Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 10. mars 2023.
Lykilorð
Samningur. Stálvirkjameistari.
Útdráttur
Samkomulag tókst á milli stefnanda og stefnda þar sem fyrirsvarsmaður stefnanda samþykkti að vera áfram skráður stálvirkjameistari stálgrindarhúss í byggingu, tímabundið þar til stefndi hefði fundið hæfan aðila til starfans á eigin vegum. Ekki þótti sýnt fram á að samkomulag aðila hefði staðið áfram eftir það tímamark að stefndi hafði tilkynnt stefnanda og byggingarstjóra byggingarinnar um annan aðila sem taka skyldi við sem stálvirkjameistari.
dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, af 2.999.908 krónum frá 19. desember 2018 til 16. júlí 2021 og dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga af 24.932.928 krónum frá 16. júlí 2021 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar.
- Stefndi krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda en til vara að kröfur stefnanda verði lækkaðar. Þá krefst stefndi málskostnaðar.
Yfirlit málavaxta og ágreiningsefna
- Stefnandi EOH ehf. er félag í eigu Bjarna Guðjóns Bjarnasonar stálvirkjameistara og starfar á sviði byggingaframkvæmda við hönnun og gerð stálgrindarhúsa og eftirlit við byggingu slíkra mannvirkja. Stefndi, Húsasmiðjan ehf., og félagið Dalsnes ehf. gerðu þann 28. nóvember 2017 með sér verksamning um framleiðslu og uppsetningu á stálvirki, trapizuplötum og klæðningum í húsbyggingu að Korngörðum 3 í Reykjavík. Um var að ræða byggingu stálgrindarhúss, 15.500 fermetrar að stærð, með steyptum stigakjörnum og steyptum vegg til afstífingar, klædd með samlokueiningum og glerklæðningu. Stálgrindarhúsið skiptist í vöruhús á jarðhæð, millihæðir og skrifstofuhúsnæði.
- Verksamningur stefnda og Dalsness ehf. tók til framleiðslu og uppsetningar á stálvirki byggingarinnar, þ.m.t. trapizu í þaki og í milligólfum auk samlokueininga í útveggjum vöruhúsahluta og frysti- og kæliklefa, flóttahurða og reyklúga. Skyldi stefndi leggja til allt efni og öll verkfæri vegna verksins, útvega og setja upp verkpalla, sjá um alla aðstöðusköpun, sjá um flutning efnis á staðinn og alla förgun á efnisafgöngum. Samkvæmt 3. gr. samningsins skyldi stefndi útvega meistara fyrir stálvirki og klæðningu vegna verksins en verkkaupi, Dalsnes ehf., leggja til byggingarstjóra. Samkvæmt 2. gr. samningsins skyldi verkkaupi hafa eftirlit með verkinu og ráða sérhæfða aðila til verksins. Í 7. gr. samningsins var gerð grein fyrir verktíma og skiladagsetningum með sundurliðuðum hætti en fram kemur að allar skiladagsetningar samningsins hafi miðast við að ekki yrðu tafir af völdum hönnunar og ákvarðana verkkaupa og útgáfu framkvæmdaleyfa.
- Stefnandi og Dalsnes ehf. gerðu með sér samkomulag um aðkomu stefnanda að byggingu stálgrindarhússins á upphafsstigum verksins en stefnandi tók að sér að vera stálvirkjameistari strax við umsókn um byggingarleyfi. Var síðan ætlunin að skipt yrði um meistara þegar stefndi kæmi að verkinu. Varðaði aðkoma stefnanda að verkinu fyrir Dalsnes ehf. að öðru leyti einkum verkeftirlit og hönnun stálvirkis.
- Í fyrstu hafði stefndi ætlað starfsmanni sínum, Ingvari Skúlasyni, að vera stálvirkjameistari á byggingunni fyrir sína hönd en þegar til kom reyndist Ingvar ekki hafa tilskilin réttindi til starfans. Þurfti stefndi því að finna annan hæfan aðila til verksins. Samkvæmt óundirrituðum drögum þjónustusamnings, dags. 21. júní 2018, sem stöfuðu frá stefnanda, milli stefnda og Bjarna, eiganda og fyrirsvarsmanns stefnanda, skyldi Bjarni taka að sér lögbundna þjónustu stálvirkjameistara í tengslum við reisningu og frágang stálvirkis að Korngörðum 3. Skyldi verðið fyrir hvern mánuð, 1.499.904 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti, miðast við fasta viðveru þrjá daga í viku og væri tímagjaldið 12.000 kr. á klukkustund. Stefndi hefur mótmælt að hafa undirritað, samþykkt eða yfir höfuð séð þessi samkomulagsdrög. Þann 22. júní 2018 staðfesti Bjarni með tölvupósti til Júlíusar Jóhannessonar byggingarstjóra Dalsness ehf., að beiðni Ingvars Skúlasonar, þáverandi starfsmanns stefnda, að samkomulag hefði orðið milli aðila um að Bjarni yrði áfram skráður stálvirkjameistari á byggingunni. Í tölvupósti Bjarna segir að hann „staðfesti að samkomulag hefur orðið milli mín (EOH) og Húsasmiðjunnar um [að] uppáskrift mín sem meistari á verkinu við Korngarða 3 Reykjavík mun standa áfram svo hægt sé að byrja reisningu stálgrindar á svæðinu“. Nefnd óundirrituð samningsdrög fylgdu þó ekki þessum tölvupósti.
- Stefnandi gaf út tvo reikninga vegna vinnunnar, í júlí 2018 annars vegar og ágúst hins vegar, báða sömu fjárhæðar, þ.e. 1.499.904 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti. Stefndi greiddi báða reikningana.
- Á verkfundi þann 6. september 2018 var bókað að hlutverk Bjarna sem stálvirkjameistara á grundvelli samnings við stefnda væri tímabundið og að stefndi hefði á verkfundinum upplýst að fyrirhugað væri að Guðbjartur Halldórsson yrði stálvirkjameistari verksins. Til að svo mætti verða þyrfti að breyta skráningu stálvirkjameistara á verkinu í næstu viku þar á eftir. Samkvæmt fyrirliggjandi verkfundargerð þessa verkfundar voru mættir á fundinn meðal annarra fyrir hönd stefnda Ingvar Skúlason og Guðbjartur Halldórsson. Fyrir hönd verkkaupans Dalsness ehf. voru mættir á fundinn meðal annarra Bjarni, byggingarstjórinn Júlíus Jóhannesson, auk Ólafs Björnssonar, fyrirsvarsmanns Dalsness ehf.
- Í málinu liggja fyrir tölvupóstsamskipti á tímabilinu 1.–6. september 2018 milli Bjarna, Ingvars Skúlasonar, þáverandi starfsmanns stefnda, Júlíusar byggingarstjóra, Ólafs, fyrirsvarsmanns Dalsness ehf., Guðbjarts Halldórssonar og Finns Guðmundssonar, starfsmanna stefnda, þar sem rætt var um fyrirhuguð skipti á stálvirkjameistara. Kemur fram í tölvupósti 1. september 2018 af hálfu Júlíusar byggingarstjóra að stefndi hefði tilkynnt á síðasta fundi aðila að Guðbjartur Halldórsson yrði stálvirkjameistari stefnda en að Bjarni Bjarnason, eftirlitsmaður Dalsness ehf., hefði leyst það hlutverk af hendi tímabundið fyrir stefnda. Óskaði Júlíus byggingarstjóri eftir að aðilar skiluðu greinargerð um stöðu verks og skil á því frá Bjarna til Guðbjarts og sagði að skrifa þyrfti undir eyðublað byggingarfulltrúa um meistaraskipti. Þann 6. september 2018 barst annar póstur frá Júlíusi byggingarstjóra til sömu móttakenda þar sem fram kom að hann hefði átt samtöl við Mannvirkjastofnun þar sem fram hefði komið að Guðbjartur þyrfti að vera skráður stálvirkjameistari hjá stofnuninni, ekki dygði að vera skráður sem vélvirkjameistari. Því gætu meistaraskipti ekki farið fram fyrr en að leiðréttum þessum skráningum Guðbjarts hjá Mannvirkjastofnun. Þessu svaraði Guðbjartur samdægurs og taldi réttindi sín fullgild og til jafns við réttindi Bjarna. Benti Guðbjartur í póstinum á að hann hefði verið meistari á fjölda stálgrindarhúsa og bað Júlíus því um að undirbúa pappíra fyrir skiptin sem Guðbjartur og Bjarni myndu undirrita. Þá liggja fyrir í málinu tölvupóstar Guðbjarts og starfsmanns byggingarfulltrúa Reykjavíkur 28. september og 1. október 2018, þ.m.t. afrit úr færslubók þar sem fram kemur listi 18 fasteigna sem Guðbjartur hafði verið skráður járnsmíðameistari að, m.a. vegna stálvirkis. Fyrir liggur í málinu að réttindi Guðbjarts hafi verið uppfærð hjá Mannvirkjastofnun í stálvirkjameistara auk vélvirkjameistara árið 2018.
- Samkvæmt gögnum málsins var Bjarni allan byggingartímann skráður sem stálvirkjameistari vöruhúsahluta byggingarinnar og ekki varð úr að Guðbjartur yrði skráður sem slíkur á bygginguna hvað sem framangreindum tölvupóstsamskiptum líður.
- Í málinu liggja fyrir allnokkrar verkfundargerðir og var Bjarni viðstaddur alla verkfundi utan eins, og í hvert sinn skráður sem mættur á vegum verkkaupa, Dalsness ehf. Guðbjartur Halldórsson var ýmist skráður sem mættur fyrir hönd stefnda á verkfundina eða sem móttakandi fundargerða, frá og með 14. júlí 2018. Í fyrstu fyrirliggjandi fundargerð verkfundar frá 30. maí 2018 má ráða að fyrst hafi verið fyrirhugað að Ingvar Skúlason yrði stálvirkjameistari á verkinu f.h. stefnda, líkt og áður greinir. Síðar kom í ljós að sú fyrirætlan gengi ekki eftir þar sem Ingvar skorti nauðsynleg réttindi. Þann 6. september 2018 var síðan haldinn verkfundur sem áður hefur verið frá greint, þar sem fram kom að það samkomulag aðila um að Bjarni sinnti stálvirkjameistarahlutverki hafi verið hugsað sem tímabundin lausn þar til Guðbjartur Halldórsson tæki við, svo sem áður er rakið. Samhljóða bókun er einnig að finna í seinni verkfundargerðum en fyrirkomulag ritunar verkfundargerða í málinu var með þeim hætti að nýjar bókanir frá fundinum voru auðkenndar með bláum lit og eldri bókanir af fyrri fundum voru endurteknar með svörtum lit í seinni fundargerðum jafnvel þótt fundarefnið hafi ekki verið endurtekið rætt á fundunum.
- Þann 19. desember 2018 gaf stefnandi út tvo reikninga á hendur stefnda. Sá fyrri nr. 134, var að fjárhæð 1.499.904 kr. og segir í texta reikningsins að um sé að ræða útselda þjónustu stálvirkjameistara í september. Sá síðari nr. 135, var sömu fjárhæðar fyrir útselda þjónustu stálvirkjameistara í október. Fyrir liggur að stefndi hafnaði að greiða þessa reikninga.
