Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-150/2007:

Ár 2007, mánudaginn

14. maí, er í Héraðsdómi Suðurlands að Austurvegi 4, Selfossi, kveðinn upp í

máli nr. S-150/2007:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)

gegn

Heimi Þór Óskarssyni og

(Torfi Ragnar Sigurðsson hdl)

Mikael Má Pálssyni

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)

Upptaka.

Fangavörður sakfelldur fyrir að hafa milligöngu og smygla fíkniefnum inn í fangelsi. Dæmdur í sex mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára. Fangi var einnig sakfelldur fyrir skipulagningur á smyglinu í fjögurra mánaða fangelsi en tveir mánuðir af þeim voru skilorðsbundnir. Fíkniefni og ágóði gerð upptæk og ákærðu dæmdir til greiðslu sakarkostnaðar.

Mál þetta var höfðað með ákæru ríkislögreglustjóra, dagsettri 22. mars 2007,   á   hendur   Heimi   Þór   Óskarssyni,   Sílatjörn   17,   Selfossi,   og   Mikael   Má Pálssyni, refsifanga í fangelsinu á Litla-Hrauni, „gegn ákærðu báðum fyrir fíkniefnalagabrot, og ennfremur gegn ákærða Heimi Þór fyrir peningaþvætti og brot í opinberu starfi, framin í ágóðaskyni á árinu 2006 svo sem hér er rakið:

Ákærða Heimi Þór er gefið að sök:

  1. Fíkniefnalagabrot í opinberu starfi, með því að hafa laugardaginn 26. ágúst, misnotað stöðu sína, sem fangavörður í fangelsinu á Litla-Hrauni, til að smygla inn í fangelsið 33,66 g af amfetamíni og 241,15 g af kannabis. Fíkniefnin, sem ákærði móttók daginn áður af ónafngreindum manni í Reykjavík, hugðist hann skilja eftir í fangaklefa meðákærða, en áður en til þess kom framvísaði ákærði efnunum við yfirmann sinn. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  2. Peningaþvætti í opinberu starfi, með því að hafa fimmtudaginn 24. ágúst í fangelsinu,  móttekið  frá   meðákærða  umslag   sem   ákærða   var   ljóst   að   innihélt söluandvirði fíkniefna að fjárhæð 100.000 krónur í reiðufé,  smyglað peningum út úr fangelsinu og afhent þau tilteknum manni. Telst þetta varða við 2. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni, sbr. 7. gr. laga nr. 10/1997, sbr. 1. mgr. 264. gr. og 138. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærða Mikael Má er gefið að sök:

  1. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið að skipulagningu á framangreindu smygli   meðákærða   á   fíkniefnum,   sem   lýst   er   í   ákærulið   1,   en   ákærði   fékk meðákærða til að notfæra sér stöðu sína til að smygla efnunum inn í fangelsið í þeim tilgangi að ákærði gæti tekið við þeim og síðan afhent eða selt þau þar.

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Dómkröfur:

a)  Að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

b)  Að 33,66 g af amfetamíni og 241,15 g af kannabis, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna.

c)  Að ákærða Heimi Þór verði, með vísan til 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni, sbr. 7. gr. laga nr. 10/1997 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna, gert að sæta upptöku á 210.000 krónum sem lögregla lagði   hald   á   við   rannsókn   málsins,   en   um   er   að   ræða   ágóða   hans   af fíkniefnabrotum.“

Ákærðu, sem komu fyrir dóminn, játuðu brot sín greiðlega. Er játning þeirra í samræmi við önnur gögn málsins og verða þeir sakfelldir fyrir þá háttsemi sem í ákæru greinir en þau eru rétt færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjendum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði Heimir Þór hefur ekki hlotið refsingu áður svo vitað sé. Ákærði hefur allt frá því að hann framvísaði efnunum þann 26. ágúst 2006 verið samvinnuþýður og aðstoðað við að upplýsa málið. Ákærði upplýsti fyrir dóminum að hann hefði verið undir miklum þrýstingi frá föngum á Litla-Hrauni og óttaðist um sinn hag og fær sá framburður hans stoð í gögnum málsins. Þá virðist sem hagnaðarvon hafi ekki verið hvatinn að gerðum ákærða þrátt fyrir að hann hafi þegið greiðslur fyrir, en í gögnum málsins kemur fram að honum hafi þótt ákveðinn léttir í því þegar hann hætti að fá greiðslur fyrir milligöngu sína. Ákærði er ungur að árum og stundar háskólanám í dag. Brot ákærða er hinsvegar sérstaklega ámælisvert þar sem hann gegndi sérstakri trúnaðarstöðu sem fangavörður.

Ákærði Mikael Már neitaði aðild að málinu við rannsókn lögreglu, allt fram til að hann kom fyrir dóminn. Samkvæmt sakavottorði ákærða á hann langan brotaferil að baki. Ákærði hefur átta sinnum hlotið fangelsisdóma auk margra sektardóma. Þá afplánar ákærði nú fjögurra ára fangelsisdóm frá 13. júní 2006 fyrir fíkniefnalagabrot, brot gegn umferðarlögum og rangar sakargiftir. Þá hefur ákærða sjö sinnum verið gerð refsing fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði hefur sýnt dóminum fram á að hann hafi frá 20. febrúar 2006, við upphaf afplánunar nú, verið án fíkniefna við prófun á þvagsýni. Um er að ræða prófanir í sex skipti en í eitt sinn neitaði ákærði að skila þvagsýni. Þá hefur ákærði stundað nám við skólann á Litla- Hrauni og lauk prófum í fjórum af sex áföngum sem hann hafði verið innritaður í á haustönn en hann lauk fimmta prófinu í janúarmánuði sl. Refsing ákærða Heimis Þórs þykir hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Með vísan til þess sem að ofan segir þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að þremur árum liðnum, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Frá refsingu ákærða skal gæsluvarðhaldsvist hans frá 26. ágúst 2006 dragast frá að fullri dagatölu.

Þá skal ákærði greiða allan sakarkostnað sem hlotist hefur af broti hans sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Torfa Ragnars Sigurðssonar héraðsdómslögmanns, sem er samkvæmt yfirliti kostnaður hans á rannsóknarstigi 376.750 krónur og fyrir dómi 186.750 krónur.

Ákærðu báðir skulu sæta upptöku á 33,66 grömmum af amfetamíni og 241,15 grömmum af kannabis.

Ákærði Heimir skal sæta upptöku á 210.000 krónum sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Refsing ákærða Mikaels Más þykir hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að þremur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Frá refsingu ákærða skal gæsluvarðhaldsvist sem hann sætti frá 27. ágúst 2006, dragast að fullri dagatölu. Þá skal ákærði greiða allan sakarkostnað er hlotist hefur af málinu en það er þóknun skipaðs verjanda hans, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur   héraðsdómslögmanns,   sem   er   samkvæmt   yfirliti   samtals   361.299 krónur á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari. Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Heimir Þór Óskarsson, sæti fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 26. ágúst 2006 skal koma til frádráttar fangelsisrefsingunni með fullri dagatölu. Ákærði skal sæta upptöku á 210.000 krónum. Ákærði greiði allan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Torfa Ragnars Sigurðssonar héraðsdómslögmanns, 563.736 krónur. Ákærði, Mikael Már Pálsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða og skal hún niður falla að liðnum þremur árum, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 27. ágúst 2006 skal koma til frádráttar fangelsisrefsingunni með fullri dagatölu. Ákærði greiði allan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur héraðsdómslögmanns,  361.299 krónur. Ákærðu báðir sæti upptöku á 33,66 grömmum af amfetamíni og 241,15 grömmum af kannabis.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá