Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-241/2013:

Ár 2014,

fimmtudaginn 6. febrúar, er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands, sem háð er í

dómsal embættisins að Austurvegi 4, Selfossi af Hirti O. Aðalsteinssyni

Ákæruvaldið

(Birgitta Kristjánsdóttir fulltrúi)

gegn

A

kveðinn upp svohljóðandi

dómur:

(Torfi Ragnar Sigurðsson hrl)

Líkamsárás.

Karlmaður sem gegndi störfum dyravarðar sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás á grundvelli neyðarvarnar.

með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 18. nóvember 2012 á Strandvegi, gegnt skemmtistaðnum Volcano í Vestmannaeyjum, tekið B, snúið hann niður í götuna og haldið honum föstum nokkra stund, með hendi fyrir bak (svo), með þeim afleiðingum að liðbönd í hægri axlarlið rifnuðu og hann hruflaðist á kinnbeini og augabrún hægra megin.

Telst ofangreint brot varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19 frá 1940 sbr. 10. gr. laga nr. 20 frá 1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Málavextir.

Aðfaranótt sunnudagsins 18. nóvember 2012 kom B, brotaþoli í máli þessu, á lögreglustöðina í Vestmannaeyjum í þeim tilgangi að leggja fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Volcano þá um nóttina. Hann kvaðst hafa fundið að því við ákærða og félaga hans að þeir hafi verið komnir út fyrir vinnustað sinn, en þeir hafi verið að vinna sem dyraverðir á veitingastaðnum og hafi þeir verið með mann í tökum á Strandvegi. Kvað brotaþoli ákærða hafa orðið ósáttan við afskipti hans og ráðist á hann með því að skella honum í götuna þannig að hann  hafi fengið áverka í andlit. Ákærði hafi síðan tekið hægri hönd hans og sett hana fyrir aftan bak með þeim afleiðingum að liðbönd í öxl hafi slitnað. Hafi ákærði ekki sleppt brotaþola fyrr en C og D hafi beðið hann um það.

Brotaþoli leitaði samdægurs til læknis og í vottorði Hjalta Kristjánssonar læknis dagsettu 22. nóvember sama ár segir að hann hafi verið með hrufl á hægri augabrún, hrufl og mar á kinnbeini hægra megin. Hann hafi verið með verki í hægri öxl og verið bólginn á AC lið sem hafi staðið upp úr. Hann hafi einnig verið með verk í hægra herðablaði og abduction bara verið 90° á hægri axlarlið. Yst á hægri augabrún hafi verið smá skurður og á röntgenmynd hafi sést mikil gliðnun og merki um rifin liðbönd í þessum lið.

Framburður ákærða og vitna fyrir dómi.

Ákærði komst ekki til þinghaldsins sem háð var í Vestmannaeyjum vegna misskilnings um ferðir þangað, en hann gaf símaskýrslu fyrir dómi. Hann skýrði svo frá að dyraverðir hafi þurft að hafa afskipti af manni fyrir utan skemmtistaðinn Volcano, úti á miðri götu, en hann hafi gegnt störfum dyravarðar. Hann kvaðst hafa tekið eftir því að brotaþoli stóð fyrir aftan hann og var að reisa upp krepptan hnefa í áttina að ákærða og gerði sig líklegan til að slá ákærða. Hann kvað brotaþola ekki hafa haldið á neinu í hendinni. Hann kvað brotaþola hafa sagt að hann skyldi drepa þá ef þeir slepptu ekki manninum. Hann kvað sér hafa brugðið við þetta, fundist sér ógnað og á sekúndubroti hafi hann tekið þá ákvörðun að yfirbuga hann og snúa hann niður í jörðina. Hann kvaðst hafa beitt þeirri aðferð að beygja sig niður og undir hendi brotaþola og setja báðar hendur yfir aðra öxl hans og þvinga hann niður.  Hafi hann lent á bringunni og hafi hann haldið honum þar í tökum með báðar hendur fyrir aftan bak. Brotaþoli hafi á meðan barist um en ákærði kvaðst hafa hvatt hann til þess að vera rólegur en hann  hafi haldið áfram að berjast um. Hann hafi róast en þá hafi D komið og spurt hvort brotaþoli mætti ekki fara með honum. Kvaðst hann hafa tekið þá ákvörðun að leyfa brotaþola að fara með D, enda hefði hann treyst honum. Ákærði kvaðst hafa stundað dyravörslu í 15 ár og hafa lært ýmiss konar aðferðir til þess að yfirbuga einstaklinga, m.a. hjá lögreglu og á dyravarðarnámskeiðum. Hann kvaðst einnig hafa æft júdó lengi. Hann taldi sig ekki hafa gengið of langt miðað við aðstæður og hafi hann beitt vægustu úrræðum sem hann mögulega gat miðað við það að brotaþoli hugðist slá  hann í höfuðið.

Brotaþoli skýrði svo frá fyrir dómi að hann hafi verið staddur fyrir utan skemmtistaðinn Volcano og kvaðst hann hafa séð tvo dyraverði liggja ofan á strák sem hann þekki og hafi þeir verið hinum megin götunnar. Hann kvaðst hafa rölt yfir til þeirra og spurt hvað væri í gangi og hvort þeir væru dyraverðir á skemmtistaðnum eða úti á Strandvegi. Hann kvaðst hafa verið mjög rólegur og haldið á plastglasi með bjór í. Hafi þá fokið í annan dyravörðinn, ákærða í máli þessu, sem hafi spurt hvað hann ætlaði að gera í því. Hafi hann þá ekki vitað fyrr en hann hafi skollið með andlitið í jörðina og höndina fyrir aftan hnakka. Hann kvaðst hafa fundið fyrir sársauka og ekkert getað hreyft sig. Hann kvaðst hafa beðið ákærða að sleppa sér. C hafi fengið ákærða til að sleppa sér. Brotaþoli kannaðist ekki við að hafa ýtt við ákærða eða að hafa slegið til hans. Þá kannaðist ákærði ekki við að hafa verið með krepptan hnefa og reiðubúinn að slá ákærða.

Hjalti Kristjánsson læknir kom fyrir dóm og staðfesti vottorð sem hann gaf í máli þessu. Hann kvað AC- liðinn sem í vottorðinu greinir vera milli viðbeins og herðablaðs, en þessi liður hefði verið rifinn. Hann kvað þurfa talsvert átak og snöggt til þess að liðurinn rifni. Hins vegar sé hægt að rífa liðinn með því að detta á öxlina. Hann kvað brotaþola ekki hafa leitað til sín eftir þetta en hann vissi til þess að hann hefði leitað til bæklunarlæknis í maí sl. Vitnið E skýrði svo frá í símaskýrslu fyrir dómi að hann hafi verið staddur við Volcano við dyravörslu þegar tveir dyraverðir héldu manni niðri úti á miðri götu. Brotaþoli hafi verið að segja eitthvað við dyraverðina en hann heyrði ekki hvað þeim fór á milli. Honum fannst brotaþoli vera aðeins ógnandi en hann hafi ekki staðið það nálægt þeim að hann hefði getað slegið þá. Hann kvað brotaþola hafa verið með krepptan  hnefa en hann kvaðst ekki hafa séð að hann væri með neitt í höndunum. Hann kvaðst ekki hafa fylgst með þeim allan tímann en ákærði hafi stokkið að brotaþola og tekið hann niður. Hann gat ekki lýst því nánar.

Vitnið D skýrði svo frá fyrir dómi að hann hafi séð ákærða  halda brotaþola niðri í tökum. Hann kvaðst ekki hafa séð hvað gerðist áður og hann kvaðst ekki hafa séð brotaþola berjast um. Hann kvaðst hafa talað við ákærða og spurt hvort brotaþoli mætti ekki koma með honum og hafi það verið auðsótt mál. Vitnið C skýrði svo frá í símaskýrslu fyrir dómi að hún hafi staðið í dyrunum að Volcano. Hún kvaðst ekki hafa séð hvað hafi verið að gerast á götunni en brotaþoli hafi skipt sér af því sem þar hafi verið að gerast. Hún kvaðst síðan hafa séð að ákærði hafi tekið brotaþola og „bombað“ honum í jörðina. Hún mundi ekki nákvæmlega hvernig það gerðist en ákærði hafi haldið annarri hendi brotaþola mjög hátt uppi á baki hans. Hana minnti að brotaþoli hefði ekki barist um og þá minnti hana að hann hefði ekki verið ógnandi. Hún mundi að D hefði staðið rétt hjá henni en hún kvaðst hafa sagt við ákærða að hún skyldi taka ábyrgð á brotaþola og hefði hann gengið burt með henni. Borinn var undir vitnið framburður þess hjá lögreglu að hún hafi séð brotaþola reyna að slá til ákærða en hún mundi ekki eftir því fyrir dómi.

Vitnið F skýrði svo frá í símaskýrslu fyrir dómi að tveir dyraverðir hafi legið á honum á Strandveginum móts við Volcano. Hann hafi legið á maganum og höndum hans hafi verið haldið fyrir aftan bak. Brotaþoli hafi komið og beðið þá að fara af vitninu og hafi þá annar þeirra orðið illur og tekið brotaþola niður. Vitnið kvaðst hafa reynt að losa sig en honum hafi verið haldið föstum. Hann kvaðst hafa séð að brotaþola hafi verið haldið föstum niðri með því að halda höndum hans fyrir aftan bak. Hann kvað brotaþola ekki hafa verið ógnandi eða með krepptan hnefa þegar hann kom að dyravörðunum, hann hafi sagt að þeir væru ekki dyraverðir á Strandveginum. Honum fannst tekið fullharkalega á brotaþola.

Vitnið G skýrði svo frá í símaskýrslu fyrir dómi að hún hafi verið stödd við Volcano að tala við vin sinn. Hún kvaðst hafa heyrt læti og séð brotaþola og F eitthvað vera að fíflast. Hún kvaðst síðan hafa séð að dyravörður hafi verið búinn að henda brotaþola í jörðina og hafði hann tekið hægri hönd hans fyrir aftan bak og snúið upp á hana. Hann hafi ekki viljað sleppa brotaþola þrátt fyrir beiðni hennar og annarra um það og hafi verið reynt að ná brotaþola af ákærða. Hún sá ekki að brotaþoli hafi ógnað ákærða. Hún kvaðst ekki hafa séð að dyraverðir hafi haldið F niðri en hana rámaði þó í það ítrekað aðspurð.

Vitnið H skýrði svo frá í símaskýrslu fyrir dómi að hann hafi starfað við dyravörslu á Volcano umrætt sinn og hafi þeir þurft að hafa afskipti af F sem var að veitast að eldri manni. Hafi þeir náð honum niður og haldið honum í tökum. Hafi brotaþoli þá komið hlaupandi að ákærða með hótanir í garð hans og fannst honum hann vera ógnandi, hann hafi hótað að drepa hann. Eitthvað hafi gerst á milli þeirra, brotaþoli hafi sveiflað höndunum og hafi þetta endað með því að brotaþoli endaði á jörðinni. Hann kvaðst ekki hafa séð nákvæmlega hvernig það gerðist. Hann kvað viðbrögð ákærða hafa verið eðlileg og í samræmi við vinnubrögð dyravarða.

Niðurstaða.

Ákærða er í máli þessu gefið að sök að hafa snúið brotaþola niður í götuna og haldið honum föstum nokkra stund með hönd fyrir aftan bak með þeim afleiðingum er í ákæru greinir. Ákærði var að störfum sem dyravörður á veitingastaðnum Volcano í Vestmannaeyjum og þurfti hann ásamt öðrum dyraverði að hafa afskipti af mönnum í átökum á götunni fyrir utan veitingastaðinn. Brotaþoli tók þá ákvörðun um að skipta sér af störfum dyravarðanna og eru ákærði og dyravörðurinn H sammála um að hann hafi komið ógnandi að þeim. Í sama streng tók vitnið E. Önnur vitni hafa ekki borið fyrir dómi að brotaþoli hafi verið ógnandi gagnvart ákærða að öðru leyti en því að vitnið C skýrði svo frá hjá lögreglu að hún hefði séð brotaþola reyna að slá til ákærða. Ákærði hefur lýst þeirri aðferð sem hann notaði til þess að yfirbuga brotaþola og hefur ekkert komið fram í máli þessu sem bendir til þess að hann hafi beitt öðrum aðferðum en nauðsynlegar voru til þess að yfirbuga mann sem að sönnu átti ekki að skipta sér af störfum dyravarðanna. Ekki er deilt um afleiðingarnar fyrir brotaþola en ekki er loku fyrir það skotið að þær megi að mestu rekja til þess að hann hafi barist um meðan ákærði hélt honum í tökum. Af framansögðu er ljóst að ákærða var heimil valdbeiting eins og á stóð og var hún nauðsynleg til þess að afstýra atlögu brotaþola. Með vísan til 12. gr. almennra hegningarlaga var verknaður ákærða því refsilaus og ber því að sýkna hann af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.

Með vísan til 2. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála  ber að fella allan kostnað sakarinnar á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Torfa Ragnars Sigurðssonar hrl., 640.050 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar lögmannsins, 57.077 krónur.

Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri kveður upp dóm þennan. Dómsuppkvaðning hefur dregist fram yfir lögbundinn frest en dómari og málflytjendur töldu ekki þörf endurflutnings.

Dómsorð:

Ákærði, A, skal vera sýkn af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.

Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Torfa Ragnars Sigurðssonar hrl., 640.050 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar lögmannsins, 57.077 krónur.

Hjörtur O. Aðalsteinsson