Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-49/2007:

Ákæruvaldið

(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)

gegn

Sveini Fannari Jónssyni

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Skipstjóri. Útivist.

S var gerð sekt fyrir að sigla skipi óhaffæru þar sem haffærisskírteini var útrunnið.

Mál þetta, sem var dómtekið 16. þ. m., höfðaði sýslumaðurinn á Ísafirði 4. maí sl. með ákæru á hendur Sveini Fannari Jónssyni, fæddum 31. maí 1978, Stigahlíð 2, Bolungarvík, „fyrir brot á siglingalögum og lögum um eftirlit með skipum, með því að hafa föstudaginn 15. desember 2006 sem skipstjóri á fiskiskipinu Albert Jó SH 707, sknr. 7331, sem er 5,02 rúmlestir, lagt bátnum úr höfn óhaffærum vegna þess að haffærisskírteini hans var útrunnið, en Landhelgisgæslan kom að bátnum þar sem hann var við veiðar á stað 66°15´N-023°31´V og tilkynnti lögreglu sem hafði afskipti af bátnum við komu hans til hafnar í Bolungarvík.

Telst þetta varða við 6. gr. siglingalaga nr. 34/1985 og 1. mgr. 9. gr., sbr. 1. tl. 17. gr. og 29. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði sótti ekki þing, sem hann var boðaður til með fyrirkalli, þar sem þess er getið að fjarvist hans yrði metin svo að hann viðurkenndi að hafa framið þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir og að málið yrði dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Með skírskotun til afstöðu ákærða, sem hann hefur gefið til kynna með fjarveru sinni, og efnis rannsóknargagna þykir sök ákærða nægilega sönnuð og varðar háttsemi hans við tilgreind lagaákvæði í ákærunni.

Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar hans fyrir framangreint brot, sem ákveðst 20.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fangelsi í tvo daga í stað sektarinnar, verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms að telja.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Sveinn Fannar Jónsson, greiði 20.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í  tvo daga.

Erlingur Sigtryggsson