Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 13. apríl 2012.
Mál nr. S-72/2012:
Árið 2012, föstudaginn 13. apríl,
er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands, sem háð er að Austurvegi 4, Selfossi, af
Ragnheiði Thorlacius héraðsdómara, tekið fyrir mál nr. S-72/2012:
Ákæruvaldið
(Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Emil Frey, Júlíussyni,
(Steinbergur Finnbogason hdl)
Stefáni Blackburn og
(Páll Kristjánsson hdl)
Ívari Aroni, Hill Ævarssyni
(Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Þrír menn dæmdir fyrir rán og einn þeirra einnig dæmdur fyrir umferðarlagabrot. Tveir hinna ákærðu dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi en einn í skilorðsbundið fangelsi.
Mál þetta, sem þingfest var þann 22. mars 2012 og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, dagsettri 23. febrúar 2012, á hendur Emil Frey Júlíussyni, kt. 000000-0000, Stefáni Blackburn, kt. 000000-0000, og Ívari Aroni Hill Ævarssyni, kt. 000000-0000, „fyrir eftirtalin brot:
- Á hendur ákærðu Emil Frey og Stefáni fyrir rán með því að hafa sunnudaginn 5. desember 2010, ruðst inn í sameign hússins að A eftir að ákærði Emil Freyr hafði brotið upp kjallarahurð húsnæðisins og í sameiningu neytt X [sic], inn í kjallaraíbúð þar sem ákærðu hótuðu honum líkamlegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum verðmæti og hótuðu X líkamsmeiðingum ef hann segði frá atvikinu og þorði hann ekki að sporna við verknaðinum af ótta við ákærðu sem höfðu á brott með sér tvær fartölvur, hátalarakerfi, verkfæratösku, töng, klippur, snjóbuxur og vasahníf.
M.033-2010-9005
- Á hendur ákærðu öllum fyrir rán, með því að hafa að kvöldi laugardagsins 11. desember 2010, farið óboðnir inn í kjallaraherbergi að A [sic], þar sem B, D, E og F voru að spila tölvuleiki, og látið þá taka saman tölvubúnað, síma og aðra hluti til að hafa á brott með sér. Ákærði Emil Freyr ógnaði B með því að strjúka hníf við andlit hans og sló B [sic] með opnum lófa þegar hann neitaði að afhenda símann sinn. Ákærði Emil Freyr otaði hnífnum einnig að D með ógnandi hætti. Ákærði Ívar Aron sló D með krepptum hnefa þegar hann neitaði að afhenda símann sinn svo hann hlaut mar á neðri vör. Ákærði Stefán ógnaði öllum drengjunum með því að munda hafnaboltakylfu á meðan atvikið stóð yfir. Ákærðu allir hótuðu drengjunum lífláti eða líkamsmeiðingum ef sagt yrði frá atvikinu. Ákærðu höfðu á brott með sér tvær borðtölvur, fartölvu, tölvuskjá, hátalarakerfi, þrjú lyklaborð, tvær tölvumýs, tvær töskur, úlpu, skó, sveðju og þrjá farsíma.
M.033-2010-8916
Telst háttsemi samkvæmt 1. og 2. ákærulið varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Á hendur ákærða Stefáni fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í kjölfar ofangreindra atvika sem lýst er í ákærulið 1. [sic] og 2.[sic], ekið bifreiðinni PR- 525 um götur Selfoss, án þess að hafa öðlast ökuréttindi.
033-2010-9005 og 8916 Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákæruvaldið hefur undir rekstri málsins fallið frá því atriði í öðrum tölulið ákæru að ákærði Emil Freyr hafi strokið hnífi við andlit B.
Ákærðu mættu allir við þingfestingu málsins þann 22. mars sl., og voru þeim, að þeirra ósk, skipaðir verjendur.
Af hálfu ákærðu er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Verjendur ákærðu krefjast jafnframt hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Um málavexti vísast til ákæruskjals að teknu tilliti til þess atriðis í öðrum tölulið ákæru sem ákæruvaldið féll frá undir rekstri málsins eins og að framan greinir.
