Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 18. febrúar 2019.
Mál nr. S-29/2019:
S-29/2019:
Ákæruvaldið
(Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Dominika Blajeszczak
I
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Skilorð.
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns.
ákæru 17. janúar 2019 á hendur ákærðu; „Dominika Blajeszczak, kennitala [...], [...], [...], fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 17. júní 2018, í Austurstræti í Reykjavík, hrækt í andlit lögreglumannsins [...], sem var við skyldustörf. Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
II
Ákærða hefur skýlaust játað þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og tjáði ákærandi og ákærða sig sérstaklega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Tók ákærða sérstaklega fram að hún iðrist gerða sinna. Játning ákærðu fær fulla stoð í gögnum málsins. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og er brot hennar þar rétt heimfært til refsiákvæða.
III
Ákærða er fædd árið [...]. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur hún þrisvar gengist undir greiðslu sektar með sektargerð lögreglustjóra í tveimur tilvikum vegna umferðarlagabrota og einu sinni vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Við ákvörðun refsingar ákærðu nú lítur dómurinn til þess, ákærða til málsbóta, að hún játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og iðrast gerða sinna, sbr. 8. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til framangreinds þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Dóm þennan kveður upp Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Dominika Blajeszczak, sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir