Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-36/2008:

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

X

Albert Þór Benediktssyni

svofelldur

d ó m u r :

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Játningarmál. Nytjastuldur. Skilorð. Þjófnaður.

Ákært fyrir nytjastuld og þjófnað. Sakfellt. Þriggja mánaða fangelsi dæmt, skilorðsbundið til tveggja ára.

Mál þetta, sem þingfest var 28. febrúar sl. og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur X, kt. 000000-0000, og Albert Þór Benediktssyni, kt. 000000-0000, Bugðuleiru 3, Höfn í Hornafirði, „fyrir nytjastuld og þjófnað

I.

með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 10. janúar 2007 í sameiningu tekið bifreiðina PU-308 í heimildarleysi þaðan sem hún stóð á bifreiðastæði við Víðimel 66 í Reykjavík og hagnýta sér hana báðir til aksturs 10. og 11. janúar 2007, m.a. á innbrotsvettvang í Gaulverjaskóla í Flóahreppi, sbr. ákærulið II, en ákærðu skildu bifreiðina síðan eftir á bak við verslun 10-11 við Hjarðarhaga í Reykjavík, þar sem lögregla kom að bifreiðinni að kvöldi 11. janúar 2007.

Telst brot ákærðu varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

með því að hafa síðar, sömu nótt og frá greinir í ákærulið I., í sameiningu brotist inní Gaulverjaskóla í Flóahreppi með því að brjóta rúðu í útidyrahurð og stela þaðan fimm fartölvum af gerðinni Hewlett Packard, samtals að verðmæti kr. 494.549,- en ákærðu hugðust koma fartölvunum úr landi með DHL-hraðsendingu.

Telst brot ákærðu varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.“

Ákærði kom fyrir dóminn og játaði brot sín fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991. Var mál ákærða Alberts skilið frá máli ákærða X og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða, sem óskaði ekki eftir skipun verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar.

Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að brot það sem ákærði er sakaður um framdi hann 10. janúar 2007 og var þá aðeins sextán ára gamall. Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærða ekki verið gerð refsing áður og ákærði játaði brot sín skýlaust fyrir dóminum og lögreglu. Til refsiþyngingar ber að líta til 2. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga en brot sín framdi ákærði í samvinnu við ákærða X auk þess sem ætlunin var að koma þýfinu úr landi. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Enginn sakarkostnaður hlaust af þætti ákærða Alberts fyrir dómi né liggur fyrir yfirlit um annan sakarkostnað.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan en dómsuppsaga hefur dregist vegna starfsanna dómarans.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Albert Þór Benediktsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.2. mgr. 74. gr.1. mgr. 244. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 19/1991 Lög um meðferð opinberra mála 125. gr.