Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 7. maí 2013.
Mál nr. S-57/2013:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)
gegn
A
B
svofelldur
d ó m u r :
(Sigurður Jónsson hrl)
Lykilorð
Fangelsi. Fjárdráttur. Játningarmál. Skilorð. Skilorðsbundnir dómar.
Útdráttur
Stjórnarformaður og varamaður stjórnar einkahlutafélags ákærðir fyrir fjárdrátt. Stjórnarformanni gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi en varamaðurinn sýknaður.
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið þann 11. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 24. janúar 2013, á hendur [A], kt. [...], og [B], kt. [...], báðum til heimilis að [...], „fyrir fjárdrátt með því að hafa, ákærði [A] sem stjórnarformaður [C] ehf., [...], og ákærða [B] sem varamaður í stjórn félagsins, sameiginlega á tímabilinu frá apríl 2011 til desember 2011, dregið félaginu og notað til reksturs þess samtals 647.883 krónur, sem ákærðu héldu eftir af launagreiðslum til starfsmannsins [D], kt. [...], og ganga áttu til Innheimtustofnunar sveitarfélaga innan hálfs mánaðar samkvæmt 1. tl. 7. mgr. 5. gr. laga nr. 54, 1971 um Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Eigi voru staðin lögmæt skil á fjárhæðinni en hún sundurliðast sem hér greinir á eftirfarandi launatímabil:
| Apríl | 64.971 kr. |
| Maí | 64.971 kr. |
| Júní | 64.971 kr. |
| Júlí | 75.495 kr. |
| Ágúst | 75.495 kr. |
| September | 75.495 kr. |
| Október | 75.495 kr. |
| Nóvember | 75.495 kr. |
| Desember | 75.495 kr. |
| Samtals | 647.883 kr. |
Teljast brot ákærðu varða við 247. gr. almennra hegnignarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Þá er í ákæru einkaréttarkrafa frá Innheimtustofnun sveitarfélaga, en samkvæmt gögnum málsins hefur félagið [C] ehf., greitt fullnaðargreiðslu vegna hennar og telst bótakrefjandi hafa fallið frá kröfu sinni.
Ákærðu mættu bæði við þingfestingu málsins ásamt Sigurði Jónssyni hrl., sem skipaður var verjandi þeirra beggja að þeirra ósk. Fengu ákærðu þá frest til að taka afstöðu til sakarefnisins. Var málið aftur tekið fyrir þann 11. apríl sl., og mættu ákærðu þá bæði ásamt skipuðum verjanda. Ákærðu viðurkenndu, hvort um sig, skýlaust að hafa gerst sek um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru.
Með vísan til skýlausrar játningar ákærðu beggja og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning þeirra væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði [A] hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærða [A] hefur hann einu sinni áður sætt refsingu, en sakaferill hans hefur ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða [A] er hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Að virtum atvikum máls, að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður verið fundinn sekur um auðgunarbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.
Hvað varðar ákærðu [B], kemur sérstaklega til skoðunar staða hennar í stjórn félagsins. Mál þetta er höfðað á hendur henni sem varamanni í stjórn félagsins [C] ehf., eins og lýst er í ákæru og refsiábyrgð hennar á því byggð að hún eigi sæti í stjórn félagsins. Ber þá að líta til meginreglu félagaréttar, að varamaður tekur eingöngu sæti í félagsstjórn í forföllum aðalmanns. Ekkert í gögnum máls þessa bendir til þess að svo hafi háttað til í sjórn [C] ehf., og er það því mat dómsins að sýkna beri ákærðu [B] af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.
Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða [A] til greiðslu sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða og er hæfilega ákveðin, 60.000 kr, að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Þá greiðist úr ríkissjóði þóknun skipaðs verjanda ákærðu [B], sem er hæfilega ákveðin, 60.000 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærða [B] er sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.
Ákærði, [A], sæti fangelsi í 60 daga.
Fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði [A] greiði sakarkostnað, 60.000 krónur, sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða, Sigurðar Jónssonar hrl., að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Þóknun skipaðs verjanda ákærðu [B], Sigurðar Jónssonar hrl., 60.000 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts, greiðist úr ríkissjóði.
Sólveig Ingadóttir.