Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 5. júní 2019.
Mál nr. S-385/2019:
S-385/2019:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Jan Guðmundssyni
Mál
þetta, sem dómtekið var 29. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af
lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2019, á hendur Davíð Jan
Guðmundssyni, kt. 000000-0000,
[...]
, Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 22.
febrúar 2019 ekið bifreiðinni
[...]
sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega
Orrahólum 1, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst
brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr.
(Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fimm mánuði.
Mál þetta, sem dómtekið var 29. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2019, á hendur Davíð Jan Guðmundssyni, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 22. febrúar 2019 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 9,0 ng/ml og í þvagi fannst tetrahýdrókannabínólsýra) um Norðurhóla í Reykjavík, að Orrahólum 1, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. apríl 2019, á ákærði nokkurn sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2011. Samkvæmt því hefur ákærði margoft verið fundinn sekur um umferðarlagabrot samkvæmt lögum nr. 50/1987, nánar tiltekið samtals fimm sinnum fyrir að aka undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna og fjórum sinnum fyrir að aka sviptur ökurétti, nú síðast með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 5. júlí 2017 er hann var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir slík brot.
Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærði hafi nú í sjötta sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma, sbr. 1. og 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, verið fundinn sekur um að aka undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna og í fimmta sinn sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðbrands Jóhannessonar lögmanns, 149.079 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 77.314 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi fyrir hönd Elínar Hrafnsdóttur aðstoðarsaksóknara.
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Davíð Jan Guðmundsson, sæti fangelsi í 5 mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðbrands Jóhannessonar lögmanns, 149.079 krónur og 77.314 krónur í annan sakarkostnað.
Þórhildur Líndal