2006 vegna rannsóknar á blóð- og þvagsýnum sem tekin voru úr ákærða í þágu rannsóknar málsins. Í matsgerðinni, sem unnin var af Jakobi Kristinssyni dósent, segir svo:
Alkóhól (etanól) var ekki í mælanlegu magni í blóðinu. Í þvaginu tetrahýdrókannabínólsýra. Styrkur tetrahýdrókannabínóls í blóði var 4,4 ng/ml. Tetrahýdrókannabínól er hið virka efni í kannabis og er tetrahýdrókannabínólsýra óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Styrkur tetrahýdrókannabínóls í blóði er fremur hár. Gera má ráð fyrir að ökumaður hafi af þeim sökum ekki getað stjórnað bifreið með öruggum hætti þegar blóðsýnið var tekið.
II.
Fyrirkall í máli þessu var gefið út 18. apríl 2007 og birt fyrir ákærða sama dag. Við þingfestingu málsins 26. sama mánaðar sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.
Með vísan til áðurgreindrar lagagreinar þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans. Sú niðurstaða samrýmist gögnum málsins, sbr. það sem rakið er í kafla I hér að framan, að öðru leyti en því að ósannað þykir að ákærði hafi ekið undir áhrifum örvandi lyfja jafnframt því að aka undir áhrifum hins deyfandi efnis kannabis. Eru brot ákærða réttilega færð til refsiákvæða í ákæru.
III.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærði 1. júlí 2005 og 19. júní 2006 undir sektargerðir lögreglustjóra vegna fíkniefnabrota.
Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 90.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Þá þykir rétt, svo sem krafist er í ákæru og með vísan til 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti í sex mánuði frá birtingu dóms þessa að telja.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað. Með vísan til framlagðs sakarkostnaðaryfirlits dæmist ákærði því til að greiða 15.450 krónur vegna töku blóðsýna og 93.454 krónur vegna rannsókna á blóð- og þvagsýnum, eða samtals 108.904 krónur í sakarkostnað.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Tómas Bergmann Benediktsson, greiði 90.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði er sviptur ökurétti í sex mánuði frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 108.904 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Bogason.