- Á verktíma kom upp ágreiningur um herslur stálgrindarinnar. Hafði Guðbjartur Halldórsson skilað í desember 2018 skýrslu um herslur stálgrindarinnar og talið þær fullnægjandi. Júlíus byggingarstjóri taldi hins vegar að prófanir eftirlitsmannsins Bjarna á herslunum hefðu sýnt fram á að skýrslan væri röng og herslurnar ófullnægjandi. Í kjölfarið fékk stefndi félagið Suðulist ehf. til að framkvæma herslurnar upp á nýtt, en Bjarni fyrirsvarsmaður stefnda var á umræddum tíma skráður eigandi og meðstjórnandi Suðulistar ehf. skv. skráningu í fyrirtækjaskrá. Suðulist ehf. gerði stefnda 10 reikninga vegna hersluverkefnisins ásamt fleiri verkefnum en herslurnar mun Suðulist ehf. hafa unnið við í janúar og fram í maí 2019.
- Eins og áður greinir höfðu stefnandi og Dalsnes ehf. gert með sér samkomulag um ýmsa aðkomu stefnanda að verkinu fyrir hönd Dalsness ehf., einkum hvað varðar verkeftirlit og hönnun stálvirkis, þ.m.t. vinnu með erlendum stálvirkjahönnuðum byggingarinnar. Stefnandi hefur upplýst að félagið hefði á tímabilinu 1. júlí 2018 til 31. október 2021 gefið út 31 reikning á hendur Dalsnesi ehf. vegna byggingar Korngarða 3.
- Meðan á byggingu hússins stóð kom upp ýmis ágreiningur milli Dalsness ehf. og stefnda Húsasmiðjunnar ehf. og að einhverju leyti stefnanda um framkvæmd verksins. Sneru deilur aðila m.a. að töfum á verkinu. Vegna þessa gerðu Dalsnes ehf. og stefndi viðaukasamning þann 1. apríl 2019 þar sem skírskotað var til viðræðna sem þeir aðilar hefðu átt „undanfarna mánuði um ýmis vandamál og álitaefni sem hafa komið upp, m.a. vegna hönnunartíma, afhendingar hönnunargagna og framkvæmdartíma“. Deildu stefndi og Dalsnes ehf. þannig um ástæður, orsakir og afleiðingar þeirra tafa sem orðið höfðu á verkinu sem og um frágang og gæði þeirrar vinnu sem stefndi innti af hendi skv. verksamningnum. Með viðaukasamningi þessara aðila var ákveðið að stefndi myndi aðeins sjá um efnisþátt en hann var leystur undan skuldbindingum um reisningu stálvirkis og uppsetningu klæðningar í skrifstofuhluta. Í viðaukasamningnum voru m.a. talin upp álitamál sem komið höfðu upp við framkvæmd verksins og voru einkum tengd þeim hluta þess sem lyti að vöruhúsinu. Voru aðilar viðaukasamningsins, þ.e. stefndi og Dalsnes ehf., sammála um að reyna að leysa ágreiningsmál með sérstöku samkomulagi og vinnuáætlun sem myndi fjalla um uppgjör á öllum ágreiningsatriðum sem síðan voru talin upp í punktalista. Í þeirri upptalningu kom fram „stálvirkjameistari“.
- Í nóvember 2019 höfðu deilur stefnda og Dalsness ehf. magnast og vék stefndi frá verkinu á þeim tímapunkti. Er nú svo komið að deilur þessara aðila hafa ratað til dómstóla þar sem rekin hafa verið nokkur dómsmál vegna verksins.
- Þann 11. febrúar 2020 sendi lögmaður stefnanda stefnda innheimtubréf vegna ógreiddra áðurnefndra reikninga nr. 134 og 135 sem útgefnir höfðu verið 19. desember 2018 og stefndi hafði neitað að greiða. Með innheimtubréfinu sendi lögmaður stefnanda m.a. afrit áðurnefnds óundirritaðs samnings aðila um verkið. Lögmaður stefnda svaraði með tölvupósti 19. febrúar 2020 og benti á að ástæða þess að Bjarni hefði áfram verið skráður stálvirkjameistari á húsinu hefði verið sú að Júlíus byggingarstjóri verksins hefði neitað að samþykkja Guðbjart Halldórsson sem stálvirkjameistara stefnda. Reikningum stefnanda hefði stefndi hafnað strax við útgáfu þeirra.
- Stefnandi gaf ekki út fleiri reikninga vegna verksins fyrr en 9. júlí 2021 að gefnir voru út þrír reikningar vegna vinnu við verkið sem unnin hafi verið frá nóvember 2018 til september 2020, samtals að fjárhæð 21.933.120 kr. Að viðbættum framangreindum reikningum nr. 134 og 135 nemur heildarkrafa stefnanda á hendur stefnda vegna ógreiddra reikninga því 24.932.928 kr. sem er stefnufjárhæð máls þessa.
- Þann 10. mars 2021, þ.e. fjórum mánuðum fyrir útgáfu framangreindra síðustu þriggja reikninga stefnanda, hafði lögmaður stefnanda sent stefnda erindi vegna ógreiddu 2018 reikninganna og áskilið sér rétt vegna óuppgerðrar vinnu þar sem miðað yrði við tímafjölda en ekki fast mánaðarlegt verð. Fylgdu tímaskýrslur með bréfi lögmannsins. Fram kemur í svarpósti lögmanns stefnda þann 27. maí 2021 að kröfur stefnanda hafi komið stefnda í opna skjöldu og að stefnda hafi ekki verið kunnugt um að Bjarni væri að starfa fyrir stefnda á verkstað eftir að hann hefði óskað eftir að skrá sinn stálvirkjameistara á verkið.
- Við aðalmeðferð gaf Bjarni Guðjón Bjarnason, fyrirsvarsmaður stefnanda, aðilaskýrslu. Þá gáfu vitnaskýrslur Júlíus Jóhannesson, byggingarstjóri verksins, Þór Ólafsson, starfsmaður Suðulistar ehf., Steinunn Guðmundsdóttir, fjármálastjóri stefnanda, Guðbjartur Halldórsson og Magnús G. Jónsson, fjármálastjóri stefnda. Ingvar Skúlason gaf vitnaskýrslu gegnum fjarfundabúnað. Verður vitnað til framburðar þeirra eftir því sem þurfa þykir.
Helstu málsástæður og lagarök stefnanda
- Stefnandi byggir á samningi sínum við stefnda, dags. 21. júní 2018, sem staðfestur hafi verið með tölvupósti starfsmanns stefnda, og útgefnum en ógreiddum reikningum. Fyrstu tvo reikninga stefnanda nr. 110 og 116, hafi stefndi greitt án athugasemda. Bjarni Guðjón Bjarnason, fyrirsvarsmaður stefnanda, hafi verið skráður stálvirkjameistari verksins að Korngörðum 3 allt frá því sumarið 2018 og sé enn, án þess að stefndi hafi hreyft við því andmælum.
- Stefndi hafi tekið að sér fyrir Dalsnes ehf. að reisa og sjá um byggingu á stálvirki við Korngarða 3. Sé það skilyrði fyrir veitingu framkvæmdaleyfis, sbr. m.a. 32. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og grein 4.10.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012, að stálvirkjameistari sé skráður á verkið. Þar segi m.a. að stálvirkjameistari beri ábyrgð á að öll vinna við stálvirki sé framkvæmd í samræmi við verklýsingar, önnur hönnunargögn og góða starfshætti.
- Stefnda, einu stærsta byggingarfyrirtæki landsins með áratuga reynslu af slíkum verkefnum, hafi hlotið að vera ljóst að stálvirkjameistara þyrfti á verkið og að greiða þyrfti fyrir þjónustu hans, enda felist í þjónustunni veruleg ábyrgð og skyldur. Stefndi hafi því væntanlega tekið mið af þessu í samningum sínum um verkið og gert ráð fyrir útgjöldum vegna þessa í kostnaðaráætlun sinni.
- Stefndi gat innheimt kostnað af stálvirkjameistara hjá verkkaupa sjálfum og skoraði stefnandi á stefnda að upplýsa hvort hann hafi gert það eða áskilið sér rétt til þess. Stefnandi sé enn skráður stálvirkjameistari byggingarinnar þrátt fyrir breytingu á samningssambandi stefnda og Dalsness ehf.
- Samningssamband aðila hafi hafist í júní 2018 og skyldi greiða fyrir vinnu stefnanda 12.000 kr. miðað við þrjá daga í viku og fast gjald, samtals 1.499.904 kr. með virðisaukaskatti. Fyrstu tveir reikningar stefnanda, vegna vinnu í júlí og ágúst 2018, hafi endurspeglað þetta og verið greiddir af stefnda. Næstu tveir reikningar stefnanda, fyrir vinnu í september og október 2018, sem hafi verið eins uppbyggðir og fyrri reikningarnir tveir, hafi ekki fengist greiddir, án skýringa.
- Upp hafi komið miklar deilur á milli stefnda og verkkaupa, Dalsness ehf. Upphaflega hafi aðilar samið svo um að stefnandi yrði tímabundið stálvirkjameistari verksins en tillögu stefnda að nýjum meistara hafi af einhverjum ástæðum verið hafnað af hálfu Dalsness ehf. Fyrir því geti stefnandi ekki verið ábyrgur þótt hann hafi reynt að sýna stöðunni skilning með því að bíða með frekari útgáfu reikninga um skeið, m.a. fyrir orð stefnda sem hafi sagt að Húsasmiðjan ehf. og Dalsnes ehf. væru að reyna að leysa úr málum. Á meðan hafi fallið til ýmiss konar vinna stálvirkjameistara og beri að greiða fyrir hana skv. samningssambandi aðila.
- Með innheimtubréfi í febrúar 2020 hafi stefnandi krafist greiðslu vegna hinna ógreiddu reikninga fyrir september og október 2018 og ítrekað að hann ætti inni talsverða vinnu óuppgerða vegna 2019, 2020 og 2021. Með öðru innheimtubréfi stefnanda, dags. 10. mars 2021, hafi fyrri krafa verið ítrekuð. Ítarlegar tímaskýrslur stefnanda sýni vinnu hans við verkefnið. Samkvæmt meginreglum samninga- og kröfuréttar skuli samninga halda og efna. Stefnandi krefst dráttarvaxta skv. vaxtalögum nr. 38/2001 frá gjalddaga reikninganna.
Helstu málsástæður og lagarök stefnda
- Stefndi hafnar greiðsluskyldu skv. reikningum stefnanda og kveðst hafa verið búinn að upplýsa stefnanda um að reikningarnir sem gefnir hafi verið út í desember 2018 yrðu ekki samþykktir. Þeim hafi síðan verið hafnað og þeir endursendir stefnanda. Stefnanda hafi verið fullkunnugt um að sá samningur sem hann vísi til hafi aldrei borist til stefnda þegar rætt hafi verið um að Bjarni Guðjón Bjarnason héldi tímabundið áfram störfum sem stálvirkjameistari.
