Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 18. september 2024.
Mál nr. S-2963/2024:
Héraðssaksóknari
(Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Michal Szematowicz,
(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Sólveigu Júlíu Linnet,
(Oddur Valsson lögmaður)
Sigfúsi Má Dagbjartarsyni og
(Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Wojciech Kaczorowski
(Birkir Már Árnason lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fíkniefnalagabrot. Gæsluvarðhald. Hlutdeild. Refsiákvörðun.
Útdráttur
M dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir að hafa reynt að flytja inn og taka á móti og varsla 5,3 kg. af hreinu amfetamíndufti til söludreifingar. Jafnframt voru J og S dæmd í 3 ára fangelsi fyrir tilraun til þess að taka á móti sitt hvorri sendingunni á póstafgreiðslustöð sem innihélt hvor um sig u.þ.b. helming af umræddu amfetamíni. W var dæmdur í 2 ára fangelsi fyrir hlutdeild í brotinu.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 22. ágúst sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 15. maí 2024, á hendur Michal Szematowicz, [...], Sólveigu Júlíu Linnet, [...], Sigfúsi Má Dagbjartarsyni, [...] og Wojciech Kaczorowski[...], „fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot, sem hér nánar greinir:
I.
Gegn ákærða Michal með því að hafa flutt inn og reynt að taka á móti og varsla samtals 6.780 ml af amfetamínbasa, með 60–62% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi og fengið Sólveigu Júlíu Linnet og Sigfús Má Dagbjart[ar]son til að vera skráðir móttakendur fyrir sitthvorri sendingunni er bárust hingað til lands með póstsendingu frá Þýskalandi þann 19. febrúar sl. en lögregla lagði hald á fíkniefnin á póstafgreiðslustöð Icetransport við Selhellu 9, Hafnarfirði, og skipti þeim út fyrir gerviefni. Michal fékk síðan þau Sólveigu, Sigfús og Wojciech Kaczorowski til að sækja sendingarnar þann 23. febrúar sl. og koma þeim til Michal líkt og nánar greinir í ákæruliðum II og III.
II.
Gegn Sigfúsi Má Dagbjartarsyni, með því að hafa föstudaginn 23. febrúar sl., að beiðni Michal, sbr. ákærulið I, sótt, og þar með gert tilraun til að taka við, 3.310 ml af amfetamí[n]basa, með 60–61% styrkleika, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru falin í 9 áfengisflöskum sem komu hingað til lands með póstsendingu frá Þýskalandi þann 19. febrúar sl. og var Sigfús skráður móttakandi sendingarinnar. Lögreglan lagði hald á fíkniefnin á póstafgreiðslustöð Icetransport við Selhellu 9, Hafnarfirði, og skipti þeim út fyrir gerviefni. Þann 23. febrúar sl. ók Michal Sigfúsi að póstafgreiðslustöð Icetransport þar sem Sigfús sótti sendinguna á meðan Michal beið í bifreiðinni. Í kjölfarið ók Michal Sigfúsi að verslun Bónus í Hraunbæ þar sem Sigfús yfirgaf bifreiðina en Michal var handtekinn síðar sama dag með sendinguna í vörslum sínum.
III.
Gegn Sólveigu Júlíu Linnet og Wojciech Kaczorowski með því að hafa föstudaginn 23. febrúar sl., að beiðni Michal, sbr. ákærulið I, sótt, og þar með gert tilraun til að taka við, 3.470 ml af amfetamínbasa, með 61–62% styrkleika, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru falin í 16 snyrtivöruflöskum sem komu hingað lands með póstsendingu frá Þýskalandi þann 19. febrúar sl. og var Sólveig skráð móttakandi sendingarinnar. Lögreglan lagði hald á fíkniefnin á póstafgreiðslustöð Icetransport við Selhellu 9, Hafnarfirði, og skipti þeim út fyrir gerviefni. Þann 23. febrúar sl. sótti Wojciech Kaczorowski Sólveigu á heimili hennar og ók að póstafgreiðslu Icetransport þar sem Sólveig sótti sendinguna. Í kjölfarið ók Wojciech Sólveigu að heimili hennar að [...] þar sem Sólveig yfirgaf bifreiðina en Wojciech var handtekinn skömmu síðar með sendinguna í vörslum sínum.
Teljast brot Michal varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og brot annarra ákærðu við sama ákvæði, sbr. 20. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Jafnframt er krafist upptöku á 6.780 ml af amfetamínbasa, með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þá er gerð krafa um upptöku á Samsung farsíma (munanr. 628859) með vísan til 1. mgr. 69. gr. a. almennra hegningarlaga og krafist upptöku á 103.500 krónum (munaskrá nr. 184185) með vísan til 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga.“
Verjandi ákærða Michal Szematowicz krafðist upphaflega aðallega sýknu af öllum ákæruliðum en við upphaf aðalmeðferðar var krafist vægustu refsingar sem lög leyfa fyrir að reyna að taka á móti tveimur sendingum sem bárust frá Þýskalandi 23. febrúar 2024, en sýknu af öðrum sakargiftum ákærunnar. Til vara er þess krafist að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög heimila. Þá krefst verjandi hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa að teknu tilliti til tímaskýrslu.
Verjandi ákærðu Sólveigar Júlíu Linnet krefst aðallega sýknu en til vara krefst hann vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa að teknu tilliti til tímaskýrslu.
Verjandi ákærða Sigfúsar Más Dagbjartarsonar krefst aðallega sýknu en til vara krefst hann vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa að teknu tilliti til tímaskýrslu.
Verjandi ákærða Wojciech Kaczorowski krefst aðallega sýknu en til vara krefst hann vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa að teknu tilliti til tímaskýrslu.
IV.
Málsatvik
- Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 stöðvaði Tollgæsla Íslands hraðsendingu í vöruhúsi Icetransport, Selhellu 9, Hafnarfirði, sem innihélt 3.310 ml af amfetamínbasa. Hafði efnunum verið komið fyrir í sjampó- og nuddolíubrúsum sem pakkað var í tvær gjafaöskjur og var stöðvun sendingarinnar liður í almennu eftirliti tollgæslunnar. Gjafaöskjurnar höfðu verið póstlagðar 18. febrúar 2024. Skráður sendandi var sagður nánar tilgreindur maður með heimilisfang í Bochum í Þýskalandi. Skráður viðtakandi var ákærða Sólveig Júlía Linnet, til heimilis að [...].
- Að morgni 23. febrúar 2024 stöðvaði Tollgæsla Íslands jafnframt hraðsendingu í vöruhúsi Icetransport, Selhellu 9, Hafnarfirði, sem innihélt 3.470 ml af amfetamínbasa. Hafði efnunum verið komið fyrir í níu glerflöskum af sem virtust áfengum drykkjum. Um var að ræða fimm bjórflöskur í trékassa, tvær stórar kampavínsflöskur og tvær minni. Stöðvun sendingarinnar var liður í almennu eftirliti tollgæslunnar. Sendingin hafði verið póstlögð 18. febrúar 2024. Skráður sendandi var sagður nánar tilgreindur maður með heimilisfang í Düsseldorf í Þýskalandi. Skráður viðtakandi var ákærði Sigfús Már Dagbjartarson, til heimilis að [...].
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók við rannsókn málsins. Var lagt hald á fíkniefnin og þeim skipt út fyrir gerviefni. Að auki var komið fyrir hljóðupptöku- og staðsetningarbúnaði. Einnig var hlutast til um símhlustun og öflun símaupplýsinga hjá hinum skráðu móttakendum og C, en símanúmer hans var skráð á sendanda pakkans, auk öflunar heimildar til húsleitar. Var samhliða haft eftirlit með viðtöku pakkanna hjá FedEx, Selhellu 9.
- Um kl. 15:00 föstudaginn 23. febrúar 2024 varð vart við ferðir ákærða Sigfúsar Más Dagbjartarsonar þar sem hann kemur á bifreiðinni A sem er skráð á ákærða Michal Szematowicz. Sigfús sækir pakkann, sem hann var skráður viðtakandi á, til FedEx á meðan annar karlmaður bíður í bifreiðinni. Bifreiðinni var síðan ekið að [...] í Reykjavík, þar sem ökumaður og farþegi fóru út úr bifreiðinni en póstsendingin varð eftir. Nokkru síðar kom ákærða Sólveig Júlía Linnet á bifreiðinni B sem er skráð á eiginkonu ákærða Michal Szematowicz, og sótti pakkann, sem hún var skráður viðtakandi á, til FedEx. Á meðan beið karlmaður í ökumannssæti bifreiðarinnar. Bifreiðinni var ekið að heimili Sólveigar að [...] þar sem hún fór út úr bifreiðinni. Bifreiðinni var síðan ekið að X. Þar fór ökumaðurinn með pakkann út úr bifreiðinni og var handtekinn. Um var að ræða ákærða Wojciech Kaczorowski. Hann heimilaði leit í bifreiðinni og þar fannst farsími sem var haldlagður ásamt síma ákærða Wojciech. Nokkru síðar kom bifreiðin A að X og fór ökumaðurinn að bifreiðinni B og keyrði síðan hratt í burt af bifreiðastæðinu. Lögreglan fylgdi honum eftir og var ökumaðurinn handtekinn á bílastæði við Byko í Breidd. Um var að ræða ákærða Michal Szematowicz. Hann heimilaði ekki leit í bifreiðinni og var farið með hana í bílskúr lögreglu.
- Við rannsóknina var lagt hald á myndupptökur frá fyrrrgreindu húsnæði FedEx. Einnig voru gerðar húsleitir og lagt hald á ýmsa muni, m.a. fíkniefni og áhöld sem talin eru hafa verið notuð til að blanda fíkniefni ásamt bjórflöskum sem svipaði til þeirra flaskna sem voru í póstsendingunum. Þá fannst farsími ásamt minniskorti og FedEx-sendingin, sem ákærða Sólveig var skráð viðtakandi að, í aftursæti bifreiðarinnar A. Einnig fannst farsími í bifreiðinni B sem talinn var vera í eigu ákærða Michal Szematowicz. Að auki var hlutast til um rannsókn á gögnum í haldlögðum símtækjum, aflað upplýsinga um símasamskipti og grennslast fyrir um fjármál ákærðu. Við skoðun á farsíma þeim sem fannst í bifreiðinni B mátti sjá samskipti ákærða Michal við ákærðu Sigfús og Sólveigu. Þá mátti sjá mikla sölu á oxy-lyfjum til margra aðila. Við skoðun á farsíma sem fannst í bifreiðinni A mátti sjá samtal milli ákærða Michal og „Plaski“ á samskiptaforritinu Signal. „Plaski“ er skráður með símanúmerinu [...] sem er símanúmer C. Jafnframt er mynd í símanum sem virðist vera af C. Þá var mynd af sendingarnúmeri í símanum sem tengir ákærða Michal við sendingu sem ákærða Sólveig fékk. Farsími ákærðu Sólveigar sýndi símtal í símanúmerið [...] sem ákærði Michal hefur haft til umráða. Einnig koma fram smáskilaboð þar sem ákærða Sólveig sendir ákærða Michal upplýsingar um sig vegna póstsendingar og óskar eftir greiðslu. Ákærði Michal svarar og biður um reikningsupplýsingar og sendir að greiðslan sé komin. Sólveig sendir skilaboð um að sendingin sé komin 23. apríl 2024 og sendir skjámynd af tollafgreiðslu. Símanúmer Sólveigar er vistað í farsíma sem ákærði Michal hefur til umráða og í skýrslu lögreglu er kallaður sölusími hans með númerið [...]. Við skoðun á farsíma ákærða Sigfúsar mátti sjá samskipti hans við ofangreindan sölusíma ákærða Michal. Þá var aflað gagna frá FedEx yfir sendingar sem ákærðu Sólveig og Sigfús höfðu verið skráð fyrir og svipar til sendinganna 23. febrúar 2024. Við skoðun á bankagögnum má sjá að ákærði Michal millifærir tvisvar sinnum á ákærða Sigfús, þann 23. janúar og 23. febrúar 2024, og þrisvar sinnum á ákærðu Sólveigu, þann 14. janúar, 14. febrúar og 23. febrúar 2024. Við skoðun á farsíma ákærða Michal var mynd af millifærslum inn á C, ásamt mynd af honum. C er erlendis og hefur ekki tekist að hafa uppi á honum við rannsókn málsins. Við skoðun á bankareikningi ákærða Michal á tímabilinu frá 1. janúar 2023 til 12. mars 2024 má sjá að 220 einstaklingar leggja inn á reikninga 1389 innborganir fyrir samtals 21.271.665 krónur.
- Ákærði Michal gaf skýrslu með réttarstöðu sakbornings 23. febrúar 2024. Hann kvaðst hafa kynnst manni sem kallaði sig „Plaski“ á Catalina bar í Hamraborginni sem hafi beðið sig að sækja pakka á pósthúsið og hefði hann fengið greiddar fyrir það 10.000 krónur. Í skýrslutöku 29. febrúar 2024 kvaðst hann ekki geta sagt til um það hvort „Plaski“ væri C. Hann hafi beðið vin sinn, ákærða Wojciech, um að sækja annan pakkann en „Plaski“ hafi sagt honum að sækja þá hvorn í sínu lagi. Hann kvaðst ekki vita hvaða stelpu Wojciech hefði verið að sækja. Hann hafi sótt hávaxinn íslenskan karlmann í [...], sem hann hafi hitt nokkrum sinnum en ekki sótt hann áður. Í skýrslutöku 6. mars 2024 segist hann hvorki þekkja ákærðu Sigfús né Sólveigu heldur hafi „Plaski“ þekkt þau. Hann hafi ekki vitað hvað væri í pökkunum og því ekkert upplýst Wojciech um það. Hann kannaðist ekki við símaskilaboðin frá Sólveigu og að „Plaski“ hafi beðið hann um að millifæra inn á reikning hennar. Hann neitaði að hafa tekið á móti svipaðri sendingu áður og sagðist hvorki hafa sótt Sigfús þrívegis og ekið honum í FedEx né heim til sín aftur. Hann hafi hvorki beðið Sigfús né Sólveigu um að fá að nota nöfnin þeirra. Í skýrslutöku 18. apríl 2024 neitaði hann að eiga Samsung-farsíma sem fannst í bifreiðinni B en hefði þó mögulega aðgang að honum. Þá neitaði hann að vera að selja lyf þrátt fyrir að rúmlega 23.000.000 króna hefðu borist í 1270 færslum inn á reikning hans frá 1. janúar 2023. Hann kvað þetta vera greiðslur fyrir stúdíótíma í hljóðveri sínu.
- Ákærða Sólveig gaf einnig skýrslu með réttarstöðu sakbornings sama dag og kvaðst hún hafa verið að sækja póstsendingu fyrir oxy-salann sinn hann Michal. Í pakkanum væri veip-vökvi og fengi hún greiddar 20.000 krónur fyrir að sækja pakkann, þar sem Michal gæti ekki verið skráður fyrir pakkanum þar sem hann væri ekki með heimilisfang. Hún upplýsti að hún hefði sótt fyrir hann sendingar tvisvar sinnum áður.
- Hvorki ákærði Wojciech né ákærði Sigfús vildu tjá sig um meint brot þann 24. febrúar 2024 en í skýrslutökum 28. febrúar 2024 kvaðst Sigfús hafa sótt pakka fyrir „Pólverja“ þar sem hann væri ekki með lögheimili hér á landi. Hann hafi sent honum upplýsingar um heimilisfang og farið með honum að sækja pakkann. Þetta væri sami maður sem hefði beðið hann að sækja pakkann og hefði selt honum oxy og símanúmer hans væri [...]. Hann hefði tvívegis áður sótt pakka fyrir hann.
- Ákærði Wojciech gaf skýrslu með réttarstöðu sakbornings þann 28. febrúar 2024 þar sem hann skýrði frá því að hann og ákærði Michal hefðu verið vinir lengi. Hann hefði sótt pakkann fyrir Michal sem hefði beðið hann um það og sagt að í honum væri veipvökvi. Hann hefði sótt vinkonu hans og farið með henni á pósthúsið og ekið síðan að X þar sem hann hefði ætlað að bíða eftir ákærða Michal. Í skýrslutöku 6. mars 2024 sagðist hann ekki vita hver ætti símann sem fannst í B en Michal hafi oft verið með tvo til þrjá síma á sér. Hann kvaðst hafa látið Michal vita þegar hann var kominn fyrir utan hjá Sólveigu sem hafi orðið hissa á að sjá hann þar sem hún hafi átt von á Michal.
- Meðal gagna er skýrsla tæknideildar lögreglu um rannsókn á haldlögðum fíkniefnum úr póstsendingunum. Reyndist vera um að ræða 3.310 ml af amfetamínbasa í sendingunni sem ákærði Sigfús sótti og 3.470 ml í þeirri sendingu sem ákærða Sólveig sótti, eins og greinir í ákæru. Voru sýni úr efnunum send til frekari rannsóknar hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. Samkvæmt matsgerð rannsóknastofunnar, dagsettri 7. mars 2024, var staðfest að um væri að ræða amfetamínbasa og reyndist styrkleiki þeirra sýna sem voru tekin vera 61–62% af þunga sýnisins. Í niðurstöðu matsgerðar rannsóknastofunnar, dagsettri 13. mars 2024, kom fram að í hæsta lagi væri hægt að búa til ríflega 32,5 kg af efni sem væri 12% að styrk.
II
Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi
- Ákærði Michal greindi m.a. frá því að hann hefði samþykkt að sækja umræddar póstsendingar en hann hefði ekki vitað um innihald þeirra. Hann hefði átt að fá upplýsingar um hvert hann ætti að fara með þær en lögreglan hefði stoppað hann áður en þær bárust. Kunningi hans sem hann hafi kynnst á veitingastaðnum Catalina og þekki undir gælunafninu „Plaski“ hafi beðið sig um að sækja þessar sendingar hjá ákærðu Sólveigu og Sigfúsi og gefið upp heimilisfang þeirra nokkrum dögum áður. Hann hafi beðið ákærða Wojciech um að sækja ákærðu Sólveigu, nokkrum klukkustundum áður en annar pakkinn var sóttur. Hann hafi ekki verið sjálfur í samskiptum við þau Sólveigu og Sigfús en hafi mögulega hitt Sigfús áður. Hann þekki ekki Sólveigu. Það hafi skipt miklu máli að sækja báðar sendingarnar þennan dag. Hann hafi ekkert fengið greitt fyrir þetta annað en bensínkostnað. Hann hafi sótt Sigfús og síðan skutlað honum í Bónus eftir að hann hafði sótt sendinguna. Eftir það hafi hann sótt kærustu sína og þau farið saman heim og borðað kvöldmat. Hann hafi síðan farið í X og haldið að hann myndi hitta Wojciech þar, en það hafi verið slökkt á farsíma hans. Hann hafi farið að leita að honum og séð bílinn hans fyrir utan. Hann hafi reynt að hringja í hann og kíkt inn í bílinn en þar hafi allt verið í rúst. Hann hafi talið að hugsanlega væri eitthvað að og keyrt á bílastæði Byko og skoðað innihald pakkans og fundist grunsamlegt að ekki væru neinar búblur í kampavíninu. Meðan á þessu stóð hafi „Plaski“ hringt í sig og þeir byrjað að rífast. Í því hafi lögreglan komið, en erfitt hafi verið að átta sig á því hvort þetta væri lögreglan eða einhverjir aðrir. Lögreglumaðurinn hafi einungis talað við sig á íslensku. Ákærði sagði það rangt að hann hefði beðið Sigfús og Sólveigu um að sækja pakka, bæði umræddan dag og áður. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort hann hefði selt þeim oxycontin. Millifærslur hans inn á reikninga þessa fólks skýrðust af því að „Plaski“ hefði beðið hann um að millifæra á þau. Að því er varðar millifærslur 220 einstaklinga í 1389 færslum samtals að fjárhæð ríflega 21 milljón króna sagði ákærði að þetta væru greiðslur fyrir tíma í upptökustúdíói og hann hefði auk þess verið að aka fólki og fengið greitt fyrir það. Ákærði skýrði frá því að kærasta hans væri skráð fyrir bifreiðinni B. Hann kannaðist ekki við að eiga Samsung-símann sem fannst í bílnum. Skýring á því hvers vegna hann væri nafngreindur í símaskilaboðum til ákærðu Sigfúsar og Sólveigar sagði ákærði að margir hétu sama nafni og hann og þetta þýði ekki að þau hefðu verið í sambandi við hann. Þá kom fram hjá ákærða að hann væri með símanúmerið [...], en gat ekki útskýrt hvers vegna datagögn bentu til þess að þetta númer væri oft á sama stað og þau farsímanúmer ([...]og [...]) sem voru á símkortinu sem fannst í B. Ákærði lagði áherslu á að hann hefði ekki skipulagt innflutninginn á þessum efnum og hefði aldrei tekið við pökkunum ef hann hefði vitað að í þeim væru fíkniefni. Hann gat hvorki gefið skýringar á flöskum sem fundust í stúdíóinu í X né leifum af amfetamíni sem fundust þar í skálum og skrúfjárni. Hann hafi farið reglulega með flöskur í Sorpu og oft leigt út húsnæðið. Hann sagðist vera hræddur við „Plaski“ og sagðist hafa fengið lykla að stúdíóinu. C væri ekki „Plaski“. Hann hefði leyft ákærða Wojciech að gista í stúdíóinu í einhverjar vikur. Hann hefði beðið Wojciech um að sækja Sólveigu skömmu áður en hún var sótt og koma sendingunni til sín. Wojciech hafi ekkert vitað hvað var í þessum pökkum frekar en hann. Hann hafi ekki sagt honum að í pakkanum væri veip-vökvi. Sigfús hafi verið mjög eðlilegur þegar þeir fóru að sækja pakkann.
- Ákærði Wojciech skýrði frá því að hann væri búinn að þekkja meðákærða Michal og unnustu hans mjög lengi og þau hefðu bæði búið hjá honum í Póllandi. Eftir að hann hefði komið frá Póllandi hefði meðákærði Michal boðið honum að búa í stúdíóinu. Það hafi verið erfitt að finna góða vinnu en hann hafi unnið í verktöku við bifvélavirkjun. Hann hafi ekki verið í vinnu þennan dag og hitt meðákærða Michal í stúdíóinu. Þeir hafi fengið sér að borða á veitingastað í Smáralind og farið síðan og hitt sameiginlegan vin í Álftamýri og líklegast farið til baka í stúdíóið. Milli klukkan tvö og þrjú hafi þeir farið á einhvern stað og þar hafi einhver maður komið í bílinn sem hann hafi ekki séð áður. Þessi maður og Michal hafi rætt saman á ensku og hann hafi ekki verið að hlusta á þá. Eftir stuttar samræður hafi meðákærði Michal beðið hann um að skutla konu á pósthús í Hafnarfirði. Meðákærði Michal sagðist ekki geta sótt báðar sendingarnar á sama degi vegna þess að það væri svo mikil umferð. Ákærði Wojciech hafi samþykkt þetta enda hafi þetta ekki verið í fyrsta sinn sem hann sótti sendingu fyrir Michal. Pabbi meðákærða Michal er bifvélavirki og hann hafi verið með einhverja afslætti á vörum frá Póllandi og sem ákærði hafði áður sótt fyrir Michal. Honum hafi ekki fundist neitt grunsamlegt við þetta. Hann hafi keyrt til þessa heimilisfangs sem Michal hafi fengið honum og sótt konuna sem hann þekkti ekki. Hún hafi komið komið út skömmu eftir að hann lagði bílnum og sagt honum hvert þau ættu að sækja pakkann. Hann hafi ekki sett sig í samband við hana og látið hana vita að hann væri kominn og hann hafi ekki vitað hver væri að fara að koma inn í bíllinn. Hún hafi ekki virkað neitt stressuð. Þau hafi lítið talað saman á leiðinni, enda talaði hann ekki góða ensku. Eftir að þau hafi sótt sendinguna hafi hann keyrt hana heim aftur og síðan farið upp á X þar sem hann var stöðvaður af lögreglu. Hann hafi ekkert vitað hvað hann væri að fara að sækja. Aðspurður um að hann hafi skýrt frá því hjá lögreglu að meðákærði Michal hafi sagt honum að veip-rafsígarettur væru í þessum pakka sagði ákærði að líklegast hefði Sólveig talað um einhvern veip-vökva. Hann hafi ekkert vitað hver ætti bílinn en meðákærði Michal hafi haft hann til umráða. Hann hafi ekki átt farsímann sem fannst í bílnum og ekki notað hann. Hann sagðist ekki hafa séð meðákærða Michal nota fleiri en einn síma. Varðandi fíkniefnaauglýsingu í síma ákærða Wojciech sagði hann að þetta væri gömul auglýsing. Hann kvaðst ekki hafa neinar skýringar á fíkniefnaleifum sem fundust í X. Hann hafi aldrei séð meðákærða Sigfús fyrr en hann settist upp í bílinn fyrr um daginn um það leyti sem meðákærði Michal bað hann um að sækja meðákærðu Sólveigu. Það hafi liðið ca. 15 mínútur frá því að hann var beðinn um að sækja meðákærðu Sólveigu og þar til hún kom inn í bílinn til hans. Hann hefði aldrei gert þetta ef hann hefði vitað að í pakkanum væru fíkniefni. Hann þekki hvorki C né Plaski.
- Ákærða Sólveig skýrði frá því að hún hefði [...] keypt fíkniefni af meðákærða Michal. Hún hefði aldrei hitt hann, en fengið frá honum smáskilaboð í síma (SMS) um hvort hann mætti nota heimilisfangið hennar til að flytja inn veip-vökva. Hún hafi spurt hann hvort þetta væri löglegt og hann sagt já við því. Hún hafi gefið honum upp heimilisfangið sitt sem hann gæti notað og fengið greitt fyrir það með oxycontin-töflum og 20.000 krónum. Hún vildi ekki svara því hvort um fleiri en eina sendingu hefði verið að ræða. Hún sagðist aldrei hafa hitt meðákærða Michal fyrr en í dómsalnum heldur hefði annar maður komið með töflur til hennar sem hún hefði haldið að væri hann. Hún hafi greitt fyrir þetta með peningum eða millifært inn á bankareikning hans. Michal hafi sagt henni að það væru svo margir sem byggju á hans heimilisfangi að hann hafi þurft hennar heimilisfang. Hún hafi látið hann vita af því að pakkinn væri kominn og hann hafi lagt inn á hana pening fyrir gjöldum. Við skýrslutöku staðfesti hún samskipti sem koma fram í gögnum málsins þar sem sjá má skjáskot skilaboða úr síma hennar í símanúmerið [...] um að sendingin væri komin og það þyrfti að greiða 7.217 krónur fyrir hana og staðfestingu á því að búið væri að millifæra. Þá staðfesti hún jafnframt að hafa fengið skilaboð úr símanum um að bíllinn væri kominn („Im here“) og átt samskipti um hvort vinur hennar sem var staddur hjá henni gæti komið með. Henni hafi síðan snúist hugur með það og sent skilaboð um að hún kæmi ein. Hún staðfesti jafnframt að þessi aðili héti OXY 2 í símanum. Hún hafi alltaf haft samband við meðákærða Michal í síma og notað sama símanúmerið og kannaðist við að hafa nafngreint hann í einum smáskilaboðum. Hún hafi verið með fullt nafn og kennitölu hans til að geta millifært á hann. Meðákærði Wojciech hafi sótt hana, hún hafi vitað að einhver myndi sækja sig og fengið skilaboð um að hann væri kominn. Hún þekkti hann ekki og hefði aldrei hitt hann áður. Hún mundi ekki eftir því að hafa sagt honum að þetta væri veip-vökvi sem hún væri að fara að sækja. [...].
