Héraðsdómur Reykjavíkur
Úrskurður 31. mars 2025.
Mál nr. E-6730/2024:
Isavia innanlandsflugvellir ehf.
(Hlynur Halldórsson lögmaður)
gegn
Malbikstöðinni ehf. og Colas Íslandi ehf
(Peter Dalmay, Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)
Lykilorð
Afhending gagna. Stjórnvaldsúrskurður. Upplýsingaréttur.
Útdráttur
Stefnandi og meðstefndi Colas kröfuðust þess að úrskurður Úrskurðarnefndar um upplýsingamál yrði ógiltur að hluta, en með þeim úrskurði var stefnanda gert að afhenda stefnda Malbilstöðinni tilgreind skjöl. Málatilbúnaður stefnanda og stefnda Colas varðaði að mati dómsins meira og minna allur efni þeirra gagna sem málið varðar. Þar sem þau gögn lágu ekki fyrir í málinu og því ekki unnt að taka afstöðu til þess málatilbúnaðar. Að öðru leyti taldi dómurinn rökstuðning úrskurðarnefndarinnar í samræmi við þær kröfur sem um það eru settar í upplýsingalögum nr. 140/2012 og stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Var kröfum stefnanda og stefnda Colas því hafnað
Úrskurður
- Mál þetta var höfðað 11. nóvember 2024 af Isavia innanlandsflugvöllum ehf. Reykjavíkurflugvelli gegn Malbikstöðinni ehf., Flugumýri 26, Mosfellsbæ og Colas Íslandi ehf., Gullhellu 1, Hafnarfirði.
- Til úrlausnar í þessum úrskurði er krafa stefnda Malbikstöðvarinnar um að málinu verði vísað frá dómi. Málið var flutt munnlega um framangreindan ágreining 17. mars sl. og tekið til úrskurðar að því loknu.
- Stefnandi krefst þess að eftirfarandi ákvæði í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1219/2024 frá 10. október 2024 í máli nr. ÚNU 23090019 verði felld úr gildi:
Um að stefnanda sé skylt að veita stefnda Malbikstöðinni ehf. aðgang að eftirfarandi gögnum sem varða verðfyrirspurn og samningsgerð um malbikun á nýju flughlaði á Akureyrarflugvelli: Tilboðsskrá stefnda Colas Ísland ehf., dags. 2. maí 2023, sbr. skjal auðkennt með rafræna skráarheitinu „Bill of Quantity – Colas 12.04.2023 endurskoðað 02.05.2023“. Tölvupóstssamskipti milli stefnda Colas Ísland ehf. og stefnanda á tímabilinu frá 25. apríl 2023 til 14. júní sama ár.
Kostnaðaráætlun stefnanda frá júlí 2022 og apríl 2023.
Um að stefnanda sé skylt að veita stefnda Malbikstöðinni ehf. aðgang að samantektarskjali stefnda Colas Ísland ehf., auðkennt af stefnanda sem „Answers to all Quality Requirements in appendix H“. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda Malbikstöðvarinnar ehf.
- Stefndi Colas Íslandi ehf. fellst á kröfur stefnanda fyrir sitt leyti.
- Stefndi Malbikstöðin krefst aðallega frávísunar málsins, en til vara að kröfu stefnanda um að felld verði úr gildi ákvæði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1219/2024 um að stefnanda sé skylt að veita stefnda aðgang að „Kostnaðaráætlun stefnanda frá júlí 2022 og apríl 2023“ verði vísað frá dómi, en sýknað verði af öllum öðrum kröfum stefnanda. Til þrautavara krefst stefndi sýknu af öllum kröfum stefnanda. Þá er krafist málskostnaðar úr hendi stefnanda í öllum tilvikum.
Málsatvik
- Mál þetta varðar rétt sóknaraðila Malbikstöðvarinnar til aðgangs að gögnum í tengslum við tilboð sem stefnandi leitaði eftir í malbikun á Akureyrarflugvöll, en stefndi Colas Íslandi ehf. var einn af þeim, en ekki stefndi Malbikstöðin. Fyrir liggur að stefnandi og stefndi Colas Íslandi ehf. gerðu eftir það samning um verkið.
- Í framhaldinu óskaði stefndi Malbikstöðin eftir svörum við spurningum er vörðuðu þær framkvæmdir og fékk tiltekin gögn um það afhent. Stefnandi synjaði þó um aðgang að öðrum gögnum og af þeim sökum leitaði Malbikstöðin til úrskurðarnefndar um upplýsingarmál 29. september 2023. Með úrskurði nr. 1219/2024, dags. 10. október 2024, lá niðurstaða nefndarinnar fyrir, þar sem staðfest var synjun um ákveðin umbeðin gögn en jafnframt lagt á stefnanda að afhenda önnur tilgreind gögn.
- Stefnandi krafðist þess í framhaldinu að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað meðan málið væri rekið hjá dómsólum og féllst úrskurðarnefndin á þá kröfu að hluta, með úrskurði nr. 1220/2024, dags. 25. október 2024. Hefur stefnandi nú höfðað mál þetta til ógildingar framangreindum úrskurði nr. 1219/2024 frá 10. október sl.
Málsástæður stefnda Malbikstöðvarinnar ehf. um frávísun.
- Í þessum þætti málsins krefst stefndi Malbikstöðin þess að málinu verði vísað frá dómi. Þá krefst hann málskostnaðar úr hendi stefnanda.
- Stefndi byggir frávísunarkröfu sína á því að aðild málsins til varnar sé vanreifuð. Í stefnu sé hvorki gerð grein fyrir því hvernig til óskiptrar ábyrgðar stefndu getur komið né hvernig skilyrði samlagsaðildar eru uppfyllt svo að höfða megi málið sameiginlega á hendur stefndu.
- Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hafi verið lagt til grundvallar að óhjákvæmilegt sé að beina kröfu um ógildingu úrskurða kærunefnda á stjórnsýslustigi að þeim sem áttu aðild að málinu á málskotsstigi enda hafi þeir átt einstaklegra, beinna, sérstakra og lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn viðkomandi stjórnsýslumáls og þeirri ákvörðun eða úrskurði sem fjallað er um í dómsmálinu. Í samræmi við það þurfi allir sem voru aðilar að stjórnsýslumáli og uppfylla framangreint skilyrði að vera aðilar fyrir dómstólum þegar reynir á gildi úrlausnarinnar og þá annaðhvort til sóknar eða varnar.
- Aðilar að stjórnsýslumáli því sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1219/2024 hafi verið stefnandi og stefndi Malbikstöðin. Í samræmi við dómvenju sé stefnda fengið það hlutverk að gæta almannahagsmuna fyrir dómi og verja niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Andstætt stefnda hafi stefndi Colas Íslandi ehf. ekki átt aðild að stjórnsýslumálinu, heldur haft stöðu þriðja aðila, eins og segi réttilega í stefnu, sem hafi verið boðið að koma á framfæri afstöðu sinni til afhendingar á undirliggjandi gögnum.
- Stefndu eigi hvorki óskipt réttindi né beri óskipta skyldu í málinu. Þá sé ekki fyrir hendi sameiginleg ábyrgð þeirra þannig að dómkröfu stefnanda verði beint að þeim í einu og sama málinu. Í raun liggi ljóst fyrir að hagsmunir stefndu stangist beinlínis á, eins og rakið er í stefnu. Af framansögðu leiði að vísa beri málinu frá dómi.
Málsástæður stefnanda hvað varðar frávísun
- Við munnlegan málflutning um ágreiningsefnið krafðist stefnandi þess að frávísunarkröfu stefnda Malbikstöðvarinnar yrði hafnað.
- Stefnandi vísaði til þess að ákvæði 18. og 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála um samaðild tækju annars vegar til þeirrar aðstöðu þegar eðli þeirra hagsmuna sem um væri ræða krefðist samaðildar og fæli hins vegar í sér réttarfarslegt hagræði fyrir aðila sem gætu kosið að standa saman að málssókn.
- Í þessu tilviki sé um að ræða mál til ógildingar á stjórnvaldsákvörðun og þá verði aðilar ekki leiddir inn í atvik máls á grundvelli þess að þeir eigi sameiginleg réttindi eða skyldu. Samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012 gæti hver sem er, af hvaða ástæðu sem er, krafist afhendingar gagna og það án þess að gerð væri krafa um að viðkomandi hefði sérstakra hagsmuna að gæta í því sambandi.
- Stefnandi kvaðst líta svo á að hann og stefndi Colas Ísland ehf. hefðu báðir verulegra hagsmuna að gæta í málinu, og að hagsmunir þeirra féllu saman. Af þeim sökum hefði stefnandi talið nauðsynlegt að stefndi Colas Íslandi ehf. ætti aðild að dómsmálinu, enda gæti niðurstaða þess haft áhrif á hagsmuni félagsins. Af þessum sökum ættu sjónarmið stefnda Malbikstöðvarinnar ekki við í málinu. Nauðsyn stæði til þess að stefndi Colas Ísland ehf. ætti aðild að málinu, og mikilvægt að félagið, vegna hagsmuna sinna gæti tekið til fullra varna sem beinn aðili að málinu.
- Af hálfu stefnda Colas Ísland ehf. var tekið undir málatilbúnað stefnanda og kröfur hans. Þá var af hans hálfu áréttað að stefnandi stjórnaði því hvernig aðild máls væri háttað. Þá bæri að líta til þess hver undirliggjandi ágreiningur málsins væri, þ.e. afhending gagna sem varðaði stefnda mjög miklu.
Niðurstaða:
- Líkt og rakið hefur verið lýtur ágreiningur málsins að úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1219/2014 frá 10. október 2024 í máli nr. ÚNU 23090019. Aðilar þess máls voru annars vegar stefndi Malbikstöðin ehf. og hins vegar stefnandi Isavia innanlandsflugvellir ehf. Í þeim úrskurði var sérstaklega leyst úr því hvort stefndi Malbikstöðin ætti rétt til aðgangs að gögnum sem varða stefnanda og meðstefnda í máli þessu, Colas Íslandi ehf.
- Í nefndum úrskurði nr. 1219/2014 er fjallað sérstaklega um málsmeðferð nefndarinnar. Þar kemur m.a. fram að stefnandi í máli þessu, Isavia, hafi afhent úrskurðarnefndinni umsögn sína ásamt afriti af athugasemdum Colas vegna þess máls. Til þeirra athugasemda Colas er vísað sérstaklega í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Þar segir m.a. að Colas telji að í umræddum umbeðnum gögnum sé að finna atvinnu-, framleiðslu- og viðskiptaleyndarmál, sem Malbikstöðin geti nýtt sér óhindrað fáist þau afhent. Þá lagði Colas áherslu á að Malbikstöðin væri einn helsti samkeppnisaðili félagsins.
- Af framangreindu og gögnum málsins verður ráðið að stefnda Colas hafi gefist kostur á að koma sjónarmiðum sínum að við málsmeðferðina fyrir nefndinni. Að því virtu og efni úrskurðarins, sem liggur fyrir í málinu, verður litið svo á að stefndi Colas kunni að hafa lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um gildi hans og geti því átt aðild að dómsmáli um það sakarefni í samræmi við heimild 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991.
- Þrátt fyrir það ber til þess að líta að stefnandi hefur kosið að haga málum með þeim hætti að stefna til varnar annars vegar nefndu félagi Colas og hins vegar Malbikstöðinni. Það hefur stefnandi kosið að gera þrátt fyrir að hann hafi sjálfur lýst því yfir að hagsmunir hans og Colas séu hinir sömu eða sambærilegir. Liggur því fyrir að hagsmunir þeirra sem stefnt er í málinu eru algerlega öndverðir, og hefur það legið fyrir frá því að málið var rekið fyrir úrskurðarnefndinni. Sömuleiðis liggur fyrir og er óumdeilt að hagsmunir stefnanda og annars stefnda fara saman. Þrátt fyrir það hefur stefnandi ekki gert neinn reka að því að skýra hvers vegna hann telur rétt að haga kröfugerð sinni með þessum hætti. Í ítarlegri stefnu er ekki vikið að framangreindri aðstöðu einu orði, eða færð lagarök fyrir nauðsyn þess að Colas sé stefnt í málinu með þeim hætti sem raun ber vitni. Yfirlýsing stefnanda við málflutning um frávísun, þess efnis að með því væri tryggt að stefndi Colas kæmi að efnisvörnum í málinu, nægir ekki í því sambandi.
- Við svo búið telur dómurinn rétt að vísa málinu frá dómi vegna vanreifunar stefnanda á aðild stefnda Colas Íslandi ehf. að málinu varnarmegin.
- Með hliðsjón af þessum málsúrslitum og með vísan til 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnanda gert að greiða stefnda Malbikstöðinni málskostnað eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
- Bergþóra Ingólfsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Máli þessu er vísað frá dómi. Stefnandi, Isavia innanlandsflugvellir ehf., greiði stefnda, Malbikstöðinni, 350.000 krónur í málskostnað.
Bergþóra Ingólfsdóttir