Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-23/2019:

D Ó M U R

máli nr. S-23/2019:

Ákæruvaldið

(Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi)

gegn

Erlendi Halldórssyni

Mál

þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 7. febrúar sl., er höfðað með

ákæru Héraðssaksóknara þann 10. janúar sl., á hendur Erlendi Halldórssyni,

fyrir brot

gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 12. október 2017,

á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík, hótað lögreglumanninum A,

sem þar var við skyldustörf, lífláti og líkamsmeiðingum og með því að hafa

reynt að bíta í hægri hönd lögreglumannsins og ítrekað reynt að sparka í hann.

Telst þetta

varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 almennra

hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar

og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði

mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 22.

janúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða

dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga

nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til

ákæruskjals.

Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá

háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til

refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt

framlögðu sakavottorði hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun

Refsing ákærða er

hæfilega ákveðin

fangelsi í 30 daga.

Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til þess að ákærði hefur ekki áður

sætt refsingu fyrir ofbeldisbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar

og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum

haldi ákærði almennt skilorð 57.

gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Engan

sakarkostnað leiddi af máli þessu.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm

þennan.

D ó m s o r ð

:

Ákærði, Erlendur Halldórsson, sæti fangelsi í 30

daga,

en fresta skal fullnustu

refsingarinnar og

skal hún

falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr.

almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Sólveig

Ingadóttir.

Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Skilorð.

Ákærði var fundinn sekur um brot gegn valdstjórninni og var gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 7. febrúar sl., er höfðað með ákæru Héraðssaksóknara þann 10. janúar sl., á hendur Erlendi Halldórssyni, fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 12. október   2017,   á   slysadeild   Landspítalans   í   Fossvogi   í   Reykjavík,   hótað lögreglumanninum A, sem þar var við skyldustörf, lífláti og líkamsmeiðingum og með því að hafa reynt að bíta í hægri hönd lögreglumannsins og ítrekað reynt að sparka í hann. Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 22. janúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að virtum atvikum máls,   að   teknu   tilliti   til   þess   að   ákærði   hefur   ekki   áður   sætt   refsingu   fyrir ofbeldisbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.

Sólveig   Ingadóttir,   löglærður   aðstoðarmaður   dómara,   kveður   upp   dóm þennan.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði,   Erlendur   Halldórsson,   sæti   fangelsi   í   30   daga,   en   fresta   skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Sólveig Ingadóttir.