Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-2/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Gauti Hjaltason sýslumaður)

gegn

Hersi Mar Jónssyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Líkamsárás. Skaðabætur. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Ölvunarakstur.

Karlmaður dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu fjársektar fyrir líkamsárás og ölvunarakstur. Sviptur ökurétti í 2 ár og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Mál þetta, sem þingfest var 12. febrúar sl. og dómtekið samdægurs er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, dagsettri 9. janúar 2008 á hendur Hersi Mar Jónssyni, kt. 000000-0000, Hilmisgötu 13, Vestmannaeyjum, ,,I. fyrir líkamsárás með því að hafa skömmu eftir miðnætti aðfaranótt laugardagsins 12. ágúst 2006 við verslunina Klett í Vestmannaeyjum ráðist að Svavari Þór Georgssyni kennitala 000000-0000 og slegið hann margoft í höfuðið og hent honum í götuna og þá sparkað einu sinni í bak hans með þeim afleiðingum að Svavar hlaut eymsl yfir hryggjartindum T10 – L1 og yfir rifjum.

II.

fyrir líkamsárás með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 3. júní 2007 inná veitingastaðnum Kaffi María í Vestmannaeyjum slegið Berglindi Benediktsdóttur, kt. 000000-0000 hnefahögg í andlitið svo hún féll af stól niður á gólfið með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli og mar vinstra megin á enni, yfir vinstri augabrún, gagnauga og á vinstra kinnbeini.

III.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 29. september 2007 ekið bifreiðinni ER- 258 undir áhrifum áfengis (alkóhólmagn í blóði 2,17‰) austur Foldahraun, norður og austur Hraunveg, norður Illugagötu, norður Hlíðarveg, austur Faxastíg og Heiðarveg til norðurs og þar aftan á bifreiðina PO-810 sem stóð kyrrstæð á móts við söluturninn Toppinn og strax þar á eftir yfirgefið vettvang án þess að tilkynna um áreksturinn.

Teljast liðir I og II varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981 og liður III telst varða við 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997 og 2. mgr. 10. gr. nefndra umferðarlaga, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaganna.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga.

Þá hefur Helgi Bragason héraðsdómslögmaður krafist þess fyrir hönd Berglindar Benediktsdóttur að ákærði verði dæmdur til þess að greiða henni bætur samtals að fjárhæð krónur 187.065,- ásamt vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá tjónsdegi en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 að liðnum mánuði eftir birtingu kröfunnar til greiðsludags.“

Ákærði kom fyrir dóminn þann 12. febrúar sl. og játaði sök. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Er játning ákærða í samræmi við önnur gögn málsins og verður ákærði sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakarvottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærði tvisvar sinnum gengist undir sáttir og einu sinni undir viðurlagaákvörðun vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum, síðast þann 29. september 2005.

Fyrri líkamsárás sú sem ákærði er fundinn sekur um var framin þann 12. ágúst 2006. Samkvæmt gögnum málsins var rannsókn málsins lokið um mánaðamótin ágúst – september sama ár, og var brotaþola þá gefinn kostur á að koma að bótakröfu. Samkvæmt skýrslu dagsettri 21. nóvember sama ár hugðist brotaþoli ekki gera bótakröfu á ákærða. Ákæra málsins er gefin út þann 9. janúar 2008. Er þessi óútskýrði dráttur ámælisverður.

Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá skal ákærði greiða 160.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í 12 daga. Þá verður ákærði sviptur ökurétti í 2 ár frá birtingu dómsins að telja. Í samræmi við 1. mgr. 165. gr. ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar sem er samkvæmt yfirlitum 58.556 krónur. Við þingfestingu málsins samþykkti ákærði framkomna bótakröfu Berglindar Benediktsdóttur og verður hann dæmdur til greiðslu hennar.

Hjörtur O. Aðalsteinsson, dómstjóri, kveður upp dóm þennan. Dómsuppkvaðning hefur dregist vegna embættisanna dómarans.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Hersir Mar Jónsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði greiði 160.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 12 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 2 ár frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 58.556 krónur.

Ákærði greiði Berglindi Benediktsdóttur, kt. 000000-0000, 187.065 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 16. gr. laga nr. 50/1993 frá 3. júní 2007 til 28. október 2007 en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

Hjörtur O. Aðalsteinsson.

Heimildaskrá