Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. Z-711/2019:

Víðibrekka 3 ehf.

(Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

gegn

Landsbankanum hf.

Með bréfi, dags. 21. nóvember 2019, sem móttekið var 22. nóvember sl., leitar

sóknaraðili, Víðibrekka 3 ehf., úrlausnar héraðsdómara um gildi ákvörðunar

(Reynir Þór Garðarsson lögmaður)

Úthlutun söluverðs.

Nauðungarsala. Frávísun. Málshöfðunarfrestur

3. júní 2019, í máli nr. Z-83/2019, var málinu vísað frá dómi skv. 80. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu, þar sem krafa sóknaraðila barst ekki innan tilskildra tímamarka. Þá barst dóminum hinn 15. júlí 2019 krafa sóknaraðila um að ákvörðun sýslumanns á Suðurlandi um að úthluta 24.923.549 kr. til Landsbankans, skv. 3. lið frumvarpsins, yrði hrundið og breytt þannig að til komi úthlutun til sóknaraðila […]að fjárhæð 1.250.000 kr. og úthlutun til sóknaraðila Víðibrekku 3 ehf. að fjárhæð 23.673.549 kr. og til vara að ákvörðun Sýslumanns á Suðurlandi um að úthluta 24.923.549 kr. til Landsbankans, skv. 3. lið frumvarpsins, yrði hrundið og breytt þannig að úthlutað yrði til varnaraðila 20.000.000 kr. sem er höfuðstóll þess skuldabréfs sem varnaraðili leiðir rétt sinn af, án vaxta og verðbóta. Þá yrði úthlutun til sóknaraðila […] 1.250.000 kr. og til sóknaraðila Víðibrekku 3 ehf. 3.673.549 kr. Með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands 14. nóvember 2019, í máli nr. Z-380/2019, var málinu vísað frá dómi, þar sem málatilbúnaður sóknaraðila var haldinn slíkum annmörkum, sbr. e lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 2. mgr. 77. gr. laga nr. 90/1991, að óhjákvæmilegt var að vísa málinu frá í heild sinni.

Samkvæmt 80. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu, getur hver sá sem hefur lögvarinna hagsmuna að gæta leitað úrlausnar héraðsdómara um gildi nauðungarsölu, þegar uppboð hefur lokið skv. V. eða XI. kafla, tilboði hefur verið tekið í eign skv. VI. kafla eða andvirði réttinda hefur verið greitt sýslumanni eftir ráðstöfun skv. 2. eða 3. mgr. 71. gr., en krafa þess efnis skal þá berast héraðsdómara innan fjögurra vikna frá því fyrrgreinda tímamarki sem á við hverju sinni. Málshöfðunarfrestur er því löngu liðinn og er hvorki í XIII. kafla né XIV. kafla laganna sérstök heimild til að bera mál öðru sinni undir héraðsdóm eftir að upphaflegu máli um sama sakarefni hefur verið vísað frá dómi. Samkvæmt ofangreindu og með vísan til dóma Hæstaréttar Íslands í málum nr. 400/2008, 401/2008 og 722/2013, ber að vísa máli þessu frá dómi án þess að kveðja aðila þess eða taka það að öðru leyti fyrir á dómþingi.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Máli þessu er vísað frá dómi.

Sigurður G. Gíslason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 90/1991 Lög um nauðungarsölu 3. mgr. 71. gr.2. mgr. 77. gr.80. gr.XIV. kafli
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 1. mgr. 80. gr.

Dómaskrá