Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-704/2024:

Arnar Hauksson,

Jón Einar Eyjólfsson og

Pétur Árni Jónsson

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

gegn

Hjálmari Friðrikssyni

(Gísli Tryggvason lögmaður)

Friðhelgi einkalífs. Mannréttindasáttmáli Evrópu. Ómerking ummæla. Stjórnarskrá. Tjáningarfrelsi.

Stefndi sem var blaðamaður á vefmiðli, var sýknaður af ómerkingar-, skaðabóta- og birtingakröfum stefnenda sem voru eigendur starfsmannaleigu og félags sem átti húsnæði sem brann. Stefndi fjallaði um brunann og aðbúnað verkafólks í birtri frétt. Ekki var talið að stefndi hefði með ummælunum farið út fyrir mörk heimillar tjáningar sbr. 73. gr. stjórnarskrárinnar. Ummælin hefðu varðað brýnt þjóðfélagslegt málefni, þ.e. aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi og hefðu ummælin fremur yfirbragð gildisdóms en staðhæfingar um staðreynd. Ummælin hefðu ekki verið sett fram af hreinum illvilja né teldist stefndi hafa verið í vondri trú. Takmörkun tjáningarinnar var ekki talin uppfylla skilyrði 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10.gr. mannréttindasáttmála Evrópu og með ummælunum hefði ekki verið gengið nær persónu stefnenda eða friðhelgi einkalífs þeirra skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar en þeir þyrftu að þola.

Dómur

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 17. desember sl., var höfðað 2. febrúar 2024 af Arnari Haukssyni, [...], Jóni Einari Eyjólfssyni, [...], og Pétri Árna Jónssyni, [...], gegn Hjálmari Friðrikssyni, [...].
  2. Dómkröfur stefnenda eru eftirfarandi:

Ómerkingarkröfur

Stefnendur gera hver um sig þá kröfu að eftirtalin ummæli verði dæmd dauð og ómerk:

  1. 1. Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar.
  2. 2. Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi
  3. 3. Það er ekki að ástæðulausu sem það má með sanni kalla þessa menn þrælahaldara.

Miskabótakröfur

Stefnendur gera hver um sig þá kröfu að stefndi verði dæmdur til þess að greiða hverjum stefnanda um sig miskabætur að fjárhæð 3.000.000 krónur með vöxtum samkvæmt 1. ml. 4. gr. laga nr. 38/2001 frá 17. október 2023 til 20. nóvember 2023, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Birtingarkröfur

Stefnendur gera hver um sig þá kröfu að forsendur og niðurstaða dóms í málinu verði birt á vefsvæði netmiðilsins Samstöðvarinnar eigi síðar en sjö dögum eftir dómsuppsögu, að viðlögðum dagsektum að fjárhæð 50.000 krónur fyrir hvern dag sem líður umfram áðurgreindan frest, án þess að birting fari fram.

Málskostnaðarkröfur

Þá krefjast stefnendur, hver um sig, málskostnaðar.

  1. Stefndi gerir aðallega þá kröfu að hann verði sýknaður af öllum dómkröfum stefnenda.

    Til vara krefst stefndi sýknu af bótakröfum stefnenda. Til þrautavara krefst stefndi algerrar niðurfellingar eða verulegrar lækkunar bótakrafna. Í öllum tilvikum krefst stefndi málskostnaðar.

  2. Mál þetta er rekið samhliða máli nr. E-960/2024, Elja – þjónustumiðstöð atvinnulífsins hf. gegn Hjálmari Friðrikssyni, en málin varða sambærilegt sakarefni og málsgrundvöllur beggja málanna er sambærilegur. Voru aðalmeðferðir málanna haldnar samhliða og vitnaleiðslur í þeim sameiginlegar.

Helstu málsatvik

  1. Stefnendur eru eigendur og stjórnendur Elju – þjónustumiðstöðvar atvinnulífsins hf. (hér eftir Elja) sem rekur starfsmannaleigu. Stefndi er blaðamaður sem starfar hjá Samstöðinni sem er skráður fjölmiðill hjá fjölmiðlanefnd og er í eigu Alþýðufélagsins.

    Samkvæmt greinargerð stefnda skilgreinir Samstöðin sig sem pólitískan fréttamiðil og vettvang fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fái rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla.

  2. Hinn 16. október 2023 kom upp eldur að Funahöfða 7 í Reykjavík. Ekki er ágreiningur um að húsnæðið var á þeim tíma að mestu í eigu tveggja félaga sem voru í eigu stefnenda en að auki átti félagið ÞR eignir ehf., sem var að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, stórt rými í byggingunni. Þá er ekki um það ágreiningur að á þeim tíma hafi fasteignin að Funahöfða 7 verið skráð skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði í fasteignaskrá og að þar hafi búið nokkur fjöldi erlends verkafólks. Í eldsvoðanum 16. október 2023 lést einn einstaklingur, erlendur aðili sem búið hafði í húsinu.
  3. Daginn eftir eldsvoðann, þ.e. 17. október 2023, birti Samstöðin tvær fréttir og var stefndi nafngreindur höfundur beggja fréttanna. Annars vegar var frétt undir fyrirsögninni „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars“ (í stefnu og héreftir kallað frétt 1) og hins vegar undir fyrirsögninni „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ (í stefnu og héreftir kallað frétt 2).
  4. Í frétt 1 á Samstöðinni sem bar fyrirsögnina „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars“ var birtur hlekkur á frétt á visir.is um málið og í frétt 1 var vísað til þeirrar fréttar Vísis sem heimildar um að húsið væri að mestu í eigu tveggja félaga sem væru í eigu stefnenda.

