Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. E-393/2006:

Landsbanki Íslands hf.

(Ólafur Helgi Árnason hdl)

gegn

Ólafi Jökli Herbertssyni

Skuldamál.

Skuldari dæmdur til að greiða úttekt af kreditkorti.

Mál þetta var höfðað 11. október 2006 og dómtekið 19. desember sama ár. Stefnandi er Landsbanki Íslands hf., Austurstræti 11, Reykjavík. Stefndi er Ólafur Jökull Herbertsson, Keflavíkurgötu 18, Hellissandi.

Kröfur stefnanda eru að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 246.511 krónur og bankakostnað 2.515 krónur ásamt dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 237.491 krónu frá 2. júní 2006 til 4. september 2006, en af 246.511 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst stefnandi vaxtavaxta skv. 12. gr. sömu laga er leggist við höfuðstól á tólf mánaða fresti, auk málskostnaðar.

Engar kröfur hafa verið gerðar af hálfu stefnda í málinu.

I.

Stefnandi lýsir málsatvikum og reifar málsástæður sínar svo í stefnu að skuld stefnda sé til komin vegna úttekta hans með VISA-greiðslukorti. Greiðslukortið hafi verið útgefið til stefnda samkvæmt umsókn. Vegna vanskila og misnotkunar stefnda á greiðslukortinu hafi heimild hans til notkunar kortsins verið afturkölluð.

Stefnandi segir tvo reikninga vera í vanskilum vegna úttekta stefnda. Annars vegar reikning að fjárhæð 242.307 krónur frá 22. maí 2006, með gjalddaga 2. júní 2006, og hins vegar reikning að fjárhæð 15.753 krónur frá 22. ágúst 2006, með gjalddaga 4. september 2006. Samanlagt nemi reikningsfjárhæðirnar 246.511 krónu að frádregnum dráttarvöxtum.

Til stuðnings kröfum sínum vísar stefnandi til meginreglna kröfu- og samningaréttar um greiðslu fjárskuldbindinga. Þá vísar stefnandi um rétt sinn til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun til laga nr. 50/1988, en stefnandi kveðst ekki vera virðisaukaskattskyldur aðili og honum beri því nauðsyn til að fá dóm fyrir skattinum úr hendi stefnda.

II.

Við þingfestingu málsins 8. nóvember 2006 sótti stefndi ekki þing þrátt fyrir löglega stefnubirtingu. Hinn 19. desember sl. lagði stefnandi fram sókn til lækkunar á kröfum sínum og var málið síðan dómtekið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Samkvæmt nefndu ákvæði ber að dæma málið eftir kröfum og málatilbúnaði stefnanda að því leyti sem er samrýmanlegt framkomnum gögnum nema gallar séu á málinu sem varða frávísun þess án kröfu.

Framlögð gögn eru í samræmi við málatilbúnað stefnanda og engir þeir gallar á málinu sem varða frávísun þess án kröfu. Því þykir verða að fallast á kröfur stefnanda í málinu.

Rétt stefnanda til höfuðstólsfærslu dráttarvaxta á 12 mánaða fresti má leiða beint af ákvæðum 12. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.  Það er því óþarft að kveða á um slíka höfuðstólsfærslu í dómsorði.

Með vísan til úrslita málsins, sbr. 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, dæmist stefndi til að greiða stefnanda málskostnað sem hæfilega telst ákveðinn svo sem í dómsorði greinir.

Benedikt Bogason héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Stefndi, Ólafur Jökull Herbertsson, greiði stefnanda, Landsbanka Íslands hf., 246.511 krónu og bankakostnað 2.515 krónur ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 237.491 krónu frá 2. júní 2006 til 4. september 2006, en af 246.511 krónu frá þeim degi til greiðsludags.

Stefndi greiði stefnanda 46.000 krónur í málskostnað.

Benedikt Bogason.