Ákærði Emil Freyr hefur skýlaust játað þau brot sem honum eru gefin að sök í fyrsta og öðrum tölulið ákæru að því gættu að fallið hefur verið frá því ákæruatriði í öðrum tölulið ákæru að hann hafi strokið hnífi við andlit B. Skýlaus játning ákærða Emils Freys er studd framlögðum rannsóknargögnum lögreglu. Samkvæmt þessu verður ákærði Emil Freyr sakfelldur fyrir framangreind brot sem réttilega eru heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði Stefán hefur skýlaust játað þau brot sem honum eru gefin að sök í fyrsta, öðrum og þriðja tölulið ákæru og er játning hans í samræmi við framlögð rannsóknargögn lögreglu. Með vísan til þess verður ákærði Stefán sakfelldur fyrir framangreind brot sem réttilega eru heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði Ívar Aron hefur skýlaust játað það brot sem honum er gefið að sök í öðrum tölulið ákæru. Játning hans er studd framlögðum rannsóknargögnum. Ákærði Ívar Aron verður því sakfelldur fyrir framangreint brot sem réttilega er heimfært til refsiákvæðis í ákæru.
Með vísan til skýlausra játninga ákærðu allra og að uppfylltum öðrum skilyrðum 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var farið með málið í samræmi við ákvæði áðurnefndrar lagagreinar án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjendum ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákvörðun refsinga
Ákærðu Emil Freyr og Stefán frömdu ránsbrotin tvö með nokkurra daga millibili. Bæði brotin voru alvarleg, framin í samverknaði og var háttsemi ákærðu til þess fallin að vekja ótta þeirra sem fyrir henni urðu. Í síðara ránsbrotinu, sem ákærðu allir frömdu, sló ákærði Emil Freyr B með opnum lófa og otaði hníf að D með ógnandi hætti. Ákærði Stefán ógnaði öllum drengjunum með því að munda hafnarboltakylfu og ákærði Ívar Aron sló D í andlitið. Þá höfðu ákærðu á brott með sér nokkur verðmæti. Rannsókn máls þessa hófst í kjölfar síðara ránsins, þ.e. að kvöldi laugardagsins 11. desember 2010, og bera gögn málsins með sér að málið hafi verið full rannsakað í lok árs 2010. Ákæra var hins vegar ekki gefin út fyrr en 23. febrúar 2012 eða rúmu ári síðar. Í lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008, er skýrlega kveðið á um að hraða skuli meðferð sakamála eftir því sem kostur er, sbr. m.a. 18. og 53. gr. laganna. Markmið málshraðareglunnar er að bæta réttarstöðu sakborninga og brotaþola, auk þess að styrkja réttaröryggi borgaranna, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að dráttur á útgáfu ákæru hafi verið af völdum ákærðu sem allir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald 13. desember 2010 vegna máls þessa. Þá hófu ákærðu Stefán og Ívar Aron þann 20. sama mánaðar afplánun eftirstöðva refsidóma í framhaldi af gæsluvarðhaldsvistinni, ákærði Stefán 255 daga og ákærði Ívar Aron 196 daga. Sama dag, þann 20. desember 2010, hóf ákærði Emil Freyr hins vegar afplánun tveggja ára fangelsisdóms Hæstaréttar Íslands frá 16. desember 2010 og hefur setið í fangelsi síðan.
Ákærði Stefán, sem fæddur er 1991, var 19 ára þegar hann framdi brot þau sem hann er nú sakfelldur fyrir. Þrátt fyrir ungan aldur er sakarferill ákærða nokkur og hefur hann verið vistaður í fangelsi talsverðan hluta unglingsáranna. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 15. maí 2007 var ákærði Stefán dæmdur fyrir hylmingu en frestað var ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið í tvö ár. Hann var á ný dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands 22. júní 2007 fyrir þjófnað, tilraun til þjófnaðar og fíkniefnalagabrot og var ákvörðun refsingar hans þá einnig frestað skilorðsbundið í tvö ár. Bæði þessi brot framdi ákærði Stefán nýorðinn 15 ára. Með dómi Hæstaréttar þann 28. febrúar 2008 var ákærði dæmdur í fjögurra ára fangelsi og voru dómarnir frá 15. maí og 22. júní 2007 dæmdir upp með þeim dómi. Með dómi Hæstaréttar var ákærði sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir, ýmis auðgunarbrot, þar á meðal þrjú fullframin rán og eina ránstilraun, nytjastuld, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot, en framangreind brot framdi ákærði Stefán þegar hann var 15 ára. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 9. maí 2008 var ákærða ekki gerð sérstök refsing fyrir nytjastuld og þjófnað sem hann framdi 15 ára gamall. Þá var ákærði Stefán dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir þjófnað í Héraðsdómi Reykjavíkur 16. mars 2010 en brotið framdi hann 25. desember 2009, þá nýlega orðinn 18 ára gamall. Loks gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun í Héraðsdómi Reykjavíkur 10. nóvember 2011, 300.000 króna sekt og sviptingu ökuréttar í 15 mánuði, vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og aksturs ökutækis án gildra ökuréttinda í október og nóvember 2010. Vegna máls þess sem hér er til meðferðar var ákærða Stefáni, eins og áður er rakið, með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands 20. desember 2010, gert að afplána eftirstöðvar dóms Hæstaréttar Íslands frá 28. febrúar 2008 og dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. mars 2010, sbr. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, og lauk hann afplánun þann 1. september 2011.
Brot þau sem ákærði Stefán er nú sakfelldur fyrir framdi hann áður en hann gekkst undir viðurlagaákvörðun 10. nóvember 2011 og ber því að dæma ákærða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Það er ákærða Stefáni til refsiþyngingar að um er að ræða tvö ránsbrot sem ákærði vann annars vegar í sameiningu með ákærða Emil Frey og hins vegar meðákærðu báðum, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er það ákærða Stefáni einnig til refsiþyngingar að í síðara ráninu var drengjunum ógnað með hníf og hafnarboltakylfu auk þess sem einn drengjanna fékk áverka á neðri vör eftir högg með krepptum hnefa frá öðrum meðákærða eins og áður er rakið. Ákærða Stefáni til refsilækkunar er ungur aldur hans. Þá er til þess að líta að ákærði Stefán framdi þau brot gegn XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem tilgreind eru á sakavottorði áður en hann var fullra 18 ára gamall að undanskildum þjófnaði sem hann var dæmdur fyrir með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 16. mars 2010. Til refsimildunar er horft til skýlausrar játningar ákærða Stefáns og þess að nokkur dráttur, sem ekki verður séð að hafi verið ákærða um að kenna, hefur orðið á rekstri málsins hjá lögreglu og/eða ákæruvaldi og ekki hefur verið skýrður. Að þessu virtu og með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er refsing ákærða Stefáns ákveðin fangelsi í 10 mánuði.
Í framlögðum gögnum er upplýst að ákærði Stefán hafi stundað nám og vinnu og verið í meðferð meðan á afplánun eldri dóma stóð. Ákærði hafi einnig sótt AA fundi reglulega eftir vímuefnaneyslu frá unga aldri og geri enn. Þá liggja frammi gögn um að ákærði Stefán hafi, eftir að hann lauk afplánun þann 1. september 2011, lifað reglusömu lífi, stundað nám og vinnu og sýnt með ótvíræðum hætti að hann hafi fullan vilja til að halda sér á beinu brautinni í framtíðinni. Að öllu framansögðu virtu þykir, með vísan til ungs aldurs ákærða og sérstaklega vegna breyttra aðstæðna hans eftir að hann lauk afplánun, eftir atvikum rétt að fresta fullnustu refsingar ákærða, Stefáns, og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til fullnustu refsingarinnar skal dragast frá með fullri dagatölu gæsluvarðhaldsvist ákærða Stefáns frá 13. til 20. desember 2010.
Ákærði Emil Freyr, sem fæddur er 1988, var 22 ára þegar hann framdi brot þau sem hann er nú sakfelldur fyrir. Samkvæmt sakavottorði ákærða Emils Freys á hann að baki langan og nær óslitinn sakaferil frá 18 ára aldri. Ákærði Emil Freyr gekkst, með lögreglustjórasátt á árinu 2006, undir greiðslu sektar vegna fíkniefnabrots. Með dómi 26. apríl 2007 var ákærða gert að greiða 250.000 króna sekt og sæta sviptingu ökuréttar í tvö ár og þrjá mánuði fyrir fíkniefnaakstur. Þann 15. maí 2007 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, fíkniefnaakstur, þjófnað og nytjastuld sem hann framdi þegar hann var 18 ára gamall. Með dómi 12. júlí 2007 var ákærða Emil Frey gert að sæta tólf mánaða fangelsi fyrir tvö rán, framin 31. október 2006 og 25. mars 2007 þegar ákærði var á 19. aldursári. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 25. október 2007 var ákærði dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld, fjársvik, ölvunarakstur, sviptingarakstur og fíkniefnabrot og var ákærði þá sviptur ökurétti í tvö ár og sex mánuði. Með dómi 9. apríl 2008 var ákærði Emil Freyr sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, ölvunarakstur og að aka sviptur ökurétti en honum var þá ekki gerð sérstök refsing. Með viðurlagaákvörðun 17. apríl 2008 gekkst ákærði undir að greiða 170.000 króna sekt fyrir þjófnað og fíkniefnabrot. Með dómi 8. janúar 2009 var ákærði Emil Freyr dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir fíkniefnabrot, fíkniefnaakstur, akstur sviptur ökurétti og fleiri umferðarlagabrot og var ákærði þá og sviptur ökurétti ævilangt. Með viðurlagaákvörðun 9. janúar 2009 gekkst ákærði undir greiðslu sektar vegna fíkniefnabrots og í október sama ár var honum með viðurlagaákvörðun ekki gerð sérstök refsing vegna fíkniefnabrots. Þá var ákærði Emil Freyr dæmdur í átta mánaða fangelsi 23. október 2009 fyrir þjófnað, nytjastuld, fíkniefnabrot og sviptingarakstur. Með dómi Hæstaréttar Íslands 16. desember 2010 var ákærði Emil Freyr dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir þjófnað, hylmingu, fjársvik, nytjastuld, brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf, fíkniefnaakstur, sviptingarakstur og fleiri umferðarlagabrot. Með dómnum staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. mars 2010 en þyngdi refsingu ákærða um 12 mánuði. Áðurnefndur héraðsdómur hefur ítrekunaráhrif á brot ákærða sem hér eru til meðferðar sem og aðrir framangreindir dómar sem ákærði Emil Freyr hefur hlotið fyrir brot á XXVI. kafla almennra hegningarlaga. Loks var ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi og ævilanga sviptingu ökuréttar með dómi Héraðsdóms Suðurlands 18. mars 2011 fyrir þjófnað, nytjastuld, hylmingu, sviptingarakstur og fleiri umferðarlagabrot framin á tímabilinu 25. maí til 6. desember 2010. Brot þau sem ákærði Emil Freyr er nú sakfelldur fyrir framdi hann áður en dómur Héraðsdóms Suðurlands frá 18. mars 2011 gekk og ber því að dæma ákærða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Það er ákærða Emil Frey til refsiþyngingar að um er að ræða tvö ránsbrot sem ákærði framdi annars vegar í sameiningu með ákærða Stefáni og hins vegar meðákærðu báðum, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er það ákærða Emil Frey einnig til refsiþyngingar að í síðara ráninu var drengjunum ógnað með hnífi og hafnarboltakylfu auk þess sem einn drengjanna fékk áverka á neðri vör eftir högg með krepptum hnefa frá öðrum meðákærða eins og áður er rakið. Til refsimildunar