Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. Z-1/2010:

Frávísun frá héraðsdómi. Nauðungarsala. Úthlutun söluverðs.

Ágreiningsmáli vegna nauðungarsölu vísað frá dómi þar sem sóknaraðili var ekki talinn njóta réttar skv. 2. mgr. 73. gr. laga nr. 90/1991 til að leita bréflega úrlausnar héraðsdómara um ákvörðun sýslumanns.

Í málinu krefst sóknaraðili þess að ákvörðun sýslumannsins á Patreksfirði, dags. 16. apríl 2010, um að breyta ekki frumvarpi til úthlutunar á söluverði skuttogarans Hallgríms BA 77, skipaskrárnúmer 1612, sem seldur var á nauðungarsölu 8. febrúar 2010, verði felld úr gildi og lagt verði fyrir sýslumann að taka til greina kröfu sóknaraðila eins og henni var lýst í kröfulýsingu 4. desember 2010.

I.

Með bréfi 22. apríl 2010 lýsti sóknaraðili því yfir við sýslumanninn á Patreksfirði að hann hefði ákveðið að leita úrlausnar Héraðsdóms Vestfjarða vegna ákvörðunar sýslumanns 16. apríl 2010 um að breyta ekki frumvarpi til úthlutunar á söluverði skuttogarans Hallgríms BA 77, skipaskrárnúmer 1612, sem seldur var nauðungarsölu 8. febrúar 2010, þannig að úthlutað væri til kröfu sóknaraðila í samræmi við kröfulýsingu hans við nauðungarsöluna, dags 4. desember 2009.

Sóknaraðili kveðst með bréfi 29. apríl 2010 hafa sent dómnum gögn vegna ofangreinds málskots. Samkvæmt framlögðu bréfi sóknaraðila, dagsettu nefndan dag, var heimilisfang dómsins þar ranglega tilgreint og barst bréfið dómnum ekki. Þá liggur og fyrir að tveir tölvupóstar lögmanns sóknaraðila sem hann ætlaði dómnum, og innihéldu fyrirspurn lögmannsins um framgang málskotsins, bárust dómnum ekki þar sem þeir voru sendir á rangt tölvupóstfang. Það var því ekki fyrr en með tölvupósti lögmanns sóknaraðila 8. júní sl. sem dómnum barst loks málskot sóknaraðila og gögn málsins.

II.

Sóknaraðili lýsir málsatvikum svo að með kröfulýsingu 4. desember 2009 hafi hann lýst kröfu að fjárhæð 2.702.117 krónur til lokauppboðs við nauðungarsölu skuttogarans Hallgríms BA 77. Kröfu sína segir sóknaraðili byggjast á haldsrétti skv. 200. gr. siglingalaga nr. 34/1985, vegna viðgerðar sem framkvæmd hafi verið á skipinu.

Í frumvarpi sýslumanns til úthlutunar söluverðs, dagsettu 27. febrúar 2010, kveður sóknaraðili ekki hafa verið tekið tillit til kröfu sinnar. Lögmaður sóknaraðila hafi því mótmælt frumvarpinu með bréfi 4. mars 2010 og hafi sýslumaður boðað sóknaraðila á fund til að fjalla um mótmælin kl. 12:00, 12. apríl 2010. Lögmaður sóknaraðila hafi óskað eftir stuttum fresti til frekari gagnaöflunar og sýslumaður orðið við þeirri beiðni og ákveðið að fresta fundi til umfjöllunar um mótmæli sóknaraðila til kl. 12:00 hinn 16. apríl 2010. Fyrrnefnd gögn sem sóknaraðili hafi ætlað að leggja fyrir sýslumann hafi ekki legið fyrir fyrr en eftir áðurgreindan fundartíma, en þau hafi verið send sýslumanni kl. 14:06 þennan sama dag. Þá hafi mótmælafundi sýslumanns verið lokið og hin umdeilda ákvörðun hans legið fyrir.

III.

