Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 24. febrúar 2008.
Mál nr. S-27/2008:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Steinari Erni Indriðasyni
svofelldur
d ó m u r :
Lykilorð
Útdráttur
Ákært fyrir vörslur fíkniefna. Sýkna vegna fyrningar.
Mál þetta, sem þingfest var þann 21. febrúar sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Steinari Erni Indriðasyni, kt. 000000-0000, Sveighúsum 1, Reykjavík, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, síðdegis föstudaginn 7. október 2005 haft í vörslu sinni 1. skammt af LSD í klefa nr. 215 í fangelsinu að Litla Hrauni, Eyrarbakka, en fangaverðir fundu fíkniefnin við leit í klefanum umrætt sinn.
Telst brot ákærðu varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 7936) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði mætti við þingfestingu málsins og óskaði eftir því að Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður yrði skipaður verjandi hans. Ákærði játaði háttsemina rétta eins og í ákæru greinir en krafðist sýknu á þeim forsendum að málið væri fyrnt, brotið hafi verið framið í október 2005 og rannsókn lokið 10. október sama ár en brot þetta fyrndist á tveimur árum. Sækjandi kvað rannsókn málsins ekki hafa lokið fyrr en í desember 2007. Málið var því tekið til dóms.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Brot það sem ákært er fyrir í máli þessu var framið 7. október 2005. Þann 10. október 2005 var brotið borið undir ákærða af varðstjóra á Litla-Hrauni og gekkst ákærði við því þá. Þann 4. október 2007 var lögregluskýrsla tekin af ákærða og ákæra síðan gefin út þann 4. febrúar 2008. Samkvæmt 1. tl. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrnast brot á tveimur árum sem varða fangelsi í eitt ár eða sektum. Brot þetta var því fyrnt þegar ákæra var gefin út og birt ákærða þann 14. febrúar 2008. Skýrslutaka af ákærða þann 4. desember 2007 rauf ekki fyrningu, enda var brotið þá þegar fyrnt. Verður ákærði því sýknaður í máli þessu.
Með vísan til 6. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tl. 1. mgr. 69. gr. sömu laga, skal einn skammtur af LSD gerður upptækur.
Með vísan til 1. mgr. 166. gr. laga um meðferð opinberra mála skulu málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi, 62.294 krónur, og fyrir dómi, 60.000 krónur, auk ferðakostnaðar, 10.148 krónur, greidd úr ríkissjóði. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Gunnar Örn Jónsson, fulltrúi sýslumanns, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Steinar Örn Indriðason, er sýkn í máli þessu.
Ákærði sæti upptöku á einum skammti af LSD.
Allur sakarkostnaður, sem eru þóknun og málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 122.294 krónur, auk aksturskostnaðar, 10.148 krónur, skulu greidd úr ríkissjóði.
Ástríður Grímsdóttir.