Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. júní 2020.
Mál nr. S-3266/2020:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Skilorðsrof. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 19. maí 2020, á hendur á hendur X, kt. [...], [...], [...], „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 28. janúar 2020, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 1,62‰ og amfetamín 350 ng/ml) um Hraunbæ í Reykjavík, við Dominos, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 19. maí 2020 á hann að baki nokkurn sakaferil og hefur ítrekað verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum og akstur sviptur ökuréttindum. Nú síðast var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júlí 2019. Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilorð framangreinds dóms og verður refsingin því tekin upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 114.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 181.162 krónur í annan í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 114.700 krónur, og 181.162 krónur í annan í sakarkostnað.