    Að auki var í frétt stefnda vísað til umfjöllunar í frétt DV frá árinu 2018 og birtur hlekkur sem vísaði til þeirrar umfjöllunar. Lokaorð fréttarinnar eru á þá leið að nú hafi vafasamir starfshættir Elju dregið mann til dauða.

  5. Í frétt 2 birtust ummælin sem krafist er ómerkingar á. Sú frétt ber fyrirsögnina „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“. Þar var fjallað um starfsemi Elju og stefndu nafngreindir sem eigendur félagsins. Einnig voru í fréttinni birtar myndir af stefnendum. Kom fram að húsnæðið að Funahöfða 7, sem væri í eigu helstu eigenda Elju, væri ekki skráð sem íbúðarhúsnæði og mætti ætla að brunavarnir hefðu verið eftir því.

    Hefðu margir erlendir verkamenn þó búið í húsnæðinu. Í fréttinni var birtur hlekkur á áðurnefnda fimm ára gamla grein í fjölmiðlinum DV.is sem einnig var birtur í frétt 1.

    Var í frétt 2 vísað til þess að í frétt DV hefði starfsemi stefnenda verið ítarlega lýst og að þar hefði verið fjallað um húsnæði sem starfsmannaleigur gerðu erlendum verkamönnum, sem flestir væru á launaskrá Elju, að búa í. Þá segir í frétt 2 að í framangreindri frétt DV hafi verið rætt við faglærðan starfsmann Elju sem hafi verið greidd lægri laun en ómenntuðum Íslendingum. Þá var einnig haft eftir frétt DV í frétt 2 að okrað hefði verið á þeim faglærða starfsmanni hvað varðaði leigu en hann hefði borgað 75.000 kr. fyrir mánaðarleigu á 10 fermetra herbergi sem hann hefði deilt með nokkrum ókunnugum mönnum.

  6. Í annarri frétt Vísis sem birtist að kvöldi 17. október 2023 var enn fjallað um brunann og haft eftir slökkviliðsstjóra að samskipti við eigendur húsnæðisins hefðu verið til fyrirmyndar, þúsundir byggju í iðnaðarhúsnæði hér á landi og það þyrfti ekki endilega að vera slæmt. Í nefndri frétt Vísis var einnig greint frá því að slökkviliðið hefði gert úttekt á húsnæðinu í apríl sama ár, nokkrar athugasemdir hefðu verið gerðar og tækifæri gefin til úrbóta. Búið hefði verið að bæta úr öllum atriðum nema einu sem varðaði brunastiga af annarri hæð, sem gefinn hefði verið aukinn frestur til að lagfæra. Þá kemur fram í sömu frétt að bruninn hafi verið í einu brunahólfi, ekki hafi verið mikil reykútbreiðsla og viðvörunarkerfi hafi farið í gang. Þá hafi Funahöfði 7 ekki verið á lista slökkviliðsins um ósamþykkt húsnæði sem farið væri fram á að yrði lokað.
  7. Stefnendur sendu stefnda kröfubréf 20. október 2023 og kröfðust afsökunarbeiðni og leiðréttingar. Í kjölfar kröfubréfs stefnenda svaraði lögmaður stefnda erindinu á þann veg að stefndi hefði uppfært umræddar fréttir Samstöðvarinnar með því að bæta inn í fréttirnar eftirfarandi málsgrein: „Þótt brunavarnir hafi verið í sæmilegu horfi, að sögn slökkviliðs, og jafnvel þó að maðurinn hefði sjálfur kveikt neistann sem varð honum að bana, þá er ekki hægt að horfa fram hjá því að hræðilegar aðstæður hans áttu sinn þátt í þessum harmleik, ásamt öðru. Þær aðstæður má með sanni kalla nútíma þrælahald en sonur hins látna, Adrian Wisniewski, lýsti aðstæðum föður síns í viðtali við Vísi: „Þetta voru slæmar aðstæður, lítil herbergi og margt fólk í litlu rými“.“
  8. Mál þetta er rekið samhliða máli nr. E-960/2024 sem einnig varðar ummæli stefnda í sömu fréttum. Við aðalmeðferð málanna gaf stefndi aðilaskýrslu.

Helstu málsástæður og lagarök stefnenda

  1. Stefnendur byggja á því að með ummælunum hafi stefnendum verið gefin að sök refsiverð háttsemi. Umfjöllunin hafi innihaldið gífuryrði og fullyrðingar um að stefnendur væru nútíma þrælahaldarar, sem stæðu fyrir samfélagslegu krabbameini með rekstri fyrirtækis síns, Elju, sem hefði nú dregið mann til dauða. Maðurinn sem lést í brunanum hefði þó aldrei unnið hjá Elju heldur verið atvinnulaus síðustu árin. Ummælin séu staðhæfingar um staðreyndir, beinar ásakanir um að stefnendur hafi gerst sekir um alvarleg lögbrot og siðferðislega ámælisverða háttsemi, sem ekki sé fótur fyrir. Ummælin séu til þess fallin að meiða æru stefnenda.
  2. Með ummælunum „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ í frétt 2 hafi stefnendur verið nafngreindir og myndum af þeim spyrt saman við fasteignina sem brann. Ummælin séu fyrirvaralaus staðhæfing um staðreynd; að stefnendur hafi framið mansal sem þrælahaldarar og brotið einkum gegn 227. gr. a í XXIV. kafla almennra hegningarlaga sem varði allt að 12 ára fangelsi og sé siðferðislega ámælisverð háttsemi í huga almennings. Ummælin hafi verið gróf árás á orðspor þeirra án svigrúms til túlkunar. Samhengi ummælanna hafi verið að þrælahald stefnenda hefði leitt til dauða manns og það hafi skapað þau hughrif að þeir hafi borið ábyrgð á dauða hans. Maðurinn hafi þó aldrei starfað hjá fyrirtæki stefnenda og verið án atvinnu síðustu ár.
  3. Í ummælunum „Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi“ í frétt 2 felist ásökun um misnotkun stefnenda á starfsfólki og þrældóm með þeim afleiðingum að maður hafi látist. Ummælin séu ásökun um mansal sem varði 12 ára fangelsi, sbr. 227. gr. a í almennum hegningarlögum og það hafi leitt til andlátsins, sem varði ævilöngu fangelsi, sbr. 211. gr. og 215. gr. laganna.

    Ummælin séu ásökun um alvarlega siðferðislega ámælisverða hegðun sem sé skammarleg í huga almennings og til þess fallin að kasta rýrð á mannorð stefnenda. Af samhengi, fyrirsögn og myndbirtingu með frétt 2 sé ljóst að ummælunum sé beint gegn stefnendum þó þeir séu ekki nafngreindir. Það hafi þeir verið í fyrirsögn fréttar 2 auk fullyrðingar um að þeir væru nútíma þrælahaldarar og samsettrar myndar af þeim og fasteigninni. Í framhaldi af ummælunum segi að stefnendur hafi átt gífurlega vafasama viðskiptasögu og þeir síðar nafngreindir sem eigendur Elju og tiltekið að húsið sem brann hafi verið í eigu helstu eigenda Elju.

  4. Í frétt Vísis 17. október 2023 hafi verið rætt við slökkviliðsstjóra sem hafi kveðið samskipti við stefnendur til fyrirmyndar, þá meðvitaða um hvað gera þyrfti og samvinna við þá verið góð. Bruninn hefði verið í einu brunahólfi, lítil reykútbreiðsla og viðvörunarkerfi virkað. Stefndi virðist ekki hafa hirt um að ræða sjálfur við slökkviliðsstjóra, vitna í frétt Vísis eða afla sjálfstæðra heimilda. Stefnda hafi verið ljóst að hann hafi farið með fleipur enda bætt því við fréttina eftir á að brunavarnir hefðu verið í sæmilegu horfi að sögn slökkviliðs og að maðurinn hefði sjálfur kveikt neistann, þó að aðstæður hans hefðu átt sinn þátt í harmleiknum, ásamt öðru. Samt hafi stefndi fullyrt að stefnendur bæru ábyrgð á dauða mannsins. Engin rök styðji fullyrðingar stefnda. Engin orsakatengsl hafi verið fyrir hendi og andlátið hafi ekki verið sennileg afleiðing af háttsemi stefnenda, heldur hörmulegt slys.
  5. Með ummælunum „Það er ekki að ástæðulausu sem það má með sanni kalla þessa menn þrælahaldara“ hafi stefndi endurtekið og ítrekað ásakanir um þrælahald. Ummælin séu staðhæfing um staðreynd um að stefnendur hafi misnotað fólk, hneppt það í þrældóm og gerst sekir um mansal. Ásakanirnar séu alvarlegar og rangar. Stefnendur hafi hvorki verið kærðir, ákærðir né dæmdir fyrir neina refsiverða háttsemi.
  6. Öll ummælin í dómkröfukafla í stefnu séu fullyrðingar, staðhæfingar um staðreyndir sem feli í sér ásökun um refsiverða og siðferðislega ámælisverða háttsemi stefnenda. Öll ummælin séu ærumeiðandi aðdróttanir og feli í sér brot gegn 235. gr. og 1. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga og beri að ómerkja þau með vísan til 1. mgr. 241. gr. sömu laga. Ummælin séu ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnendur. Hagsmunir þeirra af ómerkingu séu því miklir.
  7. Með því að hafa tekið ljósmyndir af stefnendum ófrjálsri hendi af netinu og skeytt þeim saman við ljósmynd af fasteigninni, ásamt því að kalla stefnendur þrælahaldara, hafi stefndi brotið gegn friðhelgi einkalífs stefnenda. Hver maður eigi rétt til eigin myndar og eigi almennt rétt á að stjórna hvar, með hvaða hætti og í hvaða samhengi ljósmyndir af viðkomandi séu birtar. Gegn þessari grundvallarreglu hafi stefndi brotið og þar með einnig brotið gegn friðhelgi einkalífs þeirra. Í því felist ólögmæt meingerð sem varði skaðabótaábyrgð.
  8. Hver sá sem borinn sé sökum um refsiverða háttsemi skuli talinn saklaus uns sekt hans sé sönnuð að lögum, sbr. 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Handhafar opinbers valds annist rannsókn og saksókn í sakamálum og dómstólar dæmi um sekt eða sakleysi ákærðra manna. Stefndi hafi svipt stefnendur þessum mannréttindum og úthrópað þá sem þrælahaldara án þess að þeir hafi verið ákærðir fyrir slíkt eða dæmdir. Stefndi hafi þverbrotið flestar reglur sem gildi um störf blaðamanna, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, 2. og 6. gr. siðareglna BÍ frá 2023 og almennar óskráðar reglur um rétt þess sem skrifað er um til andsvara. Stefndi hafi því ekki verið í góðri trú við ritun fréttanna 17. október 2023.

    Umfjöllunin hafi verið algerlega einhliða og virðist ekki hafa verið byggð á heimildum heldur skoðunum stefnda og óbeit hans á stefnendum, eins og sé augljóst þegar fréttir stefnda séu lesnar. Ásetningur stefnda virðist hafa verið að meiða æru stefnenda. Beri við mat á miska að horfa til þess. Miskabótakrafa stefnenda sé byggð á 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 enda um að ræða skýr brot gegn 235. gr. og 236. gr. almennra hegningarlaga. Birting og dreifing ærumeiðandi ummæla sé sjálfstætt brot skv. 235. gr. og 2. mgr. 236. gr. laganna.