- Stefndi mótmælir fram lögðum samningi enda sé hann óundirritaður. Þeir tölvupóstar sem stefnandi vísi til varði samskipti starfsmanns stefnda, starfsmanns Dalsness ehf. og Bjarna, þar sem upplýst hafi verið að Bjarni hafi samþykkt að starfa áfram sem stálvirkjameistari, enda hafi hann þá þegar verið skráður sem slíkur. Ekki hafi verið vísað í neinn samning þetta varðandi og enginn samningur fylgt póstinum. Fram lagður samningur hafi ekki borist stefnda á þessum tíma og hafi ekkert gildi. Stefnandi beri sönnunarbyrðina fyrir því að téður samningur hafi komist á en ekkert í málinu styðji það. Engin þörf hafi verið á að gera samning enda ljóst að stefndi hafi átt að útvega stálvirkjameistara á sínum vegum.
- Reikningar stefnanda, dags. 9. júlí 2021, séu tilhæfulausir. Stefndi hafi ekki óskað eftir vinnuframlagi af hálfu Bjarna þann tíma sem vinnuskýrslur og reikningarnir taka til, sem er tæpum þremur árum áður en reikningarnir voru gefnir út.
- Stefndi byggir á aðildarskorti stefnanda. Réttindi stálvirkjameistara séu persónubundin réttindi, sbr. nefndan samning, en þar sé aðili þess samnings Bjarni Guðjón Bjarnason, kt. 020660-2019. Stefnanda EOH ehf. sé hvergi getið í þeim samningi. Þar sem stefnandi byggi á nefndum samningi og stefnandi sé ekki aðili þess samnings telji stefndi að um aðildarskort sóknarmegin sé að ræða og beri því að sýkna stefnda, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991.
- Yrði talið að einhver fótur væri fyrir kröfum stefnanda í málinu séu þær niður fallnar vegna tómlætis. Kröfuhafa beri að setja fram kröfur án ástæðulauss dráttar í öllum tilvikum. Krafa stefnanda sé umdeild og henni hafi verið hafnað strax af hálfu stefnda þegar tveir reikningar bárust í desember 2018. Sé krafa umdeild, um grundvöll hennar eða fjárhæð, leggi slíkt ríkari skyldur á kröfuhafann að láta reyna á réttmæti kröfunnar við fyrsta tækifæri.
- Kröfur stefnanda séu, vegna aðgerðaleysis hans eftir höfnun reikninganna frá desember 2018, fallnar niður fyrir tómlæti. Innheimtubréf vegna þeirra reikninga hafi verið sent í febrúar 2020 og stefndi ítrekað höfnun krafnanna. Ekkert hafi gerst af hálfu stefnanda í framhaldinu fyrr en í mars 2021. Í því bréfi hafi fyrst verið gerður áskilnaður um enn frekari kröfur. Reikningar stefnanda séu síðan að stærstum hluta dagsettir í júlí 2021 og mál þetta þingfest í október 2021. Því hafi liðið tæp þrjú ár frá því að kröfum hafi verið hafnað uns málið hafi verið þingfest. Kröfur skulu settar fram tímanlega og af réttum aðila og þeim skal fylgja eftir með forsvaranlegum hætti. Stefnanda mátti vera ljóst að reikningum yrði hafnað þar sem stefndi hafði þegar tilkynnt stálvirkjameistara í stað Bjarna.
- Stefnandi hefði getað gefið út reikninga í rauntíma í stað algers tómlætis hans. Stefndi hafi meðan á verkframkvæmdum stóð verið í góðri trú um að samningssambandi hans og stefnanda væri lokið þegar stefndi tilkynnti sinn stálvirkjameistara á verkið. Hafi Bjarni verið ósáttur við framkvæmd og vinnu Guðbjarts sem stálvirkjameistara hafi honum borið að halda uppi mótmælum og krefja stefnda um greiðslu þá þegar. Stefndi hafi tilkynnt þegar í ágúst 2018 hver yrði stálvirkjameistari á verkinu og þar með hafi Bjarna verið ljóst að ekkert samningssamband hafi verið til staðar lengur.
- Þá hafi Bjarna verið ljóst að starf sem stálvirkjameistari á vegum stefnda hafi aldrei getað samræmst starfi Bjarna sem eftirlitsmanns verkkaupa á verkinu. Þá hafi fyrirtæki í eigu Bjarna tekið að sér herslur og suður við stálvirkið fyrir stefnda. Háttsemi Bjarna og stefnanda geti því ekki talist forsvaranleg sem hafi meira vægi þegar tómlætisáhrif séu metin. Með dómkröfum sínum sé stefnandi beggja megin borðsins og gæti hagsmuna Dalsness ehf. sem standi í deilumálum við stefnda. Stefnandi hafi ekki getað búist við að stefndi myndi greiða kröfur hans í ljósi málsatvika allt frá því að stefndi hafði tilkynnt Guðbjart Halldórsson sem stálvirkjameistara að verkinu.
- Þá byggir stefndi á því að stefnandi eða Bjarni hafi þegar fengið greitt fyrir hlutverk sitt sem stálvirkjameistari þar sem Dalsnes ehf. hafi einnig gert tilhæfulausar kröfur á hendur stefnda vegna vinnu stálvirkjameistara þrátt fyrir aðkomu Guðbjarts Halldórssonar. Dalsnes ehf. hafi þegar óskað dómkvadds mats á kostnaði við stálvirkjameistara á þeim tíma sem kröfur stefnanda taki til. Stefndi telji það samantekin ráð af hálfu Júlíusar, byggingarstjóra verksins, og Bjarna að hafna Guðbjarti sem stálvirkjameistara án málefnalegra forsendna.
- Stefndi vísar til þess að Bjarni hafi starfað sem eftirlitsmaður Dalsness ehf. vegna sömu framkvæmda. Dalsnes ehf. og stefndi eigi nú í dómsmálum sín á milli, m.a. um starf stálvirkjameistara. Verði talið að stefnandi eigi kröfur á hendur stefnda í máli þessu sé ljóst að stefndi geti haft uppi gagnkröfur vegna starfa stálvirkjameistara nái kröfur Dalsness ehf. fram að ganga gagnvart stefnda.
- Verði fallist á kröfur stefnanda á hendur stefnda beri að lækka þær verulega. Skorar stefndi á stefnanda að leggja fram yfirlit um alla útgefna reikninga á hendur Dalsnesi ehf., Innnesi ehf. og tengdum félögum frá júlí 2018 til og með október 2021 og upplýsa hvort virðisaukaskattur hafi verið greiddur af þeim reikningum sem stefnt er fyrir eða hvort reikningarnir hafi verið bakfærðir í bókhaldi eftir útgáfu þeirra og virðisaukaskatturinn innskattaður með því móti. Stefndi upplýsir að hann hafi ekki gert sérstakar kröfur vegna kostnaðar stálvirkjameistara í dómsmáli á hendur Dalsnesi ehf.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um greiðsluskyldu stefnda á fimm reikningum stefnanda vegna vinnu fyrirsvarsmanns stefnanda sem stálvirkjameistari við byggingu hússins að Korngörðum 3. Ágreiningur aðila varðar einkum það hvort samkomulag hafi verið með aðilum um hvort Bjarni, fyrirsvarsmaður stefnanda, skyldi áfram starfa sem stálvirkjameistari að byggingunni eftir að stefndi hafi óskað eftir því við byggingarstjóra verksins að Guðbjartur Halldórsson yrði skráður stálvirkjameistari stefnda á verkinu í stað Bjarna. Þá hafnaði stefndi að greiða tvo reikninga stefnanda vegna vinnu Bjarna sem útgefnir voru í desember 2018. Næstu þrjá reikninga vegna verksins gaf stefnandi út tveimur og hálfu ári síðar eða þann 9. júlí 2021. Þess skal getið að óumdeilt er að Bjarni, fyrirsvarsmaður stefnanda, var eftirlitsmaður verkkaupa á verkstað og sinnti að auki fleiri verkum fyrir verkkaupann, sem sneru að byggingu hússins.
- Stefnandi ber sönnunarbyrðina fyrir staðhæfingum sínum um tilvist og efni hins umþrætta samkomulags hans við stefnda, þar með talið um að óundirrituð samningsdrög stefnanda hafi í reynd verið samþykkt af stefnda. Ekki hefur verið sýnt fram á að stefndi hafi móttekið þau samningsdrög um vinnu Bjarna sem stálvirkjameistara við bygginguna fyrr en drögin voru send stefnda sem fylgiskjal með innheimtubréfi þann 11. febrúar 2020, sem er sá dagur sem stefndi gengst við að hafa móttekið drögin. Stefnandi ber sönnunarbyrði fyrir að hafa afhent drögin fyrr og hefur ekki axlað hana gegn mótmælum stefnda. Verður þannig ekki fallist á að samkomulag aðila sé þess efnis sem greinir í nefndum óundirrituðum samningsdrögum.
- Á hitt ber að líta að með tölvupóstsamskiptum aðila og bókunum í verkfundargerðir þykir fram komin sönnun þess að aðilar hafi gert samkomulag um að Bjarni skyldi áfram skráður tímabundið sem stálvirkjameistari á verkið fyrir hönd stefnda. Hér lítur dómurinn einkum til tölvupósts frá Júlíusi byggingarstjóra til Bjarna og Ingvars Skúlasonar, þáverandi starfsmanns stefnda, o.fl. þann 1. september 2018 þar sem segir að á síðasta fundi hafi stefndi tilkynnt að Guðbjartur Halldórsson yrði stálvirkjameistari stefnda en að Bjarni, eftirlitsmaður verkkaupa, hefði „leyst það hlutverk tímabundið fyrir Húsasmiðjuna“. Að þessu virtu ásamt öðrum gögnum málsins er lagt til grundvallar að báðir aðilar hafi haft þær væntingar um samningssamband sitt að það væri til bráðabirgða og því tímabundið sem og að fyrirsvarsmanni stefnanda hafi verið tilkynnt á fundi aðila fyrir 1. september 2018, svo sem fram kemur í tölvupósti Júlíusar byggingarstjóra þann dag, að stefndi hefði ákveðið að ljúka samningssambandi þeirra og að Guðbjartur Halldórsson myndi leysa hann af hólmi sem stálvirkjameistari. Þá vekur athygli að hluti reikninga stefnanda á hendur stefnda varðar vinnu stefnanda eftir það tímamark er stefndi vék síðan frá reisningu skrifstofuhluta byggingarinnar.
