Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 3. október 2017.
Mál nr. S-152/2017:
Ákæruvaldið
(Grímur Hergeirsson fulltrúi)
gegn
Auði Ólafsdóttur
Lykilorð
Fangelsi. Ítrekun. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærða var fundin sek um margítrekaðan akstur svipt ökurétti. Var hanni gert að sæta fangelsi í sex mánuði.
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 21. september sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 24. ágúst sl., á hendur Auði Ólafsdóttur, til heimilis að Marklandi 8, Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa síðdegis laugardaginn 29. júlí 2017 ekið bifreiðinni [...] austur Suðurlandsveg að bifreiðastæði við bílasölu IB ehf. á Selfossi, svipt ökurétti ævilangt. Telst brot ákærðu varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærða mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 6. september sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærðu fjarstaddri. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærða hefur gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærða níu sinnum áður sætt refsingu, þar af sjö sinnum vegna aksturs svipt ökurétti. Þann 6. janúar 2009 var ákærða fyrst fundin sek um akstur svipt ökurétti. Þann 2. júní sama ár var ákærða fundin sek um að hafa 16. apríl 2009, ekið svipt ökurétti. Þann 22. febrúar 2012 var ákærða fundin sek um að hafa þann 25. nóvember 2011, ekið svipt ökurétti. Þann 20. nóvember 2012 var ákærða fundin sek um að hafa þann 2. maí sama ár, ekið svipt ökurétti. Þann 26. febrúar 2013 var ákærða fundin sek um að hafa þann 16. desember 2012, ekið svipt ökurétti. Þann 28. október 2013 var ákærða fundin sek um að hafa þann 9. september það ár, ekið svipt ökurétti. Loks var ákærða þann 22. febrúar sl., fundinn sek um akstur svipt ökurétti. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærðu ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærðu er að virtum sakaferli hennar hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða, Auður Ólafsdóttir, sæti fangelsi í sex mánuði.
Sólveig Ingadóttir.