Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 17. maí 2016.
Mál nr. S-54/2016:
Lögreglustjórinn
á Suðurlandi
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Arnari Inga
Jónssyni
svofelldur
d ó m u r :
(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Lykilorð
Fangelsi. Hegningarauki. Játningarmál. Umferðarlagabrot. Verjandi.
Útdráttur
Ákærði fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og hraðaakstur. Dæmdur hegningarauki við eldri dóm. Ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga.
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 12. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 29. mars sl., á hendur Arnari Inga Jónssyni, kt. [...], óstaðsettum í hús í Hafnarfirði, „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 2. október 2015 ekið bifreiðinni OG- X54 sviptur ökurétti ævilangt og með 106 km hraða á klukkustund austur Suðurlandsveg við Gljúfurholt í Ölfusi, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klukkustund.
Telst brot ákærða varða við 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði mætti við þingfestingu málsins, ásamt Guðmundi St. Ragnarssyni hdl., sem skipaður var verjanda ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru.
Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Kom þar fram í máli verjanda að ákærði væri edrú og hagir hans breyttir til hins betra.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði sextán sinnum áður sætt refsingu, þar af fimm sinnum vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 29. nóvember 2011 undirritaði ákærði tvær sektargerðir meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 16. mars 2013 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 1. október 2015 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Loks var ákærði þann 10. desember 2015, dæmdur til að sæta fangelsi vegna aksturs sviptur ökurétti. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsignar í máli þessu. Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir er framið fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms og verður ákærða því nú dæmdur hegningarauki.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda hans og er hæfilega ákveðin 104.600 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnaður verjanda sem nemur 13.200 kr.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Arnar Ingi Jónsson, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, 117.800 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda, Guðmundar St. Ragnarssonar hdl., 104.600 kr. og ferðakostnaður verjanda, 13.200 krónur.
Sólveig Ingadóttir.