- Þó svo að meistararéttindi séu persónubundin réttindi, sbr. 9. og 10. gr. iðnaðarlaga nr. 42/1978 og grein 4.10.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012, er ekki fallist á það með stefnda að um aðildarskort til sóknar sé að ræða í málinu. Fyrirsvarsmanni stefnanda er heimilt að lögum að haga reikningagerð vegna vinnu sinnar sem stálvirkjameistari með þeim hætti að reikningar séu útgefnir af einkahlutafélagi hans, líkt og hér háttar til. Engin rök standa heldur til annars en að lagaleg ábyrgð stálvirkjameistara á verkinu sé allt að einu bundin við persónu meistarans, ótengt því hvernig hann kjósi að haga reikningagerð sinni í hvert sinn. Í þessu sambandi er einnig litið til þess að stefndi greiddi fyrstu tvo reikninga stefnanda vegna vinnu Bjarna, án athugasemda. Loks skiptir hér máli að fyrir liggur að í tölvupósti Bjarna til Ingvars Skúlasonar, starfsmanns stefnda, og Júlíusar byggingarstjóra þann 22. júní 2018 kemur fram að Bjarni staðfesti að aðilar hafi gert með sér samkomulag um uppáskrift Bjarna sem meistara á verkinu en þar tiltók Bjarni einnig nafn stefnanda (EOH) innan sviga. Ekki liggur neitt fyrir um að athugasemdir hafi verið gerðar við þá tilkynningu af hálfu fyrrgreinds starfsmanns stefnda, sem þó móttök sannarlega umræddan tölvupóst.
- Stefndi hefur ekki mótmælt því að Bjarni hafi haft viðveru á verkstað, bæði fyrir og eftir að stefndi hafnaði að greiða reikningana tvo sem stefnandi gaf út í desember 2018. Verður því sérstaklega að skoða hvort viðvera Bjarna á verkstað hafi gefið stefnda tilefni til að ætla að hann væri áfram að sinna vinnuskyldum sem stálvirkjameistari á verkinu, sem sinnt væri á kostnað stefnda og stefndi hefði þá átt að gera athugasemdir við, eða hvort stefndi hafi mátt ætla að viðvera Bjarna á verkstaðnum ætti sér aðrar skýringar.
- Fyrir liggur að Bjarni, fyrirsvarsmaður stefnanda, átti nokkuð fjölþætta aðkomu að byggingu hússins að Korngörðum 3 en óumdeilt er að hann sinnti verkeftirliti með verkinu hvað varðar stálvirki byggingarinnar fyrir hönd verkkaupans Dalsness ehf. frá upphafi verks. Þá átti hann einnig aðkomu að hönnun stálvirkis hússins, ásamt öðrum. Einnig mun hann vera skráður eigandi félagsins Suðulistar ehf. sem sinnti m.a. framangreindu hersluverkefni í byrjun árs 2019, enda þótt hann hafi í skýrslu sinni fyrir dómi lýst því að hann hefði í reynd ekki átt aðkomu að rekstri þess félags um langa hríð. Samkvæmt framansögðu, einkum með tilliti til þess verkeftirlits sem Bjarni sinnti í þágu Dalsness ehf., verður að álykta sem svo að viðvera Bjarna á verkstað hafi ekki gefið stefnda sérstakt tilefni til að ætla að stefnandi liti svo á að hann ætti enn í samningssambandi við stefnda um að veita þjónustu sem stálvirkjameistari eftir að stefndi hafði tilkynnt að hann hefði samið við Guðbjart Halldórsson um að gegna því hlutverki.
- Í málinu hafa verið lagðar fram fjöldamargar eftirlitsskýrslur Bjarna vegna verksins. Samkvæmt efni skýrslnanna voru þær afhentar byggingarstjóra og stefnda en í aðilaskýrslu sagðist Bjarni hafa gert skýrslurnar sem verkeftirlitsmaður og sem stálvirkjameistari. Dómurinn, sem skipaður er sérfróðum meðdómara, lítur til þess að hefðbundið hlutverk stálvirkjameistara sé m.a. að gefa starfsmönnum verktaka í sínu daglega starfi við byggingu húss fyrirmæli um rétt vinnubrögð og vekja athygli á frávikum í rauntíma. Hins vegar lúti gerð skýrslna, líkt og þeirra sem fyrir liggja í málinu, að því að gera athugasemdir við verklag eftir að búið sé að inna tiltekna verkþætti af hendi og ástæða sé til að gera athugasemdir við afrakstur verksins. Slík skýrslugerð sé að jafnaði framkvæmd af verkeftirlitsmönnum og lögð fyrir bæði verkkaupa og verktaka. Samsvarandi skýrslugerð sem er hluti af innra gæðakerfi stálvirkjameistara er að jafnaði eingöngu lögð fyrir verktaka til úrbóta frávika sem koma upp í rauntíma til að tryggja gæði verksins og fyrirbyggja að upp komi svo víðtæk frávik sem hér um ræðir. Fyrirliggjandi skýrslur beri þannig skv. efni sínu að mati dómsins með sér að vera hefðbundnar skýrslur verkeftirlitsmanns en beri þess ekki sérstaklega merki að skýrsluhöfundur, þ.e. Bjarni, hafi til viðbótar við hlutverk eftirlitsmanns sinnt skyldum stálvirkjameistara við gerð þeirra.
- Þá lítur dómurinn til þess að eftir að bókað hafði verið um fyrirhugaða aðkomu Guðbjarts sem stálvirkjameistara í verkfundargerð 6. september 2018, sem og til samræmis við áðurnefndan tölvupóst Júlíusar byggingarstjóra 1. september 2018, hafi Guðbjartur framkvæmt verkefni sem teljist hefðbundin verkefni stálvirkjameistara. Má hér nefna að Guðbjartur mun í desember 2018 hafa skilað skýrslu um herslur stálgrindarinnar og talið herslurnar fullnægjandi. Skýrslan sjálf liggur ekki fyrir í málinu og getur dómurinn ekki fjallað um hvers eðlis sú skýrsla var en fram kom í máli vitnanna Júlíusar byggingarstjóra, Guðbjarts og Ingvars Skúlasonar sem komu fyrir dóminn að í kjölfar þeirrar skýrslu Guðbjarts hafði Bjarni gert prófanir og úttektir á herslum stálgrindarinnar og talið þær ófullnægjandi. Nefndi Júlíus byggingarstjóri fyrir dómi að hersluskýrsla, líkt og sú sem Guðbjartur skilaði í desember 2018, sé að jafnaði mikilvægasta skýrsla stálvirkjameistara í hverju verki og að nefnd skýrsla Guðbjarts hefði verið alls ófullnægjandi. Þó svo að skýrslan liggi ekki fyrir í málinu er óumdeilt og staðfest með framburði vitna að þessi skýrsla hafi verið unnin af Guðbjarti og að athugasemdir Bjarna í kjölfar verkeftirlits hans hafi síðan leitt til framangreindrar aðkomu Suðulistar ehf. að hersluverkinu. Þá hafa í málinu verið lagðir fram tölvupóstar á tímabilinu 23. janúar til 27. mars 2019 milli Guðbjarts Halldórssonar og starfsmanns Suðulistar ehf. um framkvæmd hersluverkefnisins. Að mati dómsins þykir með þessu sýnt að Guðbjartur hafi þar með sinnt verkefnum sem öllu jöfnu er sinnt af stálvirkjameisturum. Athygli vekur að Bjarni, fyrirsvarsmaður stefnanda, fékk afrit af a.m.k. hluta þessara póstsamskipta og var því ljóst eða mátti vera ljóst að Guðbjartur var að sinna störfum sem eðli málsins skv. tilheyra stálvirkjameistara byggingar. Gat Bjarni ekki verið í vafa um að stefndi liti svo á að annar aðili væri að sinna því hlutverki fyrir sína hönd.
- Að þessu virtu verður lagt til grundvallar að ekki hafi verið sýnt fram á að Bjarni, fyrirsvarsmaður stefnanda, hafi, hvað sem liði formlegri skráningu hans á verkið sem stálvirkjameistara, sinnt eiginlegum verkefnum stálvirkjameistara eftir að tilkynnt var um aðkomu Guðbjarts að verkinu.
- Framangreindu til viðbótar er litið til þess að Bjarni var skráður mættur á alla verkfundi sem fyrir liggja í málinu og í hvert sinn var bókað að hann væri mættur á vegum verkkaupa, þ.e. á vegum Dalsness ehf. Í engu tilviki var viðvera Bjarna á verkfundunum bókuð á vegum stefnda. Í sömu verkfundargerðum var að finna nafn Guðbjarts sem ýmist var skráður viðstaddur eða sem móttakandi fundargerðanna fyrir hönd stefnda frá og með verkfundi 14. júlí 2018.
- Óháð álitaefnum um hlutverk byggingarstjóra og heimild hans til að hafna Guðbjarti, sem stefndi ákvað að tæki við hlutverki stálvirkjameistara á verkinu, var Bjarna, fyrirsvarsmanni stefnanda, ekki skylt að halda þá áfram sem stálvirkjameistari verksins. Gat hann ekki vænst þess, þótt hann væri með viðveru á verkstað, m.a. sökum hlutverks síns sem verkeftirlitsmaður fyrir verkkaupann, að hann nyti samningsbundins réttar til að samkomulag við stefnda, sem átti eins og áður segir að vera tímabundið, myndi vara áfram eftir að stefndi hafði sérstaklega tilkynnt Bjarna síðsumars 2018 að Guðbjartur tæki við hlutverki stálvirkjameistara, eins og staðfest er m.a. með tölvupósti 1. september 2018 og bókun á verkfundi 6. september sama ár.
- Þá verður að líta til þess að í málinu hefur verið lagt fram afrit bréfs Bjarna, fyrirsvarsmanns stefnanda, til lögmanns Dalsness ehf. vegna ágreinings milli stefnanda og Dalsness ehf. Í bréfi Bjarna kemur fram að það hafi verið að ósk byggingarstjóra f.h. verkkaupa að Bjarni sæti áfram sem stálvirkjameistari á vöruhúsahluta byggingarinnar vegna þess að byggingarstjóri hefði aldrei samþykkt stálvirkjameistara stefnda. Fyrir liggur að byggingarstjórinn starfaði ekki á vegum stefnda og var ekki bær til að skuldbinda stefnda í þessum efnum.
- Að öllu framangreindu virtu telst sú staðhæfing stefnanda ósönnuð að hann hafi starfað sem stálvirkjameistari á grundvelli samnings við stefnda eftir 1. september 2018. Þá er áður rakið að gögn um vinnu fyrirsvarsmanns stefnanda á verkstað í kjölfarið beri þess ekki merki að hafa byggst á hlutverki stálvirkjameistara heldur staðið í tengslum við verkeftirlit, en stefnandi gegndi síðarnefnda hlutverkinu í þágu verkkaupa á grundvelli samkomulags við hann. Ber því að sýkna stefnda af kröfum stefnanda í máli þessu.
- Rétt þykir í ljósi atvika málsins og allra aðstæðna að málskostnaður falli niður, sbr. 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
- Af hálfu stefnanda flutti málið Árni Helgason lögmaður. Af hálfu stefnda flutti málið Smári Hilmarsson lögmaður. Dóm þennan kveður upp Sigríður Rut Júlíusdóttir, dómsformaður. Meðdómendur voru Arnaldur Hjartarson héraðsdómari og Jón Ágúst Pétursson byggingatæknifræðingur og húsasmíðameistari.
DÓMSORÐ
Stefndi, Húsasmiðjan ehf., er sýkn af kröfum stefnanda, EOH ehf. Málskostnaður fellur niður.
Sigríður Rut Júlíusdóttir Arnaldur Hjartarson Jón Ágúst Pétursson