Héraðsdómur Vestfjarða
Úrskurður 8. janúar 2025.
Mál nr. T-94/2024:
Ástríður Halla Magnúsdóttir, Jón Guðmundur Magnússon, Sigurlína Kristín
Magnúsdóttir, Sigurjón Kristjánsson, Ólafur Jón Hákonarson, Bergþóra Haukdal
Hákonardóttir, Jón Ingi Hákonarson, Linda Björk Haukdal Hákonardóttir og
Ingólfur Hákonarson
(Guðjón Rúnarsson lögmaður)
gegn
sýslumanninum á Vestfjörðum
(Sigríður Eysteinsdóttir staðgengill sýslumanns)
Lykilorð
Útdráttur
Hafnað var kröfu sóknaraðila um að ógilt yrði ákvörðun sýslumanns um leiðréttingu skráninga í fasteignabók vegna jarðarinnar Höll í Haukadal.
Mál þetta er rekið eftir 3. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978 en samkvæmt 1. mgr. lagagreinarinnar er hverjum þeim sem hefur lögvarinna hagsmuna að gæta vegna ákvörðunar þinglýsingarstjóra heimilt að bera úrlausn þinglýsingarstjóra um þinglýsingu samkvæmt lögunum undir héraðsdómara í lögsagnarumdæmi hans. Úrlausnin skal borin undir dóm áður en fjórar vikur eru liðnar frá henni ef þinglýsingarbeiðandi eða umboðsmaður hans var við hana staddur en ella áður en fjórar vikur eru liðnar frá þeim tíma er hann eða umboðsmaður hans fékk vitneskju um hana.
Beiðni sóknaraðila barst dóminum upphaflega með tölvubréfi 11. nóvember 2024 en henni fylgdi sú skýring að ákvörðun þinglýsingarstjóra 12. ágúst 2024 hafi ekki borist þeim. Ákvörðunin hafi því verið send sóknaraðilum að nýju með bréfi 15. október 2024 Þessari lýsingu sóknaraðila hefur ekki verið andmælt af hálfu varnaraðila og verður því að leggja til grundvallar að beiðnin hafi komið fram innan fjögurra vikna frá því sóknaraðilar fengu vitneskju um ákvörðun varnaraðila í skilningi 1. mgr. 3. gr. laga nr. 39/1978. Verður málinu því ekki vísað frá dómi með vísan til þess að beiðnin hafi borist of seint. Eftir að beiðnin barst var lögmanni sóknaraðila leiðbeint um form hennar auk þess sem málflutningsumboð hafi ekki fylgt henni. Barst ný beiðni með bréfi 13. desember 2024 eins og áður segir.
Heimild til að bera mál undir dóm samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þinglýsingalaga er sérstaks eðlis. Í slíku máli verður einungis leyst úr því hvort úrlausn þinglýsingarstjóra hafi verið formlega réttmæt eins og málið horfði við honum. Ekki verður hins vegar skorið úr um efnisleg réttindi að baki þeim skjölum sem um er deilt.
Í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 39/1978 er mælt fyrir um það að þinglýsingarstjóri skuli bæta úr ef hann verður þess áskynja að færsla í fasteignabók er röng eða mistök hafa orðið um þinglýsinguna ella. Við leiðréttingu á grundvelli ákvæðisins ber að miða að því að færa fasteignabók í rétt horf þannig að hún sýni réttarstöðuna eins og hún var áður en mistök áttu sér stað. Skal þinglýsingarstjóri í því sambandi huga að atriðum sem varða formleg réttindi samkvæmt þinglýstum skjölum en ekki atvikum að baki þeim eða hvort réttarstaðan hafi breyst, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar Íslands 9. október 2019 í máli nr. 32/2019.
Ákvörðun varnaraðila sem hér er fjallað um beinist sem fyrr segir að því að leiðrétta skráð eignarhlutfall einstaklinga í fasteigninni „Höll Haukadalur 4“ í fasteignabók. Af ákvörðuninni og skýringum varnaraðila til dómsins verður sú ályktun dregin að fyrir breytinguna hafi eignarhlutföllin verið reiknuð út frá rangri heildarstærð eignarinnar. Felur það tvímælalaust í sér mistök að áliti dómsins að skrá eignarhlutföll í fasteignabók með röngum hætti af þeim sökum og verður því að líta svo á að ákvörðun varnaraðila hafi falið í sér leiðréttingu á þeim mistökum. Er það því niðurstaða dómsins að ákvörðunin hafi átt stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 39/1978. Í málatilbúnaði sóknaraðila er hins vegar byggt á því að vegna efnisatvika að baki tilteknum skjölum beri ekki að taka tillit til þeirra við skráningu eignarhlutfalla í fasteigninni. Verður því ekki séð að kröfur sóknaraðila í málinu og málsástæður fyrir þeim lúti að þeirri ákvörðun sýslumanns sem um er fjallað í málinu heldur felst í raun í þeim að sýslumanni verði gert að taka aðra efnisákvörðun um þinglýstar eignarheimildir hvað umrædda fasteign varðar. Eins og áður segir verður ekki leyst úr slíkum málsástæðum í máli sem rekið er eftir 3. gr. laga nr. 39/1978. Er því ekki unnt að fallast á kröfur sóknaraðila.
Í málinu eru ekki gerðar kröfur um málskostnað og þykir rétt að aðilar beri hvor sinn kostnað af málarekstrinum.
Oddur Þorri Viðarsson dómstjóri kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu sóknaraðila, Ástríðar Höllu Magnúsdóttur, Jóns Guðmundar Magnússonar, Sigurlínu Kristínar Magnúsdóttur, Sigurjóns Kristjánssonar, Ólafs Jóns Hákonarsonar, Bergþóru Haukdal Hákonardóttur, Jóns Inga Hákonarsonar, Lindu Björk Haukdal Hákonardóttur og Ingólfs Hákonarsonar um að fella úr gildi ákvörðun varnaraðila, sýslumannsins á Vestfjörðum, 12. ágúst 2024 um leiðréttingu færslna í þinglýsingarbók varðandi jörðina „Höll Haukadalur 4“ (F2125173).
Málskostnaður úrskurðast ekki.
Oddur Þorri Viðarsson