Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 16. apríl 2007.
Mál nr. S-52/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Jóhannesson fulltrúi)
gegn
Friðgeiri V. Hjaltalín
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum og reglugerð um sprengiefni.
Mál þetta, sem dómtekið var 14. mars sl., höfðaði lögreglustjórinn í Stykkishólmi með ákæru 19. febrúar 2007 á hendur ákærða, Friðgeiri V. Hjaltalín, kt. ..., til heimilis að Sæbóli 22, Grundarfjarðarbæ; „fyrir vopnalagabrot.
Ákærða er gefið að sök að hafa síðdegis miðvikudaginn 20. september 2006 annast sprengingu í malarnámu í 105 metra fjarlægð frá bænum Gröf 1 í Grundarfjarðarbæ án þess að gæta fyllstu varúðar. Ákærði sá ekki til þess að skotsvæði væri byrgt með sprengimottum með þeim afleiðingum meðal annars að grjóti rigndi yfir bæinn Gröf 1, fjöl brotnaði í sólpalli við húsið og gat kom á ytra byrði fellihýsisins MP- 165 sem þar stóð.
Telst háttsemi ákærða varða við 3. mgr. 27. gr. sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og 36. sbr. 41. gr. reglugerðar um sprengiefni nr. 684/1999.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
I.
Ákærði kom fyrir dóm 14. mars sl. og viðurkenndi brot sitt eins og því er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans telst því sannað og varðar það við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða þykir að broti hans virtu hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari en uppkvaðning dómsins hefur dregist lítillega vegna starfsanna dómara.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Friðgeir V. Hjaltalín, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Benedikt Bogason