Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 13. apríl 2010.
Mál nr. E-1051/2009:
Sparisjóður
Vestmannaeyja
gegn
Guðrúnu
Ídu Stanleysdóttur og
Heiðari
Stanley Smárasyni
Lykilorð
Afturvirkni laga. Eignarréttur. Kröfuréttur. Sjálfskuldarábyrgð.
Útdráttur
Dæmt að ákvæðum 3. mgr. 9. gr., sbr. 12. gr. laga um ábyrgðarmenn yrði ekki beitt um kröfu stefnanda á hendur stefndu þar sem um kröfuréttindi væri að ræða sem nytu verndar eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar og óheimilt væri að skerða þau án bóta með afturvirkri og íþyngjandi löggjöf.
Dómkröfur stefnanda eru þær að stefndu verði in solidum dæmd til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 1.024.686 krónur ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 1. desember 2008 til greiðsludags. Þá er krafist bankakostnaðar að fjárhæð 29.210 krónur og málskostnaðar að mati dómsins.
Dómkröfur stefndu eru þær að þau verði sýknuð af kröfum stefnanda. Stefnda Guðrún krefst málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt reikningi en stefndi Heiðar Stanley krefst málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt reikningi eins og málið væri ekki gjafsóknarmál, en hann fékk gjafsókn í máli þessu með bréfi dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins dags. 4. desember sl. Málavextir.
Stefnandi lýsir málavöxtum svo að framangreind skuld sé samkvæmt skuldabréfi nr. 1169-74-010333, útgefnu á Selfossi þann 6. mars 2006 af stefnanda en skuldari er Guðrún Birna Smáradóttir. Skuldabréfið var upphaflega að fjárhæð 1.000.000 krónur og skyldi það greiðast með 96 afborgunum í Sparisjóðnum á Suðurlandi, Selfossi, á mánaðarfresti, í fyrsta sinn 1. apríl 2006. Skuldin bar vexti frá 27. febrúar sama ár og skyldi greiða af því breytilega kjörvexti eins og þeir voru ákveðnir hverju sinni af sparisjóðnum, upphaflega 5,30% ársvexti að viðbættu 4,75% vaxtaálagi á ári, eða alls 10,05% ársvexti. Þá var skuldabréfið bundið vísitölu neysluverðs með grunnvísitölu 249,7. Breyting var gerð á greiðsluskilmálum skuldabréfsins 21. nóvember 2008 og námu eftirstöðvar skuldabréfsins 997.404 krónum og skyldi lánið endurgreiðast með 64 jöfnum afborgunum á mánaðarfresti, í fyrsta sinn 1. desember 2008, vextir og vísitala reiknaðir frá 17. nóvember sama ár. Skuldabréfið fór í vanskil 1. desember sama ár og var gjaldfellt miðað við þann gjaldaga. Stefnandi sundurliðar skuldina þannig að eftirstöðvar þegar það hafi farið í vanskil hafi numið 1.018.901 krónum og áfallnir samningsvextir þann dag hafi numið 5.785 krónum, eða samtals 1.024.686 krónum. Þá sundurliðar stefnandi bankakostnað þannig að vanskilakostnaður sé 28.720 krónur og greiðsluseðlagjald vegna gjalddaga 1. desember 2008 sé 490 krónur, eða samtals 29.210 krónur.
Stefnandi segir stefndu hafa tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð á greiðslum samkvæmt skuldabréfinu og hafi skuldin ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir.
Stefndu lýsa málsatvikum svo að þau hafi tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð vegna skuldabréfsins 6. mars 2006, en stefnda Guðrún Ída er móðir skuldara, Guðrúnar Birnu og stefndi Heiðar Stanley er bróðir hennar. Guðrún Birna hafi orðið ófær um að standa skil á skuldum sínum, m.a. samkvæmt ofangreindu skuldabréfi og hafi hún þá leitað greiðsluaðlögunar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Með úrskurði dómsins upp kveðnum 13. maí 2009 var henni veitt heimild til greiðsluaðlögunar í samræmi við 3. þátt X kafla a laga nr. 21/1991, sbr. lög nr. 24/2009. Í greinargerð umsjónarmanns með greiðsluaðlögun dagsettri 2. júlí 2009 var mælt með algjörri eftirgjöf allra samningskrafna Guðrúnar Birnu. Í framhaldi af því óskaði hún eftir því að héraðsdómur staðfesti frumvarpið og í framhaldi af því skoraði dómurinn á alla þá sem teldu sig hafa andmæli gegn staðfestingu frumvarpsins að mæta á dómþingi þegar krafa um staðfestingu yrði tekin fyrir. Andmæli bárust frá stefnanda þar sem gerð var sú krafa að nauðasamningi til greiðsluaðlögunar yrði hafnað. Með úrskurði dómsins 15. september sl. var nauðasamningur Guðrúnar Birnu staðfestur og var gert ráð fyrir algjörri eftirgjöf samningskrafna, þ. á m. umræddu skuldabréfi.
