Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 18. september 2006.
Mál nr. S-130/2005:
Ákæruvaldið
(Jónas Guðmundsson sýslumaður)
gegn
Aroni Snorra Bjarnasyni
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Nytjastuldur. Svipting ökuréttar. Skilorðsrof. Ölvunarakstur.
Útdráttur
A var dæmdur fyrir nytjastuld og ölvunarakstur. Skilorðsdómur dæmdur upp. Dæmt var óskilorðsbundið fangelsi, sekt, ökuréttarsvipting og skaðabætur.
Mál þetta sem var dómtekið í dag höfðaði sýslumaðurinn í Bolungarvík með ákæru 20. október 2005 á hendur Aroni Snorra Bjarnasyni, f. [.....], Daltúni 32, Kópavogi „fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 17. júlí 2005, í heimildarleysi tekið bifreiðina YO-131 þar sem henni hafði verið lagt á svæði Bolungarvíkurhafnar og ekið henni þaðan sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (áfengismagn í blóði 1,80‰) út úr bænum eftir þjóðvegi 61, Djúpvegi, en misst stjórn á henni á móts við bæinn Ós í Bolungarvík með þeim afleiðingum að hún rakst á ljósastaur, kastaðist af honum út fyrir veginn og skemmdist mikið.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1956 og 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102 gr. umferðarlaga, sbr. lög nr. 44/1993.
Í málinu liggur frammi bótakrafa frá Gylfa Þór Gíslasyni, kt. [.....], að fjárhæð kr. 579.192.“
Ákærði hefur játað sök. Með játningu hans og með tilliti til rannsóknargagna lögreglu, telst sök hans nægilega sönnuð og varðar háttsemi hans við tilgreind lagaákvæði í ákærunni.
Ákærði á nokkurn sakaferil að baki. Með broti sínu rauf hann skilorð dóms frá 10. desember 2004, þar sem hann var dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyrir þjófnað, skilorðsbundið í þrjú ár. Var með þeim dómi dæmd upp fangelsisrefsing sem ákærði hlaut þann 24. janúar 2003, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir brot gegn 252. gr. og 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Þann 17. ágúst 2004 sætti hann sekt og sviptingu ökuréttar í 12 mánuði fyrir brot gegn m.a. 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og aftur sekt og sviptingu ökuréttar í sex mánuði til viðbótar þann 10. desember 2004 fyrir brot gegn sömu ákvæðum.
Taka verður upp refsingu ákærða samkvæmt framangreindum dómi frá 10. desember 2004 og dæma honum refsingu samkvæmt reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir ekki ástæða til að þyngja fangelsisrefsinguna með tilliti til þeirra reglna, en þar sem ákærði olli verulegu tjóni með broti sínu og með tilliti til þess að hann hefur ítrekað rofið skilorð, þykir ekki fært að skilorðsbinda hana. Þá verður ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot sín, sem með tilliti til sakaferils hans ákveðst 240.000 krónur. Komi 18 daga fangelsi í stað sektarinnar, verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja. Þá verður ákærði sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu þessa dóms að telja.
Í ákæru er höfð uppi bótakrafa, sem ákærði kveðst ekki mótmæla. Verður hún dæmd eins og krafist er.
Dæma ber ákærða til greiðslu sakarkostnaðar, sem nemur 52.941 krónu.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson, dómstjóri.
Dómsorð:
Ákærði, Aron Snorri Bjarnason, sæti fangelsi í fimm mánuði og greiði 240.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Komi fangelsi í 18 daga í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.
Ákærði er sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu þessa dóms að telja.
Ákærði greiði Gylfa Þór Gíslasyni 579.192 krónur.
Ákærði greiði 52.941 krónu í sakarkostnað.
Erlingur Sigtryggsson