Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-44/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Óttari Gný Rögnvaldssyni

svofelldur

d ó m u r :

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Ökuréttarsvipting.

Sakfellt fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og án þess að hafa ökuskírteini meðferðis. Dæmd sekt og ökuleyfissvipting í tvö ár.

Mál þetta, sem þingfest var þann 28. febrúar sl. og dómtekið þann 19. mars sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Óttari Gný Rögnvaldssyni, kt. 000000-0000, Seljalandsvegi 14, Ísafirði, „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 25. nóvember 2007, ekið bifreiðinni TB- 286 vestur Gaulverjabæjarveg við Stokkseyri, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínóls og án þess að hafa ökuskírteini meðferðis við aksturinn.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 57, 1997, lög nr. 23, 1998, lög nr. 132, 2003, lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66, 2006.“

Ákærði kom fyrir dóminn þann 19. mars sl. og játaði að hafa ekið umrætt sinn án þess að hafa ökuskírteini meðferðis en neitaði að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og ófær um að stjórna ökutækinu örugglega eins og greinir í ákæru. Málið var dómtekið eftir að verjandi og sækjandi höfðu reifað lagaákvæði og ákvörðun refsingar.

Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Í 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987 segir að enginn megi stjórna eða reyna að stjórna vélknúnu ökutæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Í 2. mgr. 45. gr. a. segir að mælist ávana- og fíkniefni skv. 1. mgr. í blóði eða þvagi ökumanns, teljist hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega.

Í málinu liggur fyrir matsgerð, dagsett 19. desember 2007, frá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands. Kemur þar fram að í þvagi ákærða hafi fundist kannabínóíðar og í blóði ákærða hafi mælst tetrahýdrókannabínól 1,6 ng/ml, þegar lögreglan hafði afskipti af ákærða. Þá segir í matsgerðinni að tetrahýdrókannabínól sé í flokki ávana- og fíkniefna, sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar blóð- og þvagsýnin voru tekin. Ákærði hefur því verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna þegar lögreglan hafði afskipti af honum og braut því gegn 45. gr. a. umferðarlaga. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi.

Brot það sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú framdi hann 25. nóvember 2007. Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir sátt þann 7. febrúar 2007 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og var gert að greiða 37.000 króna sekt til ríkissjóðs. Þann 25. maí 2007 var ákærða gert að greiða 50.000 króna sekt til ríkissjóðs fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þann 5. desember 2007 var ákærði dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn valdstjórninni. Verður ákærða nú gerður hegningarauki við dóminn frá 5. desember 2007 samkvæmt reglum 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er um ítrekað brot að ræða. Með hliðsjón af því magni fíkniefna sem mældist í blóði ákærða og þess að um hegningarauka er að ræða, skal ákærða gert að greiða 185.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en sæta ella fangelsi í fjórtán daga. Þá skal ákærði sviptur ökurétti í tvö ár frá birtingu dóms að telja.

Með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála skal ákærða gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna rannsóknar á blóði ákærða og matsgerðar, 110.453 krónur, og þóknun skipaðs verjanda hans, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 80.925 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, auk ferðakostnaðar, 8.220 krónur.

Gunnar Örn Jónsson fulltrúi sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Óttar Gnýr Rögnvaldsson, greiði 185.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja en sæti ella fangelsi í fjórtán daga.

Ákærði skal sviptur ökurétti í tvö ár frá birtingu dóms að telja.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 199.598 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 80.925 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 8.220 krónur í ferðakostnað.

Ástríður Grímsdóttir.