Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-2564/2020:

Héraðssaksóknari

(Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

X

Ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun, sbr. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr.

19/1940, með því að hafa í ágúst 2008 í hótelherbergi erlendis, án samþykkis haft

samræði við brotaþola, með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung, en meðal

annars kastaði ákærði sér á brotaþola þar sem hún lá í rúmi og hélt henni fastri, og eftir

(Björgvin Jónsson lögmaður)

Ákærði var sakfelldur fyrir kynferðisbrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun, sbr. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í ágúst 2008 í hótelherbergi erlendis, án samþykkis haft samræði við brotaþola, með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung, en meðal annars kastaði ákærði sér á brotaþola þar sem hún lá í rúmi og hélt henni fastri, og eftir að hún féll í gólfið í átökum þeirra aftraði ákærði henni að standa á fætur með því að grípa í fótlegg hennar svo hún skall harkalega með hné í gólfið og datt á bakið en ákærði setti hné í bringu hennar og eftir að brotaþoli náði að skríða upp í rúm kom ákærði á eftir henni, lagðist ofan á hana og hafði við hana samræði, en af þessu hlaut hún marbletti og sár á ýmsum stöðum. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 2., 6. og 7. töluliða 1. mgr. 70. gr. og b- og c-liða 195. gr. almennra hegningarlaga. Þá var jafnframt litið til þess hversu langt var um liðið frá brotinu og þess hve langan tíma rannsókn málsins tók. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í tvö og hálft ár en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola 2.500.000 krónur í miskabætur.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.1. mgr. 194. gr.195. gr.