Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-476/2010:

Ár 2010, miðvikdaginn 22.

desember, er á dóm­þingi Héraðs­dóms Suður­lands að Austurvegi 4, Selfossi,

tekið fyrir mál nr. S-476/2010:

Ákæruvaldið

(Gunnar Jónsson ftr)

gegn

Ólafi

Hauki Atlasyni

og kveðinn upp svofelldur

dómur:

(Sigurður Sigurjónsson hrl)

Skilorðsrof. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað. Rof á reynslulausn.

Mál þetta, sem þingfest var þann 9. desember sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Selfossi, dagsettri 10. október 2010, á hendur Ólafi Hauki Atlasyni, kt. 000000-0000, Mánabraut 12, Kópavogi, „fyrir þjófnað með því að hafa í maí 2010 brotist inn í sumarbústað við Útey I í Bláskógabyggð, Árnessýslu með því að brjóta upp útidyrahurð sunnan megin á sumarhúsinu og stela þaðan 1 flösku af prútvíni (sic), 1 flösku af rauðvíni, 2 bjórdósum og einum hring úr 18k gulli.

Telst háttsemi ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði mætti við þingfestingu málsins og var Sigurður Sigurjónsson hrl. skipaður verjandi hans. Ákærði játaði sök greiðlega. Var því farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eftir að fulltrúa ákæruvaldsins og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Fram kom að ákærði, sem er fjögurra barna faðir, hefur eftir að brotið var framið farið í meðferð og er nú í fullri vinnu.

Með játningu ákærða sem er í samræmi við önnur gögn málsins er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæruskjali og þar er rétt færð til refsiákvæðis.

Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu á ákærði talsverðan sakarferil að baki og hefur hann sætt refsingum, sektum og fangelsi, fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og brot gegn 1. mgr. 257. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga. Þá var ákærði með dómi Hæstaréttar 29. nóvember 2007 dæmdur í 18 mánaðar fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 15. desember 2006 var ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára og 450.000 króna sekt og sviptingu ökuréttar fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Þann 12. júní 2009 var ákærða veitt reynslulausn á 205 daga eftirstöðvum refsinga. Um var að ræða eftirstöðvar refsinga samkvæmt þremur dómum, þ.e. 45 daga fangelsisdóm frá 26. nóvember 2007 vegna umferðarlagabrota, 18 mánaða fangelsi samkvæmt áðurnefndum dómi Hæastaréttar frá 29. nóvember 2007 og 30 daga fangelsi samkvæmt dómi frá 13. mars 2008 vegna brota gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlaga og laga um ávana- og fíkniefni. Fyrir liggur í málinu að ákærði hefur ekki tekið út eftirstöðvar áðurnefndrar reynslulausnar.

Ákærði hefur með broti sínu rofið skilorð reynslulausnar sem honum var veitt 12. júní 2009, sbr. 2. mgr. 64. gr. laga 49/2005 um fullnustu refsinga. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 ber því nú að dæma óafplánaða sex mánaða og tuttugu og fimm daga refsingu hans með í máli þessu og er honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga. Að öllu þessu virtu og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga er refsing ákærða ákveðin fangelsi í átta mánuði. Ekki eru skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 er ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, þar meðtalda þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Sigurjónssonar, hrl., sem telst hæfilega ákveðin 43.925 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ragnheiður Thorlacius héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ólafur Haukur Atlason, sæti fangelsi í átta mánuði.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Sigurjónssonar, hrl., 43.925 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ragnheiður Thorlacius

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.77. gr.2. mgr. 218. gr.244. gr.1. mgr. 257. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 49/2005 Lög um fullnustu refsinga 2. mgr. 64. gr.1. mgr. 65. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 164. gr.1. mgr. 218. gr.