Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-30/2019:

D Ó M U R

máli nr. S-30/2019:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Darius Savickas

(Sigurður Sigurjónsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Skilorð.

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir ávana- og fíkniefnabrot. Skilorð.

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið mánudaginn 21. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 17. janúar sl., á hendur Darius Savickas, „fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 27. nóvember 2018, í íbúðarhúsi að Björk 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi, haft í vörslu sinni 96 kannabisplöntur  [3-70 cm á hæð] er samtals vógu 7769,16 g, 2623,28 g af kannabislaufum og 153,03 g af maríhúana sem lögregla fann við húsleit í umræddu húsi og fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til þessa dags ræktað þar framangreindar kannabisplöntur.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum   fíkniefnum   (efnaskrá   lögreglu   nr.   39518)   og   búnaði   til ólögmætrar   ræktunar   og   meðferðar   fíkniefna   sbr.   munaskrá   lögreglu   nr. 134105 samkvæmt 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði   mætti   við   þingfestingu   málsins,   ásamt   Sigurði   Sigurjónssyni lögmanni sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að   aðilum   hafði   verið   gefinn   kostur   á   að   tjá   sig   um   lagaatriði   og   ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði ekki áður sætt refsingu.

Er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Að teknu tilliti til hreinskilningslegrar játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður sætt refsingu, þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Þá ber að gera upptæk þau efni og áhöld sem í ákæru greinir með vísun til þeirra ákvæða sem getið er þar.

Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða, og þykir hæfilega ákveðin 421.600 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Sigurður G. Gíslason héraðsdómar kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði,   Darius   Savickas,   sæti   fangelsi   í   fjóra   mánuði,   en   fresta   skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Gerðar eru upptækar 96 kannabisplöntur, sem samtals vógu 7769.16 g, 2623,28 g af kannabislaufum og 153,03 g af marihuana, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 39518.

Gerður   er   upptækur   búnaður   til   ólögmætrar   ræktunar   og   meðferðar fíkniefna, sbr. munaskrá lögreglu nr. 134105.

Ákærði greiði sakarkostnað samtals 421.600 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Sigurðar Sigurjónssonar lögmanns, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sigurður G. Gíslason