Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. júní 2024.
Mál nr. S-3132/2024:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Arnari Hauki Ómarssyni
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Hegningarauki. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 21. maí 2024, á hendur Arnari Hauki Ómarssyni, kt. […], […],
I.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 6. janúar 2024, ekið bifreiðinni […]sviptur ökurétti um Bíldshöfða í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2024-[…]
II.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 6. febrúar 2024, ekið bifreiðinni […]sviptur ökurétti um Hamraborg við Skeljabrekku í Kópavogi, þar sem hann ók utan í bifreiðina […] og ekki sinnt skyldum sínum við umferðaróhappið heldur yfirgefið vettvang á bifreiðinni […]. Telst háttsemi þessi varða við c. lið 1. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2024-[…]
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu fullu sakavottorði ákærða, ódagsettu en aflað af hálfu dómsins þann 11. júní 2024 og lögðu fram við þingfestingu málsins, á ákærði langan sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 1993. Ákærði gekkst fyrst undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt þann 5. júlí 2012 fyrir akstur sviptur ökurétti. Þann 16. nóvember sama ár gekkst ákærði aftur undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 11. júní 2014 var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands Eystra 28. september 2015 var ákærða gert að sæta 30 daga fangelsi, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands Vestra 5. nóvember 2015 var ákærða gert að sæta fangelsi í 15 daga, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum en dómurinn var hegningarauki við framangreindan dóm frá 28. september sama ár. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2. nóvember 2016 var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 20. september 2017 var ákærða gert að sæta 11 mánaða fangelsi og hann sviptur ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum, en dómurinn var hegningarauki að hluta við framangreindan dóm frá 2. nóvember 2016. Þá var ákærði dæmdur til að sæta 20 mánaða fangelsi og ævilangri sviptingu ökuréttar með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 23. október 2019, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Ákærða var veitt reynslulausn 19. október 2020 til tveggja ára á eftirstöðvum refsingarinnar, eða 532 dögum. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 22 mánuði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 10. apríl 2024 vegna aksturs sviptur ökuréttindum og brota gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Þá voru eftirstöðvar reynslulausnarinnar dæmdar upp og refsing hans ákveðin í einu lagi, með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.
Brot ákærða samkvæmt ákæru voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 10. apríl 2024. Verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjöunda sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 5 mánaða fangelsi.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Karitas Rán Garðarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Arnar Haukur Ómarsson, sæti fangelsi í 5 mánuði Karitas Rán Garðarsdóttir