- Ákærði Sigfús skýrði frá því að sá sem hann var að kaupa af oxy-töflur hefði beðið sig um að gera sér greiða með því að fá að panta veip á heimilisfang sitt. Hann hafi talið sig vera að sækja veip og hefði aldrei samþykkt að sækja fíkniefni. Þetta hafi verið sami maðurinn og hann hitti í réttarsalnum sem seldi honum oxycontin og sótti sendingarnar með honum. Þetta sé líka sami maðurinn og hafi komið með dópið til hans. Hann hafi fengið örfáar töflur fyrir að sækja þessar sendingar, [...]. Hann hafi ýmist greitt með peningum fyrir töflurnar sem hann keypti eða lagt inn á reikning og verið í samskiptum við meðákærða Michal í gegnum síma. Hann hafi fengið símanúmerið í gegnum Telegram þar sem meðákærði Michal hafi auglýst sig sem morfínsala. Samskipti þeirra hafi þó verið um kaup á oxycontin. Hann sé sár yfir því að meðákærði Michal hafi blekkt sig og misnotað góðmennsku sína. Meðákærða Wojciech þekki hann ekki.
- Vitni, rannsóknarlögreglumaður nr. [...], greindi frá því að hafa farið fyrir rannsóknardeild lögreglu sem fór með rannsókn málsins. Hann hafi skrifað skýrslur vegna rannsóknarinnar sem hann staðfesti og liggja fyrir í gögnum málsins. Í vætti hans kom fram að ákærðu Sólveig, Sigfús og Wojciech hafi verið að gera Michal greiða af mismunandi ástæðum. Ákærði Michal hafi hins vegar lítið viljað svara spurningum og hafni því að eiga Samsung-símann sem fannst í bifreiðinni B. Lykilorðið inn í þann síma sé það sama og lykilorðið inn á þann síma sem hann segist eiga. Það hafi hvorki verið kannað með fingraför á símanum né á þeim flöskum sem fundust í húsnæðinu, en erfitt sé að taka fingraför og lífsýni af síma. Engin frekari rannsókn hafi átt sér stað eftir útgáfu ákæru.
- Vitni, rannsóknarlögreglumaður nr. [...], greindi m.a. frá því að hafa ásamt fleiri lögreglumönnum komið að handtöku ákærða Michal. Þeir hafi elt hann að Byko og öskrað á hann á íslensku og ensku að þeir væru lögreglan. Ákærði Michal hafi gefið í botn og keyrt á ómerktan lögreglubíl og reynt að halda áfram. Vitnið hafi þá ákveðið að brjóta rúðuna í bílnum og þá hafi ákærði Michal stöðvað bifreiðina. Vitnið vísaði að öðru leyti til skýrslu sinnar sem liggur frammi í málinu og staðfesti hana.
- Vitni, rannsóknarlögreglumaður nr. [...], staðfesti fyrirliggjandi skýrslu sína í málinu.
- Vitnið D, sérfræðingur hjá lögreglu, skýrði frá því að hún hefði unnið greiningu á símagögnum sem liggur frammi í gögnum málsins og staðfesti að hún væri [starfsmannanúmer] sem vísað er til í skýrslunni að hafi unnið greininguna. Greiningin nái yfir tímabilið frá 23. janúar til 23. febrúar 2024 sem spanni samtals 32 daga, að báðum þessum dögum meðtöldum. Greiningin hafi falist í því að kanna hversu oft símanúmerin [...], [...]og [...]hafi tengst sendum í innan við 400 metra fjarlægð frá hver öðrum á innan við 30 mínútum, sem bendi til að sami aðilinn sé að nota númerin. Númerin [...]og [...] hafi tengst í 84 skipti, númerin [...]og [...] hafi átt 27 slíkar tengingar og númerin [...]og [...] hafi átt 45 slíkar tengingar. Þetta taki bæði til símtala og SMS-sendinga, en nettengingar séu ekki inni í þessari greiningu.
- Vitnið E, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, staðfesti og gerði nánar grein fyrir matsgerðum um efnissýni og útreikninga á því hversu mikið magn í neyslustyrkleika væri hægt að útbúa úr þeim vökva sem hefði verið fjarlægður úr umræddum póstsendingum. Vitnið staðfesti fyrirliggjandi matsgerðir. Í útreikningunum kæmi fram að miðað væri við tölur um neyslustyrkleika amfetamíns í Danmörku, en hann hafi verið að meðaltali 12% á landsvísu árið 2022. Miðað við þær tölur sem væri vísað til í skýrslunni gæfu 3.470 ml 2.074 gr. af hreinum amfetamínbasa og í hinu tilvikinu gæfu 3.310 ml 1.926 gr. af hreinum amfetamínbasa. Ef þessu er umbreytt yfir í duftið gæfi gefa 5.340 gr. af hreinu amfetamínsúlfati. Ef það er síðan hlutað niður í 12% þarf að breyta því þangað niður. Það er hægt að nota aðrar styrkleikatölur en það breytir því ekki að grundvöllurinn er 5.340 gr. af hreinu amfetamíni.
III
Niðurstaða
- Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laga nr. 88/2008 gildir sú grundvallarregla almennt að dómur skuli reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. Samkvæmt 108. gr. sömu laga hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærðu og atvik sem telja má þeim í óhag á ákæruvaldinu og verða þau því aðeins sakfelld að nægileg sönnun, sem ekki verði véfengd með skynsamlegum rökum, teljist fram komin um hvert það atriði er varðar sekt, sbr. 1. mgr. 109. gr. téðra laga. Þá metur dómurinn hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar.
- Ákærðu neita sök að öðru leyti en því að ákærði Michal játar að hann hafi reynt að taka á móti tveimur póstsendingum frá Þýskalandi þann 23. febrúar 2024, en krefst sýknu af öðrum sakargiftum ákærunnar. Til vara er þess krafist að ákærðu verði gerð vægasta refsing sem lög heimila.
- Af málsgögnum liggur fyrir að fíkniefni af þeirri tegund, magni og styrkleika sem greinir í ákæru komu til landsins 23. febrúar 2024 með tveimur póstsendingum sem skráðar voru á ákærðu Sólveigu og ákærða Sigfús. Þá liggur það fyrir að lögregla hafi skipt út þessum efnum fyrir gerviefni. Sama á við um það sem greinir í ákæru, að ákærði Michal hafi ekið ákærða Sigfúsi að póstafgreiðslustöð Icetransport í Hafnarfirði þar sem ákærði Sigfús sótti sendingu sem hann var skráður móttakandi að, á meðan ákærði Michal beið í bifreiðinni. Í kjölfarið hafi ákærði Michal ekið ákærða Sigfúsi að verslun Bónuss í Hraunbæ þar sem ákærði Sigfús yfirgaf bifreiðina en ákærði Michal var handtekinn síðar sama dag á bifreiðastæði Byko með sendinguna í vörslum sínum. Jafnframt liggur fyrir í málsgögnum að ákærði Wojciech hafi sótt ákærðu Sólveigu á heimili hennar á [...] og ekið henni að póstafgreiðslustöð Icetransport í Hafnarfirði þar sem ákærða Sólveig sótti sendingu sem hún var skráður móttakandi fyrir, á meðan ákærði Wojciech beið í bifreiðinni. Ákærði Wojciech hafi síðan ekið henni að heimili hennar á [...] þar sem hún yfirgaf bifreiðina en Wojciech var handtekinn skömmu síðar með sendinguna í vörslum sínum. Samrýmist framangreint varðandi móttöku og meðferð sendingarinnar frá pósthúsi fram að handtöku ákærðu, Michal og Wojciech, einnig framburðum ákærðu fyrir dómi. Að þessu virtu verður lagt til grundvallar við úrlausn málsins að öll framangreind atriði, sem birtast að mestu í verknaðarlýsingu ákærunnar, teljist vera sönnuð.
