Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 14. mars 2007.
Mál nr. S-409/2006:
Ákæruvaldið
(Daði Jóhannesson sýslumaður)
gegn
Birgi Ólafssyni
(Örn Clausen hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir ölvunarakstur.
Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn í Stykkishólmi með ákæru 9. nóvember 2006 á hendur ákærða, Birgi Ólafssyni, Völvufelli 40 í Reykjavík. Málið var dómtekið 1. mars 2007.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir ölvunarakstur með því „að hafa að kvöldi sunnudagsins 2. júlí 2006 ekið Volkswagen fólksbifreiðinni VE-707 um bifreiðastæðið framan við heilsugæslustöðina í Ólafsvík undir áhrifum áfengis. Alkóhólmagn í blóðsýni sem tekið var úr ákærða var 0,88‰.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga.“
Ákærði krefst þess að hann verði sýknaður og sakarkostnaður felldur á ríkissjóð. Til vara er þess krafist að ákærða verði gerð svo væg refsing sem lög frekast leyfa.
I.
Sunnudaginn 2. júlí 2006, laust fyrir kl. 8 að morgni, barst lögreglunni í Ólafsvík tilkynning um að bifreiðinni VE-707 væri ekið í hringi á bifreiðastæði framan við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Tilkynnandi var Hermann Marínó Maggýjarson, sjúkraflutningamaður, og taldi hann sennilegt af aksturslaginu að dæma að ökumaður væri ölvaður. Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og komu að bifreiðinni þar sem henni hafði verið lagt í stæði við Heilsugæslustöðina. Undir stýri bifreiðarinnar sat ákærði og var hann handtekinn. Þá kemur fram í frumskýrslu lögreglu að vélarhlíf bifreiðarinnar hafi verið heit viðkomu. Einnig segir að Hermann Marínu hafi verið fenginn á vettvangi til að staðfesta að ákærði hafi verið sá sem ók bifreiðinni skömmu áður.
Í þágu rannsóknar málsins var blóðsýni dregið úr ákærða og reyndist alkóhól í blóðinu vera 0,88‰ að teknu tilliti til vikmarka (0,98 – 0.10).
II.
Ákærði skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði ásamt félaga sínum, Ægi Þór Ægissyni, og kærustum þeirra, farið á færeyska daga í Ólafsvík í júlí 2006. Ákærði kvaðst hafa ekið vestur og hefðu þau komið þegar liðið var á laugardagskvöld og verið að rúnta um bæinn. Ákærði sagði að kærustur þeirra hefðu orðið eftir í bænum til að tjalda. Ákærði kvaðst hins vegar hafa ekið bifreiðinni að bílastæði við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík en þá hefði verið liðið fram á morgun. Ákærði sagðist hafa ekið um planið við Heilsugæslustöðina en kannaðist ekki við að hafa ekið þar í hringi og spólað. Eftir að bifreiðinni var lagt sagðist ákærði ekki hafa ekið frekar og þá fyrst sagðist ákærði hafa neytt áfengis. Nánar lýsti ákærði þessu þannig að hann hefði á um það bil 20-30 mínútum frá því akstri lauk og þar til hann var handtekinn drukkið 4-6 bjóra.
III.
Vitnið Ægir Þór Ægisson bar fyrir dómi að hann og ákærði hefðu ásamt kærustum sínum farið á færeyska daga í Ólafsvík árið 2006. Vitnið sagði að þau hefðu lagt af stað úr bænum á laugardegi og komið seint vestur til Ólafsvíkur. Þar hefðu þau tjaldað og byrjað að neyta áfengis og drukkið nokkuð stíft. Framhaldinu lýsti Ægir þannig að stelpurnar hefðu verið þreyttar og farið að sofa en hann og ákærði hefðu farið inn í bifreiðina. Vitnið þvertók hins vegar fyrir að ákærði hefði ekið bifreiðinni sem hefði verið lagt við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík við komu og ekki verið hreyfð eftir það. Vitnið kvaðst síðan hafa verið að sofna í farþegasæti bifreiðarinnar þegar lögreglan kom og reif upp hurð bifreiðarinnar. Aðspurður sagði Ægir að ákærði hefði drukkið bjór meðan þau voru að tjalda og áður en þeir fóru inn í bílinn. Hins vegar mundi vitnið ekki hvort ákærði var að dekka þar sem þeir sátu í bifreiðinni áður en ákærði var handtekinn.
Vitnið Hermann Marínó Maggýjarson, sjúkraflutningamaður, kom fyrir dóm og greindi frá því að hann hefði staðið fyrir utan Heilsugæslustöðina í Ólafsvík þegar liðið var fram á morgun umræddan dag. Vitnið kvaðst hafa tekið eftir að bifreið var ekið spólandi í hringi á planinu og síðan lagt í stæði. Kvaðst Hermann ekki hafa talið allt með felldu og því hefði hann haft samband símleiðis við lögreglu sem komið hefði skömmu síðar. Nánar aðspurður taldi Hermann að örfáar mínútur hefðu liðið frá því hann hringdi og þar til lögregla kom á vettvang. Á meðan vitnið beið eftir að lögreglan kæmi kvaðst það hafa fylgst vel með hvort nokkur hefði sætaskipti við ökumann. Fullyrti vitið fyrir dómi að ákærði hefði verið sá sem ók bifreiðinni í umrætt sinn.
Vitnin Guðmundur Hjörvar Jónsson, lögregluvarðstjóri, og Sigurjón Jónsson, lögreglumaður, báru fyrir dómi að tilkynning hefði borist frá Hermanni um að bifreið hefði verið spólað á bílastæðinu fyrir framan Heilsugæslustöðina. Lögreglumennirnir sögðust þegar í stað hafa farið á vettvang og handtekið ákærða. Einnig sögðu þeir báðir að Hermann hefði á vettvangi staðfest að ákærði hefði ekið bifreiðinni.
IV.
Við aðalmeðferð málsins var af hálfu ákæruvaldsins gerð sú leiðrétting á ákæru að akstur sá sem ákærða er gefinn að sök hafi farið fram að morgni sunnudagsins 2. júlí 2006 en ekki að kvöldi þess dags. Þetta aukaatriði ætlaðs brots getur ekki staðið í vegi þess að ákærða verði dæmt áfall, enda hefur vörn málsins ekki verið áfátt af þessum sökum, sbr. 1. mgr. 117. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Fyrir dómi hefur ákærði eindregið neitað að hafa ekið bifreiðinni VE-707 undir áhrifum áfengis umræddan morgun. Nánar lýsti ákærði atburðum þannig að eftir að hafa ekið um planið og lagt bifreiðinni hafi hann drukkið 4-6 bjóra á 20-30 mínútum frá því akstri lauk þar til hann var handtekinn af lögreglu. Þessi frásögn ákærða fær enga stoð í öðru sem fram hefur komið í málinu. Þannig hefur vitnið Hermann Marínó Maggýjarson borið fyrir dómi að örfáar mínútur hafi liðið frá því hann tilkynnti lögreglu um aksturinn og þar til lögregla kom. Þeir lögreglumenn sem handtóku ákærða hafa einnig greint frá því fyrir dómi að þeir hafi þegar komið á vettvang. Þá er ekkert samræmi með frásögn ákærða og framburði Ægis Þórs Ægissonar, ferðafélaga ákærða, en hann greindi frá því fyrir dómi að ákærði hefði verið að drekka eftir að þau komu til Ólafsvíkur og áður en hann og ákærði settust inn í bifreiðina þar sem ákærði var handtekinn um morguninn. Loks verður talin með ólíkindum sú frásögn ákærða að hann hafi snemma að morgni sunnudags tekið upp stífa drykkju eftir að hafa komið til Ólafsvíkur á laugardagskvöldi til að sækja hátíð sem þá var haldin í bænum. Að öllu því virtu sem hér hefur verið rakið er það álit dómsins að frásögn ákærða sé hreinn fyrirsláttur og verður hún ekki lögð til grundvallar við úrlausn málsins.
Vitnið Ægir Þór Ægisson hefur borið fyrir dómi að eftir að hann og ákærði ásamt kærustum þeirra komu til Ólafsvíkur hafi þau tjaldað og farið að drekka áfengi. Þegar þreyta hafi sótt að stelpunum hafi þær farið að sofa en vitnið og ákærði farið í bifreiðina án þess þó að henni hafi verið ekið á stæðinu þar sem henni hafi verið lagt eftir komu til Ólafsvíkur. Þessi framburður vitnisins fer í bága við vætti Hermanns Marínós sem borið hefur að bifreiðinni hafi verið ekið á bifreiðastæðinu fyrir framan Heilsugæslustöðina skömmu áður en ákærði var handtekinn. Einnig hefur ákærði sjálfur kannast við að hafa ekið bifreiðinni 20-30 mínútum áður en hann var handtekinn. Að þessu gættu verður ekkert byggt á vitnisburði Ægis Þórs.
Fyrir dómi hefur vitnið Hermann Marínó lýst atburðum skilmerkilega þegar hann sá bifreiðinni ekið á stæðinu við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík og hvernig það bar til að ákærði var handtekinn skömmu síðar. Jafnframt er framburður vitnisins í fullu samræmi við vætti lögreglumanna um að mjög knappur tími hafi liðið frá tilkynningu til handtöku, svo sem áður er rakið. Að þessu virtu og með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er sannað að ákærði hafi í umrætt sinn ekið á bifreiðastæðinu undir áhrifum áfengis. Verður ákærði því sakfelldur fyrir brotið sem réttilega er fært til laga í ákæru.
V.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi sem hefur áhrif við ákvörðun viðurlaga.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 60.000 króna sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Þá verður ákærði með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga sviptur ökurétti í 6 mánuði frá birtingu dómsins.
Loks verður ákærði samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar samkvæmt yfirliti lögreglu um sakarkostnað og ákvörðun dómsins um málsvarnarlaun verjanda, sem ákveðin eru að meðtöldum virðisaukaskatti, svo sem nánar greinir í dómsorði. Jafnframt verður ákærði dæmdur til að greiða útlagðan vitnakostnað.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Birgir Ólafsson, greiði 60.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði er sviptur ökurétti í sex mánuði frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði 185.567 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Arnar Clausen, hæstaréttarlögmanns, 149.400 krónur.
Benedikt Bogason