Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-34/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)

gegn

X

svofelldur

d ó m u r :

(Ólafur Björnsson hrl)

Fyrning. Líkamsárás.

Ákærði sýknaður af refsikröfu vegna fyrningar. Sakarkostnaður lagður á ríkissjóð.

Mál þetta, sem þingfest var 6. mars sl. og dómtekið 11. mars sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur X, kt. 000000-0000,  Selfossi, „fyrir líkamsárás með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 22. janúar 2006 á Selfossþorrablótinu í íþróttahúsinu við Sólvelli á Selfossi, veist að Andra Vigfússyni, kt. 000000-0000, er var við gæslu og dyravörslu á þorrablótinu og slegið hann tvisvar sinnum í andlit og síðan fylgt atlögu sinni eftir með spörkum, með þeim afleiðingum að Andri hlaut blóðnasir, marblett á enni vinstra megin, bólgu á vinstri kinn, hrufl á hægra hné og eymsli í aftanverðum hægri kálfa.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20,1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Við þingfestingu málsins breytti sækjandi heimfærslu til refsiákvæða í ákæru þannig að brotið varðaði við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði kom fyrir dóminn og játaði brot sín fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa og kvaðst hafa verið að verja sig og fór fram á að litið yrði til þess við ákvörðun refsingar auk þess að tvö ár væru liðin frá því að atvikið átti sér stað. Ákærði krafðist þess að fram kominni bótakröfu yrði vísað frá dómi.

Brot það sem ákærði er sakaður um framdi hann 22. janúar 2006. Hafði lögregla þá afskipti af ákærða og færði hann í fangageymslu. Þann sama dag var skýrsla tekin af ákærða hjá lögreglu og þann 25. janúar 2006 gaf kærandi skýrslu hjá lögreglu. Þann 17. janúar 2008 var skýrsla tekin af vitni í málinu. Ákæra var gefin út þann 4. febrúar 2008. Sök vegna brots sem heimfært er undir 217. gr. almennra hegningarlaga fyrnist á tveimur árum, sbr. 1. tl. 1. mgr. 81. gr. sömu laga. Þegar rannsókn málsins lauk með skýrslutöku af kæranda hjá lögreglu byrjaði fyrningarfrestur að líða. Þrátt fyrir að lögregluskýrsla hafi verið tekin af vitni þann 17. janúar 2008 þá rauf sú skýrslutaka ekki fyrningarfrest, sbr. 5. mgr. 82. gr. sömu laga. Ákærða verður því ekki dæmd refsing, sbr. 6. mgr. 82. gr. sömu laga, og ber að sýkna hann.

Með vísan til 1. mgr. 166. gr. laga um meðferð opinberra mála skal þóknun skipaðs verjanda ákærða, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns, 74.700 krónur, greidd úr ríkissjóði. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, X, er sýkn af kröfum ákæruvaldsins í þessu máli.

Bótakröfunni er vísað frá dómi.

Sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda ákærða, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns, 74.700 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.