Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-3779/2019:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sergey Gaysin

(Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Akstur án ökuréttinda. Fangelsi. Hegningarauki. Játningarmál. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi en um hegningarauka var að ræða við fyrri dóm.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 27. ágúst 2019, á hendur Sergey Gaysin, kt. [...], óstaðsettur í hús, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa föstudaginn 6. október 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti suður Sæbraut í Reykjavík uns lögregla stöðvaði aksturinn skömmu síðar við Holtaveg.

Mál 007-2017-61198

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru.

Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsettu 20. ágúst 2019, gekkst ákærði undir sektir með lögreglustjórasáttum 10. ágúst 2015 og 24. nóvember 2015, fyrir að aka sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þann 31. janúar 2017, fyrir líkamsárás, of hraðan akstur, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að aka sviptur ökurétti.

Við ákvörðum refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærði gerist nú í þriðja skipti innan ítrekunartíma, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sekur um að aka sviptur ökuréttindum.

Að endingu ber þess að geta að ákærði var dæmdur í 4 mánaða fangelsi með Héraðsdómi Reykjavíkur [...] fyrir brot gegn blygðunarsemi, hótanir og stórfelldar ærumeiðingar gegn [...]. Það brot sem ákærði er sakfelldur fyrir nú var framið fyrir uppsögu framangreinds dóms og verður ákærða því dæmdur hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 84.320 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Engan sakarkostnað leiddi af málinu. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari. Harpa Sólveig Björnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Sergey Gaysin, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 84.320 krónur.

Harpa Sólveig Björnsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 71. gr.78. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.