Málsástæður og lagarök stefnanda.
Stefnandi byggir kröfur sínar á því að stefndu hafi tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð á greiðslum samkvæmt skuldabréfinu og vísar til meginreglna samningaréttarins um skuldbindingargildi loforða og skyldu til að efna samninga sem m.a. fái stoð í lögum nr. 7/1936. Þá er vísað til vanefndaákvæða bréfsins sjálfs og sagt að málið sé rekið samkvæmt 17. kafla laga nr. 91/1991 (svo). Dráttarvaxtakröfur eru reistar á lögum nr. 38/2001 og krafa um málskostnað er byggð á 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.
Við munnlegan málflutning byggði stefnandi einnig á þeirri málsástæðu að 3. mgr. 9. gr. laga um ábyrgðarmenn nr. 32/2009, sem tóku gildi 4. apríl 2009 ættu ekki að hrófla við ábyrgð stefndu. Taldi hann 12. gr. laganna, þar sem kveðið er á um að lögin taki til ábyrgða sem stofnað hafi verið til fyrir gildistöku laganna, stríða gegn reglum um afturvirkni laga. Bæri að víkja lögunum til hliðar þar sem þau væru ósamrýmanleg 72. gr. stjórnarskrárinnar og lögum um mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994, sbr. samningsviðauka nr. 1 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis. Byggði stefnandi á því að um brot á jafnræðisreglu og meðalhófsreglu væri að ræða og geti löggjafinn ekki haggað við gagnkvæmum samningum nema í algjörum undantekningartilvikum og komi fullar bætur fyrir.
Málsástæður og lagarök stefndu.
Stefndu byggja á því að ábyrgð þeirra sé ekki lengur fyrir hendi, enda sé krafan fallin niður og beri þau því ekki lengur ábyrgð í samræmi við yfirlýsingu sína. Með nauðasamningi til greiðsluaðlögunar, sem staðfestur hafi verið með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 15. september 2009, hafi krafa á hendur Guðrúnu Birnu Smáradóttur verið felld niður, sbr. 63. gr. b laga nr. 24/2009 um greiðsluaðlögun. Eigi því stefnandi ekki lengur kröfu á hendur Guðrúnu Birnu enda teljist nauðasamningur kominn á þegar krafa skuldarans um staðfestingu nauðasamnings hefur verið tekin til greina með endanlegri dómsúrlausn, sbr. 1. mgr. 60. gr. laga nr. 21/1991. Samkvæmt 4. mgr. 60. gr. laganna haggar nauðasamningur ekki rétti lánardrottins til að krefja ábyrgðarmenn um fulla greiðslu, en í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn segi að þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 60. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. skuli nauðasamningur eða önnur eftirgjöf, þ.m.t. nauðasamningur til greiðsluaðlögunar, sem kveður á um lækkun á kröfu á hendur lántaka, hafa sömu áhrif til lækkunar á kröfu á hendur ábyrgðarmanni. Í 12. gr. laga um ábyrgðarmenn sé kveðið svo á um að lögin taki til ábyrgða sem stofnað hafi verið til fyrir gildistöku laganna. Stefndu séu ábyrgðarmenn í skilningi laganna, en samkvæmt 2. mgr. 2. gr. sé með ábyrgðarmanni átt við einstakling sem gengst persónulega í ábyrgð til tryggingar efndum lántaka. Sé málsókn stefnanda því ranglega beint að stefndu þar sem krafan hafi verið gefin eftir á hendur Guðrúnu Birnu og eigi sú eftirgjöf að hafa sömu áhrif á hendur stefndu.
Stefndu byggja á því að það sé meginregla að ný lög gangi framar eldri lögum. Lög nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn séu sérlög sem gangi framar lögum nr. 21/1991. Verði því að líta svo á að krafa stefnanda á hendur stefndu sé fallin niður á grundvelli framangreinds lagaákvæðis um ábyrgðarmenn.
Stefndu byggja málskostnaðarkröfu á 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.
Niðurstaða.
Ekki er um það deilt í máli þessu að með nauðasamningi til greiðsluaðlögunar, sem staðfestur var með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 15. september 2009, var krafa á hendur Guðrúnu Birnu Smáradóttur samkvæmt framangreindu skuldabréfi felld niður, sbr. 63. gr. b laga nr. 24/2009 um greiðsluaðlögun. Þá er ekki um það deilt að stefndu gengust undir sjálfskuldarábyrgð á greiðslum samkvæmt skuldabréfinu. Málsaðilar deila um það í máli þessu hvort sú ábyrgð sé niður fallin með vísan til 3. mgr. 9. gr., sbr. 12. gr. laga um ábyrgðarmenn nr. 32/2009.
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 32/2009 skal, þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 60. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nauðasamningur eða önnur eftirgjöf, þ.m.t. nauðasamningur til greiðsluaðlögunar, sem kveður á um lækkun kröfu á hendur lántaka, hafa sömu áhrif til lækkunar kröfu á hendur ábyrgðarmanni. Lög þessi tóku gildi 4. apríl 2009 og í 12. gr. þeirra segir að þau taki til ábyrgða sem stofnað hafi verið til fyrir gildistöku þeirra að frátöldum 4. gr., 5.gr., 1. mgr. 6. gr. og 8. gr. Í hinu upphaflega frumvarpi til laga um ábyrgðarmenn var ekki sambærilegt ákvæði en sérstaklega tekið fram varðandi 12. gr. frumvarpsins að miðað væri við að frumvarpið tæki til samninga um ábyrgðir sem gerðir væru frá og með gildistöku. Segir í áliti viðskiptanefndar Alþingis að nefndin leggi til að þau ákvæði frumvarpsins sem lúta að stofnun, efni og formi ábyrgðarsamnings gildi ekki um ábyrgðarsamninga sem gerðir hafi verið fyrir gildistöku laganna og að það sama eigi við um þau ákvæði frumvarpsins sem takmarki aðför og gjaldþrotaskipti á búi ábyrgðarmanns. Segir í álitinu að breytingin sé lögð til að gættum sjónarmiðum um afturvirkni laga og friðhelgi eignarréttar. Við meðferð málsins á Alþingi komu fram breytingartillögur frá viðskiptanefnd, m.a. þess efnis að við 12. gr. frumvarpsins bættist ákvæði þess efnis að lögin taki til ábyrgða sem stofnað hafi verið til fyrir gildistöku þeirra að frátöldum 4. gr., 5.gr., 1. mgr. 6. gr. og 8. gr. Var frumvarpið síðan samþykkt á Alþingi, m.a. með þessari breytingartillögu.
Eins og rakið hefur verið byggði stefnandi á því við munnlegan flutning málsins að víkja bæri framangreindum ákvæðum laga um ábyrgðarmenn til hliðar þar sem þau væru ósamrýmanleg 72. gr. stjórnarskrárinnar og lögum um mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994, sbr. samningsviðauka nr. 1 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis. Byggði stefnandi á því að um brot á jafnræðisreglu og meðalhófsreglu væri að ræða og geti löggjafinn ekki haggað við gagnkvæmum samningum nema í algjörum undantekningartilvikum og komi fullar bætur fyrir. Stefndu mótmæltu þessum málsástæðum stefnanda sem of seint fram komnum. Á það verður ekki fallist. Stefnandi höfðaði málið sem innheimtumál á hendur stefndu sem tókust á hendur sjálfskuldarábyrgð á skuldabréfi. Varnir stefndu byggðust á því að ábyrgð þeirra væri fallin niður með vísan til 3. mgr. 9. gr., sbr. 12. gr. laga um ábyrgðarmenn nr. 32/2009. Slíkar varnir kalla ekki á sérstaka gagnaöflun og var stefnanda því rétt að svara þeim vörnum í munnlegum málflutningi og vísa til hliðsjónargagna máli sínu til stuðnings. Það athugast hins vegar að mál þetta er ekki rekið samkvæmt XVII. kafla laga nr. 91/1991.
Fyrir gildistöku laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn átti stefnandi lögmæta kröfu á hendur stefndu sem þann 6. mars 2006 höfðu tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð vegna margnefnds skuldabréfs. Við gildistöku laganna 4. apríl 2009 fólu ákvæði 3. mgr. 9. gr., sbr. 12. gr. laganna í sér að sjálfskuldarábyrgð stefndu féll niður. Ekki verður um það deilt að kröfuréttindi njóta verndar eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar og verða ekki skert án bóta með afturvirkri og íþyngjandi löggjöf. Kröfuréttindi stefnanda voru tvímælalaust af þessum toga og af framanskráðu leiðir að ákvæðum 3. mgr. 9. gr., sbr. 12. gr. laga nr. 32/2009 verður ekki beitt um kröfu stefnanda á hendur stefndu. Enginn ágreiningur er um fjárhæð kröfunnar og verður hún tekin til greina eins og nánar greinir í dómsorði.
Eftir atvikum þykir rétt að málskostnaður milli aðila falli niður. Gjafsóknarkostnaður stefnda Heiðars Stanleys sem er þóknun lögmanns hans, Hjálmars Blöndal hdl., 300.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði samkvæmt gjafsóknarleyfi hans.
Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri kvað upp dóminn. Dómsuppkvaðning hefur dregist fram yfir lögbundinn frest en dómari og lögmenn aðila töldu endurflutning óþarfan.
DÓMSORÐ:
Stefndu, Guðrún Ída Stanleysdóttir og Heiðar Stanley Smárason, greiði stefnanda, Sparisjóði Vestmannaeyja, in solidum 1.024.686 krónur ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 1. desember 2008 til greiðsludags auk bankakostnaðar að fjárhæð 29.210 krónur.
Málskostnaður milli aðila fellur niður. Gjafsóknarkostnaður stefnda Heiðars Stanleys sem er þóknun lögmanns hans, Hjálmars Blöndal hdl., 300.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, greiðist úr ríkissjóði.
Hjörtur O. Aðalsteinsson.