Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 4. mars 2010.
Mál nr. S-42/2010:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
X
Lykilorð
Frávísun frá héraðsdómi. Vanhæfi.
Útdráttur
Ákært fyrir brot gegn valdstjórninni. Málinu vísað frá dómi vegna vanhæfis Sýslumannsins á Selfossi til að fara með rannsókn málsins.
Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar 19. febrúar sl., er höfðað með ákæru ríkissaksóknara 27. janúar 2010 á hendur X, „fyrir brot gegn valdstjórninni, aðfaranótt sunnudagsins 12. október 2008, á lögreglustöðinni Hörðuvöllum 1, Árborg, með því að hafa slegið lögreglumanninn B, sem var við skyldustörf, hnefahögg í andlitið, með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgukúlu, mar og eymsli hægra megin í andliti við hægri augabrún.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 101/1976 og 1. gr. laga nr. 25/2007.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Við þingfestingu málsins 19. febrúar sl. tók dómari fram að þeir annmarkar kynnu að vera á rannsókn málsins að vísa bæri því frá dómi. Var málið tekið úrskurðar sama dag eftir að sakflytjendur höfðu tjáð sig um málefnið.
Í frumskýrslu lögreglunnar á Selfossi kemur fram að lögreglumenn hafi haft afskipti af ákærðu rétt eftir miðnætti aðfaranótt 12. október 2008 vegna ölvunar og átaka er hún hefði lent í inni á veitingastaðnum 800 bar á Selfossi. Hafi hún verið færð á lögreglustöðina á Selfossi. Þar sem illa hafi gengið að róa hana niður hafi verið talið nauðsynlegt að færa hana í klefa og láta hana þar sofa úr sér áfengisvímuna. Þegar lögreglumenn hafi verið að færa hana inn í klefann hafi ákærða slegið lögreglukonu högg í andlitið sem hafi lent ofan við vinstri augabrún.
Rannsókn á máli þessu virðist ekki hafa hafist fyrr en með skýrslutökum af brotaþola, ákærðu og samstarfsmanni brotaþola í júlí og ágúst 2009. Skýrslutökur og rannsókn málsins að öðru leyti önnuðust samstarfsmenn brotaþola og verður ekki annað ráðið af rannsóknargögnum en að þeir hafi gert það í umboði og undir stjórn yfirmanns síns, Sýslumannsins á Selfossi.
Í 7. mgr. 8. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er kveðið á um að lögreglustjórar og aðrir þeir sem fari með lögregluvald megi ekki rannsaka brot ef þeir eru vanhæfir til þess samkvæmt stjórnsýslulögum. Kemur og fram að starfsmenn þess lögreglustjóra sem vanhæfur er geti ekki rannsakað mál nema rannsókn fari fram undir stjórn annars lögreglustjóra, enda séu þeir ekki sjálfir vanhæfir til að fara með málið samkvæmt stjórnsýslulögum. Telja verður að Sýslumaðurinn á Selfossi hafi verið vanhæfur til að fara með rannsókn máls þessa með vísan til 6. tl. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt því, og með hliðsjón af dómi Hæstaréttar í málinu nr. 59/2010, verður máli þessu vísað frá dómi með vísan til 5. mgr. 26. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Allur sakarkostnaður, þar með talin þóknun skipaðs verjanda ákærðu, Sigurðar Sigurjónsonar hrl., 48.820 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Máli þessu er vísað frá dómi.
Allur sakarkostnaður, þar með talin 48.820 króna þóknun skipaðs verjanda ákærðu, Sigurðar Sigurjónsonar hrl., greiðist úr ríkissjóði.
Ásgeir Magnússon