  9. Krafa stefnenda um birtingu dóms á vefsvæðinu www.samstodin.is byggist á 2. mgr. 59. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla. Samkvæmt dómvenju sé ekki nauðsynlegt að stefna útgáfufélagi fjölmiðilsins enda byggist krafan á skýrum lagaáskilnaði ákvæðisins.
  10. Stefnendur krefjist vaxta skv. 1. ml. 4. gr., sbr. 8. gr., laga nr. 38/2001 og dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga. Upphafstími dráttarvaxta sé þegar mánuður sé liðinn frá dagsetningu kröfubréfs stefnenda.

Helstu málsástæður og lagarök stefnda

  1. Stefndi krefst aðallega sýknu af ómerkingarkröfu stefnenda. Ummælin hafi verið liður í að skapa umræðu um kröfur um brunavarnir í ljósi nýlegrar þróunar og sífelldrar fjölgunar bruna í iðnaðarhúsnæði þar sem leigutakar brenni jafnvel inni. Samanburður á reglugerðum um brunavarnir frá 1994 og 2017 bendi til þess að kröfur hafi verið stórskertar og að auðveldara sé nú að skrá búsetu fólks í iðnaðarhúsnæði.
  2. Tjáningin varði tvö svið sem njóti sérstakrar verndar tjáningarfrelsisákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, þ.e. stjórnmálalega tjáningu og tjáningarfrelsi fjölmiðla. Stefndi sé blaðamaður hjá hinum pólitíska fjölmiðli Samstöðinni sem sé í eigu grasrótarsamtakanna Alþýðufélagsins og skilgreini sig sem fréttamiðil og vettvang „fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fái rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla“. Málið sé brýnt og nú í deiglunni og varði félagslegar aðstæður erlendra verkamanna, búsetuaðstæður þeirra og fleira.
  3. Stefnendur séu ekki sakaðir um neinar athafnir eða athafnaleysi. Í ummælunum felist aðeins huglægt mat stefnda sem í versta falli gæti fallið undir móðgun skv. 234. gr. almennra hegningarlaga en ekki sé á því byggt af stefnendum.
  4. Hvergi í umræddum fréttum hafi verið dróttað að stefnendum að hafa valdið dauða manns. Fjallað sé um að vafasamir starfshættir, „nútíma þrælahald“, hafi dregið mann til dauða. Tilvísun stefnenda til 211. gr. og 215. gr. almennra hegningarlaga um manndráp af ásetningi og gáleysi eigi ekki við. Með hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi gildishlaðin ummæli í opinberri umræðu megi telja ummæli stefnda neikvæðan gildisdóm um að ekki sé hægt að horfa fram hjá því að félagslegar aðstæður hins látna, sem stefnendur hafi almennt hagnast á, hafi átt sinn þátt í harmleiknum, ásamt öðru.
  5. Hræðilegum aðstæðum hins látna hafi verið lýst í viðtali við son hans, Adrian Wisniewski, í Vísi þar sem fram hafi komið að herbergin hafi verið lítil og margt fólk í litlu rými.
  6. Fréttirnar innihaldi engar aðdróttanir á hendur stefnendum heldur aðeins samsettu hugtökin „nútíma þrælahald“ og „nútíma þrælahaldarar“ með fyrirvaranum „nútíma“.

    Þau ummæli séu ekki óþarflega hörð eða sérlega meiðandi. Af heildarsamhengi í hinum stuttu fréttum leiði að þar sem rætt sé um þrælahald og þrælahaldara án „nútíma“- forskeytisins tilheyri sá fyrirvari ummælunum öllum.

  7. Löng hefð sé fyrir því að nota hugtakið „nútímaþrælahald“ í samhengi við afspyrnu slæmt starfsmannahald, hvort sem það varði laun, önnur kjör eða aðrar aðstæður verkafólks. Fjölmörg dæmi sé um það að finna á Tímarit.is, stafrænu safni íslenskra fjölmiðla, hið elsta frá 1957 og síðan æ oftar. Meðal dæma um notkun hugtaksins séu skrif sjómanns 15. janúar 1988 í dagblaðinu Vísi um léleg starfskjör erlendra sjómanna á skipum skráðum í Panama. Hinn 21. mars 2000 hafi láglaunakonur í Eflingu sagt í DV að aðstæður þeirra væru ekkert annað en „nútímaþrælahald“. Þá hafi hugtakið helst verið notað um mansal í kynlífsiðnaði en einnig í fréttum um starfsmannaleigur. Í Fréttablaðinu 2. febrúar 2006 hafi birst frétt undir fyrirsögninni „Ekki nútímaþrælahald“. Þá hafi starfsmannaleigur verið fremur nýjar af nálinni en þó hafi erlendur eigandi viljað ítreka og undirstrika að ekki væri um nútímaþrælahald að ræða.

    Væntanlega hefði hann ekki svarið af sér nútímaþrælahald að fyrra bragði nema slík hugrenningatengsl væru almennt sterk.

  8. Í áburði eða einkunnagjöf um „nútíma“ þrælahald felist vitaskuld aðeins mat stefnda sem gildishlaðin lýsing aðstæðna með staðreyndarþætti en ekki ásökun um refsiverðan verknað. Þetta sé svipað því og rætt sé í daglegu tali um fyrirbæri frá öðrum tíma eða svæði í yfirfærðri merkingu í tíma eða rúmi.
  9. Stefndi hafi ekki notað lagalega refsihugtakið mansal eða ýjað að öðru refsiverðu athæfi.

