Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-375/2019:

S-375/2019:

Ákæruvaldið

(Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Guðbjarti Hólm Ólafssyni

Mál

þetta, sem dómtekið var 29. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2019, á hendur

Guðbjarti

Hólm Ólafssyni, kt. 000000-0000,

[...],

Reykjavík,

fyrir gripdeildir á árinu 2017 með því að hafa:

Miðvikudaginn 21. júní, við bensínstöð Olís á

Akureyri, dælt eldsneyti að andvirði 14.730 krónur á bifreiðina

[...]

og ekið henni á brott

án þess að greiða fyrir eldsneytið.

Föstudaginn 4. ágúst, við bensínstöð Olís við

Gullinbrú, Reykjavík, dælt eldsneyti að andvirði 11.969 krónur á

bifreiðina

[...]

og ekið henni á brott

án þess að greiða fyrir eldsneytið.

3.

Sunnudaginn 13. ágúst, við bensínstöð Olís við Langatanga,

Mosfellsbæ, dælt eldsneyti að andvirði 12.690 krónur á bifreiðina

[...]

og ekið henni á brott

án þess að greiða fyrir eldsneytið.

4. Föstudaginn 8. september, við bensínstöð

Olís við Ánanaust, Reykjavík, dælt eldsneyti að andvirði 7.083 krónur á

bifreiðina

[...]

og ekið henni á brott

án þess að greiða fyrir eldsneytið.

Teljast

brotin varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls

sakarkostnaðar.

Ákærði

sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði

verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1.

mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í

fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með

vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind

háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði

er fæddur í

[...]

hegningarlaga nr. 19/1940, nánar tiltekið fyrir að hafa alls fjögur skipti tekið

eldsneyti en ekið á brott án þess að greiða fyrir það. Samkvæmt framlögðu

sakavottorði ákærða, dagsettu 16. apríl 2019, á hann sakaferil að baki sem þó

Með hliðsjón af framangreindu

og sakarefni þessa máls, sem og fjölda tilvika, sbr. efni ákæru, þykir refsing

Fangelsi. Gripdeild. Skilorðsbundnir dómar. Útivist.

Ákærði sakfelldur fyrir gripdeildir með því að hafa í fjögur skipti ekið í burtu án þess að greiða fyrir eldsneyti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í tvö ár.

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2019, á hendur Guðbjarti Hólm Ólafssyni, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir gripdeildir á árinu 2017 með því að hafa:

  1. Miðvikudaginn 21. júní, við bensínstöð Olís á Akureyri, dælt eldsneyti að andvirði 14.730 krónur á bifreiðina [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
  2. Föstudaginn 4. ágúst, við bensínstöð Olís við Gullinbrú, Reykjavík, dælt eldsneyti að andvirði 11.969 krónur á bifreiðina [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið. 3. 3. Sunnudaginn 13. ágúst, við bensínstöð Olís við Langatanga, Mosfellsbæ, dælt eldsneyti að andvirði 12.690 krónur á bifreiðina [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið. 4. 4. Föstudaginn 8. september, við bensínstöð Olís við Ánanaust, Reykjavík, dælt eldsneyti að andvirði 7.083 krónur á bifreiðina [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið. Teljast brotin varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í [...] og er í máli þessu sakfelldur fyrir gripdeild sbr. 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, nánar tiltekið fyrir að hafa alls fjögur skipti tekið eldsneyti en ekið á brott án þess að greiða fyrir það. Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærða, dagsettu 16. apríl 2019, á hann sakaferil að baki sem þó hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar í málinu. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls, sem og fjölda tilvika, sbr. efni ákæru, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Guðbjartur Hólm Ólafsson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þórhildur Líndal