Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 16. október 2014.
Mál nr. S-139/2014:
Ákæruvaldið
(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltr)
gegn
Sergejs
Kazaceks
svofelldur
d ó m u r :
(Saga Ýrr Jónsdóttir hdl)
Lykilorð
Brotaþoli. Fangelsi. Líkamsárás. Skaðabætur. Skilorðsbundnir dómar. Verjandi.
Útdráttur
Líkamsárás - skilorðsbundið fangelsi - skaðabætur.
Mál þetta, sem þingfest var 15. maí 2014 og dómtekið 12. júní sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Selfossi, þann 10. apríl sl., á hendur Sergejs Kazaceks, til heimilis að Skeljagranda 4, Reykjavík, en til dvalar að Vesturvör 27, Kópavogi, „fyrir líkamsárás með því að hafa að kvöldi mánudagsins 18. nóvember 2013 veist að [B] þar sem [B] sat í bifreiðinni sinni kyrrstæðri á afleggjara inn í sumarbústaðahverfið í Reykjaskógi í Bláskógabyggð, en ákærði opnaði bílstjórahurð bifreiðarinnar og lamdi [B] í andlit og sparkaði í síðu hans með þeim afleiðingum að [B] hlaut 3 sár í kringum munn, sem saumuð voru saman með samtals 13 sporum, brákað rifbein, mar á lunga og á vinstri síðu.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940[.] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Þá er í ákæru tilgreind eftirfarandi einkaréttarkrafa: „Í málinu gerir Bragi Björnsson hdl. kröfu f.h. brotaþola um að ákærða verði með dómi gert að greiða skaðabætur samtals að fjárhæð kr. 1.576.450,- auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. janúar 2013 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.“
Ákærði mætti við þingfestingu málsins og var Saga Ýrr Jónsdóttir hdl., skipuð verjandi ákærða að hans ósk. Óskaði ákærði eftir fresti til að taka afstöðu til sakarefnisins og var fallist á þá ósk. Þann 12. júní sl., mætti ákærði á ný fyrir dóminn og viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Þá kvaðst ákærði samþykkja bótaskyldu, en hafnaði fjárhæð framkominnar bótakröfu sem of hárri.
Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Kom fram í máli verjanda að ekkert í gögnum málsins styddi fullyrðingar bótakrefjanda og ákæruvaldsins um að brotaþoli hafi hlotið brákað rifbein og mar á lunga af árás þeirri sem ákærði hefur gengist við.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru, þó að teknu tilliti til þess að ekki telst sannað að brotaþoli hafi hlotið brákað rifbein og mar á lunga af árás ákærða, enda liggja enginn gögn fyrir í málinu hvað það varðar. Þá þykir háttsemi ákærða rétt færð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði fimm sinnum áður sætt refsingu, ýmist fyrir brot gegn ákvæðum laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni eða umferðarlögum nr. 50/1987. Síðast var ákærða gerð sekt með sátt við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu þann 29. ágúst 2012.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður verið fundin sekur um hegningarlagabrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.
Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 229.276 kr., auk þóknunar skipaðs verjanda sem er hæfilega ákveðin, 170.000 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts, auk ferðakostnaðar verjanda sem nemur 25.520 krónum, sem og þóknunar Leifs Runólfssonar hdl., sem er hæfilega ákveðin 25.100 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Meðal gagna málsins er greinargerð lögmanns brotaþola vegna einkaréttarkröfu hans og er það mat dómsins að greinargerðin uppfylli skilyrði XXVI. kafla laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Er krafa brotaþola þar sundurliðuð þannig að í fyrsta lagi sé krafist 1.200.000 kr. í miskabætur, og er sá liður kröfunnar studdur 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, og því að brotaþoli hafi orðið fyrir verulegu andlegu áfalli enda hafi árás ákærða verið sérstaklega fólskuleg. Þá muni brotaþoli bera varanlegt lýti í andliti eftir árásina og líklegt sé að hann hafi orðið fyrir varanlegum taugaskaða í andliti. Í öðru lagi er krafist þjáningabóta, 3.250 kr. í 7 daga, og 1.750 kr. í 30 daga, samtals 75.250 kr., og styður bótakrefjandi þá kröfu 3. gr. skaðabótalaga, en fyrir liggi að áverkar af völdum árásarinnar hafi þjakað brotaþola. Þá er krafist lögmannskostnaðar að fjárhæð 240.000 kr., samkvæmt gjaldskrá Lögvarnar slf., og virðisaukaskatts af lögmannskostnaði, 61.200 krónur.
