Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-37/2008:

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

Tómasz Jan Michalski

Magdalenu Karinu Michalska

svofelldur

d ó m u r :

Mál

þetta, sem þingfest var þann 28. febrúar sl. og dómtekið sama dag, er höfðað

með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur

Tómasz Jan Michalski, kt. 000000-0000, Eyjahrauni 27, Þorlákshöfn, og Magdalenu

Karinu Michalska, kt. 000000-0000, sama stað,

fyrir áfengislagabrot

(sjálfur)

Áfengislagabrot. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.

Ákært fyrir að brugga sterkt áfengi. Sakfellt og gert að greiða 570.000 krónur í sekt. Ákvörðun um refsingu meðákærðu frestað skilorðsbundið til 2ja ára.

Mál þetta, sem þingfest var þann 28. febrúar sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Tómasz Jan Michalski, kt. 000000-0000, Eyjahrauni 27, Þorlákshöfn, og Magdalenu Karinu Michalska, kt. 000000-0000, sama stað, „fyrir áfengislagabrot I. gegn ákærða Tomasz með því að hafa, á árinu 2007, fram í byrjun nóvember, framleitt á heimili sínu Eyjahrauni 27, Þorlákshöfn 115 lítra af áfengi með 43% áfengismagni og 27,9 lítra af áfengi með 54% áfengismagni og fyrir að eiga sérhæfð áhöld til framleiðslu áfengis, en lögregla lagði hald á áfengið og áhöldin við húsleit að heimili ákærðu að kvöldi fimmtudagsins 8. nóvember 2007.

Telst brot þetta varða við 2. mgr. 4, gr. og 7. gr. áfengislaga nr. 75/1998, sbr. 1. mgr 27. gr. nefndra áfengislaga.

II. gegn ákærðu Magdalenu Karinu, með því að hafa á sama tímabili og frá greinir í fyrri lið ákæru, látið viðgangast ólöglegan tilbúning og geymslu áfengis á heimili sínu.

Telst brot þetta varða við 5. mgr. 19. gr. áfengislaga nr. 75,1998, sbr. 1. mgr. 27. gr. nefndra áfengislaga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindu áfengi, eimingartækjum, tönkum, síubúnaði og kælidælu auk 4 plastbrúsa, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, samkvæmt 1. mgr. 28. gr. áfengislaga nr. 75/1998.“

Ákærðu, sem komu fyrir dóminn, játuðu brot sín greiðlega fyrir dóminum. Er játning þeirra í samræmi við önnur gögn málsins og verða þau sakfelld fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærðu, sem óskuðu ekki eftir verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærðu, sem höfðu túlk, kváðust hafa verið í þeirri trú að heimilt væri að framleiða áfengi til einkaneyslu og að þau hefðu ekki verið að brjóta lög. Ákærðu hafa búið hér á landi um árabil. Skýringar ákærðu á vanþekkingu á íslenskum lögum er ekki trúverðug með hliðsjón af því magni sem um var að ræða og því að þau hafa búið á landinu í nokkur ár. Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Samkvæmt sakavottorðum ákærðu sem liggja frammi í málinu hefur þeim ekki verið gerð refsing áður.

Þykir refsing ákærða Tómasz hæfilega ákveðin 570.000 króna sekt sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæta ella fangelsi í þrjátíu daga.

Ákvörðun um refsingu ákærðu, Magdalenu Karinu Michalska, er frestað þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptækir skulu gerðir 115 lítrar af áfengi að styrkleika 43% og 27,9 lítrar af áfengi að styrkleika 54%. Þá skulu upptæk gerð eimingartæki, tankar, síubúnaður, kælidæla og fjórir plastbrúsar sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Enginn sakarkostnaður hlaust af máli þessu.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Tómas Jan Michalski, greiði 570.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæti ella fangelsi í þrjátíu daga.

Ákvörðun um refsingu ákærðu, Magdalenu Karinu Michalska, er frestað þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptækir skulu gerðir 115 lítrar af 43% áfengi að styrkleika og 27,9 lítrar af 54% áfengi að styrkleika. Þá skulu upptæk gerð eimingartæki, tankar, síubúnaður, kælidæla og fjórir plastbrúsar sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 19/1991 Lög um meðferð opinberra mála 125. gr.
Lög nr. 75/1998 Áfengislög 7. gr.5. mgr. 19. gr.27. gr.1. mgr. 27. gr.1. mgr. 28. gr.