Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-276/2021:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Hilda Rut Harrysdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Guðjóni Bergi Jakobssyni

(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Fjársvik. Þjófnaður.

Ákærði var fundinn sekur um ítrekuð auðgunarbrot, nánar tiltekið þjófnað og fjársvik og honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 9. september sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 7. júní sl., á hendur Guðjóni Bergi Jakobssyni, […]

I.

fyrir þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 19. ágúst 2020, í verslun BYKO við Langholt 1 á Selfossi, stolið Lux bakpoka, Bosch sagarbor, stingsög og Tactíx síðubít, samtals að verðmæti kr. 62.200. Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

II.

fyrir þjófnað og fjársvik með því að hafa, föstudaginn 27. ágúst 2020, í starfsmannaaðstöðu Heilsustofnunar NLFÍ að Grænumörk 10 í Hveragerði, stolið svörtu […] veski og greiðslukorti sem í veskinu var, sem hvort tveggja var í eigu A, og í kjölfarið síðar þann sama dag, í verslun Vínbúðarinnar í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði, svikið út vörur að fjárhæð kr. 3.220, með því að framvísa greiðslukortinu og látið þannig skuldfæra andvirði kaupanna á reikning rétthafa. Teljast brot ákærða varða við 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti við þingfestingu málsins, ásamt Ómari R. Valdimarssyni lögmanni, sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði tíu sinnum áður sætt refsingu, þar af sex sinnum vegna auðgunarbrota. Þann 28. nóvember 2011 var ákærði fundinn sekur um þjófnað og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þann 20. september 2012 var ákærði fundinn sekur um tilraun til þjófnaðar og honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þann 30. maí 2013 var ákærði enn fundinn sekur um þjófnað, framangreind refsing dæmd upp og ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði. Þann 29. ágúst 2013 var ákærða dæmdur hegningarauki vegna gripdeildar, en honum ekki gerð sérstök refsing. Þann 1. febrúar 208 var ákærði fundinn sekur um þjófnað og gripdeild og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga. Loks var ákærði þann 31. maí 2019 meðal annars fundinn sekur um þjófnað og fjársvik, og honum gert að sæta fangelsi í tíu mánuði. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Að virtum sakaferli ákærða þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda hans og er hæfilega ákveðin 141.360 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnaður verjanda, 13.680 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, Guðjón Bergur Jakobsson, sæti fangelsi í sex mánuði.

Ákærði greiði sakarkostnað samtals, 155.040 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 141.360 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnaður verjanda, 13.680 krónur.

Sólveig Ingadóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 244. gr.248. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 164. gr.235. gr.