Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. Z-83/2019:

Víðibrekka ehf.

(Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

gegn

Landsbankanum hf.

Þann 26. mars 2019 barst dóminum krafa sóknaraðila um að ákvörðun

(Reynir Þór Garðarsson lögmaður)

Frávísun frá héraðsdómi. Málshöfðunarfrestur. Nauðungarsala.

Máli vegna nauðungarsölu vísað frá dómi. Málshöfðunarfrestur

Þegar frestur skv. 1. mgr. er liðinn verður því aðeins leitað úrlausnar

héraðsdómara um gildi nauðungarsölu að það sé samþykkt af hendi allra aðila að henni, sem hafa haft uppi kröfur fyrir sýslumanni og úrlausnin gæti varðað, svo og kaupanda að eigninni ef um hann er að ræða.“

Þannig liggur fyrir að uppboði lauk 12. febrúar 2019, en krafa sóknaraðila barst dóminum 26. mars 2019, en þá var liðinn sá 4 vikna frestur sem áskilinn er í 1. mgr. 80. gr. nefndra laga. Liggur fyrir að varnaraðili hefur ekki veitt samþykki sitt fyrir því að gildi nauðungarsölunnar verði borið undir dóminn. Ekki kemur til álita að miða við annað tímamark í málinu, enda beinist krafa sóknaraðila að ákvörðun um að láta nauðungarsöluna fara fram, en ekki annað.

Ber þegar af þessum ástæðum að vísa málinu frá dómi.

Þrátt fyrir þetta þykir rétt að málskostnaður falli niður eins og málið er vaxið.

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Málskostnaður fellur niður.

Sigurður G. Gíslason.