Líkt og áður greinir hefur ákærði samþykkt bótaskyldu sína, en hafnað fjárhæð kröfunnar sem of hárri. Verjandi ákærða mótmælti þeim liðum bótakröfu sem ekki eru studdir tilhlýðandi gögnum, þ.e. 2. lið bótakröfu er varðar þjáningarbætur, enda liggi ekkert fyrir um að brotaþoli hafi verið rúmliggjandi í sjö daga. Þá er fjárhæð miskabótakröfu mótmælt sem of hárri. Kvað verjandi að ósannaðar væru fullyrðingar bótakrefjanda um að brotaþoli þurfi að gangast undir lýtaaðgerðir á andliti. Mótmælti verjandi og fjárhæð lögmannskostnaðar.
Í gögnum málsins er að finna læknisvottorð útgefið af Gylfa Haraldssyni, þar sem fram kemur að brotaþoli hafi komið blóðugur á heilsugæslustöð, hann hafi verið með þrjú sár í kringum munn sem saumuð hafi verið, samtals 13 spor. Þá hafi brotaþoli verið aumur á vinstri rifjum og hafi verið ákveðið að mynda hann næsta dag. Ekki hafi greinst nein rifbrot en tekið er fram að sprunga geti verið á rifjum án þess að hún greinist á röntgen. Þá kemur fram að atelectasabreytingar basalt hafi verið í vinstra lunga og við endurkomu er tekið fram að lungu hafi verið sæmilega hrein við hlustun, en þó hafi brotaþoli verið með krepitationir í vinstra lunga. Hvorki er í umræddu vottorði lýst brákuðu rifbeini né mari á lunga. Brotaþoli hafi þó við endurkomu verið með mar á vinstri síðu. Ekki er öðrum vottorðum til að dreifa um afleiðingar árásarinnar.
Að öllu ofangreindu virtu, og að teknu tilliti til mótmæla verjanda við fjárhæð bótakröfu eru miskabætur hæfilega ákveðnar 300.000 krónur. Enginn gögn liggja fyrir um á hvaða tímapunkti heilsufar brotaþola var orðið stöðugt, né hversu lengi hann var rúmfastur eða veikur án þess að vera rúmfastur. Er því hafnað kröfu brotaþola um þjáningarbætur, skv. 3. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Með vísan til 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærði dæmdur til að greiða brotaþola málskostnað vegna kröfu hans, sem er hæfilega ákveðinn 100.000 kr. að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Í kröfugerð brotaþola er krafist vaxta af samtölu allra framangreindra kröfuliða, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. janúar 2013 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ekki verður á það fallist að krafa brotaþola um lögmannskostnað beri vexti á þessum grundvelli. Að framansögðu virtu verður fallist á kröfu brotaþola líkt og greinir í dómsorði. Þá skal tekið fram að fyrir liggur af gögnum málsins að bótakrafa var fyrst birt ákærða ásamt fyrirkalli og ákæru þann 6. maí sl. Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Sergejs Kazaceks, sæti fangelsi í 60 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, samtals 449.896 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda síns Sögu Ýrar Jónsdóttur hdl., 170.000 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts, ferðakostnað verjanda sem nemur 25.520 krónum og þóknun Leifs Runólfssonar hdl., sem nemur 25.100 krónum, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Ákærði greiði Braga Björnssyni hdl., f.h. brotaþola, skaðabætur að fjárhæð 300.000 krónur, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. janúar 2013 til 6. júní 2014, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði Braga Björnssyni hdl. f.h. brotaþola, 100.000 krónur í málskostnað, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Sólveig Ingadóttir.