    Fyrirliggjandi dómafordæmi sýni að m.a.s. beri ekki að skilja ásökun um ólöglegt athæfi bókstaflega sem staðhæfingu um staðreynd heldur meira í ætt við gildisdóm. Jafnvel einkunnir sem tengist hinum alvarlegustu glæpum beri stundum að meta heildrænt sem gildisdóma en ekki ásökun um refsivert athæfi. Starfshættir og starfsemi sem stefnendur tengist geti í almennum málskilningi og þjóðfélagsumræðu fallið undir slíkan áburð og leitt til slíkrar einkunnagjafar. Það verði stefnendur að þola en þeir séu óumdeilanlega virkir þátttakendur á óvægnum kapítalískum markaði sem í einhverjum skilningi sé markaður með fólk, þ.e. sem leigutaka og í öðrum tilvikum sem launafólk. Á þessum markaði séu bæði greidd lág laun og há leiga þannig að farið sé illa með starfsfólk og leigutaka á tvennan hátt og aðstæður þeirra séu verri en hjá láglaunafólki almennt á Íslandi.

  10. Ummæli stefnda séu aðallega sönn, a.m.k. með formerkinu og fyrirvaranum „nútíma“ og þegar litið sé til áréttingar í uppfærslu fréttarinnar strax í kjölfar bréfs lögmanns stefnenda. Viðurlögum verði ekki beitt vegna sannra ummæla.
  11. Til vara byggir stefndi á því að a.m.k. nægilegur staðreyndargrunnur hafi verið fyrir ummælunum. Stefndi verði enda ekki krafinn um staðreyndarsönnun varðandi þá tengingu sem stefnendur sjálfir geri, m.a. í stefnu með tilvísun til þriggja ákvæða almennra hegningarlaga. Líta verði til þess vegna starfsemi stefnenda á markaði. Slíkar bágbornar búsetuaðstæður séu títt og sífellt algengara fréttaefni hérlendis og alkunna.
  12. Fallist dómurinn á tengingu stefnenda varðandi meint hughrif ummælanna telur stefndi til þrautavara að eftirtaldar málsástæður eigi engu að síður að leiða til sýknu:

    Gildisdómar, góð trú, þörf umræða um mikilvæg mál, áhættutaka fyrirsvarsmanna, kælingaráhrif, útbreiðsla, almannaheill, arðsemisrekstur og lýðræðissamfélag.

  13. Stefndi krefst sýknu af skaðabótakröfum stefnenda, jafnvel þó fallist yrði á ómerkingarkröfu þeirra. Í því fælist hæfilegra jafnvægi milli æruverndar stefnenda og tjáningarfrelsis stefnda og mikilvægs hlutverks fjölmiðla í lýðræðissamfélagi. Ummælin hafi ekki haft miska í för með sér fyrir stefnendur. Til vara sé krafist lækkunar bótafjárhæða vegna arðsemisrekstrar stefnenda og meðábyrgðar sem og eignaleysis stefnda og lágra launa. Fjölmiðillinn sé rekinn í almannaþágu eingöngu og því sé krafist niðurfellingar eða lækkunar bóta, sbr. 1. mgr. 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, og er vísað til meðábyrgðar stefnenda á hugsanlegum miska sínum vegna óheflaðs arðsemisrekstrar óháð félagslegum aðstæðum. Áhættutaka tjónþola falli einnig undir meðábyrgð hans.
  14. Upphafstíma vaxta, einkum dráttarvaxta, sé mótmælt enda hafi engin fjárkrafa verið gerð í kröfubréfi lögmanns stefnenda, dags. 20. október 2023. Þá sé með vísan til kælingaráhrifa og annarra málsástæðna stefnda krafist að málskostnaður verði látinn niður falla, að fullu eða að mestu leyti, yrði fallist á kröfur stefnenda. Þó krefst stefndi fulls málskostnaðar sér til handa, sbr. 130. gr. laga um meðferð einkamála. Stefndi krefst einnig sýknu af birtingarkröfu vegna aðildarskorts.

Niðurstaða

  1. Ágreiningur aðila lýtur að því hvort framangreind ummæli stefnda hafi falið í sér ærumeiðingar sem brjóti gegn 235. og 236. gr. almennra hegningarlaga og friðhelgi einkalífs stefnenda eða hvort ummælin rúmist innan tjáningarfrelsis stefnda.
  2. Í málinu vegast á tjáningarfrelsi stefnda, sbr. 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, og friðhelgi einkalífs stefnenda, sbr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hér er um jafnrétthá sjónarmið og réttindi að ræða, sem skarast að mörgu leyti.
  3. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar og Mannréttindadómstóls Evrópu hafa mótast viðmið og reglur sem ber að beita við úrlausn um álitaefnið. Heimildir til að takmarka tjáningarfrelsi samkvæmt 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu ber að skýra þröngt og þurfa þær að grundvallast á nauðsyn í lýðræðisþjóðfélagi.
  4. Talið hefur verið að umræða um þjóðfélagsmál og tjáning sem er framlag til umræðu sem varðar almenning njóti aukinnar verndar tjáningarfrelsis, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar frá 9. febrúar 2022 í máli nr. 38/2021 og dóm Mannréttindadómstólsins 4. maí 2017 í máli nr. 44081/13 (Reynir Traustason o.fl. gegn Íslandi). Sönn ummæli leiða almennt ekki til ábyrgðar, jafnvel þótt þau teljist ærumeiðandi. Þannig takmarkast heimildir til að halda fram lögbroti ekki við tilvik þar sem stjórnvöld eða dómstólar hafa þegar komist að niðurstöðu um slíkt brot. Á hinn bóginn er ljóst, svo dæmi sé tekið, að 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar er því ekki til fyrirstöðu að ómerkt séu ósönn ummæli sem sett eru fram af engu tilefni og í vondri trú, sbr. dóm Landsréttar 3. febrúar 2023 í máli nr. 724/2021. Við mat á því hvort ummæli skuli sæta takmörkunum skiptir þannig máli hvort fremur ber að líta á þau sem gildisdóm en staðhæfingu um staðreynd.

    Gildisdómar njóta aukinnar verndar og verður mönnum ekki gert að sanna þá eða þeim refsað fyrir tjáninguna takist ekki slík sönnun, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar 29. janúar 2009 í máli nr. 321/2008.

  5. Við mat á því hvort takmörkun ummæla teljist nauðsynleg í lýðræðislegu þjóðfélagi skiptir máli að líta til breiðara samhengis þeirra. Ekki er fært að horfa einangrað til þeirra orða sem stefnendur telja meiðandi heldur verður að skýra þau út frá tjáningunni í heild, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar 15. desember 2005 í máli nr. 181/2005 og framangreindan dóm Landsréttar í máli nr. 724/2021.
  6. Þegar litið er til beggja fréttanna sem ummælin sem mál þetta varða voru hluti af verður lagt til grundvallar að fréttirnar hafi verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks, einkum búsetuaðstæður þeirra. Slík þjóðfélagsumræða hefur verið virk í langan tíma og nafn Elju raunar áður komið fram í þeirri umræðu fyrir margt löngu. Í því sambandi er til þess að líta að í annarri fréttinni sem stefndi ritaði var birtur hlekkur á fimm ára gamla frétt um starfshætti félags stefnenda, Elju, af fréttamiðlinum DV.is þar sem fjallað var um þröng búsetuskilyrði og aðbúnað erlends verkafólks, lág laun þeirra og háa húsaleigu.
  7. Samkvæmt framangreindu verður að skoða ummælin í ljósi opinberrar umræðu um þessi brýnu málefni erlends verkafólks hérlendis, en m.a. hafa verið lagðar fram fréttir og umræður um þann aðbúnað, búsetu og laun, að það búi oft margt saman í litlum vistarverum og jafnvel deili herbergjum með öðrum. Í slíkum vistarverum hafa svo sem kunnugt er ítrekað komið upp eldsvoðar, þar með talinn talið sá sem ummæli stefnda lutu að, sem valdið hafa andlátum, sbr. til dæmis dóm Landsréttar 10. júní 2022 í máli nr. 590/2021. Leggja verður til grundvallar að umræða um þessi atriði eigi erindi við almenning og sé mikilvægur þáttur í þjóðfélagsumræðu. Umfjöllunarefni fréttanna sem ummælin voru hluti af snýr þannig að samfélagslegu málefni sem eðlilegt og nauðsynlegt er að komi til almennrar umræðu. Þau ummæli stefnda sem krafist er ómerkingar á féllu í tilefni af þessari umræðu og verða ótvírætt rakin til hennar.
  8. Fyrstu ummælin sem stefnendur krefjast ómerkingar á „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ voru fyrirsögn lengri fréttarinnar, þ.e. fréttar 2, sem stefndi skrifaði á miðilinn samstodin.is og birtist 17. október 2023. Í nefndri frétt var fjallað um starfsemi Elju, félags í eigu og undir stjórn stefnenda, og hún gagnrýnd eins og rakið er í málsatvikakafla. Í fréttinni kemur fram að fasteignin sem brann, Funahöfði 7 í Reykjavík, hafi ekki verið skráð sem íbúðarhúsnæði og margir erlendir verkamenn hafi búið þar. Fasteignin er sögð vera í eigu helstu eigenda Elju og stefnendur nafngreindir, en fyrir þessu var vísað til fréttar á visir.is sem heimildar og birtur hlekkur sem leiddi til þeirrar tilteknu fréttar. Þá var birt mynd af stefnendum þar sem þeim hafði verið skeytt saman við mynd af umræddri fasteign. Eins og áður segir er einnig að finna hlekk í fréttinni á fimm ára gamla frétt í DV um starfsemi Elju. Þá segir í fréttinni að stefnendur hafi skv. umræddri frétt DV „troðfyllt“ húsnæði af erlendum verkamönnum. Síðan segir: „Sú þrælakista stóð við Malarás 16, var þá í eigu dótturfélags Gamma, en í þessu 322 fermetra einbýlishúsi voru 122 útlendingar skráðir með lögheimili. Flestir voru á launaskrá Elju.“ Ummælin beindust að stefnendum, enda voru þeir nafngreindir í báðum fréttunum og birt af þeim mynd.
  9. Til þess er að líta að orðið þrælahaldarar getur vissulega vegið að mannorði þess sem það er haft um. Ekki er þó á það fallist að það vísi eitt og sér til tiltekins refsiverðs verknaðar sem viðkomandi er sakaður um, en í því sambandi hafa stefnendur vísað til 227. gr. a í almennum hegningarlögum. Telja verður að orðin þrælahald og þrælahaldari séu raunar oft notuð með almennum hætti um háttsemi sem sá sem orðin notar telur ámælisverða.

    Enn frekar eigi það við þegar bætt hefur verið við forskeytinu nútíma, „nútíma“ þrælahaldarar. Ekki er á það fallist að orðið þrælahaldari eða nútíma þrælahaldari eins og það er notað í ummælunum, sem og í því framangreinda samhengi sem ummælin eru metin í, feli í sér staðhæfingu eða ásökun um mansal eða brot gegn 227. gr. a í almennum hegningarlögum. Raunar telur dómurinn til þess að líta að í sumum tilvikum sé jafnvel unnt að telja að bein ásökun um refsiverðan verknað geti, í samhengi við umfjöllunina sem slík ummæli eru sett fram í, samt sem áður verið metin sem gildisdómur sem óheimilt sé að takmarka tjáningu á, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu 29. júní 2005 í máli nr. 75955/01, einkum mgr. 46 (Sokolowski gegn Póllandi).

  10. Þó svo að ummælin séu harkaleg og truflandi verður að meta þau heildstætt í samhengi við báðar umræddar fréttir Samstöðvarinnar sem stefndi ritaði sem og í samhengi við heildarumræðuna um aðbúnað erlends verkafólks og þá húsbruna sem í vistarverum þeirra hafa orðið. Með framsetningu ummælanna og í framangreindu samhengi hafa ummælin fremur yfirbragð gildisdóms en beinnar staðhæfingar um staðreynd, sbr. einnig til hliðsjónar dóma Landsréttar 4. mars 2022 í máli nr. 726/2020 og 5. mars 2021 í máli nr. 34/2020.
  11. Fallast verður á það með stefnda að ummælin og fréttirnar sem þau voru hluti af beri það með sér að tilgangur þeirra hafi verið framlag til umræðu um bága stöðu erlendra verkamanna hérlendis. Þó svo að ummælin séu óvægin verður ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að ummælin eða fréttirnar sem þau birtust í hafi haft þann tilgang einan að móðga eða niðurlægja stefnendur af hreinum illvilja, sbr. til hliðsjónar m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu 19. október 2011 í máli nr. 23954/10, einkum mgr. 20 (UJ gegn Ungverjalandi) og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu 11. maí 2014 í máli nr. 4678/07 og 50591/12, einkum mgr. 66 (Tesic gegn Serbíu).
  12. Ummælin í heild sinni sem gildisdómur teljast samkvæmt öllu framangreindu hafa næga stoð í staðreyndum. Þar er einkum litið til þess að í annarri frétt stefnda var birtur hlekkur á frétt á Vísir.is sem heimild þar sem stefnendur voru einnig nafngreindir, og í hinni fréttinni sem ummælin voru hluti af birtist hlekkur á eldri frétt DV um starfsemi Elju, fyrirtækis stefnenda, og vísað til umfjöllunar sem þar kom fram. Að sama skapi verður ekki annað séð en að stefndi hafi verið í góðri trú um réttmæti ummælanna þegar þau féllu að virtu því sem komið hafði fram í umræðunni, m.a. í nefndri frétt DV. Verður stefndi ekki krafinn frekari sönnunar í þeim efnum, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu 26. október 2011 í máli nr. 41262/05, einkum mgr. 96 (Ringier Axel Springer Slovakia A.S. gegn Slóvakíu).
  13. Ummælin sem krafist er ómerkingar á birtust á vefsíðunni samstodin.is sem er skráður fjölmiðill, sbr. 14. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011. Þótt stefndi teljist blaðamaður verður ekki þar með útilokað að honum sé heimilt að tjá skoðanir sínar, draga ályktanir eða setja fram gildisdóma skv. framangreindu, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu 24. febrúar 1997 í máli nr. 19983/92, einkum mgr. 44, 47 og 48 (De Haes og Gijsels gegn Hollandi).
  14. Að öllu framangreindu virtu verður lagt til grundvallar að þótt ummælin hafi verið óvægin hafi stefndi, sem blaðamaður og sem þátttakandi í framangreindri þjóðfélagsumræðu, ekki farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns.
  15. Önnur ummælin sem stefnendur krefjast ómerkingar á, „Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi“, birtust í sömu frétt og hin fyrstu ummæli sem þegar hefur verið fjallað um. Ummælin beinast ekki sérstaklega að stefnendum en þeir eru þó í fréttinni nafngreindir ásamt framangreindri myndbirtingu, sem eigendur og stjórnendur Elju, þ.e. félagsins sem ummælin fjalla um.

    Með vísan til allra sömu sjónarmiða og þegar eru rakin varðandi fyrstu ummælin verða framangreind ummæli einnig talin liður í sömu þjóðfélagsumræðu og rakin er að framan.

    Verður ekki fallist á að stefndi hafi farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með þessum ummælum.

  16. Þriðju ummælin sem stefnendur krefjast ómerkingar á, „Það er ekki að ástæðulausu sem það má með sanni kalla þessa menn þrælahaldara“, birtust einnig í sömu frétt. Til viðbótar við allt það sem að framan er rakið verður lagt til grundvallar að hvað sem því líði að þessi ummæli innihaldi ekki forskeytið „nútíma“ við orðið þrælahaldarar teljist ummælin samt sem áður gildisdómur. Áréttað er að jafnvel ásakanir um refsivert athæfi teljist ekki fyrirvaralaust staðhæfingar um staðreyndir heldur geti talist gildisdómar.

    Orðið þrælahaldarar verður í þessum þriðju ummælum ekki talið sett fram í annarri merkingu en þeirri sem þegar hefur skv. niðurstöðu dómsins talist falla innan marka heimillar tjáningar stefnda. Verður ekki fallist á að stefndi hafi farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með ummælunum.

  17. Stefnendur byggja að auki á meginreglunni um réttinn til eigin myndar og friðhelgi einkalífs síns skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar vegna myndbirtingarinnar. Stefnendur voru nafngreindir í báðum fréttum stefnda en stefndi hafði vísað til fréttar Vísis sem heimildar fyrir þeirri nafngreiningu með hlekk á Vísisfréttina. Umrædd myndbirting var samsett mynd af stefnendum skeytt við mynd af fasteigninni sem brann, svo sem áður greinir.

    Stefndi hefur ekki borið á móti því að myndirnar af stefnendum hafi hann fundið á veraldarvefnum og birt án þess að afla samþykkis þeirra. Þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að ummælin hafi verið innan ramma heimillar tjáningar stefnda, þ.m.t. nafngreining stefnenda. Í lýðræðisþjóðfélagi hafa fjölmiðlar mikilvægu hlutverki að gegna við miðlun upplýsinga og skoðana um þjóðfélagsleg málefni. Á almenningur rétt á að fá upplýsingar sem slík málefni varða og þarf sérstaklega ríkar ástæður til að skerðing á frelsi fjölmiða til birtingar upplýsinga geti talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Þegar meta skal hvar þessi mörk liggja og hvað eigi erindi til almennings verður að líta til stöðu þjóðfélagsmála á hverjum tíma, hvaða málefni beri hæst í opinberri umræðu og séu almennt talin miklu varða. Framangreind umræða varðar eldsvoða í húsnæði sem hýst hefur erlent verkafólk og hefur vakið óhug og umtal og hafa fallið dómar er varða slíka eldsvoða, svo sem áður er rakið. Hefur þessi umræða leitt til ákalls um umbætur fyrir þennan þjóðfélagshóp. Fjölmiðlar hafa þar mikilvægu hlutverki að gegna við að miðla þeirri umræðu til almennings og getur sú umfjöllun jafnvel verið nærgöngul og óvægin.

  18. Stefnendur eiga og reka starfsmannaleiguna Elju og ekki er ágreiningur um að þeir hafi einnig í gegnum önnur félög í þeirra eigu átt stóran eignarhlut í húsnæðinu að Funahöfða
  19. Hafa stefnendur þannig í gegnum starfsemi fyrirtækja í þeirra eigu og undir þeirra stjórn, beinlínis tvíþætta aðkomu að aðbúnaði verkafólks, bæði sem launagreiðendur og sem leigusalar erlends verkafólks. Í þessu sambandi getur ekki haft úrslitavægi hvort sá einstaklingur sem lést í brunanum að Funahöfða 7 hafi á þeim tíma verið atvinnulaus og því ekki starfsmaður Elju, eins og stefnendur halda fram. Við þessar aðstæður getur skerðing á frelsi fjölmiðla til að fjalla um þessi málefni ekki talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Verður þannig lagt til grundvallar að nægar ástæður hafi verið fyrir hendi sem réttlættu umfjöllunina í heild, einnig myndbirtingu og nafngreiningu stefnenda, enda skipti grundvallarmáli hvort hið birta efni, bæði myndir og texti, teljist þáttur í almennri þjóðfélagsumræðu og eigi þannig erindi til almennings. Hvað þetta varðar hefur dómurinn hliðsjón af dómum Hæstaréttar 24. nóvember 2011 í máli nr. 100/2011 og 1. júní 2006 í máli nr. 541/2005 og fellst ekki á að gengið hafi verið nær einkalífi stefnenda, þ.m.t. með myndbirtingunni, en óhjákvæmilegt var í þeirri opinberu umræðu sem ummælin voru liður í. Er það því mat dómsins að tjáningarfrelsi stefnda, þ.m.t. til birtingar umræddrar myndar, vegi þyngra en friðhelgi einkalífs stefnenda og réttur þeirra til eigin myndar.
  20. Samkvæmt öllu framangreindu telur dómurinn að sú tjáning sem um er deilt rúmist innan tjáningarfrelsis stefnda samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Takmörkun tjáningar hans með ómerkingu ummæla eða skyldu til greiðslu miskabóta telst þannig ekki uppfylla skilyrðið um nauðsyn í lýðræðislegu þjóðfélagi. Að fenginni þeirri niðurstöðu eru ekki efni til annars en að sýkna stefnda jafnt af ómerkingarkröfu stefnenda og kröfu þeirra um miskabætur sem og kröfu stefnenda um birtingu dóms og verður stefndi því sýknaður af öllum kröfum stefnenda.
  21. Að virtum úrslitum málsins og 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefnendum gert að greiða stefnda málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn með þeim hætti sem greinir í dómsorði að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málskostnaðar er tekið mið af umfangi málsins og því að samhliða eru rekin tvö mál fyrir dóminum á hendur stefnda.
  22. Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður flutti málið fyrir stefnendur og Gísli Tryggvason lögmaður fyrir stefnda. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Stefndi, Hjálmar Friðriksson, er sýkn af kröfum stefnenda, Arnars Haukssonar, Jóns Einars Eyjólfssonar og Péturs Árna Jónssonar.

Stefnendur greiði stefnda óskipt 930.000 krónur í málskostnað.

Sigríður Rut Júlíusdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 211. gr.215. gr.227. gr. a234. gr.235. gr.236. gr.2. mgr. 236. gr.1. mgr. 241. gr.XXIV. kafli
Lög nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 2. mgr. 70. gr.71. gr.73. gr.3. mgr. 73. gr.
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 1. mgr. 130. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 1. mgr. 24. gr.26. gr.
Lög nr. 62/1994 Lög um mannréttindasáttmála Evrópu 2. mgr. 6. gr.8. gr.10. gr.2. mgr. 10. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 4. gr.1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 38/2011 Lög um fjölmiðla 2. gr.6. gr.14. gr.1. mgr. 26. gr.2. mgr. 59. gr.