Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-24/2013:

Ákæruvaldið

(Elisabeth Patriarca Kruger fulltrúi)

gegn

B

X

svofelldur

d ó m u r :

(Torfi Ragnar Sigurðsson hrl)

Akstur án ökuréttar. Nytjastuldur. Skilorð.

Tveir piltar sakfelldir fyrir nytjastuld og annar þeirra fyrir akstur án ökuréttinda.

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 14. febrúar 2013, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Hvolsvelli dagsettri 4. desember 2012 á hendur B og X “fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa í sameiningu aðfararnótt [sic.] þriðjudags 4. september 2012 heimildarlaust tekið bifreiðina [aa] þar sem hún stóð á túni við [A], Rangárþingi ytra, og gegn ákærða B fyrir að aka bifreiðinni án þess að hafa öðlast ökuréttindi frá [A] að Selfossi og ekið henni þar um, síðan ekið bifreiðinni til Reykjavíkur. Ennfremur miðvikudaginn 5. september 2012 ekið bifreiðinni frá Reykjavík til Hafnarfjarðar og ekið þar um uns ákærðu [sic.] lögðu bifreiðinni á bílaplani við [C], Hafnarfirði, en lögregla fann bifreiðina 5. september 2012 eftir að tilkynning hafði borist um árekstur bifreiðarinnar [aa] við bifreiðina [bb] í hringtorgi við N1 í Hafnarfirði sama dag.

Teljast brot ákærðu varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1956, og umferðarlagabrot ákærða B að auki við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði [sic.] verði dæmdur [sic.] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærðu komu fyrir dóm við þingfestingu málsins og óskuðu eftir að fá skipaðan verjanda og fólu dóminum að velja verjandann og var Torfi R. Sigurðsson hrl. skipaður verjandi beggja ákærðu.

Ákærðu viðurkenndu báðir skýlaust að hafa gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru.

Málið var því tekið til dóms samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eftir að sækjandi og verjandi höfðu reifað sjónarmið um ákvörðun refsingar og lagasjónarmið. Þá gerðu ákærðu báðir grein fyrir högum sínum en þeir eru báðir til dvalar á [D] og var þeim fylgt í dóminn af forstöðumanni og starfsmanni [D], auk þess að mæður ákærðu beggja komu með þeim í dóminn.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærðu frömdu brot þau sem greinir í ákæru og eru þar réttilega færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt fram lögðum sakavottorðum hefur hvorugur ákærði áður hlotið refsingu.

Ákærðu eru ungir að árum og hafa játað brot sín greiðlega. Ákærðu eru nú báðir til dvalar [D]. Er litið til þessa við ákvörðun refsingar beggja ákærðu en að auki verður höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðun refsingar ákærða B.

Refsing ákærða B þykir hæfilega ákveðin 10.000 kr. fésekt til ríkissjóðs sem ákærða ber að greiða innan 4 vikna frá uppkvaðningu dómsins, en sæta ella fangelsi í 2 daga. Að öðru leyti er frestað ákvörðun refsingar ákærða B og skal sú refsing falla niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Frestað er ákvörðun refsingar ákærða X og skal refsingin falla niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Samkvæmt 218. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 ber að dæma ákærðu til greiðslu sakarkostnaðar, en samkvæmt framlögðum gögnum verður ekki séð að annar kostnaður hafi orðið af málinu en þóknun skipaðs verjanda ákærðu, Torfa R. Sigurðssonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin alls kr. 73.229 að meðtöldum virðisaukaskatti, sem ákærðu ber að greiða in solidum.

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, B, greiði 10.000 kr. fésekt til ríkissjóðs innan 4 vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 2 daga. Að öðru leyti er frestað ákvörðun refsingar ákærða B og skal sú refsing falla niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Frestað er ákvörðun refsingar ákærða, X, og skal refsingin falla niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærðu greiði in solidum þóknun skipaðs verjanda síns, Torfa R. Sigurðssonar hrl., sem ákveðst alls kr. 73.229 að meðtöldum virðisaukaskatti.

Sigurður G. Gíslason.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.77. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 20/1956
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.218. gr.