Ágreiningur í I. hluta ákæru
- Ágreiningur í I. hluta ákæru lýtur að því hvort ákærði Michal hafi fengið ákærðu Sólveigu og Sigfús til að vera skráðir móttakendur á umræddri sendingu og hvort hann hafi vitað að póstsendingarnar, innihéldu fíkniefni sem greinir í ákæru og voru upphaflega í sendingunni við komu til landsins, og með því staðið að innflutningi efnanna ætluðum til söludreifingar hér á landi. Ákærðu byggja í aðalatriðum á því að þeim hafi verið alls ókunnugt um upphaflegt innihald póstsendinganna og verið í góðri trú um að þau væru að sækja og móttaka póstsendingu með lögmætu innihaldi. Ákæruvaldið byggir á hinu gagnstæða og leggur til grundvallar að öll rök standi til þess að ákærðu hafi í umrætt skipti ætlað að sækja og taka á móti miklu magni fíkniefna. Vísar ákæruvaldið í aðalatriðum til þess að framburður og skýringar ákærðu hafi verið ótrúverðugar og ekki í nægjanlegu samræmi við gögn málsins.
- Í skýrslutökum hjá lögreglu og fyrir dómi hefur ákærði Michal vísað til samskipta sinna við mann undir nafninu „Plaski“ sem hann hafi kynnst á veitingastaðnum Catalina. Hann hafi samþykkt að sækja þessar sendingar fyrir hann. Í skýrslutökum hjá lögreglu segist hann ýmist hafa fengið greitt fyrir sendingarnar eða ekki en í skýrslutökum fyrir dómi hafnaði hann því. Í farsíma hans er „Plaski“ vistaður undir símanúmerinu [...] sem er skráð á C og jafnframt er mynd af honum í símanum. Í skýrslutökum fyrir lögreglu og fyrir dómi segist ákærði ekkert vita hver „Plaski“ sé og hann sé ekki sami maður og C. Þá segist hann ýmist þekkja C eða ekki þekkja hann, en hefur engu að síður lagt inn á á bankareikning hans samtals 3.918.414 krónur í 91 færslu á tímabilinu 1. janúar 2023 til 12. mars 2024. Á sama tíma hefur C samkvæmt færsluyfirlitum lagt 14 sinnum inn á ákærða Michal, samtals 991.000 krónur. Í upplýsingaskýrslu er vísað til þess að Michal hafi millifært 92 sinnum inn á bankareikning C, samtals 4.418.414 krónur, og C lagt 14 sinnum inn á reikning Michal, samtals fyrir 1.520.000 krónur. Við skýrslutöku neitaði ákærði Michal að tjá sig um þessar millifærslur. Hann segist hvorki þekkja ákærða Sigfús né ákærðu Sólveigu, enda þótt háar fjárhæðir renni inn á bankareikninga hans frá þeim tveimur. Hann neitaði því að hafa beðið þau um að vera skráð fyrir umræddum sendingum sem mótteknar voru 23. febrúar 2024 sem stangast á við framburð þeirra hjá lögreglu og fyrir dómi og segist aldrei hafa ekið þeim tveimur. Síðar breytir hann framburði sínum og segist hafa sótt ákærða Sigfús að beiðni „Plaski“ og að umræddar millifærslur inn á reikninga til þeirra séu að beiðni „Plaski“. Þá kannast hann ekkert við símann sem fannst í bifreiðinni B sem skráð er á sambýliskonu hans. Í farsíma ákærða Michal með símanúmerið [...] eru samskipti við „Plaski“ sem er vistaður undir símanúmerinu [...] sem er skráð á C. Þar er einnig að finna mynd af C, mynd af sendingarnúmerinu vegna fyrri sendingar til Sólveigar í janúar og myndir af oxy-töflum. Á yfirliti yfir hringingar þann 23. febrúar 2024 sjást allmargar hringingar til „Plaski“.
- Í málinu liggja fyrir upplýsingar um umfangsmiklar millifærslur á bankareikningi ákærða Michal. Á tímabilinu 1. janúar 2023 til 12. mars 2024 lögðu 220 einstaklingar samtals 21.271.665 krónur inn á reikninga ákærða Michal í samtals 1389 færslum. Á þessum tíma segir ákærði Michal að hann hafi að mestu leyti við óvinnufær. Ákærða Sólveig og ákærði Sigfús hafa bæði skýrt frá því í skýrslutökum hjá lögreglu og fyrir dómi að ákærði Michal sé oxycontin-salinn þeirra. Ákærði Michal hefur neitað að tjá sig um það. Ákærðu Sólveig og Sigfús eru meðal þeirra sem leggja inn á bankareikning ákærða Michal. Samtals millifærði ákærði Sigfús 444.000 krónur í 37 millifærslum frá 4. apríl 2023 til 12. mars 2024. Ákærða Sólveig millifærði 1.257.600 krónur í 82 millifærslum frá 28. júlí 2023 til 12. mars 2024. Þá eru einnig millifærslur frá ákærða Michal til ákærðu Sólveigar 7.300 krónur og ákærða Sigfúsar 6.000 krónur þann 23. febrúar 2024 í tengslum við póstsendingarnar tvær. Auk þess eru millifærslur frá ákærða Michal til ákærða Sigfúsar 8.000 krónur 23. janúar 2024, ákærðu Sólveigar 10.000 krónur 14. febrúar 2024 og 7.500 krónur 24. janúar 2024. Ákærði Sigfús játaði í skýrslutökum hjá lögreglu og fyrir dómi að hann hefði sótt fleiri sendingar fyrir ákærða Michal og ákærða Sólveig skýrði frá því hjá lögreglu að hún hefði sótt fleiri sendingar. Hún neitaði að svara spurningu um það fyrir dómi, en kannaðist þó við framburð sinn hjá lögreglu.
- Samsung-farsíminn sem fannst við leit í bifreiðinni B innihélt tvö sim-kort með símanúmerin [...] og [...]. Fimm Telegram-reikningar voru á þessum sömu sim-kortum fyrir sölusíðum fíkniefna. Notandi á Telegram-aðgangi í símanum með nafnið [...] er símanúmerið [...] og jafnframt er mynd af Snapchat-aðgangi hans. Ákærði Michal hefur viðurkennt að eiga það símanúmer sem var jafnframt símanúmerið í þeim síma sem ákærði Michal var með á sér þegar hann var handtekinn. Sama lykilorð er inn á báða símana. Úr þessum Samsung-farsíma sem fannst í bifreiðinni B eru send smáskilaboð til ákærða Sigfúsar þann 23. febrúar 2024 kl. 13:02 en símanúmer ákærða Sigfúsar er vistað undir nafninu vik sem skírskotar til heimilisfangs hans í [...]. Í skilaboðunum er spurt hvort ákærði Sigfús vilji fá greitt í Indo eða Íslandsbanka 5.643 krónur. Ákærði Sigfús segist vilja fá greitt í Íslandsbanka og fær skilaboð til baka um að þetta sé frágengið („On done“). Á bankareikningi ákærða Michal sést að hann millifærir nokkrum mínútum síðar eða kl. 13:05 inn á reikning ákærða Sigfúsar 6.000 krónur. Í símanum finnast einnig samskipti milli ákærða Sigfúsar um fyrri sendingar og kaup á oxy-töflum. Þá er hringt í ákærðu Sólveigu úr númerinu [...] þann 23. janúar kl. 13:20 þar sem hún er beðin um að upplýsa hve mikið þurfi að borga og hún eigi að láta vita með skilaboðum. Móttekin eru tvö símtöl kl. 14:10, undir nafninu [...] sem með sama hætti vísar til heimilisfangs hennar. Þá er að finna smáskilaboð (SMS) þar sem ákærða Sólveig sendir skjámynd kl. 13:17 þann 22. febrúar 2024 um að sendingin sé komin til afgreiðslu hjá FedEx og óskar eftir 5.000 króna viðbótargreiðslu fyrir að sækja hana. Jafnframt sendir hún skilaboð um að það þurfi að greiða 7.217 krónur fyrir sendinguna. Ákærða Sólveig fær til baka skilaboð frá símanúmerinu [...] um að búið sé að millifæra („Done“). Símanúmerið [...] er vistað í síma ákærðu Sólveigar undir nafninu Oxy 2. Á bankareikningi ákærða Michal er að finna millifærslu á bankareikningi hans til ákærðu Sólveigar að fjárhæð 7.300 sem á sér stað þennan sama dag kl. 13:23. Í gögnum málsins er jafnframt að finna frekari samskipti á milli ákærðu Sólveigar og ákærða Sigfúsar við notanda símanúmersins [...] einkum um kaup á oxy-töflum en einnig varðandi aðrar sendingar. Í einum smáskilaboðum nafngreinir hún ákærða Michal, auk þess sem hún sendir upplýsingar um bankareikning sinn. Í síma [...] er auk þess að finna fjölmörg samskipti við ýmsa aðila um sölu á Oxy 2. Þegar keyrð eru saman datagögn yfir mánaðartímabil kemur í ljós að símanúmerin [...], [...] og [...] tengjast sendum í innan við 400 metra fjarlægð á innan við 30 mínútum m.v. tímabilið 23. janúar til 23. febrúar 2024.
