Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-349/2009:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Armando Luis Rodriguez

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Eignaspjöll.

Ákærði sakfelldur fyrir minniháttar eignaspjöll.

Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið samdægurs er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi dagsettri 1. júlí 2009 á hendur Armando Luis Rodriguez, kt. 000000-0000, Sléttahrauni 27, Hafnarfirði „fyrir eignaspjöll með því að hafa, einhvertíman á tímabilinu 27. júlí 2008 til 29. júlí sama ár valdið skemmdum á rúðu að stærð 102,6 x 119 cm og parketi á stofugólfi í íbúðarhúsinu að Básahrauni 20 í Þorlákshöfn, með því að kasta grjóthellu í nefnda rúðu með þeim afleiðingum að hún brotnaði og parket á gólfi þar fyrir innan skemmdist.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakakostnaðar.”

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 20. ágúst sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Samkvæmt sakarvottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærða tvisvar sinnum verið gerð refsing vegna ölvunaraksturs og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þau hafa þó ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er ákveðin 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í átta daga.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Armando Luis Rodriguez, greiði 100.000 króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í átta daga.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá