Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 1. mars 2024.
Mál nr. S-4892/2023:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sigurði Baldri Kolbrúnarsyni
(Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 15. febrúar sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. september 2023, á hendur: „Sigurði Baldri Kolbrúnarsyni, kt. [...], [...], Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 3. júní 2022, á dvalarstað sínum að [...] í Reykjavík haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 7.539,54 g af maríhúana, 109,37 g af kókaíni og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglumenn fundu við leit í íbúðinni.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 7.539,54 g af maríhúana, 109,37 g af kókaíni og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum. Einnig er krafist upptöku á tveimur farsímum (munanúmer [...] og [...]), samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en farsímarnir voru notaðir í samskiptum um fíkniefni. Jafnframt er krafist upptöku á kr. 150.000, sem hald var lagt á í málinu, skv. 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. og 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en peningarnir eru ætlaður ágóði af sölu fíkniefna.“
I
- Ákærði krefst þess að hann verði sýknaður en til vara að honum verið dæmd vægasta refsing er lög leyfa. Þá er þess krafist upptöku á tveimur farsímum og fjármunum að fjárhæð 150.000 krónur verði hafnað. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
- Dómari tók við meðferð málsins 1. nóvember 2023 en hafði fram að þeim tíma engin afskipti haft af meðferð þess.
II
- Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að upphaf málsins megi rekja til annars máls, sem m.a. ákærði var sakborningur í, og varðaði ætluð fíkniefnalagabrot. Vegna þeirrar rannsóknar var óskað eftir heimild til húsleitar hjá ákærða. Að fengnum úrskurði héraðsdóms fór lögregla 3. júní 2022 að [...], sem reyndist ekki vera dvalarstaður ákærða en grunur vaknaði um að hann dveldist að [...], [...]. Þegar lögregla knúði þar dyra opnaði ákærði og mun hann þá hafa verið sjáanlega undir áhrifum örvandi efna og mátti sjá hvítar efnisleifar við nasir hans. Ákærði reyndi að loka hurðinni en lögreglumenn komu í veg fyrir það. Mátti sjá hvíta málningarfötu fyrir aftan ákærða og lék grunur á að í henni væri að finna ætluð fíkniefni. Heimilaði ákærði lögreglu að koma inn í íbúðina og var að hans beiðni kallaður til lögmaður. Fljótlega eftir að leit hófst fundust í íbúðinni nokkrar málningarfötur sem innihéldu mikið magn af kannabisefni. Leit var síðan hætt vegna ábendingar um að rangt heimilisfang væri á húsleitarúrskurði. Síðar sama dag var húsleitinni fram haldið eftir að nýr úrskurður hafði verið kveðinn upp og fundust þá fleiri málningarfötur sem taldar voru innihalda kannabis. Einnig fannst ætlað hvítt fíkniefni sem talið var vera kókaín og var efnið geymt í hulstri undan heyrnartólum. Var allt framangreint efni haldlagt og einnig raftæki ákærða.
- Í skýrslum lögreglu um húsleitina kemur einnig fram að kannabislykt hafi gosið upp þegar ákærði opnaði hurð íbúðarinnar. Þá hafi ætluð jóna verið á loki hvítrar plastfötu sem hafi sést fyrir aftan ákærða og mátti einnig sjá þar matardisk með greiðslukorti ofan á. Var ákærði spurður í upphafi leitar hvort hann vildi framvísa einhverju ólögmætu, t.d. fíkniefnum, og sagði ákærði þá að ekkert slíkt væri í íbúðinni. Við leit fundust stórar plastfötur með ætluðu kannabisefni á gólfi í svefnherbergi. Á eldhúsborði var hvít plastfata með ætluðu kannabisefni og ofan á henni mátti sjá framangreinda jónu eða ætlað tóbaksblandað kannabisefni. Þá fannst í eldhúsi ætlað kannabisefni í glæru plastboxi, á gólfi í stofu glerkrukka með ætluðu kannabisefni og tveir Samsung-farsímar, annar í sófa í stofu og hinn á borði fyrir framan sófann. Samkvæmt munaskýrslu fundust einnig 150.000 krónur í peningaseðlum í stofu. Var framangreint haldlagt og hlé gert á leitinni, eins og rakið er að framan. Þegar leitinni var svo fram haldið var lagt hald á töluvert magn kannabisefna sem fundust í skáp við eldhús og hvít efni sem fundust undir rúmi í svefnherbergi.
- Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu reyndust framangreindir farsímar vera með símanúmerin [...] og [...]. Fylgja skýrslunni skjáskot af samskiptum þar sem ákærði er spurður hvort hann selji MDMA, skilaboð þar sem hann býður ætlað kókaín og vísar þá til þess að það sé ósnert frá suður-a á 20k, og í öðrum skilaboðum býður hann ætluð fíkniefni og vísar til þeirra sem nammi. Þá má þar sjá skilaboð sem benda til þess að ákærði sé að rukka peninga, samskipti er varða nýstraujaðan síma, ræktun kannabisefna og myndir af ræktun kannabis og ætluðu kókaíni í kúlum, sem teknar voru nokkrum vikum áður en húsleitin var gerð, og samskipti sem talin eru varða skipulag fíkniefnasölu.
- Þá liggja fyrir tvær efnaskýrslur tæknideildar lögreglu og er þar tilgreint það efni sem fannst í húsleitinni. Segir þar hvað varðar fyrri hluta leitarinnar að þá hafi fundist samtals 2.204,54 g af maríjúana og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Segir í skýrslunni að alls 1.830 g af maríjúana hafi verið í þremur fötum að sömu stærð, 355 g í 10 pokum sem hafi verið í tveimur fötum, 19,54 g í glerkrukku og 0,12 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,20 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem búið var að vefja í jónu. Hvað varðar seinni hluta leitarinnar hafi fundist 109,37 g af kókaíni og 5.335 g af maríjúana. Fannst kókaínið allt á gólfi í svefnherbergi og var það í sex einingum að þyngd frá 6,85 g upp í 28,67 g. Maríjúana fannst á bak við þil eða vegg í geymslu og var það einnig í sex einingum og var þyngd þeirra á bilinu 115 g til 1.510 g.
- Skýrsla var tekin af ákærða sama dag og húsleitin fór fram. Kom þá fram hjá ákærða að hann væri í hálfu starfi hjá gróðrarstöð og væri búinn að vinna þar í um eitt ár. Fengi hann á bilinu 180.000 til 200.000 krónur í laun á mánuði. Kaus ákærði að tjá sig ekki um það hvort hann fengi einhver svört laun en kvaðst einnig stundum fá peninga frá ættingja. Hann kvaðst ekki vera í daglegri neyslu fíkniefna en hafa verið með partí með vini kvöldið áður. Sagði hann að þær 150.000 krónur sem fundust við leit á heimili hans samræmdust launum hans. Kaus hann að tjá sig ekki um það hvort hann tæki laun sín út í reiðufé, hvað hann borgaði í leigu eða hvernig framangreindir fjármunir væru til komnir.
- Ákærði kvaðst vera eigandi þeirra fíkniefna, kannabis og kókaíns, sem fundust við húsleitina og taldi hann að þetta gætu verið um 5 kg af kannabis, en kvaðst ekki vera framleiðandi efnanna. Vildi hann ekki tjá sig um það hvers vegna efnin hefðu verið í mismunandi umbúðum, þá ætlan lögreglu að efnin væru í sölueiningum, hvað hann hefði greitt fyrir efnin eða hvert magnið hefði í upphafi verið. Kvaðst ákærði ekki vilja tjá sig um það hvar kókaínið hefði verið geymt í íbúðinni. Í lok skýrslunnar sagði ákærði að hann vildi ekki tjá sig um það hvort hann væri eigandi efnanna, um hvaða magn væri að ræða, hvernig og hvað hann hefði greitt fyrir efnin, hvað hann ætlaði að gera við þau eða þá ætlan lögreglu að efnin væru ætluð til sölu og dreifingar.
- Skýrsla var tekin af ákærða á ný 5. janúar 2023. Kom þá fram hjá ákærða að hann hefði ekki verið eigandi þeirra fíkniefna sem fundust hjá honum. Þá voru ákærða kynntar þær upplýsingar sem fundust þegar símar sem haldlagðir höfðu verið hjá honum voru skoðaðir. Hafnaði hann því að þær upplýsingar sem þar kæmu fram tengdust sölu fíkniefna eða þær skuldir sem þar væru nefndar væru vegna slíkrar sölu.
III
- Verður nú gerð grein fyrir framburði ákærða og vitna fyrir dómi að því marki sem nauðsynlegt er til úrlausnar málsins.
- Ákærði kvaðst ekki hafa átt þau efni sem fundust á dvalarstað hans en staðfesti að þau hefðu verið þar og í hans vörslum. Vildi hann ekki tjá sig um það hver hefði átt efnin, það væri ekki áhættunnar virði að upplýsa það. Staðfesti ákærði að hafa í skýrslu hjá lögreglu sagst eiga efnin en hann hefði leiðrétt það seinna í sömu skýrslu og sagt skýrt að hann ætti þau ekki. Kvaðst hann ekki geta sagt hversu lengi efnin hefðu verið í íbúðinni en þau hefðu verið þar nokkrar vikur. Hvað varðaði magn vísaði hann til þess sem fram kæmi í ákæruskjali en samkvæmt því hefði kannabisefnið verið um 7,5 kg. Neitaði ákærði því að hafa tekið þátt í að pakka efnunum í sölupakkningar.
- Var ákærða kynnt að efnin hefðu verið á víð og dreif um íbúðina, í alls kyns pakkningum, krukkum og fötum, og var hann spurður hvort þetta hefðu verið hefðbundnir geymslustaðir og svaraði ákærði því neitandi og sagði að það hefði verið fyllerí og hann hefði verið að reykja eitthvað. Sagði ákærði að megnið af efninu hefði verið í stærri pakkningum og hefði þetta verið geymt í tunnum og í einhverjum boltum. Sagði hann að kannabisefnið hefði verið geymt laust í tunnunum. Vissi hann ekki hve mikið magn hefði verið í hverri tunnu en það hefði verið mikið, um kíló, og væru það ekki sölueiningar. Kvaðst ákærði ekki hafa verið að selja þetta efni.
- Ákærði kvaðst hafa geymt kókaínið í boxi og hefði hann verið að laumast í það þessa nótt áður en húsleitin fór fram en hann hefði ekki verið búinn að nota mikið af því. Það hefði átt að vera á sama stað og annað efni, þ.e. kannabisefnið í tunnunum. Kókaínið hefði verið í einhvers konar plastpokum. Upplýsingar um magn þess hefði hann einnig úr ákæru og skýrslum lögreglu en samkvæmt þeim hefðu þetta verið um 110 g. Honum hafi aldrei verið sagt hvað þetta væri mikið magn og hefði hann fengið kókaínið til geymslu á sama tíma og kannabisefnið.
- Ákærði kvaðst hafa verið illa staddur fjárhagslega þegar hann tók þetta að sér og sæi hann eftir þessu í dag. Hann hefði verið á fylleríi og í neyslu eiturlyfja og öllu sem því fylgdi og væri hann nú hættur í neyslu. Hann hefði séð sig knúinn til að gera þetta á þessum tíma til að hafa húsnæði. Kvaðst hann ekki hafa gert sér grein fyrir áhættu sem þessu fylgdi. Sagði ákærði að hann hefði tekið að sér að geyma efnið fyrir niðurgreiðslu á leigu. Kom fram hjá ákærða að leigusali hans tengdist á engan hátt þessu máli. Spurður hvort hann hefði fengið peninga greidda sem hann hefði notað til að greiða niður leiguna játaði hann því. Kvaðst hann hafa fengið hundrað kall á mánuði fyrir að geyma efnin en ekki hefði komið fram hvað hann hefði átt að geyma þau lengi.