- Þegar horft er til allra atvika, einkum þeirra samskipta sem eiga sér stað 23. febrúar 2024 milli símanúmersins [...] og ákærðu Sólveigar og Sigfúsar, og þeirra bankamillifærslna sem eiga sér stað í kjölfarið af reikningi ákærða Michal, svo og að farsíminn fannst í bifreið sambýliskonu ákærða og var notaður í viðskiptum ákærða Michal við Sólveigu og Sigfús, auk ýmissa annarra atvika sem hér hafa verið rakin, þykir mega slá því föstu að það sé hafið yfir allan skynsamlegan vafa að ákærði Michal sé eigandi eða hafi a.m.k. ótakmörkuð umráð yfir Samsung-símanum sem fannst í bifreiðinni B með símanúmerum [...] og [...] og hafi nýtt þennan síma við skipulagningu umræddra póstsendinga þann 23. febrúar sl.
- Þá liggur fyrir að ákærði var einn með húsnæðið að X á leigu, þar sem fundust svipaðar flöskur og voru í sendingunni þann 23. febrúar 2024. Ákærðu Sigfús og Sólveig viðurkenndu bæði í skýrslutöku fyrir lögreglu og Sigfús fyrir dómi að hafa áður sótt póstsendingar með svipuðum flöskum og þeim sem fundust í síðari sendingunni og bera þess merki að hafa verið notaðar í sama tilgangi, enda fundust fíkniefnaleifar á flöskunum. Þá fundust skálar, trekt og skrúfjárn með fíkniefnaleifum í húsnæðinu sem benda til þess að sams konar fíkniefni hafi verið flutt í húsnæðið og unnin þar. Þegar ákærða Michal eru kynntar þessar upplýsingar skýrir hann í fyrsta skipti frá því fyrir dómi að hann hafi lánað „Plaski“ lykil að húsnæðinu. Í skýrslutöku fyrir lögreglu kannast ákærði Michal hvorki við ákærðu Sólveigu né ákærða Sigfús, þvert á framburð þeirra, og segist aldrei hafa beðið þau um að vera skráð fyrir umræddum sendingum. Í skýrslutöku fyrir dómi segist hann hafa sótt þau að beiðni „Plaski“. Fallast verður á það með ákæruvaldinu að framburður ákærða Michal sé ótrúverðugur og ekki í samræmi við gögn málsins. Hann aðlagi framburð sinn að þeim gögnum sem eru lögð fyrir hann hverju sinni. Óstöðugur framburður hans er því að engu hafandi og hafnar dómurinn honum alfarið. Þá verður ekki horft framhjá því að hegðun ákærða Michal við handtöku, þar sem hann ekur á ómerkta bifreið lögreglu við að reyna að komast undan, er ekki í samræmi við háttsemi saklauss manns sem hefur að ósekju ratað inn í fíkniefnasmygl.
- Þegar horft er til allra atvika, einkum umtalsverðra millifærslna inn á bankareikning ákærða, fjölda smáskilaboða í farsíma um sölu á fíkniefnum sem auk þess fær stoð í framburði ákærðu Sólveigar og Sigfúsar, bankaupplýsingum og símagögnum, m.a. í tengslum við umræddar póstsendingar, og óstöðugs og ótrúverðugs framburðar ákærða Michal, verður fallist á með ákæruvaldinu að lögfull sönnun hafi tekist fyrir því að ákærði Michal Szematowicz hafi flutt inn og reynt að taka á móti og varsla samtals 6.780 ml af amfetamínbasa, með 60–62% styrkleika, ætluðum til söludreifingar hér á landi og fengið Sólveigu Júlíu Linnet og Sigfús Má Dagbjartarson til að vera skráðir móttakendur fyrir hvort sinni sendingunni. Verður hann því sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a, almennra hegningarlaga.
Um II. og III. hluta ákæru
- Ágreiningur í II. og III. hluta ákæru lýtur í aðalatriðum að því hvort ákærðu hafi þann 23. febrúar 2024 með saknæmum og ólögmætum hætti ætlað sér, í félagi og að beiðni ákærða Michal, að sækja og móttaka póstsendingu í þeirri trú að hún innihéldi fíkniefni sem greinir í ákæru og voru upphaflega í sendingunni við komu til landsins, sem og hvort efnin hafi verið ætluð til söludreifingar hér á landi. Ákærðu byggja í aðalatriðum á því að þeim hafi verið alls ókunnugt um upphaflegt innihald póstsendingarinnar, þau hafi verið í góðri trú um að þau væru að sækja og móttaka póstsendingu með lögmætu innihaldi. Ákæruvaldið byggir á hinu gagnstæða og leggur til grundvallar að öll rök standi til þess að ákærðu hafi í umrætt skipti ætlað að sækja og taka á móti miklu magni fíkniefna. Vísar ákæruvaldið í aðalatriðum til þess að framburður og skýringar ákærðu hafi verið ótrúverðugar og ekki í nægjanlegu samræmi við gögn málsins.
- Mál þetta lýtur að innflutningi á talsverðu magni fíkniefna þótt ákærðu Sólveig, Sigfús og Wojciech séu aðeins ákærð fyrir afmarkaðan hluta af heildaratburðarásinni, eins og verknaðarlýsingu ákæru er háttað. Löng dómaframkvæmd liggur fyrir um að afmarkaður þáttur manns í skipulagningu og framkvæmd fíkniefnalagabrots sem fleiri en einn tekur þátt í telst verkskipt aðild að fíkniefnalagabrotinu í heild, sbr. t.d. Hrd. 43/2023. Við sakarmatið er engu að síður nauðsynlegt að setja atvikaröðina í samhengi við það sem tíðkast þegar um er að ræða sendingu og móttöku fíkniefna á milli landa í almennu tilliti, sbr. áratugalanga dómaframkvæmd í hliðstæðum málum. Brotastarfsemi af þeim toga sem hér um ræðir tekur almennt mið af skipulagningu, fjármögnun, milliliðum, verkaskiptingu og leynd. Hefur allt framangreint m.a. þann tilgang að koma því til leiðar að fíkniefni fari á milli landa frá sendanda til endanlegs móttakanda án vitneskju löggæsluyfirvalda, þar með talið að unnt sé að nálgast efnin hjá millilið, flutningafyrirtæki og/eða skráðum móttakanda. Um talsvert magn fíkniefna er að ræða og er söluverðmæti þeirra verulegt. Að því virtu er ljóst að mikið er í húfi fyrir hlutaðeigendur sem standa fyrir innflutningnum. Ákvörðun um að senda umræddar sendingar til ákærðu Sigfúsar og Sólveigar sem skráðra viðtakenda er engin tilviljun. Sá eða þeir sem stóðu að baki innflutningnum höfðu ástæðu til þess að skrá þau með fyrrgreindum hætti til þess að leyna brotinu, villa um fyrir yfirvöldum og gera raunverulegum móttakanda mögulegt að nálgast efnin hér á landi. Ákærðu Sólveig og Sigfús hafa bæði viðurkennt að ákærði Michal hafi selt þeim fíkniefni og í gögnum málsins liggur fyrir að þau hafa bæði millifært verulega fjármuni inn á bankareikninga hans vegna þeirra fíkniefnaviðskipta. Þá hafa þau bæði viðurkennt fyrir lögreglu og ákærði Sigfús fyrir dómi að þau hafi áður sótt póstsendingar fyrir ákærða Michal. Liggja þannig fyrir augljós og veruleg tengsl ákærða Michal við skráða móttakendur Sólveigu og Sigfús og auðvelt fyrir ákærða Michal að nálgast fíkniefnin með því að aka móttakendunum sjálfur á pósthús eða fá aðra sem hann þekkir til þess. Ákærði Wojciech skýrði frá því fyrir dómi að hann væri búinn að þekkja ákærða Michal lengi og hafði búið hjá honum í húsnæðinu í X þangað sem til stóð að flytja fíkniefnin eins og önnur fíkniefni sem höfðu verið unnin þar áður. Við húsleit í húsnæðinu að X fundust föt og ýmsir munir í eigu ákærða Wojciech. Bendir því allt til þess að nöfn ákærðu Sigfúsar og Sólveigar hafi verið notuð í þeim tilgangi að þau gætu með aðstoð ákærða Wojciech og ákærða Michal sótt og móttekið og þar með komist yfir efnin og jafnframt að allir ákærðu hafi bæði vitað af og haft ásetning til þess.
- Þar sem búið var að fjarlægja fíkniefnin úr umslaginu áður en ákærðu sóttu sendinguna á téð pósthús var um að ræða pútatívt brot. Samkvæmt matsgerð og vætti vitnisins E var styrkleiki hinna haldlögðu fíkniefna mjög hár og er ljóst að efnin voru nánast hrein og ætluð til útþynningar með íblöndunarefnum. Þá liggur fyrir matsgerð og vætti matsmanns um áætlaðan fjölda neysluskammta og skaðsemi efnanna og hefur ekkert komið fram í vörnum ákærðu sem hnekkir því mati. Að þessu virtu er ljóst að um var að ræða mikið magn sterkra fíkniefna sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni.
- Í skýrslu ákærða Sigfúsar fyrir dómi kom fram að hann hafi sótt pakka fyrir ákærða Michal sem hafi selt honum oxy-töflur. Hann hafi tvisvar sinnum áður verið skráður fyrir pakka sem ákærði Michal hafi átt að fá og fengið þá skýringu að ákærði Michal hafi ekki verið skráður með lögheimili hér á landi. Samskipti á milli þeirra hafi farið fram í gegnum símanúmerið [...] og ákærði Michal hafi alltaf lagt inn fyrir póstgjöldum. Ákærði Sigfús staðfesti jafnframt að hann hefði farið með ákærða Michal að sækja sendingarnar í bifreiðinni A. Með hliðsjón af umstangi við að skrá pakkann á sig, sækja pakkann með ákærða Michal sem hafði margítrekað selt honum fíkniefni og greitt honum með fíkniefnum fyrir viðvikið, verður að telja að ákærði hafi vitað eða mátt vita að sendingin innihéldi fíkniefni. Samkvæmt framansögðu verður ákærði Sigfús sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í II. kafla ákæru.
- Ákærða Sólveig upplýsti um aðkomu sína með svipuðum hætti og ákærði Sigfús fyrir dómi, en vildi ekki tjá sig um fyrri sendingar. Óumdeilt er að ákærða átti að fá 20.000 krónur fyrir að sækja umræddan pakka og í gögnum málsins eru bankafærslur sem sýna greiðslur frá ákærða Michal til ákærðu Sólveigar á sama tíma og hún er að sækja þessar sendingar. Ákærða Sólveig vísar til þess að ákærði Michal hafi sagt henni að í pakkanum væri veip-vökvi þótt enginn slíkur vökvi væri í lýsingu með pakkanum. Hún viðurkenndi að sér hefði fundist skrítið að vera beðin um að vera skráð fyrir pakkanum. [...] Með hliðsjón af umstangi við að skrá pakkann á sig, sækja pakkann með ákærða Michal sem hafði margítrekað selt henni fíkniefni og greitt með peningum fyrir viðvikið, verður að telja að ákærða hafi vitað eða mátt vita að sendingin innihéldi fíkniefni. Samkvæmt framansögðu verður ákærða Sólveig sakfelld fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í III. kafla ákæru.
- Ákærði Wojciech Kaczorowski neitaði að tjá sig um atvik í skýrslutöku hjá lögreglu 23. febrúar 2024. Í skýrslutöku hjá lögreglu 28. febrúar 2024 segist hann hafa búið í stúdíóíbúðinni í X frá því að hann kom til landsins í desember sl. Hann hafi talið að sendingin innihéldi veip-vökva og fengið þær upplýsingar frá ákærða Michal. Hann vissi ekki hver ætti Samsung-farsímann í bifreiðinni B og neitaði að hafa notað hann. Aðspurður um fíkniefnaauglýsingu af Telegram með símanúmeri hans neitaði hann að vera að selja fíkniefni og sagði að þetta væri örugglega eitthvað gamalt. Þegar honum var kynnt að auglýsingin hefði birst í febrúar 2024 sagðist hann ekki hafa neinar skýringar. Í skýrslutöku hjá lögreglu 6. mars 2024 skýrir ákærði Wojciech frá því að ákærði Michal hafi oft verið með tvo til þrjá síma á sér. Ákærði Michal hafi sett heimilisfangið hjá ákærðu Sólveigu inn í símann hans. Hann hafi látið ákærða Michal vita þegar hann var kominn fyrir utan heimilisfangið og nokkrum mínútum síðar hafi ákærða Sólveig komið inn í bílinn. Hann segir jafnframt að hann hafi ekki átt að fá neitt greitt fyrir að sækja ákærðu Sólveigu. Hann kannaðist við mynd af dós sem fannst við húsleit í X sem merkt væri Gel auto þar sem fannst lítilræði af fíkniefnum. Hann hafi opnað dósina af forvitni og séð innihaldið en ekki vitað hver ætti efnið. Í skýrslutöku fyrir dómi sagði ákærði Wojciech að hann hefði ratað til ákærðu Sólveigar vegna þess að hann hafi leigt bílskúr nálægt heimilisfangi hennar. Hann hafi ekki látið hana vita að hann væri kominn en hún hafi komið skömmu eftir að hann hafði lagt bílnum fyrir utan. Ákærði Michal hafi ekkert sagt honum hvað væri í pakkanum en hugsanlega hefði ákærða Sólveig sagt honum að þetta væri veip-vökvi. Ákærði Michal hafi beðið hann um að sækja hana þar sem hann myndi ekki ná að sækja báðar sendingarnar á sama degi vegna mikillar umferðar. Hann hafi aldrei séð meðákærða Sigfús fyrr en hann settist upp í bílinn hjá ákærða Michal fyrr um daginn 23. febrúar sl. um það leyti sem ákærði Michal bað hann um að sækja meðákærðu Sólveigu. Um það bil 15 mínútur hafi liðið frá því að hann var beðinn um að sækja meðákærðu Sólveigu og þar til hún kom inn í bílinn til hans. Hann hafi ekki sett sig í samband við hana áður en hún kom inn í bílinn og skýrði frá því að hann hafi ekki notað Samsung-farsímann í bifreiðinni og hafi ekki vitað hver ætti hann. Ákærði Michal hafi notað iPhone-síma og hann hafi ekki séð ákærða Michal nota fleiri en einn síma. Hann sagðist ekki hafa auglýst fíkniefni á Telegram-aðgangi sínum. Hann hafi búið í X frá því skömmu eftir að hann kom til Íslands sem hafi verið í lok janúar og sagðist ekkert vita um þær flöskur sem fundust í X eða önnur áhöld. Eins og hér hefur verið rakið breytist framburður ákærða Wojciech frá skýrslutökum hjá lögreglu og þar til hann kemur fyrir dóm og ber þess merki að hann sé að aðlaga framburð sinn að framburði meðákærða Michal. Þá er framburður hans ótrúverðugur og í ósamræmi við gögn málsins, en samkvæmt símagögnum voru send smáskilaboð til ákærðu Sólveigu úr símanum sem fannst í bifreiðinni B rétt áður en hún kom inn í bifreiðina og verður fallist á að enginn annar en ákærði Wojciech hafi getað sent þessi skilaboð. Þá var hann tvísaga um komu sína til landsins og þær flöskur sem fundust á vettvangi. Þegar horft er til þess umstangs sem fylgir því að sækja ákærðu Sólveigu, sem ákærði Wojciech hefur aldrei séð, til að sækja pakka sem hann á síðan að afhenda ákærða Michal, verður fallist á með ákæruvaldinu að komin sé lögfull sönnun um að ákærði Wojciech hafi vitað eða mátt vita að sendingin innihéldi fíkniefni. Við mat á umstangi verður jafnframt að hafa í huga að sú skýring sem ákærðu Wojciech og Michal gefa um að ekki hafi verið tími til að sækja umrædda sendingu vegna umferðar fær ekki staðist. Ákærði Sigfús er kominn inn í bifreiðina til ákærða Michal samkvæmt framburði ákærða Wojciech sjálfs fyrir dómi og því enginn tímasparnaður fólginn í því að hann sæki ákærðu Sólveigu. Þá verður ekki horft framhjá því að ákærði Wojciech þekkir ákærða Michal mjög vel og bjó í húsnæði hans í X þar sem verið var að meðhöndla fíkniefni, auk þess sem hann er sjálfur að auglýsa fíkniefni á Telegramreikningi sínum. Samkvæmt framansögðu verður ákærði Wojciech sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í III. kafla ákæru, en þó þykir í ljósi þess hve veigalítill þáttur hans var í brotinu vera forsendur til þess að heimfæra háttsemi hans undir hlutdeild í broti meðákærðu, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga.
