Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. apríl 2022.
Mál nr. S-635/2022:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Emil Árna Guðmundssyni
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Akstur undir áhrifum lyfja. Fangelsi. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Ævilöng svipting ökuréttar.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 23. mars sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 1. febrúar 2022, á hendur Emil Árna Guðmundssyni, kt. [...], [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðar- og hegningarlagabrot, með því að hafa:
- Föstudaginn 3. apríl 2020 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóði mældist amfetamín 55 ng/ml og klónazepam 5,2 ng/ml) suður Hraunbæ í Reykjavík, til móts við hús nr. [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Fimmtudaginn 9. júlí 2020 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti norður Höfðabakka í Reykjavík, við Bíldshöfða, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Föstudaginn 18. desember 2020 brotist inn í verslun 66° Norður að [...] í [...] og stolið þaðan þremur úlpum, samtals að verðmæti kr. 197.000.
Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Laugardaginn 19. desember 2020 í heimildarleysi og auðgunarskyni reynt að brjótast inn í verslun 66° Norður að [...] í [...] þar sem komið var að ákærða.
Telst brot þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Þriðjudaginn 12. október 2021 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóði mældist oxýkódon 340 ng/ml) um Mjódd í Reykjavík, við Stekkjarbakka, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa, þess að refsing verði skilorðsbundin og hæfilegrar þóknunar sér til handa. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 25. janúar 2022, var ákærða gert að greiða sekt með tveimur lögreglustjórasáttum 27. október 2017 meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ákærða gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti í 24 mánuði frá 27. október 2020 með lögreglustjórasátt 3. desember 2019 meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti og ölvunarakstur. Að öðru leyti kemur sakarferill ákærða ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar nú.
Við ákvörðun refsingar verður þannig við það miðað að ákærði hafi nú í þriðja sinn gerst sekur um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að ákærði játaði skýlaust sök fyrir dómi og verður það metið til refsimildunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 139.500 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 264.319 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari. Samúel Gunnarsson, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Emil Árni Guðmundsson, sæti fangelsi í 60 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 139.500 krónur og 264.319 krónur í annan sakarkostnað.
Samúel Gunnarsson