Heimild sína til að leita úrlausnar dómsins um ákvörðun sýslumannsins á Patreksfirði, dags. 16. apríl 2010, kveðst sóknaraðili byggja á 1. mgr. 52. gr., sbr. 73. gr., laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu. Sóknaraðili hafi mótmælt frumvarpi sýslumanns til úthlutunar söluverðs Hallgríms BA 77, dagsettu 27. febrúar 2010, með bréfi til embættisins 4. mars 2010. Skv. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 90/1991 sé aðila heimilt að skjóta ákvörðun sýslumanns um breytingar á frumvarpi til úthlutunar til héraðsdómara samkvæmt ákvæðum XIII. kafla sömu laga, en fram hafi komið í samskiptum sýslumanns og lögmanns sóknaraðila „... að sóknaraðila yrði ekki kleift að mæta á fundinn, heldur yrði skilað inn gögnum máli hans til stuðnings ...“

IV.

Í 1. mgr. 52. gr. laga nr. 90/1991 segir að komi fram mótmæli gegn frumvarpi innan frests skv. 51. gr. laganna skuli sýslumaður boða þá sem mótmælin varða á sinn fund. Þegar hlutaðeigendum hafi gefist kostur á að tjá sig um mótmælin skuli sýslumaður bóka ákvörðun í gerðabók um hvort hann taki þau til greina og breyti frumvarpi því til samræmis. Aðili að nauðungarsölunni má að svo búnu leita úrlausnar héraðsdóms á ágreiningi um ákvörðunina samkvæmt ákvæðum XIII. kafla.

Ekki var mætt af hálfu sóknaraðila á fund þann sem sýslumaður boðaði til vegna mótmæla við frumvarpi til úthlutunar á söluverði Hallgríms BA 77 og hófst kl. 12:00 hinn 16. apríl 2010. Á fundinum ákvað sýslumaður meðal annars að verða ekki við kröfu sóknaraðila um að breyta frumvarpi til úthlutunar á söluverði skipsins þannig að úthlutað væri til sóknaraðila 2.702.117 krónum. Þeirri ákvörðun sýslumanns ákvað sóknaraðili að vísa til dómsins samkvæmt áðursögðu, sbr. bréf sóknaraðila frá 22. apríl sl. sem móttekið var 8. júní sl. Skv. 2. mgr. 73. gr. skal sá sem vill leita úrlausnar héraðsdómara lýsa því yfir við fyrirtöku á nauðungarsölunni, þar sem sú ákvörðun kemur fram sem leita á úrlausnar um. Hafi hlutaðeigandi ekki verið staddur við fyrirtökuna og ekki mátt fá boðun til hennar eða haft lögmæt forföll eða ákvörðunin kom ekki fram við fyrirtöku, má hann þó koma yfirlýsingu sinni bréflega fram við sýslumann innan viku frá því honum varð kunnugt um ákvörðunina, ef henni hefur ekki þegar verið framfylgt með aðgerðum við nauðungarsöluna.

Fyrir liggur samkvæmt því sem rakið er í köflum II og III hér að framan og boðunarbréfi sýslumanns frá 26. mars 2010, sbr. og eftirfarandi tölvupóstsamskipti sýslumanns og lögmanns sóknaraðila, að sóknaraðila var um fundinn 16. apríl sl. kunnugt. Hefur ekkert komið fram um að sóknaraðili hafi haft lögmæt forföll. Er þvert á móti ljóst af áður tilvitnuðum tölvupóstsamskiptum að lögmaður sóknaraðila kaus að sækja ekki fundinn og láta við það sitja að senda til sýslumanns gögn til stuðnings kröfu sóknaraðila með tölvupósti, en þau gögn bárust sýslumanni reyndar ekki fyrr en kl. 14:06 umræddan dag, að fundi sýslumanns loknum. Að þessum atvikum virtum er ljóst að sóknaraðili naut ekki réttar skv. 2. mgr. 73. gr. laga nr. 90/1991 til að leita bréflega úrlausnar héraðsdómara um fyrrnefnda ákvörðun sýslumanns 16. apríl sl., svo sem hann freistaði að gera með áðurgreindu erindi sínu til dómsins. Samkvæmt því og með stoð í 1. mgr. 74. gr. laga nr. 90/1991 verður máli þessu vísað frá dómi.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Kristinn Halldórsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 90/1991 Lög um nauðungarsölu 2. mgr. 73. gr.