- Samkvæmt matsgerð og vætti vitnisins E var styrkleiki hinna haldlögðu fíkniefna hár og að mestu í formi amfetamínbasa sem var á bilinu 60–62% af þunga efnisins. Fyrra sýnið lýtur að 3.470 ml af amfetamínbasa og í hinu tilvikinu var um að ræða 3.310 ml af amfetamínbasa. Sýnið 3.470 ml gaf 2.074 gr. af hreinum amfetamínbasa og í hinu tilvikinu, 3.310 ml, var um að ræða 1.926 gr. af hreinum amfetamínbasa. Ef því er umbreytt í duft er um að ræða 5.340 gr. af hreinu amfetamínsúlfati (duft). 100% amfetamínsúlfat er rúmlega 73% amfetamínbasi. Verður lagt til grundvallar að efnin hafi verið ætluð til útþynningar með íblöndunarefnum. Í matsgerð og vætti hins dómkvadda matsmanns liggur fyrir niðurstaða um áætlaðan fjölda neysluskammta og skaðsemi efnanna út frá ákveðnum forsendum sem raktar eru í matsgerðinni. Þegar horft er til magns og styrkleika efnanna verður fallist á að um hafi verið að ræða innflutning á miklu magni sterkra fíkniefna sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni. Refsing hvers og eins tekur til þess hluta fíkniefnanna sem þau eiga aðild að. Miðað við þær forsendur að hægt sé að framleiða ríflega 32,5 kg af amfetamíni með 12% styrkleika eiga ákærðu Sólveig og Wojciech aðild að innflutningi 16,940 kg. af amfetamíni með 12% styrkleika (ca. 2,76 kg af hreinu dufti) og ákærði Sigfús aðild að 15,735 kg. af amfetamíni með 12% styrkleika (ca. 2,58 kg af hreinu dufti). Samkvæmt öllu framangreindu verða ákærðu Sólveig, Sigfús sakfelld fyrir brot gegn 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga og ákærði Wojciech fyrir hlutdeild í broti gegn 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr. og 1. mgr. 22. gr, almennra hegningarlaga.
Um refsiákvörðun og upptöku
- Ákærði Michal er fæddur í [...]. Samkvæmt sakavottorði hefur hann tvívegis verið sviptur ökuréttindum og greitt sekt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þessi brot hafa ekki áhrif á refsingu hans í þessu máli. Við mat á refsingu verður horft til þess að hann skipulagði innflutning á umtalsverðu magni fíkniefna með því að fá aðra meðákærðu til að standa að afmörkuðum verknaðarþáttum í því broti. Refsing hans, ólíkt refsingu annarra meðákærðu, tekur til innflutnings á 5.340 gr. af hreinu amfetamínsúlfati, sem hægt er að framleiða úr ríflega 32,5 kg af amfetamíni með 12% styrkleika. [...]
- Ákærða Sólveig er fædd í [...]. Hún hefur ekki gerst brotleg áður. Við mat á refsingu er horft til þess hluta fíkniefnanna sem hún á aðild að og tekur til innflutnings á 16,940 kg af amfetamíni með 12% styrkleika. Við ákvörðun refsingar þykir jafnframt mega taka tillit til afmarkaðs þáttar hennar í brotinu sem lýtur hvorki að undirbúningi né skipulagi brotsins, auk þess sem hún hafði óverulegan ávinning af brotinu. Þá er horft til nokkurs atbeina hennar við að upplýsa málið og stöðu hennar gagnvart ákærða Michal, svo og hegðunar hennar að undanförnu.
- Ákærði Sigfús er fæddur í [...]. Samkvæmt sakavottorði hefur hann þrívegis verið sviptur ökuréttindum og greitt sekt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þessi brot hafa ekki áhrif á refsingu hans í þessu máli. Við mat á refsingu er horft til þess hluta fíkniefnanna sem hann á aðild að og tekur til innflutnings á 15,735 kg af amfetamíni með 12% styrkleika. Við ákvörðun refsingar þykir jafnframt mega taka tillit til afmarkaðs þáttar hans í brotinu, sem lýtur hvorki að undirbúningi né skipulagi brotsins, auk þess sem hann hafði óverulegan ávinning af brotinu. Þá er horft til nokkurs atbeina við að upplýsa málið og stöðu hans gagnvart ákærða Michal.
- Ákærði Wojciech er fæddur í [...]. Hann hlaut dóm 30. janúar sl. fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr., sbr. 233. gr., almennra hegningarlaga þar sem hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi, en refsing var ákveðin skilorðsbundin til tveggja ára. Hlutdeild í tilraunarbroti því sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir samkvæmt III. lið ákæru var framið þegar tæplega einn mánuður var liðinn af skilorðsbindingunni og er því um að ræða skilorðsrof sem hefur áhrif á ákvörðun refsingar í málinu. Við ákvörðun refsingar þykir mega taka tillit til afmarkaðs þáttar hans í brotinu og meta hann sem hlutdeild í broti meðákærðu, Sólveigar og Michal. Hann hefur hins vegar ekki reynt að upplýsa málið að neinu leyti.
- Við ákvörðun refsingar ákærðu verður litið til þess að brot samkvæmt ákæru fólu í sér röskun á mikilvægum almannahagsmunum. Var um að ræða talsvert magn hættulegra fíkniefna með miklum styrkleika. Var því veruleg hætta á því að efnin færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Allt framangreint horfir til refsiþyngingar. Að auki horfir til refsiþyngingar að brotið var skipulagt og framið í félagi. Sakaferill ákærðu annarra en ákærða Wojciech kemur til refsilækkunar, en hvað hann varðar fól brotið í sér skilorðsrof á dóminum frá 30. janúar 2024. Verður því hvað hann varðar að dæma upp skilorðsbundinn hluta þess dóms og ákvarða honum refsingu í einu lagi.
- Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til 1., 3., 5. og 6. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, verður ákærði Michal dæmdur í fangelsi í sex ár. Vegna alvarleika brotsins sem ákærði er sakfelldur fyrir er ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga verður gæsluvarðhald sem ákærði sætti við rannsókn málsins látið koma til frádráttar fyrrgreindri refsingu, eins og nánar greinir í dómsorði.
- Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til 1., 3., 6. og 9. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og 5. tl. 1. mgr. 74. gr. sömu laga, verður ákærði Sigfús dæmdur í fangelsi í þrjú ár. Vegna alvarleika brotsins sem ákærði er sakfelldur fyrir er ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga verður gæsluvarðhald sem ákærði sætti við rannsókn málsins látið koma til frádráttar fyrrgreindri refsingu, eins og nánar greinir í dómsorði.
- Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til 1., 3., 5., 6., 8. og 9. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og 5. tl. 1. mgr. 74. gr. sömu laga, verður ákærða Sólveig dæmd í fangelsi í þrjú ár. Vegna alvarleika brotsins sem ákærða er sakfelld fyrir er ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga verður gæsluvarðhald sem ákærða sætti við rannsókn málsins látið koma til frádráttar fyrrgreindri refsingu, eins og nánar greinir í dómsorði.
- Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til 1., 3., 6. og 7. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga , verður ákærði Wojciech dæmdur í fangelsi í tvö ár. Vegna alvarleika brotsins sem ákærði er sakfelldur fyrir er ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga verður gæsluvarðhald sem ákærði sætti við rannsókn málsins látið koma til frádráttar fyrrgreindri refsingu, eins og nánar greinir í dómsorði.
- Með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002, verða gerð upptæk fíkniefni og fíknilyf, svo og Samsung-farsími, með vísan til 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga og 103.500 krónur með vísan til 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga, eins og nánar greinir í dómsorði.
Um sakarkostnað og fleira
- Vegna málsúrslita og með vísan til 1. mgr. 235. gr. og 1. og 2. mgr. 236. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærðu gert að greiða sakarkostnað til ríkissjóðs. Nánar tiltekið verður ákærða Michal gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykja út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 4.400.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og að viðbættum ferðakostnaði verjandans, 13.536 krónum. Ákærðu Sólveigu verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda sína, Odds Valssonar lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykja út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 2.200.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærða Sigfúsi verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda sína, Áslaugar Láru Lárusdóttur lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykja út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 2.200.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærða Wojciech verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda sína, Birkis Más Árnasonar lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykja út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 2.200.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan útlagðan kostnað ákæruvaldsins samkvæmt yfirliti, vegna efnarannsóknar og matsgerðar dómkvadds matsmanns, og athugunar Nova á símagögnum, samtals 1.120.142 krónur, greiða ákærðu óskipt.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari.
- Helgi Sigurðsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Michal Szematowicz, sæti fangelsi í sex ár. Til frádráttar refsingu með fullri dagatölu kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 24. febrúar 2024 til 13. september 2024.
Ákærða, Sólveig Júlía Linnet, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar refsingu með fullri dagatölu kemur gæsluvarðhald sem ákærða sætti frá 24. febrúar 2024 til 1. mars 2024. Ákærði, Sigfús Már Dagbjartarson, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar refsingu með fullri dagatölu kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 24. febrúar 2024 til 1. mars 2024.
Ákærði, Wojciech Kaczorowski, sæti fangelsi í tvö ár. Til frádráttar refsingu með fullri dagatölu kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 24. febrúar 2024 til 7. mars 2024.
Gerð eru upptæk 6.780 ml af amfetamínbasa, Samsung-farsími (munanúmer 628859) og 103.500 krónur (munaskrá 184185).
Ákærði Michal greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 4.413.536 krónur. Ákærða Sólveig greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Odds Valssonar lögmanns, 2.200.000 krónur. Ákærði Sigfús greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Áslaugar Láru Lárusdóttur lögmanns, 2.200.000 krónur. Ákærði Wojciech greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 2.200.000 krónur. Ákærðu greiði að öðru leyti óskipt annan sakarkostnað málsins, 1.120.142 krónur.
Helgi Sigurðsson