Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-313/2006:

Ákæruvaldið

(Daði Jóhannesson sýslumaður)

gegn

Agnari Þór Sigurðssyni

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Áfengislagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Ákærði sakfelldur fyrir áfengis- og fíkniefnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var 11. október sl., höfðaði sýslumaðurinn í Stykkishólmi með ákæru 15. september 2006 á hendur ákærða, Agnari Þór Sigurðssyni, kt. [---], til heimilis að Teigaseli 5, Reykjavík; „fyrir áfengis- og fíkniefnalagabrot.

Ákærða er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 19. ágúst 2006, verið með ölvun og óspektir framan við veitingastaðina Fimm fiska og Narfeyrarstofu í Stykkishólmi, og þá haft í vörslum sínum 0,39 grömm af hassi.

Telst háttsemi ákærða varða við 21. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998 og 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. sbr. 14. gr. reglugerðar  um ávana- og fíkniefni nr. 233/2001, sbr. fylgiskjal I með reglugerðinni, allt með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindu haldlögðu hassi og hasspípu samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með áorðnum breytingum.“

I.

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 25. september 2006 og birt fyrir ákærða 3. október sama ár. Við þingfestingu málsins 11. október sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.

Með vísan til áðurgreindrar lagagreinar þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða teljast því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæruskjali.

II.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Þannig var hann 6. ágúst 1999 dæmdur til greiðslu 38.000 króna sektar fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 31. maí 2005 gekkst hann undir sektargerð lögreglustjóra þess efnis að hann greiddi 28.000 króna sekt fyrir brot gegn sömu lögum.

Samkvæmt framansögðu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin 45.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Meðal gagna málsins er skjal, undirritað af ákærða, þar sem hann afsalar lögreglu, til eyðingar, munum þeim er ákæruvaldið krefst upptöku á í málinu. Er því þarflaust að kveða á um upptöku munanna í dómsorði.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.

Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Agnar Þór Sigurðsson, greiði 45.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Benedikt Bogason