er horft til skýlausrar játningar ákærða Emils Freys og þess að nokkur dráttur, sem ekki verður séð að hafi verið ákærða um að kenna, hefur orðið á rekstri málsins hjá lögreglu og/eða ákæruvaldi og ekki hefur verið skýrður. Eins og áður er rakið hafði ákærði Emil Freyr verið dæmdur samanlagt í 39 mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu áður en hann framdi brot þau sem mál þetta varðar, aðallega ýmis auðgunarbrot en einnig tvö ránsbrot. Ber því að ákveða ákærða Emil Frey refsingu með vísan til 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði Emil Freyr á að baki nær samfelldan brotaferil frá árinu 2007. Hann er síbrotamaður og verður við ákvörðun refsingar því höfð hliðsjón af 72. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að þessu öllu virtu, og með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, er refsing ákærða Emils Freys ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Lögð voru fram gögn undir rekstri málsins fyrir dómi um að ákærði Emil Freyr, sem nú afplánar 28 mánaða fangelsisrefsingu, sé fyrirmyndarfangi og hafi sýnt mikinn vilja til að ná tökum á lífi sínu og breyta til betri vegar. Með vísan til sakarferils ákærða og alvarleika þeirra brota sem honum er nú ákveðin refsing fyrir, þykja hins vegar ekki efni til að binda refsinguna skilorði. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber að draga frá refsivistinni gæsluvarðhald er ákærði Emil Freyr sætti frá 13. til 20. desember 2010.
Ákærði Ívar Aron, sem fæddur er 1986, var 24 ára þegar hann framdi brot það sem hann er nú sakfelldur fyrir. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði Ívar Aron frá árinu 2007 hlotið tíu refsidóma en þar af er einn danskur dómur fyrir skemmdarverk. Ákærði Ívar Aron gekkst, með lögreglustjórasátt á árinu 2004, undir greiðslu sektar vegna fíkniefnabrots og svo aftur árið 2007. Þá er áðurnefndur danskur dómur uppkveðinn í desember 2007 og var ákærða með honum gerðar dagsektir. Með dómi Hæstaréttar Íslands 28. febrúar 2008 var ákærði Ívar Aron sakfelldur fyrir fjölda auðgunarbrota, þar af þrjú ránsbrot, nytjastuld, stórfelld eignaspjöll sem og umferðarlaga- og fíkniefnabrot og dæmdur í 3 ára fangelsi. Þann 10. október 2008 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld og fjársvik. Með dómi 19. nóvember sama ár var ákærði Ívar Aron dæmdur í 4 mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Í desember sama ár var ákærði dæmdur í sekt fyrir fíkniefnabrot og aftur með dómi í ágúst 2009. Þann 14. desember 2009 var ákærði Ívar Aron dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot. Með dómi Héraðdóms Norðurlands eystra 18. nóvember 2010 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld, fíkniefnabrot og umferðalagabrot. Þá var ákærði Ívar Aron með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2011 dæmdur í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán, frelsisskerðingu og þjófnað en brotin voru framin í október 2009. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 30. nóvember 2011 var ákærði dæmdur í sekt fyrir fíkniefnalagabrot. Vegna máls þess sem hér er til meðferðar var ákærða Ívari Aroni, gert eins og áður er rakið, með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands 20. desember 2010, að afplána eftirstöðvar dóms Héraðsdóms Suðurlands frá 14. desember 2009 og dóms Héraðsdóms Norðurlands eystra frá 18. nóvember 2010, sbr. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, og lauk hann afplánun þann 4. júlí 2011.
Það er ákærða Ívari Aroni til refsiþyngingar að um er að ræða ránsbrot sem ákærði framdi í sameiningu með meðákærðu Stefáni og Emil Frey, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er það ákærða Ívari Aroni einnig til refsiþyngingar að í ráninu var drengjunum ógnað með hnífi og hafnarboltakylfu auk þess sem einn drengjanna fékk áverka á neðri vör eftir högg með krepptum hnefa frá ákærða Ívari Aroni eins og áður er rakið. Til refsimildunar er horft til skýlausrar játningar ákærða Ívars Arons og þess að nokkur dráttur, sem ekki verður séð að hafi verið ákærða um að kenna, hefur orðið á rekstri málsins hjá lögreglu og/eða ákæruvaldi og ekki hefur verið skýrður. Ákærði Ívar Aron hafði verið dæmdur samanlagt í 51 mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu áður en hann framdi brot það sem mál þetta varðar, aðallega ýmis auðgunarbrot en einnig þrjú ránsbrot. Ákærði Ívar Aron á að baki nær samfelldan brotaferil frá árinu 2007. Hann er síbrotamaður og verður við ákvörðun refsingar því höfð hliðsjón af 72. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Eins og áður er rakið var ákærði Ívar Aron dæmdur í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2011 og þá var ákærði dæmdur í sekt með dómi Héraðsdóms Reykjaness 30. sama mánaðar. Ber samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að dæma fyrrgreindan dóm frá 22. nóvember 2011 upp og gera ákærða Ívari Aroni nú refsingu í einu lagi samkvæmt 78. gr. áðurgreindra hegningarlaga. Að þessu öllu virtu, og með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, er refsing ákærða Ívars Arons ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Upplýst var undir rekstri málsins fyrir dómi að ákærði Ívar Aron sé í sambúð og atvinnuleit og hafi unnið markvisst að því að halda skilyrði dómsins 22. nóvember 2011. Með vísan til sakarferils ákærða og alvarleika brots ákærða í máli þessu, þykja hins vegar ekki efni til að binda refsinguna skilorði. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber að draga frá refsivistinni gæsluvarðhald er ákærði sætti frá 13. til 20. desember 2010.
Sakarkostnaður
Með vísan til 1. mgr. 218. gr. laga um meðferð sakamála ber að dæma ákærðu til að greiða þóknun skipaðra verjenda og annan útlagðan sakarkostnað sem hér segir: Ákærði Emil Freyr greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar hdl., 150.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 12.654 krónur í ferðakostnað. Ákærði greiði einnig samkvæmt yfirliti yfir sakarkostnað 276.100 krónur vegna starfa Sigurðar Jónssonar hrl., verjanda ákærða á rannsóknarstigi, og 4.318 krónur sem hlutdeild í öðrum sakarkostnaði. Ákærði Stefán Blackburn greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar hdl., 577.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti vegna vinnu verjanda á rannsóknarstigi og fyrir dómi, 76.368 krónur í ferðakostnað vegna sama og samkvæmt yfirliti yfir sakarkostnað 4.318 krónur sem hlutdeild í öðrum sakarkostnaði. Ákærði Ívar Aron Hill Ævarsson greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hd1., 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti vegna vinnu verjanda á rannsóknarstigi og fyrir dómi, 76.368 krónur í ferðakostnað vegna sama og samkvæmt yfirliti yfir sakarkostnað 4.318 krónur sem hlutdeild í öðrum sakarkostnaði.
Ragnheiður Thorlacius héraðsdómari kveður upp dóm þennan
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Emil Freyr Júlísson, sæti fangelsi í 14 mánuði. Frá refsivistinni skal draga gæsluvarðhald er ákærði sætti 13. - 20. desember 2010.
Ákærði, Stefán Blackburn, sæti fangelsi í 10 mánuði, en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til afplánunar refsivistar skal draga frá gæsluvarðhald er ákærði sætti 13. - 20. desember 2010.
Ákærði, Ívar Aron Hill Ævarsson, sæti fangelsi í 14 mánuði. Frá refsivistinni skal draga gæsluvarðhald er ákærði sætti 13. - 20. desember 2010.
Ákærði, Emil Freyr Júlísson, greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar hdl., 150.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, 12.654 krónur í ferðakostnað og 280.418 krónur í sakarkostnað.
Ákærði, Stefán Blackburn, greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar hdl., 577.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, 76.368 krónur í ferðakostnað og 4.318 krónur í sakarkostnað.
Ákærði, Ívar Aron Hill Ævarsson, greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, 76.368 krónur í ferðakostnað og 4.318 krónur í sakarkostnað.
Ragnheiður Thorlacius