- Sagði ákærði að eigandi efnanna hefði umgengist þau eins lítið og hann hefði komist upp með. Hann hefði komið til hans að sækja efni eða fengið einhvern annan til að gera slíkt. Hefðu bara eigandi efnanna og hans undirmenn verið í samskiptum við hann vegna efnanna. Spurður hvort magnið hefði verið meira svaraði ákærði því neitandi en sagði svo að það hefði einungis verið einn poki af grasi í viðbót sem hann hefði látið einhvern gaur fá. Gæti hann þó ekki fullyrt að það hefði einungis verið einu sinni sem slíkur pakki hefði verið sóttur en það hefði ekki verið oft. Þegar efnin komu upphaflega til hans hefði einhver komið með þau. Hann hefði fengið sem minnstar upplýsingar og svo hefði einhver komið í heimsókn. Hefði hann í rauninni ekki fengið nein skilaboð því tengd, einungis verið sagt að viðkomandi myndi hafa samband og svo fengi hann þessa niðurgreiðslu á leigu. Það hefði ekki verið orðað á þennan hátt en þetta hefði verið catchið eða fúttið fyrir hann. Hann hefði ekki fengið neinar leiðbeiningar, t.d. hvað varðaði geymslu, en verið sagt að hafa þetta bara skipulagt og snerta ekki við því, þ.e. nota ekki efnin, en hann hefði gert það samt. Hefði hann engar leiðbeiningar fengið um að hann ætti að fela efnin eða geyma þau á tilteknum stöðum. Hann hefði hitt eiganda efnanna á djammi og það orðið til þess að hann tók þetta að sér.
- Sagði ákærði að það hefði ekki verið mikil hreyfing á efnunum. Kvaðst hann halda að efnin hefðu verið til sölu en hann vissi það ekki. Væri það magnið og fyrirkomulagið sem vekti þann grunn. Kvaðst hann hafa verið búinn að líta á öll efnin og staðfesti að hann hefði verið búinn að skoða ofan í föturnar.
- Var ákærða kynnt að símar í hans eigu hefðu verið haldlagðir og þar hefðu verið skilaboð sem lögregla teldi gefa til kynna hann hefði verið að selja fíkniefni. Sagði ákærði að einhver skilaboð gætu hafa virst snúast um það en þau hefðu varðað neysluskammta og verið milli hans og félaga hans sem tengdist þessu máli ekki. Kynnt að í símanum hefði m.a. verið að finna myndir af kannabisræktun og kókaíni í plastumbúðum sagði ákærði að hann hefði ekki komið neitt nálægt ræktuninni sem sæist á myndunum.
- Var ákærða kynnt að í síma hefðu verið skilaboð þar sem hann hefði haft samband við tiltekinn aðila og spurt hann hvort hann vantaði ekki kókaín fyrir áramótin og sagt að hann hefði aðgang að hreinu kókaíni frá Suður-Ameríku. Sagði ákærði þá að þessi einstaklingur hefði verið drykkjufélagi hans og hefði hann viljað fá sér með honum, alveg óháð þessum efnum. Þá væri önnur skuld sem þar kæmu fram upplýsingar um allt að fimm ára og hefði hann þá talið sig vera að lána viðkomandi til að greiða lögmanni og sá hefði þannig svikið þessa fjármuni út úr honum.
- Ákærði sagði að kaupverð á þessu sjö og hálfu kg af maríjúana væri 11‒12 milljónir króna og hefði hann ekki getað fjármagnað slíkt, hann hefði verið eignalaus á þessum tíma. Þá kvaðst hann ekki vita hvort kókaínið hefði verið í neyslupakkningum eða stærri einingum. Vissi hann ekki hve mikið hefði verið í hverri kúlu, sjálfsagt meira en í neyslupakkningu. Sagði ákærði að það hefði ekki haft afleiðingar fyrir hann að efnin hefðu verið gerð upptæk.
- Lögreglumaður nr. A sagði að lögreglan hefði fengið gögn frá frönsku lögreglunni, Europol, varðandi samskipti sem hefðu átt sér stað á Encrochat. Þar hefðu komið fram mál sem voru rannsökuð samhliða og hefði Saltdreifara-málið verið mest áberandi af þeim. Þarna hefðu verið samskipti milli íslenskra aðila og tveggja manna sem voru staddir á skútu á Spáni. Lögregla hefði greint gögnin og komist að því að [...] væri ákærði. Þeir hefðu verið í samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og svo hefði Saltdreifara-málið klárast en eftir hefði staðið að engin svör hefðu fengist frá Spáni um afdrif málsins sem tengdist skútunni. Hefði þá verið ákveðið að óska eftir heimild til að gera húsleit hjá ákærða og reyna að komast eitthvað nær því þeim megin frá hver aðild hans væri að þessari skútu á Spáni.
- Vitnið sagði að eftir að húsleitarúrskurður hefði verið fenginn hefðu þeir fundið ákærða í annarri tilraun á stað sem þeir töldu vera dvalarstað hans. Ákærði hefði komið til dyra þegar þeir bönkuðu og virtist sem þeir hefðu verið að vekja hann. Hefði hann borið með sér að hafa verið undir áhrifum þegar hann hefði farið að sofa og hefði hann verið með hvítt í nösum. Þeir hefðu séð málningarfötu fyrir aftan ákærða og hefði hann ekki viljað hleypa þeim inn, en það hefði endað með því að þeir fóru inn og hefði ákærði fljótlega heimilað leit en viljað hafa lögmann viðstaddan og hefðu þeir þá haft samband við lögmann.
- Vitnið sagði að við leitina hefðu þeir fundið talsvert magn af kannabisefnum og um hundrað grömm af kókaíni. Hefði ákærði síðan verið yfirheyrður vegna þessa og spurður út í aðkomu sína að þessu máli sem hefði komið fram í Encrochat-gögnunum. Kannabisefnið hefði verið í málningarfötum sem bæði hefðu verið inni í svefnherbergi og einhvers staðar frammi og verið nokkuð áberandi og hefði ekki verið erfitt að finna þær. Kókaínið hefði verið í stóru heyrnartólaboxi inni í svefnherbergi en hann myndi ekki nákvæmlega hvar. Það hefði verið búið að rækta og þurrka kannabisefnið og það verið tilbúið til sölu og til að vera sett niður í poka, hvernig sem það færi fram. Kvaðst vitnið ekki muna hvort eitthvað af efninu hefði verið í sölupakkningum. Hann myndi eftir þessum stóru fötum og gæti ekki svarað því hvort eitthvað hefði verið í minni pokum.
- Vitnið kvaðst hafa skoðað síma ákærða og þar hefði komið fram að hann hefði verið í samskiptum við einhvern aðila sem hann hefði sagt að hann væri að rækta kannabisefni. Miðað við magnið, 7 kg, myndi vitnið halda að það hefði verið til sölu en ekki einkaneyslu. Það sama ætti við um kókaínið, sem hefði verið um 100 g. Það hefði komið fram í einhverjum símasamskiptum að ákærði væri að selja það beint frá Brasilíu eða einhverju slíku landi þaðan sem það kæmi hreint hingað til lands. Kæmi þetta fram í skýrslu sem hann hefði gert um skoðun á farsíma ákærða. Teldi hann það benda til þess að ákærði hefði verið að dreifa efnunum.
- Vitnið kvaðst ekki muna hvort það hefði fundist vigt, pokar eða annað sem tengdist smásölu hjá ákærða. Kvaðst vitnið hafa verið við fyrri hluta húsleitarinnar sem hefði svo verið hætt en ekki hafa komið að seinni hlutanum. Talsvert magn fíkniefna hefði verið haldlagt í fyrri hlutanum, nokkrar málningarfötur. Kvaðst hann halda að einnig hefðu nokkrar fötur verið teknar í seinni leitinni.
- Lögreglumaður nr. B kvaðst hafa verið í hópi sem hefði verið að rannsaka Encrochatgögn og hefði þáttur ákærða verið einn liður í því. Þeir hefðu farið í húsleit hjá honum og hefðu fíkniefnin þá fundist. Vitnið kvaðst hafa farið í fyrri hluta húsleitarinnar en hlé hefði síðan verið gert á henni. Staðfesti vitnið að hafa unnið skýrslu um þá húsleit. Kannabisefnið sem þeir fundu hefði verið geymt í stórum svörtum plastfötum. Þá hefði lítilræði af efninu verið í hvítri plastfötu í eldhúsi og í glerkrukku og einhverju álíka. Kókaínið hefði fundist í seinni húsleitinni. Þegar spurt var hvort eitthvað af efninu hefði verið í sölupakkningum sagði vitnið að það væri erfitt að tala um sölupakkningar, það væri hægt að selja efni í fötum. Hefði virst eins og þarna væri verið að selja mikið magn í einu en kannski ekki verið að selja þessar hefðbundnu sölueiningar þar sem selt væri eitt og eitt gramm. Kvaðst hann hafa séð myndir af kókaíninu og hefði það verið í bullettum, sem væri hefðbundið. Miðað við magnið hefði þetta að hans mati ekki verið til einkaneyslu.
- Hvað varðaði það magn sem fannst í fyrri og seinni hluta húsleitarinnar vísaði vitnið til þeirra efnaskráa sem liggja fyrir í málinu. Þeir hefðu þurft að hætta húsleitinni og þá tekið sýnileg efni og farið. Gæti hann ekki svarað því hvort fundist hefði vigt eða annað sem benti til smásölu. Kvaðst hann ekki hafa komið að seinni hluta húsleitarinnar. Umfang efnanna og hvernig þau hefðu verið geymd benti, að mati vitnisins, til þess að efnin hefðu verið seld í meira magni en neysluskömmtum. Í seinni húsleitinni hefði fundist eins efni falið í skáp. Þá hefðu fundist gögn í símum sem voru haldlagðir þar sem m.a. var verið að rukka um háar fjárhæðir. Samkvæmt reynslu vitnisins væri þá verið að selja í stærri einingum og staðfesti vitnið að þá væri venjulega verið að selja til milliliðar. Væru menn að kaupa eitt kg af kannabisefni til að fá það á heildsöluverði. Einnig hefðu myndir af ræktun og fleira fundist í símunum.
IV
Niðurstaða
- Ákærði er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 7.539,54 g af maríjúana, 109,37 g af kókaíni og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Í ákæru er háttsemi ákærða talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
- Ákærði neitar sök. Við rannsókn málsins viðurkenndi ákærði upphaflega að vera eigandi efnanna en í sömu skýrslu breytti hann afstöðu sinni á þann veg að hann vildi ekki tjá sig um það. Í síðari skýrslunni sem hann gaf hjá lögreglu og fyrir dómi kvaðst hann ekki vera eigandi þeirra. Ákærði viðurkenndi fyrir dómi að hafa haft vörslur þeirra fíkniefna sem greinir í ákæru á þeim tíma sem þar greinir en hafnaði því að vörslur hans hefðu verið í sölu- og dreifingarskyni. Kom fram hjá honum að hann hefði haft efnið í vörslum sínum í nokkrar vikur og fengið greiðslu fyrir og verður framburður hans skilinn svo að greiðslan samsvari hundrað þúsund krónum á mánuði.
- Ákærði kvaðst hafa geymt efnin fyrir eiganda þeirra en sjálfur hefði hann skoðað efnin og greindi hann frá því í fyrri skýrslunni sem hann gaf hjá lögreglu að um kannabisefni og kókaín væri að ræða. Þá hefur ákærði viðurkennt að hafa sjálfur notað af kókaíninu og kannabisefni var tilbúið til neyslu í íbúðinni, í formi jónu, þegar leitin fór fram, samkvæmt skýrslum lögreglu. Af þessu verður ráðið að ákærða var fullkunnugt um hvaða efni hann hefði verið að geyma. Er óumdeilt að magn efnanna var það sem í ákæru greinir og hefur ákærði ekki dregið það í efa. Er sannað með játningu ákærða og skýrslum lögreglu og framburði þeirra lögreglumanna sem komu að húsleitinni og báru um að hafa fundið efnin á dvalarstað ákærða að ákærði hafi haft efnin í vörslum sínum.
- Þá kom fram hjá ákærða fyrir dómi að eigandi efnanna og aðilar á hans vegum hefðu komið til hans, m.a. þegar honum var afhent efnið og til að sækja efni. Bar ákærði um að hafa a.m.k. einu sinni afhent fíkniefni.
- Um er að ræða mikið magn efna, bæði þegar litið er til þess maríjúana sem fannst og kókaínsins, og langt umfram það magn sem almennt er talið vera til einkaneyslu. Þá var búið að skipta efnunum niður í smærri einingar. Bæði ákærði og þeir lögreglumenn sem komu fyrir dóminn töldu magn efnanna benda til þess að þau væru ætluð til sölu. Einnig bentu lögreglumennirnir á að efnin hefðu verið í mismunandi pakkningum og að efni væru ekki einungis seld í pakkningum sem innihéldu neysluskammt heldur einnig í meira magni til að selja áfram.
- Þá benda gögn sem fundust í þeim farsímum sem haldlagðir voru, og að framan eru rakin, til þess að notandi þeirra stundi sölu fíkniefna. Hefur ákærði ekki neitað því að vera notandi þessara farsíma og útskýrði hann þau skilaboð sem þar koma fram. Er það mat dómsins að þær skýringar séu á engan hátt fullnægjandi og verður að telja að framangreind skilaboð staðfesti fíkniefnaviðskipti ákærða.
- Með vísan til framangreinds verður að telja sannað að ákærði hafi haft efnin í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni og verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
- Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 30. ágúst 2023, hefur honum tvisvar verið gerð refsing vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þannig gekkst ákærði undir greiðslu sektar með sektargerð lögreglustjóra 22. mars 2019 og var með dómi héraðsdóms [...] 2020 dæmdur í þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Hefur sá dómur ekki ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar ákærða nú, sbr. 61. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls, og er þá sérstaklega horft til magns og hættueiginleika þeirra efna sem um ræðir, og þess að það var ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.
- Með vísan til þeirra lagaákvæða er greinir í ákæru eru gerð upptæk 7.539,54 g af maríjúana, 109,37 g af kókaíni og 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Ákærði hafnar kröfu ákæruvaldsins um upptöku á tveimur farsímum (munanúmer [...] og [...]) og 150.000 krónum í reiðufé sem hald var lagt á við rannsókn málsins. Af málsgögnum verður ráðið að framangreindir farsímar hafi verið notaðir eða þeir ætlaðir til notkunar við framningu brots. Ákærði hefur viðurkennt að hafa fengið greitt fyrir þátttöku sína í brotunum. Þá hefur hann ekki skýrt uppruna framangreindra fjármuna með fullnægjandi hætti. Loks er sú háttsemi sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir til þess fallin að hafa í för með sér ávinning. Er fullnægt lagaskilyrðum upptöku hvað farsímana og fjármunina varðar og verður því fallist á þessar upptökukröfur ákæruvaldsins með vísan til þeirra lagaákvæða er greinir í ákæru.
- Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jónasar Arnars Jónassonar lögmanns, 1.200.000 krónur, og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts og vinnu lögmannsins á rannsóknarstigi. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi.
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.
Dómsorð:
Ákærði, Sigurður Baldur Kolbrúnarson, sæti fangelsi í 12 mánuði.
Ákærði sæti upptöku á 7.539,54 g af maríjúana, 109,37 g af kókaíni, 0,32 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, tveimur farsímum og reiðufé að upphæð 150.000 krónur.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jónasar Arnars Jónassonar lögmanns, 1.200.000 krónur.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir