Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 28. mars 2007.
Mál nr. S-37/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Samúel Sigurjóni Samúelssyni
Lykilorð
Áfengislagabrot. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögreglu- og áfengislögum.
Mál þetta, sem dómtekið var 21. mars sl., höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 1. mars 2007 á hendur ákærða, Samúel Sigurjóni Samúelssyni, kt. [---], Álfabyggð 1, Súðavík.
Í málinu er ákærða í fyrsta lagi gefið að sök umferðarlagabrot, þriðjudaginn 2. maí 2006, með því að hafa sem ökumaður bifreiðarinnar UA-599 ekki haft ökuskírteini meðferðis við aksturinn þegar lögregla hafði afskipti af honum við Ásgeirsgötu á Ísafirði. Er brot þetta í ákæru talið varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þá eru ákærða í málinu jafnframt gefin að sök brot gegn áfengis- og lögreglulögum, aðfararnótt sunnudagsins 8. október 2006, með því að hafa; „... verið með ölvun og óspektir og hindrað lögreglu við skyldustörf við Austurveg á Ísafirði, með því að hafa lamið í rúður lögreglubifreiðar þegar aka átti brotaþola líkamsárásar á sjúkrahús til aðhlynningar og með því að hlýða ekki tilmælum lögreglu um að láta af háttsemi sinni.“ Telur ákæruvaldið brot þessi varða við 21. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998 og 19. gr. og 21. gr., sbr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Af ákæruvaldsins hálfu er þess krafist í málinu að ákærði verði dæmdur til refsingar.
I.
Ákærði kom fyrir dóm við þingfestingu málsins 21. mars sl. og viðurkenndi þau brot sín sem að framan er lýst. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans teljast því sönnuð og varða þau við áður tilvitnuð lagaákvæði. Samkvæmt þessu þykir mega leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar í máli þessu. Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 35.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Af framlögðum gögnum verður ekki ráðið að sakarkostnaður hafi fallið til við rannsókn og rekstur málsins.
Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson, settur héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Samúel Sigurjón Samúelsson, greiði 35.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Kristinn Halldórsson