Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 25. september 2024.
Mál nr. S-4570/2024:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Ragnari Heiðari Júlíussyni
(Snorri Sturluson lögmaður)
Lykilorð
Fíkniefnalagabrot. Peningaþvætti. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir peningaþvætti, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 10. september sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 5. júlí 2024, á hendur [...], Ragnari Heiðari Júlíussyni, kt. [...], [...], Reykjavík, [...], fyrir eftirtalin brot:
I.
[...]
II.
[...]
III.
[...]
IV.
[...]
V.
[...]
VI.
[...]
VII.
[...]
VIII.
[...]
IX.
[...]
X.
[...] XI. [...] XII. Gegn ákærða Ragnari Heiðari Júlíussyni fyrir eftirtalin brot:
Peningaþvætti, umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 19. október 2023 móttekið 12.396.000 krónur í reiðufé, sem var afrakstur [...], og eða ávinningur af öðrum refsiverðum brotum, frá [...] á bifreiðaverkstæði við [...] í Kópavogi og geymt fjármunina í bifreiðinni [...], sem hann ók sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 450 ng/ml) um Álfabakka í Reykjavík, til móts við [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, og haft í vörslum sínum 9 stykki af Alprazolam Krka, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni [...].
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1., sbr. 2. mgr. 3. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum og 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 17. apríl 2024 haft í vörslum sínum 28,37 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit á heimili hans að [...] í Reykjavík. Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
XIII. [...] XIV. [...] XV. [...] XVI. [...] XVII. [...] XVIII. [...] Þess er krafist að ákærð[i] verði dæmd[ur] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Með skírskotun til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002, er krafist upptöku á ofangreindum fíkniefnum sem lögregla lagði hald á, samtals 4.332,9 g af kókaíni, 1.534,1 g af amfetamíni, 9,8 g af ketamíni, 6,8 g af MDMA, 47,73 g af metamfetamínkristöllum og 5,5 stk. MDMA.
Þá er krafist upptöku á haldlögðu reiðufé, þ.e. 12.396.000 krónum sem lögregla haldlagði í bifreið ákærða Ragnars Heiðars Júlíussonar 19. október 2023, [...], með vísan til 69. gr. og 69. gr. a, b og d í almennum hegningarlögum nr. 19/1940 [...]. [...] Þáttur ákærða var klofinn frá máli nr. S-4044/2024 og dæmdur sérstaklega, sbr. heimild í 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.
Við fyrirtöku málsins 10. september sl. lýsti sækjandi því að ákæruvaldið félli frá þeirri lýsingu í ákæru að ákærði hefði tekið við peningum frá nafngreindum aðila en þess í stað hefði hann tekið við peningum frá óþekktum aðila.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín eftir framangreinda breytingu á ákærunni. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 4. júlí 2024, hefur ákærði einu sinni gengist undir lögreglustjórasátt og þrisvar sinnum hlotið dóm vegna umferðarlagabrota. Nú síðast var ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur [...] sl. Þeim dómi hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu dómsins og verður honum því dæmdur hegningarauki í samræmi við ákvæði 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af framangreindu, málsatvikum öllum og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði og 15 daga en fullnustu fimm mánaða af refsingunni er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk 28,37 g af amfetamíni og reiðufé að fjárhæð 12.396.000 krónur sem hald var lagt á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 419.120 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 222.870 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson saksóknari.
Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Ragnar Heiðar Júlíusson, sæti fangelsi í fangelsi í fimm mánuði og 15 daga en fullnustu fimm mánaða af refsingunni er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði sæti upptöku á 28,37 g af amfetamíni og 12.396.000 krónum.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 419.120 krónur, og 222.870 krónur í annan sakarkostnað.
Barbara Björnsdóttir